Morgunblaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ á götunni. Reyni Bretar að fara svipaða leið sé það dæmt til að mis- takast. „Ég er sammála um þetta,“ segir embættismaðurinn. „Við erum að hverfa frá formlegu fyrirkomulagi þar sem stjórnvöld koma fram vilja sínum.“ Spurningin sé hins vegar hvernig eigi að ná til þeirra, sem eru farnir að aðhyllast öfgar, og laga þá aftur að samfélaginu. Til þess þurfi fólk með þekkingu, sem nýtur viðurkenningar, getur lagt út trúarbókstafinn og mætir þörfum breskra múslíma. „Mistökin voru þau að fram til 2001 vorum við að fást við málefni kynþátta, ekki trúarleg mál,“ segir hann. „Nú erum við að reyna að fá hingað fræðimenn, sem geta ögrað og fengið fólk til að snúa baki við öfgum. Múslímasamfélagið í Bret- landi er fjölbreytt og við erum ekki að reyna að búa til breskt íslam heldur breskt samfélag.“ Hann bendir á að múslímar hafi boðið sig fram til þings og nú sitji fjórir múslímar á þingi, en þeir hafi ekki verið kosnir í krafti trú- arinnar. „Fyrsta kynslóðin á arfleifð,“ segir hann. „En fyrir aðra og þriðju kynslóð eru engin önnur heimkynni. Þær eiga heima hér. Ég talaði um daginn við konu, sem talaði með Birmingham-framburði. Ef ég hefði ekki séð hana hefði ég haldið að hún væri hvít.“ Stefna breskra stjórnvalda er að vinna með múslímasamfélaginu og fá það til liðs við sig í að uppræta öfgar. Það getur hins vegar reynst erfitt í núverandi andrúmslofti, ekki síst vegna þess að ekki er allt- af hægt að fara mjúku leiðina í lög- regluaðgerðum. Viðmælandi Morg- unblaðsins ítrekar að hvað sem líði aðgerðum gegn hryðjuverkamönn- um og handtökum megi fólk hafa sínar skoðanir og setja þær fram. „Þetta er ekki lögregluríki,“ segir hann. „Spurningin er hvenær verð- ur ímami ögrandi. Bresk lög eru skýr: sá sem vegsamar ofbeldi er ábyrgur gagnvart lögum. Ósvikin pólitísk umræða er leyfð, en um leið og byrjað er að egna fólk þarf að taka á því. En þú getur talað um Írak, Kasmír, Palestínu, skort á menntun og félagsleg vandamál. Leiðtogar okkar þurfa að leggja verk sín í dóm kjósenda í hverjum kosningum.“ Vandi bresku lögreglunnar er mikill. Hún þarf að fá múslím- asamfélagið til að vinna með sér, afla sér trausts og trúnaðar. Í því skyni hefur verið gert átak innan lögreglunnar til að uppræta kyn- þáttafordóma og laða fólk af öllum kynþáttum til starfa innan hennar. „Sprengjuárásirnar 7. júlí breyttu því hvernig við vinnum,“ segir Glen Allison, yfirmaður í Lundúnalögreglunni. „Nú er stefn- an að fara inn í hverfin.“ Hann seg- ir að ekki megi heldur gleyma því að lögreglan hefur ekki bara það hlutverk að finna hryðjuverka- menn. Hún þarf einnig að vernda múslíma, sem finnst að sér sótt í því andrúmslofti, sem skapast hef- ur eftir hryðjuverkin 2005. Í London eru 30 þúsund lög- regluþjónar, langflestir hvítir, en lögregluþjónum af öðrum kynþátt- um fer fjölgandi. „Það eru framfarir hjá stofn- uninni,“ segir Ahmed Farouk lög- regluforingi. „Sanngirni er haldið fram, en það tekur tíma fyrir menn að hækka í tign. Það kemur upp óánægja, en það vill heldur enginn ná framgangi vegna þess hvernig húð hans er á litinn.“ Gagnrýnin á breska fjölmiðla er reyndar hörð úr öllum áttum, hvort sem í hlut eiga embættismenn, lög- regla eða forustumenn múslíma. „Pressan elskar frétt um lögregl- una og fréttir um múslíma,“ segir Farouk. „Þegar þetta tvennt fer saman stenst hún ekki freist- inguna.