Morgunblaðið - 04.03.2007, Side 14
14 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Erlent | Rússar hafa lýst yfir andstöðu sinni við að Bandaríkjamenn komi upp eldflaugaskildi í Evrópu.
Svipmynd | Jelena Bonner, ekkja Andreis Sakharovs, er ómyrk í máli um aðstæður í Rússlandi um þessar
mundir. Tíska | Það er til siðs að hneykslast á mjóum sýningarstúlkum og margir vilja grípa í taumana, en er eitthvað á bak við stóru orð-
in?
VIKUSPEGILL »
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
Líkur hafa aukist á að áform Banda-ríkjamanna um að koma upp varn-arkerfi gegn eldflaugum í Evrópuverði að veruleika. Stjórnvöld í Pól-
landi og Tékklandi hafa lýst yfir áhuga á að hýsa
búnaðinn sem kerfinu fylgir og á dögunum var
frá því skýrt að hátt settir embættismenn hefðu
rætt þann möguleika að slíku varnarkerfi yrði
jafnframt komið fyrir í Bretlandi. Nokkra at-
hygli vekur að andstæðingar slíkra varna skuli
ekki hafa látið til sín taka af meiri þunga en raun
ber vitni.
Þá stöðu mála má ef til vill skýra með tilvísun
til þeirra herskáu ummæla sem borist hafa frá
Íran að undanförnu enda er kerfið m.a. hugsað
til að unnt reynist að bregðast við mögulegum
ógnunum af hálfu ráðamanna þar.
Áætlun um evrópskan „eldflaugaskjöld“
minnir vísast marga á orðræðu kalda stríðsins.
Áformin má enda rekja til geimvarnaráætlunar
þeirrar sem unnið var að í Bandaríkjunum í for-
setatíð þeirra Ronalds Reagans og George
Bush, föður núverandi forseta. Áætlunina
kynnti Reagan í frægri ræðu er hann hélt í
marsmánuði árið 1983 þegar hann gerði grein
fyrir þeirri tillögu sinni að þróað yrði varnar-
kerfi í geimnum sem fært myndi reynast um að
tortíma aðvífandi eldflaugum og þannig hefta
kjarnorkuárás. Áætlun þessi kallaðist SDI (e.
„Strategic Defense Initiative“) en andstæðing-
ar hennar töldu vísindaskáldskap hér á ferð og
kenndu hugmynd kvikmyndaleikarans gamla
við bíómyndirnar um „stjörnustríðið“ (e. „Star
Wars“).
Mörgum þótti allt frá upphafi vega sýnt að
geimvarnaráætlunin yrði ekki að veruleika. Og
það mat reyndist rétt. Á hinn bóginn fóru fram
merkar rannsóknir og tilraunir innan vébanda
hennar og hún átti án nokkurs vafa þátt í að
stytta kalda stríðið.
Samhæft ratsjár- og eldflaugakerfi
Áætlunin um „Evrópuskjöldinn“ er mjög ein-
földuð útgáfa af kerfi því sem Reagan forseti lét
sig dreyma um. Í stað búnaðar í geimnum verð-
ur kerfið „jarðbundið“ í eiginlegri og yfirfærðri
merkingu. Gert er ráð fyrir að ratsjárkerfi verði
komið fyrir í Tékklandi og Pólverjar taki við tíu
skotpöllum fyrir varnarflaugar. Hugmyndin er
sú að kerfin verði öldungis samhæfð þannig að
ratsjárkerfið greini og kortleggi flug eldflauga
sem óvinaríki kunna að skjóta á loft. Búnaður-
inn mun síðan ræsa gagnflaugarnar í Póllandi,
stýra þeim að eldflaugum óvinarins og tortíma
þeim.
Bandaríkjamenn ráða nú þegar yfir slíku
varnarkerfi. Þar vestra er að finna tvær eld-
flaugastöðvar, í Kaliforníu og Alaska. Talið er
að þær hýsi alls 16 skotpalla fyrir gagnflaugar.
Fulltrúar bandarískra stjórnvalda hafa sótt
málið af vaxandi þunga á undanliðnum árum og
viðbrögð ráðamanna í Póllandi og Tékklandi
hafa verið jákvæð. Verulegur skriður hefur
komist á umræðuna um „Evrópuskjöldinn“ á
síðustu mánuðum og ákvörðun gæti legið fyrir í
sumar. Skoðanakannanir sýna hins vegar að
veruleg andstaða er í röðum alþýðu manna við
áform þessi í löndunum tveimur. Í pólitísku til-
liti kann því að reynast erfitt að hrinda áætl-
uninni í framkvæmd.
