Morgunblaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 20
D
agurinn var tekinn
snemma á heimili
Stephans, eða Presi-
dents Bongo, eða bara
Stebba. Við dokuðum
við eftir Bigga og Stebbi hellti upp á
kaffi fyrir okkur og skellti einni
beyglu í sig líka. Blaðamaður var
búinn með sinn morgunmat. Við
tyllum okkur inn í einhvers konar
stofu/borðstofu og uppi við vegg eru
þúsundir vínylplatna, á borðinu Po-
werBook-tölva. Biggi kemur svo
askvaðandi stuttu síðar og dægiljúft
kaffispjall hefst.
Tilbúin
„Við túruðum vel og lengi eftir að
Attention (2002) kom út,“ segir
Stebbi og sýpur á vel sterku kaffinu.
„Og vinnan við Forever hófst raun-
verulega á því tímabili.“
Stebbi segir að GusGus túri mikið
í kjölfar platna en einnig troði þau
reglulega upp sem plötusnúðar víðs
vegar um heim og haldi þannig
nafni GusGus á lofti. Sveitin er nú
orðin að tríói skipuðu þeim Stebba,
Bigga og Urði (Earth) söngkonu en
Maggi legó gekk fyrir stuttu úr
skaftinu.
„Það er mikilvægt að halda nafn-
inu lifandi í þessum tónlistarbransa,
hvort sem það er teknó, djass eða
rokk. Ef það er ekki gert þá gleym-
istu og þarft að byrja á allri kynn-
ingu upp á nýtt.“
Stebbi lýsir GusGus í framhaldinu
sem eins konar markaðsrasistum,
segir þau t.a.m. ekkert fíla sér-
staklega vel að túra um Bretland og
Bandaríkin og vilji heldur sinna bet-
ur þeim mörkuðum þar sem þau
njóta vinsælda. Þýskaland sé þannig
sterkt bakland og Stebbi hefur von-
ir um að Japan taki við sér, en plata
með GusGus kemur nú í fyrsta
skipti út þar í landi. Þá kemur hún
og út í Suður-Ameríku og viðræður
eru í gangi um dreifingu í Rúss-
landi. Platan kemur út um allan
heim í gegnum Pineapple Records,
útgáfufyrirtæki GusGus, fyrir utan
þau svæði þar sem hún hefur verið
framseld til plötufyrirtækja sem
þekkja þann markað betur en þau
svæði eru Japan, Bretland, Ástralía,
Nýja-Sjáland, Ítalía og Suður-
Ameríka.
Stebbi er rækilega með nefið ofan
í daglegum rekstri GusGus en sveit-
in hefur í dag á sínum snærum bæði
umboðsmann, tónleika- og plötu-
snúðabókara. Í kjölfar Attention,
þegar GusGus breyttist úr níu
manna fjöllistahóp í fjögurra manna
teknósveit, byrjuðu þau að gera
þetta allt saman sjálf en síðar voru
fagmenn ráðnir í þau störf.
Biggi tekur til máls og ræðir um
gerð plötunnar nýju.
„Platan var í raun tilbúin þarsíð-
asta sumar. En samt ekki alveg.
Mér fannst hún ekki vera nægilega
stórt skref frá Attention. Ég vildi
fara eitthvað aðeins lengra, aðeins
lengra í einhverja úrkynjun og
minnka Sprite-gleðina þótt hún sé
þarna líka í bland. Þannig að ég
bætti hinu og þessu við.“
T.d. kom lagið „Moss“ inn fyrir
stuttu en það er fyrsta smáskífa
plötunnar. Þar ljær fyrrverandi
GusGus-meðlimur, Daníel Ágúst,
sinni gömlu sveit krafta sína. Aðrir
gestir á plötunni koma úr hinum og
þessum áttum, t.d. eiga Páll Óskar
Hjálmtýsson, Óttar Proppé, Ómar
Guðjónsson og Helgi Svavar Helga-
son innslög. Þá syngur góðvinur
sveitarinnar frá Detroit, Aaron-
Carl, á plötunni. Endurhljóðbland-
anir á völdum lögum, sem birtast
munu á smáskífum, verða m.a. í
höndum Thors og Jacks Schidts (DJ
Margeir), Tims Deluxe, Marks Bells
og dúettsins Moonbootica.
Gamla GusGus
Starfsvettvangur GusGus er
mestan part erlendis.
„Við eigum ákveðið bakland
hérna heima sem er mjög traust
þótt það sé ekki stórt,“ segir Biggi.
