Morgunblaðið - 04.03.2007, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
efnir til samkeppni
um byggðarmerki
Samkeppnin er öllum opin, óháð búsetu.
Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit varð til við sameiningu fjögurra
sveitarfélaga eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar.
Verðlaun að upphæð kr. 350 þúsund verða veitt fyrir
hugmyndina sem valin verður sem merki Hvalfjarðarsveitar.
Einnig verða veittar kr. 50 þúsund fyrir 2. og 3. sæti.
Upplýsingar um staðhætti, sögu og mannlíf í sveitarfélaginu
ásamt keppnisreglum og nánari upplýsingar um keppnis-
fyrirkomulag má nálgast á vefsetrinu www.hvalfjordur.is
Dómnefnd m.a. skipuð fulltrúa frá félagi íslenskra teiknara fer yfir
allar innsendar hugmyndir.
Skilafrestur tillagna er til 11. apríl. Hugmyndir skulu berast í
Stjórnsýsluhús Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes.
Hvalfjarðarsveit
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„SAMFÉLAGSLEG ábyrgð fyrirtækja felst í
skuldbindingu til þess að auka samfélagslega vel-
ferð gegnum viðskipti og nýtingu þeirra auðlinda
sem fyrirtæki hefur yfir að ráða, eða að beitt sé
viðskiptaháttum sem mæta eða ganga lengra en
skyldur eða væntingar í siðferðilegum, lagalegum,
viðskiptalegum eða umhverfislegum efnum krefj-
ast,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgar-
stjóri Reykjavíkur, á fræðslufundi fyrir stjórn-
endur hjá borginni í Höfða á föstudag en þar voru
framsögumenn Róbert Wessman, forstjóri Actav-
is, og Guðjón Magnússon, sviðstjóri umsýslu og
almannatengsla hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Spurður um samfélagslega ábyrgð segir Róbert
að á hana sé hægt líta frá mörgum sjónarhornum.
„Það er í fyrsta lagi hvernig við rekum fyrirtækið,
s.s. hvað varðar uppbyggingu á okkar verk-
smiðjum en við höfum sett yfir tuttugu milljarða
króna í að endurbyggja verksmiðjurnar á und-
anförnum árum,“ segir Róbert en fyrirtækið er nú
starfandi í 32 löndum og hefur yfir að ráða tuttugu
verksmiðjum. Hann segir mikla ábyrgð fylgja því
hvernig komið sé fram við starfsfólk og hvernig
starfsmannastefnu fyrirtæki séu með, auk þess að
það skipti máli varðandi starfsfólkið að fyrirtækið
hafi á sér gott orð. „Verksmiðjur okkar losa t.a.m.
ekki mengandi efni út í umhverfið.“ Einnig er
hægt að líta á samfélagslega ábyrgð út frá fjár-
magni sem lagt er í hin ýmsu verkefni og þar hef-
ur Actavis lagt sitt af mörkum. „Við höfum tekið
þátt í mörgum verkefnum, s.s. að styrkja íþrótta-
hreyfinguna, og við höfum haft mjög gaman af því
að vinna með Reykjavíkurborg að þessu forvarn-
arverkefni,“ segir Róbert og vísar í verkefnið
„Youth in Europe“ sem starfrækt er í borgum
víðsvegar um Evrópu og Actavis styrkir.
Aðspurður hver sé munurinn á því að efla við-
skiptavild fyrirtækisins og samfélagslegri ábyrgð
segir Róbert það fara alveg saman. Hann segir þá
fjármuni sem fara í verkefni sem ekki tengjast
starfsemi fyrirtækisins verða til þess að þjappa
starfsfólkinu saman. „Fólk er stolt af þessu og að
Actavis sé að leggja til fjármuni til flestra af þess-
um verkefnum, þannig að inn á við er þetta mjög
gott fyrir starfsmennina. Út á við erum við að
byggja okkar ímynd,“ segir Róbert og bætir því
við að til lengri tíma litið muni þessir fjármunir
skila sér aftur til fyrirtækisins.
Spurður um verkefni sem eru á döfinni hjá
Actavis nefnir Róbert að fyrirtækið horfi á það til
lengri tíma að leggja baráttunni við alnæmi lið.
„Við höfum verið að þróa töluvert mikið af þeim
alnæmislyfjum sem til eru í dag. Í raun og veru er
alnæmi stærsta heilsufarsvandamál í heiminum,
með um 40 milljónir manna sýktar.“ Róbert nefn-
ir Afríku sem dæmi og segir að fyrirtækið muni
án efa taka þátt í verkefnum til hjálpar þar. Hann
vill hins vegar lítið um málið segja, enda á frum-
stigi.
Allir ferlar gegnsæir
Orkuveitan hefur sett sér markmið í samfélags-
legri ábyrgð og segir Guðjón Magnússon hana
m.a. felast í því að fyrirtækið tileinki sér bestu
viðskiptahætti hverju sinni. „Við erum að setja
okkur markmið í því enda erum við að framleiða
vöru sem er lífsnauðsyn og það er mikil ábyrgð að
skila henni til neytenda rétt. Það sem við ætlum
að gera er að ganga lengra en lög og reglur segja
til um og tileinka okkur enn frekar góða stjórn-
unarhætti með því að hafa alla ferla og allt það
sem við erum að gera gegnsætt.“ Guðjón segir
umhverfismál einnig hugleikin og innan Orkuveit-
unnar vilji menn sýna samfélagslega ábyrgð í
þeim efnum. Þar að auki minnist Guðjón á verk-
efni sem fer af stað í Afríkuríkinu Djíbútí, en
þangað er Orkuveitan að flytja þekkingu. „Við er-
um að dreifa þekkingu til þjóða sem ekki hafa
hana. Til að mynda í Djíbúti er náttúruauðlindin
fyrir hendi en þrátt fyrir það nota menn jarð-
efnaeldsneyti til raforkuframleiðslu.“
Fyrirtæki gangi lengra
en skyldur segja til um
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Viðskiptahættir Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja felst meðal annars í því að setja markmið um að tileinka sér bestu viðskiptahætti hverju sinni.