Í bréfi sem Victoria Nuland, sendiherra
Bandaríkjanna hjá Atlantshafsbandalaginu
(NATO), sendi aðildarþjóðunum 23. janúar sl.
er gerð grein fyrir „eldflaugaskildinum“ og er
þar vísað sérstaklega til mögulegrar þátttöku
Breta í áætluninni auk þess sem vikið er að
dönsku ratsjárstöðinni í Thule á Grænlandi. Til
greina þykir koma að uppfæra og nýta búnað
sem þar er að finna í þessu skyni. Fram kemur
og að hugsanlega verði leitað til annarra NATO-
þjóða eftir aðstoð. Þær upplýsingar fengust í ut-
anríkisráðuneytinu íslenska að ekki hefði verið
leitað eftir aðkomu Íslendinga að kerfinu.
Járnbrautarlest án hemla
Rússar eru æfir vegna áforma Bandaríkja-
manna en almennt má segja að andstaða við þau
sýnist lítil í Evrópu. Freistandi er að álykta sem
svo að kjarnorkuáform stjórnvalda í Íran og
Norður-Kóreu ráði þar mestu. Fyrir liggur að
stjórn Kim Jong-il, leiðtoga Norður-Kóreu,
ræður yfir (næstum því ábyggilega) frumstæð-
um kjarnorkuvopnum. Jafnframt er þar unnið
skipulega að þróun langdrægari og nákvæmari
eldflauga. Nágrannaríki hafa þungar áhyggjur
af þeim tilraunum.
Klerkastjórnin í Íran hyggst hvergi láta und-
an þrýstingi um að falla frá kjarnorkuáætlun
sinni. Mahmoud Ahmadinejad, málglaður og
ágætlega villtur forseti landsins, hefur þráfald-
lega látið slík ummæli frá sér fara og á sunnu-
dag lýsti hann yfir því að kjarnorkuáætlunin
líktist einna helst „járnbrautarlest án hemla“.
Greinilegt er að ýmsir í Íran hafa vaxandi
áhyggjur af herskáum yfirlýsingum forsetans
sem telur m.a. að Ísraelsríki eigi sér ekki til-
verurétt.
Um liðna helgi greindu síðan íranskir fjöl-
miðlar frá því að skotið hefði verið á loft eldflaug
sem náð hefði út fyrir gufuhvolf jarðar. Tals-
menn Bandaríkjahers sögðu raunar að sannanir
hefðu ekki fengist fyrir því að tilkynningin ætti
við rök að styðjast og engin merki um eldflauga-
skotið hefðu verið greinanleg.
Á vettvangi öryggis- og varnarmála greina
menn ógn einkum með tvennum hætti; leitast er
við að leggja mat á annars vegar áform mögu-
legra óvina og hins vegar getu þeirra til að valda
skaða. Víða á Vesturlöndum telja ráðamenn og
sérfróðir sýnt að Íranar stefni að því að eignast
kjarnorkuvopn og samþykktir á vettvangi Sam-
einuðu þjóðanna ber að skoða í því ljósi. Stjórn-
völd í Íran hafa augsýnilega í hyggju að þróa
fram öflugri eldflaugar. Reynist Írönum unnt
að koma gereyðingarvopnum fyrir í slíkum
burðarkerfum er deginum ljósara að algjör um-
bylting hefur orðið í alþjóðlegum öryggismál-
um.
Vörn gagnvart „útlagaríkjum“
Bandaríkjamenn leggja enda áherslu á að
„eldflaugaskjöldurinn“ evrópski sé hugsaður
sem vörn við hugsanlegum árásum svonefndra
„útlagaríkja“. Í þeim hópi eru haldin Íran og
Norður-Kórea. Að þessu leyti er hugsunin sú
sama og hjá Reagan forðum; SDI-áætlun hans
var ætlað að snúa við nokkrum helstu kenni-
setningum fælingarstefnunnar. Í stað hótunar
um „gagnkvæma gjöreyðingu“ í kjarnorkustríði
(e. „Mutual Assured Destruction“ – MAD) átti
að koma varnargeta gagnvart árás með lang-
drægum eldflaugum. Á dögum kalda stríðsins
var almennt litið svo á að geta til að verjast eld-
flaugaárásum hefði í för með sér að stöðugleiki
raskaðist. Af þeim sökum var sáttmáli gerður
árið 1972 um takmarkanir gagneldflaugakerfa
(ABM-samningurinn). Hann hélt í 30 ár;
George W. Bush og Vladímír V. Pútín Rúss-
landsforseti náðu samkomulagi um að leggja
hann til hliðar árið 2002.
Rússar óttast vopnakapphlaup
Í Rússlandi telja ráðamenn áform um eld-
flaugavarnir í Evrópu fela í sér hótun um nýtt
vopnakapphlaup þar eð ríkjandi jafnvægi á
þessu sviði í álfunni muni augljóslega heyra sög-
unni til. Þetta mat er augljóslega í anda þeirrar
herfræði kalda stríðsins sem lýst var stuttlega
hér að ofan.