„Bróðurparturinn af plötusölunni er
úti, vel innan við 5% sölunnar á sér
stað hérna heima. Markaðirnir eru
því úti. Þetta er t.d. ástæðan fyrir
því að platan kom ekki út fyrir jól,
því það meikar engan sens úti þótt
það geri það hérna heima. En við
eigum heima á Íslandi því hér líður
okkur vel.“
Þeir tímar þegar tónlistarmenn
neyddust til að flytja búferlum ætl-
uðu þeir sér einhverjar gloríur úti í
löndum eru löngu liðnir.
„Í okkar tilfelli a.m.k. er fólk úti
sem sér um þetta bransadæmi fyrir
okkur þannig að við þurfum ekkert
að standa í því stappi,“ heldur Biggi
áfram. „Við getum bara verið hérna
heima og slakað á (hlær). Stundum
þarf fólk að fara út, en það fer eftir
því hvar þú ert staddur í ferlinu.
Hvort þú ert að byrja eða ert kom-
inn eitthvað lengra á leið.“
Biggi rifjar nú upp þegar gamla
GusGus tvístraðist.
„Sú þróun var mjög skiljanleg, og
öll þessi framvinda hefur verið mjög
eðlileg. En fyrir utanaðkomandi að-
ila virkar þetta kannski álappalega
og furðulega. Bandið hrynur niður
og eftir standa nokkrir.“ Stebbi
skýtur inn setningu sem hann
heyrði fyrir stuttu. „Það var einhver
sem sagði við mig: „Það er svo fynd-
ið með GusGus, að GusGus verður
alltaf meiri og meiri GusGus.“ (allir
hlæja) Mér fannst þetta mjög fyndið
og einhvers konar staðfesting á því
maðurinn stofnar rassvasafyrirtæki
og ræður svo til sín verktaka.
„Plötufyrirtækið hefur sprungið
upp,“ segir Stebbi. „Í dag, ef fólk er
jákvætt, þá koma hlutirnir til þess á
einn eða annan hátt. Þegar við
hættum á 4AD fórum við þaðan með
mjög jákvæðu hugarfari, hugsuðum
sem svo að við myndum bara græja
þetta sjálf. Við fórum að vinna með
litlu merki sem heitir Underwater
og það leiddi okkur á endanum, eftir
ýmsum hjáleiðum, til Rainer Weich-
hold en hann sér um okkar mál í
dag í Evrópu í gegnum fyrirtækið
Great Stuff. Það fyrirtæki er nokk-
uð merkilegt, þar sem þeir hafa lag-
að sig að þessu nýja fyrirkomulagi
sem við vorum að lýsa. Þeir taka
gutta eins og okkur sem vilja gefa
þetta sjálfir út og segja: „Við skul-
um hjálpa ykkur.“ Starfsemin snýst
núna um hag GusGus, en ekki hag
plötufyrirtækjanna. Þess vegna er
gott að gera þetta sjálfur.“
Fáfræði
Starfsemin í kringum GusGus er
æði fjölbreytt og Stebbi er t.d. með
puttana í hinu og þessu. Spurður
hvort það sé nokkuð of mikið að
gera segir hann hlæjandi að hann
væri svosem til í einn starfsmann.
„Maður vinnur fjórtán tíma á dag.
Er það ekki bara það sem allir gera
hvort eð er? Ég er alltaf að, alltaf.
Kærastan mín, Linda, er líka alltaf
að, hún sá t.d. um að hanna um-
slagið. Nafn plötunnar, Forever, er
því réttnefni yfir allt þetta ferli. Við
sjáum t.d. um hönnun platnanna
fyrir alla markaði, og þetta er búið
að vera endalaust finnst manni.“
Ímynd almennings af hinni svo-
kölluðu raftónlist er um margt
skekkt og þetta er farið að fara nett
í pirrurnar á Forsetanum. Í huga
margra er fólk eins og GusGus-liðar
hangsarar sem ýta á takka við og
við uppi á sviði, á milli þess sem leit-
að er á náðir vímugjafa. Að þetta
fólk fari á fætur klukkan sjö, skelli í
sig kaffi og vinni svo baki brotnu að
Hinn fullkomni tónn? „Maður er þræll sköpunarinnar. Það eru gríðarleg forréttindi að fá að skapa og það að búa til tónlist er bara stórkostlegt.“
… að hinum fullkomna tóni heldur áfram hjá Gus-
Gus, sem nú er orðin að tríói. Fimmta breiðskífa
GusGus, Forever, er nýkomin út og ræddi
Arnar Eggert Thoroddsen við þá President
Bongo (Stephan Stephensen) og Bigga
veiru (Birgi Þórarinsson) af því tilefni.