“ Gjá milli kynslóða Fréttaflutningurinn væri hins vegar ekki með þessum hætti ef engin hryðjuverk hefðu verið fram- in. Í Blackburn, sem er norðvestur af London, er stórt múslím- asamfélag og sömuleiðis í ná- grannabæjunum Preston og Accr- ington. Á samtölum við lögreglu, kennara og félagsráðgjafa kemur fram mynd af samfélagi þar sem gjá hefur myndast milli kynslóða. Þar er merki um vandamál þegar krakkarnir snúa baki við moskunni. Yngri kynslóðinni finnst sú eldri ekki hlusta. Eldri kynslóðin lifir að hluta til í annarri álfu og ræður ekki við árekstur vestræns og múslímsks lífsstíls. Foreldrarnir reyna að halda í sína menningu, en börnin deila henni ekki með þeim. Móðurmál barnanna er hins vegar enska og vestrænn lífsstíll blasir með allt öðrum hætti við þeim. „Mörg vandamálanna eru ekki trúarleg heldur menningarleg,“ segir einn viðmælandi Morg- unblaðsins. Reuters Trúin Maður kemur til að biðjast fyrir í mosku í Birmingham á Englandi. U mræðan um hryðjuverk hefur gert þaðað verkum að athyglin hefur að mikluleyti beinst að drengjum og körlum í samfélagi múslíma. Umræðan um konur hef- ur einkum snúist um klæðaburð og hvort þær beri slæður og blæjur, en hún er aðeins angi af miklu stærra umræðuefni. Í heimsókn til Preston og Blackburn kom í ljós að múslímakonur eiga við margvíslegan vanda að glíma. Í norðurhluta Englands fá konur til dæmis í mörgum tilfellum ekki að- gang að moskunni. Í umræðum, sem efnt var til fyrir blaðamenn frá Austurlöndum, Afríku og Evrópu í Preston, komu fram skiptar skoðanir um þetta atriði og var meðal annars sagt að sumar konur vildu ekki fara í mosk- una og hefðu annað fyrir stafni. Á móti var bent á að þær gætu ekki valið. Berjast fyrir rétti einstaklingsins Jack Straw, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins á þingi, vakti alþjóðlega athygli þegar hann gagnrýndi það að múslímakonur hyldu vit sín þegar þær kæmu til fundar við hann. Umræð- an á fundinum í Preston um það hvort konur skuli ganga með blæju eða slæðu snerist líka um það að vestrænt samfélag yrði að virða persónufrelsi einstaklingsins til að ákveða sjálfur höfuðbúnað sinn. Minna fór fyrir um- ræðu um það hvort múslímasamfélagið tryggði konum sjálfsákvörðunarrétt í þessum efnum, en á fundinum kom fram að í múslím- asamfélaginu væri litið niður á konur, sem ekki bæru slæðu. Blaðamaður frá Marokkó, sem klæddur var í vestræn föt, sagði að hann hefði verið drepinn ef hann hefði klætt sig með þessum hætti fyrir 200 árum í heimalandi sínu. „Af hverju að berjast fyrir slæðunni? Það á að berjast fyrir rétti einstaklingsins, berjast fyr- ir systur okkar hérna, sem hefur ákveðið að ganga ekki með slæðu.“ Á fundi í Blackburn þar sem ekki var talað undir nafni til þess að umræðan yrði óþving- uð var rætt um heimilisofbeldi á hendur múslímskum konum. Þar kom fram að iðu- lega væru konum sem væru beittar heimilis- ofbeldi allar bjargir bannaðar. Þær hefðu hvorki aðgang að félagslegri aðstoð né heil- brigðisþjónustu. Þvinguð brúðkaup eru enn algeng í sam- félagi múslíma og iðulega er brúðurin sótt til gömlu heimkynnanna, en það getur reyndar einnig átt við um brúðgumann. Bakgrunnur hjóna, sem leidd eru saman með þessum hætti, getur verið gerólíkur og þegar þar við bætist að fólk getur verið neytt til að eigast er það ávísun á að illa fari. Konur geta einnig átt erfitt uppdráttar í hjónabandinu og til dæmis ekki gert kleift að mennta sig. Í Black- burn eru dæmi þess að enskunámskeið séu dulbúin sem saumanámskeið til þess að konur fái leyfi til að sækja þau. Bjargarlausar og í lífshættu Leysist hjónabandið upp getur farið illa fyrir konunni. Allir snúa baki við henni fyrir að hafa sett blett á fjölskylduna og henni er hent út á guð og gaddinn. „Kona ein fór til Pakistans og allt í einu var búið að setja byssu að höfði hennar og skipa henni að giftast,“ sagði kona á fundinum. „Henni tókst að ná í breska sendiráðið og bjargaðist, en hún er nú í felum.“ Hún er ekki ein um það. Félagsmála- yfirvöld hafa griðastaði fyrir konur í vanda, en anna ekki eftirspurn. Kona, sem fer út úr hjónabandi, kallar ekki aðeins yfir sig að fjöl- skyldan líti ekki við henni, hún getur kallað yfir sig dauðadóm. Ein kona sagði frá því að fjölskyldur hefðu leigt hausaveiðara til að finna konur, sem hefðu yfirgefið menn sína eða gert fjöl- skyldum sínum skömm, og myrða þær. Svo- kölluð heiðursmorð eru óhugnanlegt vanda- mál. Hún sagði að þess væru dæmi að stúlkur hefðu verið fluttar nauðugar til Pakistans og aldrei hefði heyrst frá þeim meir. Það gerist einnig að múslímakonum er meinað að mennta sig. „Margar múslím- astúlkur gera sér ekki grein fyrir réttindum sínum,“ sagði kennari. „Þær þurfa ekki að sýna foreldrum sínum óvirðingu þótt þær krefjist réttar síns.