Yfirlýsingum Bandaríkjamanna þess efnis að
evópska varnarkerfinu sé ekki ætlað að skapa
varnargetu gagnvart mögulegri árás frá Rúss-
landi hefur einfaldlega verið vísað á bug. At-
hygli vakti er Níkolaíj Solovtsov, yfirmaður
kjarnorkuherafla Rússlands, lýsti yfir því um
miðjan febrúar að Rússar kynnu að beina gjör-
eyðingarvopnum sínum að skotmörkum í Tékk-
landi og Póllandi féllust stjórnvöld þar á beiðni
Bandaríkjamanna um aðstöðu fyrir evrópska
varnarkerfið. Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði þessi ummæli hers-
höfðingjans „sérlega óheppileg“.
INF-sáttmálinn í hættu?
Júríj N. Balújevskíj, yfirhershöfðingi, sagði í
viðtali á dögunum að Rússar kynnu að sjá sig til-
neydda til að segja sig frá INF-sáttmálanum
um upprætingu meðaldrægra kjarnorkueld-
flauga frá árinu 1987. Ákvörðun Rússa í þessu
efni gæti mótast af framgöngu Bandaríkja-
stjórnar. Áætlun Bandaríkjamanna um eld-
flaugavarnarkerfi í Evrópu væri óskiljanleg
með öllu. Hershöfðinginn kvað fyrir liggja að
mörg ríki áformuðu að koma sér upp meðal-
drægum eldflaugum (viðtekna skilgreiningin er
sú að þar ræði um eldflaugar sem draga 500 til
5.000 kílómetra) og Rússar þyrftu að bregðast
við þeirri stöðu mála. Sergeij B. Ívanov, varn-
armálaráðherra Rússlands (og hugsanlegur eft-
irmaður Pútíns á forsetastóli), hefur sagt að
INF-samningurinn sé barn síns tíma, þ.e. kalda
stríðsins. Sergeij V. Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði í blaðaviðtali fyrir tæpum
tveimur vikum, að varnarkerfið í Evrópu sýndi
að Bandaríkjamenn hygðust leitast við að ná
forskoti á Rússa á sviði vígbúnaðarmála. Þörf
væri á nýjum samningum um afvopnun til að
skapa traust með þjóðunum.
INF-sáttmálinn var undirritaður á söguleg-
um leiðtogafundi þeirra Ronalds Reagans
Bandaríkjaforseta og Míkhaíls S. Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga í Washington í desembermánuði
árið 1987. Gjörninginn má tengja Reykjavíkur-
fundi þeirra piltanna árið áður og utanríkisráð-
herrafundi NATO sem haldinn var hér á landi
vorið 1987 þegar uppræting meðaldrægra
kjarnorkueldflauga í Evrópu var staðfest sem
samningsmarkmið af hálfu Vesturlanda.
„Skjöldurinn“ verði virkur 2012
George W. Bush Bandaríkjaforseti leggur
þunga áherslu á „Evrópuskjöldinn“. Milljarðar
Bandaríkjadala hafa nú þegar verið teknir frá
til þessa verkefnis. Eftir því sem næst verður
komist er stefnt að því að vinna við ratsjárkerfið
í Tékklandi hefjist á næsta ári. „Skjöldurinn“ á
að verða að veruleika fyrir árið 2012.
Líkt og í tíð Reagans heitins eru uppi efa-
semdir um að slíkt varnarkerfi geti komið að til-
ætluðum notum. Í pólitískum efnum vekur at-
hygli hversu lítil viðbrögð áætlunin um
varnarskjöldinn hefur vakið í Evrópu. Það á eft-
ir að breytast þótt tæpast sé í uppsiglingu deila
sambærileg við þá sem geisaði í álfunni um með-
aldrægar eldflaugar Bandaríkjamanna á átt-
unda og níunda áratug aldarinnar nýgengnu.
Um er að ræða varnarkerfi en ekki árásarbúnað
sem hannaður er í samræmi við kennisetningar
kalda stríðsins. Ógnin er önnur og veruleiki al-
þjóðlegra öryggismála flóknari en áður var.
Eldflaugaskjöldur í Evrópu
Hugmyndir Bandaríkjamanna loftvarnarkerfi gegn eldflaugum í Evrópu eru komnar á nokkurn rek-
spöl og hafa fjögur lönd verið nefnd í sambandi við hana, Tékkland, Pólland, Grænland og Bretland
Reuters
Vígvæðing Meðaldræg pakistönsk eldflaug af gerðinni Shaheen II, Hatf VI tekur flugið í til-
raunaskyni 23. febrúar. Eldflaugin getur borið kjarnahleðslu allt að 2.000 kílómetra.
ERLENT»