Í kjölfar Attention,
þegar GusGus breyttist úr
níu manna fjöllistahóp í
fjögurra manna teknó-
sveit, byrjuðu þau að gera
þetta allt saman sjálf en
síðar voru fagmenn
ráðnir í þau störf.
Hin eilífa leit …
að við hefðum tekið réttar ákvarð-
anir.“
Biggi segir að gamla GusGus,
sem datt endanlega í sundur um
2000, hafi einfaldlega samanstaðið
af fólki sem vildi fara í mjög ólíkar
áttir. En hvað var svona spennandi
við það að setja saman þennan fjöl-
listahóp?
„Ég held að öllum hafi þótt þetta
mun merkilegra en okkur sem hóp-
inn skipuðum,“ svarar Stebbi og
dæsir. „Samvinnan var ekkert gríð-
arleg. Fólk sat ekkert saman í níu
manna hring, heldur var bara hver
að vinna í sínu horni. Það var ákveð-
in verkaskipting.“
Biggi segir að sveitin hafi enda
fæðst í hálfkæringi.
„Það var verið að gera einhverja
stuttmynd, og svo var ákveðið að
gera einhverja plötu. Þetta var eng-
in hljómsveit, heldur reytingur af
fólki sem var komið saman af til-
viljun. Ég og Maggi (legó) komum
inn í þetta úr teknóheiminum og
höfðum aldrei komið nálægt popp-
tónlist áður en okkur þótti þetta
mjög spennandi verkefni. Fyrsta
platan er nokkurs konar safnplata,
lögin komu héðan og þaðan en
fengu heildarsvip í útsetningum
sem voru að mestu leyti á herðum
mínum, Magga (legó) og Daníels
Ágústs.“
Bransinn
Í upphafi árs 1996 fengu meðlimir
svo fax (man einhver eftir því sam-
skiptaformi?) frá hinni virtu plötu-
útgáfu 4AD í Bretlandi.
„Þeir vildu gefa plötuna út og við
sáum að við yrðum bara að setja
saman einhvers konar band,“ segir
Biggi. „Þá strax fóru meðlimir að
ganga út. Og í kjölfarið breyttist að-
koma fólks að sveitinni, þetta hættir
að vera svona hálfkæringslegt. Svo
þegar við fórum að vinna This is
Normal (1999) þá kom betur í ljós
að menn höfðu mjög ólíkar hug-
myndir um hvert þeir vildu fara
með þetta fyrirbæri. Okkur tókst að
klára plötuna en það var alveg skýrt
þann dag sem við kláruðum hana að
við værum ekki að fara að gera aðra
plötu saman. En það var bara eðli-
leg þróun á þessu. Um þetta leyti
var Stebbi orðinn sterkur í útsetn-
ingum og platan GusGus vs T-world
kom út árið 2000, í sama mund og
söngvararnir voru að hætta. Sú
plata inniheldur „instrumental“ lög
með mér og Magga frá árunum
1993 til 1995. Sú plata fékk mjög
góða dóma og sömuleiðis góðar við-
tökur þannig að við ákváðum að
halda starfseminni áfram undir
nafni GusGus og lögðum því í
vinnslu á Attention með nýrri söng-
konu, henni Urði, sem var okkur al-
ger guðsgjöf.“
Eftir Attention standsettu Gus-
Gus Pinapple Records, og Stebbi
segir sem svo að í dag sé heimurinn
mikið breyttur hvað öll útgáfumál
varðar.
„Það er allt að snúast við og er að
fara aftur í hendur listamannsins
sjálfs,“ segir hann og bendir á
Makkann fyrir framan sig. „Lista-
maðurinn getur gert allt úr þessari
tölvu; hann getur búið til tónlistina,
masterað hana, hann getur sett
hana á Netið, kynnt hana þar og
selt. Hann getur þá búið til umslag
líka og búið til myndband. Allur
pakkinn er hérna inni.“
Þeir félagar segja að öll sú starf-
semi sem stóru útgáfufyrirtækin
sáu um hafi dreifst á sjálfstætt
starfandi fyrirtæki sem sjá um hluti
eins og kynningar og slíkt fyrir
listamanninn. Útgáfustarfsemi er
orðin einhvers konar kombó, lista-
tónlist
20 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