Morgunblaðið - 04.03.2007, Side 8
8 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Skólavörðustíg - Kringlunni - Smáratorgi - Selfossi - Lágmúla
Heilsu- og matreiðslunámskeið í Heilsuhúsinu Lágmúla
Þriðjudagur 6. mars kl. 19:00 til 21:00
Konur og hormónar
Fyrirlestur með Þorbjörgu næringarþerapista. Lífið með hormónum í jafnvægi og
ótímabærri öldrun án efna úr mat og umhverfi sem truflar samskiptakerfi líkamans.
Við veljum hormónavænan mat og náttúruleg efni.
Verð 4.900 kr
Miðvikudagur 7. mars kl. 19:00 til 22:00
Candida og óboðnir gestir í meltingarvegi.
Þorbjörg næringarþerapisti fer yfir meltingu, upptöku og nýtingu næringarefna,
hvernig óboðnir gestir geta truflað. Ef þú ert tilbúin til að fara á 12 vikna
prógramm og losa þig við „ófétin“ og endurheimta orku og vellíðan á ný,
þá er þetta námskeið fyrir þig.
Verð 5.900 kr
Verslunarleiðangur og ráðgjöf við val af mat og bætiefnum.
Góður afsláttur í boði bæði kvöldin.
Bókun á námskeiðin í síma 692 8489
eða namskeid@10grunnreglur.com
Nánari upplýsingar í Heilsuhúsinu og
www.10grunnreglur.com
10 grunnreglur ™
Það bendir allt til að þau séu komin með Bónusflensuna, doktor, þau eru öll með sömu ein-
kennin, hitalaus, en með skyndilegt staðbundið minnisleysi.
VEÐUR
Jón Sigurðsson, formaður Fram-sóknarflokksins, rifjaði það upp í
ræðu sinni á flokksþingi í fyrradag
að framsóknarmenn hefðu haft for-
göngu um nýja löggjöf um fjármál
stjórnmálaflokkanna. „Hún ger-
breytir öllum að-
stæðum í kosn-
ingastarfi og
setur skorður við
umsvifum, til
dæmis í auglýs-
ingum,“ sagði
Jón. „En nýju
lögin losa lýð-
ræðið undan
ýmsum ytri
áhrifum og það
skiptir mestu. Ég get lýst því yfir
að við erum reiðubúin til viðræðna
við aðra stjórnmálaflokka um mikl-
ar takmarkanir á útgjöldum og
auglýsingum í kosningabaráttunni
fram undan og við lýsum eftir af-
stöðu annarra flokka í þessu máli.“
Fróðlegt verður að sjá viðbrögðforystumanna annarra flokka
við þessu tilboði Jóns Sigurðssonar.
Oft hefur verið reynt að ná sam-
komulagi á milli stjórnmálaflokk-
anna fyrir kosningar um að tak-
marka kostnað við auglýsingar en
iðulega mistekizt.
Auglýsingastjórnmálin, semþróazt hafa hér á undanförnum
áratugum, eru þreytandi og lýð-
ræðinu lítt til framdráttar. Stefna
flokka og boðskapur foringjanna
týnist iðulega í innantómum um-
búðum og slagorðum. Það virðist
oft skipta meira máli hvernig dragt
eða bindi fólk hefur valið sér en
hvað það hefur að segja.
En nú eru nýir tímar og ný löggjöfsníður flokkunum þrengri
stakk. Sumir hafa spáð því að í
komandi kosningabaráttu muni það
þýða að minna verði eytt í auglýs-
ingar, en baráttan færist út á
bloggið. Það væri ágæt þróun.
Bloggið er málefnavettvangur, þar
sem fólk kemur yfirleitt til dyra
eins og það er klætt.
STAKSTEINAR
Jón Sigurðsson
Tilboð Jóns Sigurðssonar
SIGMUND
!"
#$%
& '
( &
) *
+
, $
-
.
)+
!
"
"
#
/0
/
1
2
0
+ 0
(+
3/
#
4
&56
7 2
"&
# $
# $
$$$
#
#
%&
8
("9:;
!
"
#
#
(
""
9 (
' ( )
(
&
" *&
<0
< <0
< <0
' )$ +
,-$&.
=
>6
>65
/ &
)$ $
/$0
1
! '
$'2
3
&
4
0
4"
" &
$$&
&1
#&
'2
3 .