“ Karlar ráða lögum og lofum í trúarlífinu í samfélagi múslíma og oft er það þannig að stúlkur halda að þeim sé einfaldlega mein- aður aðgangur að moskunni. „Þetta vanda- mál er sprottið af hefðum, en ekki trúnni,“ sagði félagsmálafulltrúi. „Kóraninn segir ekkert um þetta. Og þú getur gifst hverjum sem er. Konur hafa rétt og skyldu til að mennta sig, konur eru hluti af hinu lýðræð- islega ferli. Í samfélögum, sem búa við skort, byggjast fjölskyldugildin á menningu, ekki trú. Upphafið er að upplýsa þær um rétt sinn, en breytingar gerast hægt.“ VANDI MÚSLÍMSKRA KVENNA Reuters Trú og siður Tvær konur í Blackburn, kjör- dæmi Jacks Straw, huldar frá hvirfli til ilja. H ið svokallaða stríð gegnhryðjuverkum hefur vakiðmikla umræðu um samfélög múslíma í Evrópu. Jack Straw, fyrr- verandi utanríkisráðherra Bret- lands, talaði í nýlegri ræðu, sem fjallaði um hvað það væri að vera breskur, um þær áskoranir, sem lýð- ræðið stæði nú frammi fyrir: „Það er því enn mikilvægara gagnvart þess- ari áskorun að þau okkar, sem að- hyllast lýðræðisleg gildi, setja af stöðugt meira krafti fram trú okkar á þessi gildi, útskýrum hvers vegna þau eru gildi, sem veita alþjóðlega tengingu milli fólks um leið og borin er virðing fyrir mismunandi upp- runa þess.“ Þessi umræða er ekki ný og má segja að mál Salmans Rushdies, sem Ayatolla Khomeini, erkiklerkur í Ír- an, skipaði réttdræpan fyrir skrif sín um íslam, hafi markað ákveðið upp- haf hennar. Hryðjuverk á Spáni, Bretlandi og í Bandaríkjunum hafa síðan magnað hana. Fjöldi bóka hef- ur komið út þar sem meginstefið er að menn hafi sofið á verðinum. Londonistan heitir bók eftir Melanie Phillips, blaðamann á Daily Mail, og er vísunin í Afganistan augljós. Í bókinni Betrayal kennir David Pryce-Jones Frökkum um að hafa svikið eigin gildi með því að hlaða undir araba og hygla leiðtogum á borð við Saddam Hussein og Yasser Arafat. Í bókinni While Europe Slept heldur Bruce Bawer því fram að rót- tækt íslam éti vestrið upp innan frá. Bókin Immigrants eftir Philippe Legrain er dæmi um gagnstæða rök- semdafærslu þar sem því er haldið fram að innflytjendur séu af hinu góða og styrki það þjóðfélag, sem þeir setjast að í. Á heimasíðu Signandsight fara nú fram deilur milli franska heimspek- ingsins Pascals Bruckners, bresk- hollenska blaðamannsins Ians Buruma og breska fræðimannsins Timothy Garton Ash um fjölmenn- ingarþjóðfélagið og hugmyndafræð- ina á bak við það. „[Hollenski stjórnmálamaðurinn] Ayaan Hirsi Ali er ekki aðeins falleg, hún vitnar einnig í Voltaire,“ skrifar Bruckner í umræðunni um það hvort eigi að styðja harða gagnrýn- endur íslams eins og Ali eða hóf- samar raddir íslamista á borð við Tariq Ramadan. „Þetta er of mikið fyrir Ian Buruma og Timothy Gar- ton Ash, sem kalla hana „upplýstan bókstafstrúarmann“. En hugmynd þeirra um fjölmenningu jafngildir lögleiddri aðskilnaðarstefnu.“ „Enginn ver heiðursdráp eða um- skurð kvenna,“ segir Buruma. „Slík- ir glæpir eru spurning um að fram- fylgja lögunum. Erfiðari spurning er hvernig eigi að koma í veg fyrir að hófsamir múslímar smitist af hug- myndafræði ofbeldis.“ „Hvorki lifðu-og-láttu-lifa aðskiln- aðarfjölmenningarhyggja né sú trú- lausa, lýðveldisgrundvallaða ein- menningarhyggja, sem Bruckner boðar, virkar,“ skrifar Garton Ash. „Stefna aðlögunar má ekki byggjast á því að gefa sér að milljónir músl- íma muni falla frá trú sinni þegar þeir koma til Evrópu.“ FJÖLMENNING OG EINMENNING Reuters Eitt mannkyn Múslími hlýðir á ræðu á Trafalgar-torgi á vöku haldinni í minningu fórnarlamba sprengjuárásanna í London 7. júlí 2005. MÚSLÍMAR Í BRETLANDI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.