Samfélagsleg ábyrgð felst í skuldbindingu til þess að auka velferð
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
ÖSSUR Skarphéðinsson, sem er í
stjórnarskrárnefnd fyrir hönd Sam-
fylkingarinnar, segir að fulltrúa
Framsóknarflokksins hefði verið í
lófa lagið að ná fram ákvæði um sam-
eign á sjávarauðlindinni í stjórnar-
skrárnefnd, en staðreyndin sé sú að
hann hafi aldrei lyft fingri til þess í
nefndinni.
Össur sagði að þetta hefði verið
stærsta áherslumál Samfylkingar-
innar og allir fulltrúar stjórnarand-
stöðunnar hefðu stutt að ákvæði af
þessum toga yrði tekið upp. Þá hefði
sérstakur undirhópur, undir forystu
eins af þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins, komist að þeirri niður-
stöðu að rétt væri að taka slíkt
ákvæði upp og sá hópur hefði skilað
tillögu að ákvæði
inn á borð stjórn-
arskrárnefndar.
Formanni nefnd-
arinnar, Jóni
Kristjánssyni,
hefði því reynst
auðvelt að koma
ákvæðinu í gegn.
„Það virtist hins
vegar sem Fram-
sóknarflokkurinn
hefði ekki minnsta áhuga á því á
meðan nefndin var að störfum. For-
maðurinn hefur síðan sagt mér það
að ekki sé fyrirhugað að halda fleiri
fundi í stjórnarskrárnefnd, þannig
að ekki bendir það nú til mikils
áhuga. Í þessu ljósi er auðvitað mjög
undarlegt hvað Framsóknarflokkur-
inn hefur allt í einu á síðasta spretti
þingsins fengið mikinn áhuga á því
að láta á málið reyna,“ sagði Össur.
Hann sagði að þarna virtist fyrst
og fremst vera um það að ræða að slá
pólitískar keilur. Samfylkingin væri
þess hins vegar mjög fýsandi að
svona ákvæði yrði samþykkt og
myndi styðja það. Sömuleiðis væri
það óhjákvæmilegt að Framsóknar-
flokkurinn yrði látinn standa við
stóru orðin á Alþingi áður en það
væri úti. Ef Framsókn sæi ekki til
þess að frá ríkisstjórninni kæmi til-
laga af þessu tagi inn í þingið, í anda
þess sem rætt hefði verið um í
stjórnarskrárnefnd, myndi hann
beita sér fyrir því að stjórnarand-
staðan legði fram slíka tillögu og
Framsókn yrði þannig látin standa
frammi fyrir því hvort hún styddi
slíka tillögu eða ekki. „Framsóknar-
flokkurinn verður látinn standa við
þessar yfirlýsingar.“
Í lófa lagið að ná fram
ákvæði um sameign
Össur
Skarphéðinsson
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt karlmann í tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkni-
efnabrot og vopnalagabrot auk hrað-
akstursbrota. Hafði hann ríflega 100
grömm af hassi í fórum sínum, 20
stykki af LSD, 7 grömm af kókaíni
og 2,40 grömm af amfetamíni sem
gerð voru upptæk með dómi. Fíkni-
efnin voru geymd í skjalaskáp og fal-
in í gólfi þegar þau lögregla lagði
hald á þau. Einnig var tekinn af
manninum 222 cal. riffill af gerðinni
Bruno ZKK601 sem hann sagðist
hafa fengið að láni en án þess að
leggja fram skriflega heimild því til
sönnunar.
Maðurinn hefur áður komið við
sögu dómstóla vegna fíkniefnabrota
auk þess sem hann hefur þrisvar
sinnum áður fengið refsingu fyrir
umferðarlagabrot.
Dómurinn tók tillit til játningar
mannsins. Auk þess kvaðst maður-
inn hafa söðlað um í lífinu og vera
hættur óreglu. Sagðist hann hafa
slitið sambandi við fyrrverandi fé-
laga sína sem voru með honum í
óreglunni. Þá stundaði hann fasta
vinnu og væri enn að nokkru leyti í
sambúð með barnsmóður hans og
sinnti börnum þeirra reglulega.
Dómurinn taldi að skilorðsbinda
mætti refsingu mannsins út frá þess-
um forsendum en auk fangelsisvistar
var hann dæmdur í 50 þúsund kr.
sekt ásamt greiðslu 149 þúsund kr.
sakarkostnaðar.
Málið dæmdi Guðmundur L. Jó-
hannesson héraðsdómari. Skipaður
verjandi ákærða var Jón Egilsson
héraðsdómslögmaður og sækjandi
var Alda Hrönn Jóhannsdóttir
fulltrúi lögreglustjórans í Hafnar-
firði.
Fangelsi
fyrir
fíkniefni
Hættur í óreglu
og fékk skilorð
♦♦♦
DANSKUR björgunarbátur náði í
íslenskan sjómann sem slasaðist á
hendi á föstudagskvöld og flutti hann
til læknis á Borgundarhólmi.
Fram kemur að íslenski sjómað-
urinn hafi verið um borð í þýskum
togara, sem hafi verið of stór til að
sigla til hafnar í Nexö. Maðurinn
hafði misst fingur og brotið annan
fingur þegar hann var að vinna við
trollið um borð.
Slasaðist
á hendi