9
/ &
1( ,
(
$$&'0
1
&
&/
& $ 5& 2
3
$1
'
6$$ &77
$&"2
&
"&+
1%23?2
?(<3@AB
(C,-B<3@AB
*3D.C',B
1
1
1
8 8
8
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1 1
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Björk Vilhelmsdóttir | 2. mars
Pottur mínus pólitík
Ég fer reglulega í sund
og ræði þá oft um póli-
tík í heita pottinum eft-
ir góðan 1000 metra
sundsprett. Nú ætla ég
hins vegar með karlin-
um mínum í sum-
arbústað með heitum potti og njóta
helgarinnar. Ekki stendur til að
ræða um pólitík, enda gæti það eyði-
lagt annars góða stemningu þar sem
hann er á lista vinstri grænna en ég
nýlega gengin formlega í Samfylk-
inguna.
Meira: bjorkv.blog.is
Árni Helgason | 2. mars
Alvöru sápuópera
Sápuóperan sem er
verið að taka upp í söl-
um Héraðsdóms
Reykjavíkur hélt
áfram í dag. […]
Þetta minnir mig
stundum á þátt sem
Fóstbræður voru með í gamla daga
um Bílastæðaverðina. Er Jón í raun
frænka Sigurðar? Hver faldi Lind-
berg-barnið? […] Hvenær mun Jón
Ásgeir taka af sér andlitsgrímuna
þannig að við blasi Jónína Ben –
móðir Hreins Loftssonar?
Meira: arnih.blog.is
Katrín Anna Guðmundsdóttir | 1. mars
Púrítanismi í klámi
Ég hef verið að velta
fyrir mér hvaða hug-
myndir eru að birtast í
kláminu. Það efni sem
ég er búin að skoða
mikið undanfarna viku
inniheldur töluvert af
efni sem gengur út á að kalla konur
öllum illum nöfnum og kynlífs-
athafnirnar eru síðan framreiddar
sem refsing á konurnar. […] Kynlíf
er í rauninni eitthvað ljótt og vont í
þessu klámi – og eitthvað sem kon-
um er refsað með.
Meira: hugsadu.blog.is
Eygló Harðardóttir | 2. mars 2007
Svik og prettir
Í janúar skrifaði ég
pistil sem hét Svik sjálf-
stæðismanna þar sem
ég fjallaði um ágreining
stjórnarflokkanna um
hvort setja eigi inn í
stjórnarskrá að sjáv-
arauðlindir eru þjóðareign. Þessi
ágreiningur hefur bara ágerst að
undanförnu og er að mínu mati ein
helsta ástæðan fyrir því að Fram-
sóknarflokkurinn sá ástæðu til að
ítreka og raunar útvíkka þessa kröfu
sína í drögum að ályktun flokksþings-
ins.
[…]
Einar K. Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra reynir í fréttum út-
varpsins að verja svik flokks síns
gagnvart framsóknarmönnum og
brot á stjórnarsáttmála. Þar virðist
hann bara telja það gott og gilt gagn-
vart Framsóknarflokknum og al-
menningi að fresta þessu öllu saman,
væntanlega um aldur og ævi.
Undarlegt, ef satt er, að sjálfstæð-
ismenn hafi skrifað undir þetta
ákvæði í stjórnarsáttmálanum án
þess að gera sér grein fyrir hvað
þetta þýddi og hvernig væri best að
útfæra þetta.
Meira: eyglohardar.blog.is
Kristján Jónsson | 2. mars 2007
Rýfur Geir þing?
Spennandi að fylgjast
með Framsókn núna,
krafa Jóns Sigurðs-
sonar um að staðið
verði við fyrirheit um
stjórnarskrárákvæði
sem kveði á um sameign á sjáv-
arauðlindum er snjallt frumkvæði.
Rétt að láta sjálfstæðismenn standa
við loforðin. En um leið sýnir þetta að
Framsókn er líklega hætt að reikna
með framhaldi á stjórnarsamstarfinu.
Þá er spurning hvort Geir Haarde
rifjar upp að hann er með þingrofs-
réttinn. Hann gæti þannig flýtt dálít-
ið kosningum og um leið sett Jón og
hans fólk út af laginu, hefnt fyrir
þessa óvæntu atlögu samstarfs-
flokksins og kippt undan þeim tepp-
inu áður en Framsókn er búin að ná
sér almennilega á strik í kosninga-
baráttunni.
Þetta gæti orðið athyglisvert.
Fjörugt en varla mjög friðsamlegt …
Meira: kjoneden.blog.isMeira:
BLOG.IS