Morgunblaðið - 04.03.2007, Side 16
16 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Jelena Bonner var eiginkonaeins þekkasta andófs-mannsins í Sovétríkjunumsálugu, kjarneðlisfræðings-
ins Andrei Sakharovs, og varð
hans hægri hönd er hann gerðist
ákafur boðberi mannréttinda og
friðar. Hann var aðalhöfundur sov-
ésku vetnissprengjunnar á sjötta
áratug síðustu aldar en gerðist
harður gagnrýnandi flokkseinræðis
kommúnista. Hann hlaut friðar-
verðlaun Nóbels 1975 og flutti
Bonner ávarp hans í Ósló þar sem
honum var meinað að yfirgefa Sov-
étríkin. Bonner hafði hins vegar
fengið leyfi til að leita sér lækn-
inga á Ítalíu en hún skaddaðist á
augum í heimsstyrjöldinni síðari.
Sakharov lést 1989 en eiginkon-
an hélt áfram að segja ráðamönn-
um í Kreml til syndanna, nú á síð-
ari árum hefur hún fordæmt
hernaðinn í Tétsníu. Bonner hefur
ekki legið á skoðunum sínum þótt
heilsan sé farin að bila en hún er
nú 84 ára aldri. Blaðamaður Morg-
unblaðsins komst yfir símanúmer
hennar þar sem hún dvelst nú hjá
dóttur sinni af fyrra hjónabandi í
Boston í Bandaríkjunum. Þar hef-
ur hún fengið læknishjálp og hefur
á síðari árum búið ýmist í Moskvu
eða Bandaríkjunum.
Bonner segist aðspurð fylgjast
vel með því sem er að gerast í
Rússlandi. Hún minnist í viðtalinu
á málaferli gegn Alexei Pítsjúgín
sem vöktu mikla athygli mannrétt-
indasinna í Rússlandi á sínum
tíma.
Pítsjúgín var yfirmaður öryggis-
mála hjá olíufyrirtækinu Yukos
sem auðkýfingurinn Míkhaíl Kho-
dorkovskí og viðskiptafélagi hans,
Platon Lebedev, stjórnuðu. Var
Pítsjúgín handtekinn vorið 2003,
sakaður um morð og loks dæmdur
í 24 ára þrælkunarvinnu. En líkin
hafa aldrei fundist og margt þykir
undarlegt við réttarhöldin. Hefur
getum verið leitt að því að Píts-
júgín hafi neitað að verða við kröf-
um um að sverta yfirmenn sína, þá
Khodorkovskí og Lebedev, og bera
vitni gegn þeim en þeir voru einnig
handteknir sama ár, sakaðir um
fjársvik. Báðir sitja nú í fangelsi í
Síberíu.
-Hvert er álit þitt á ríkisstjórn
Vladímírs Pútins Rússlandsfor-
seta?
„Ég held að hún sé dæmi um
spillta ríkisstjórn,“ svarar Bonner
og bætir við að stefna stjórnarinn-
ar minni sig á hugtak í máli rúss-
neskra þjófa, ástand sem sé „mal-
ína“ [alveg draumur].
-Á tímum Sovétríkjanna varstu
þekktur andófsmaður kerfisins
ásamt eiginmanni þínum, Andrei
Sakharov. Finnst þér að það sem
núna sé að gerast í Rússlandi Pút-
íns minni á þá tíma?
„Já, um sumt er þetta svipað,
sérstaklega það sem tengist því að
reynt er að endurlífga andlýðræð-
islegt ríki, að vísu í breyttri mynd.
Þessi þróun minnir á Sovétríkin.“
-Réttarhöldin yfir Khodorkovskí
hafa vakið mikla athygli og umtal á
Vesturlöndum. Hvað finnst þér um
þessi mál?
„Mér finnst ekki nógu mikið
rætt um þessi mál. Ég held að
Vesturlandabúar skilji ekki alveg
stefnumótandi hlutverk þessara
réttarhalda í þróun mála í Rúss-
landi. Og þeir telji að hægt sé að
afsaka framferði stjórnvalda í
Rússlandi í þessum málum.“
-Telurðu að þetta séu engin al-
vöru réttarhöld? Eru þau af póli-
tískum toga?
„Já það tel ég. Þetta er algjör
sýndarmennska og þau eru
án nokkurs efa pólitísk. Ég var
og er ennþá meðal þeirra sem
berjast fyrir mannréttindum í
Rússlandi, var meðal þeirra sem
sneru sér til mannréttindahreyf-
ingarinnar Amnesty International
á Vesturlöndum strax eftir hand-
tökurnar til að fara fram á að litið
yrði á Khodorkovskí og aðra sak-
borninga í máli Yukos sem pólí-
tíska fanga. Mér sárnar að allt
fram til dagsins í dag hefur Am-
nesty International ekki skilið pólí-
tískt eðli þessara réttarhalda.“
Hvers vegna Síbería?
-Khodorkovskí er ekki lengur í
fangelsi í Moskvu heldur var hann
sendur langt austur í Síberíu til af-
„Míkhaíl Kho-
dorkovskí er
pólitískur fangi“
SVIPMYND» Einhuga Jelena Bonner með eiginmanni sínum, Nóbelshafanum Andrei
Sakharov. Þau börðust ákaft fyrir mannréttindum í Sovétríkjunum.
Saman Jelena Bonner á milli móður sinnar, Ruth og dótturinnar Tatjönu.
Jelena Bonner var eiginkona hins heimsþekkta and-
ófsmanns Andrei Sakharovs í Sovétríkjunum. Hún er
ekki hrifin af stjórnarfarinu í Rússlandi og segir mála-
ferlin gegn auðkýfingnum Khodorkovski vera póli-
tískar ofsóknir. Kristján Jónsson ræddi við Bonner.
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Umræðan um stærð fyr-irsætna hefur verið há-vær að undanförnu eðaréttara sagt umræðan
um litla stærð þeirra. Þær eru
reyndar háar en mittið er mjótt.
Nýja takmarkið eða kannski frek-
ar viðmiðið hjá mörgum fyrir-
sætum og leikkonum er „size
zero“ eða stærð núll. Núllið miðast
við bandarískar stærðir en sam-
svarar stærð fjögur í breskum
stærðum, sem kannski fleiri ís-
lenskar konur þekkja.
Á tískuvikum stórborganna síð-
ustu vikur virðist þó fátt hafa
breyst og ekki er að sjá að fyrir-
sætunar séu orðnar feitari. Regl-
urnar voru hertar í Madríd og þar
var einhverjum fyrirsætum bannað
að sýna. Annars staðar hefur
reglum verið hafnað. Iðnaðurinn
vill setja sér eigin viðmið en ekki
fylgja utanaðkomandi reglum.
Samtök fatahönnuða í Bandaríkj-
unum (CFDA) starfa eftir
ákveðnum viðmiðunarreglum. Fyr-
irsætur þurfa að vera orðnar sex-
tán ára, með BMI-gildi (ákveðin
formúla sem varðar hæð og
þyngd) 17,4 eða meira ef þær eru
yngri en 18 ára, og 18,5 ef þær
eru eldri en 18. Til samanburðar
er BMI-gildi manneskju sem er
177 cm á hæð og 58 kg 18,5, sam-
kvæmt reiknivél á doktor.is. Kröf-
ur um viðmiðunarreglur sem þess-
ar hafa orðið hærri eftir að tvær
suður-amerískar fyrirsætur létust
úr anorexíu á síðasta ári.
Eins og hvert annað kjötstykki
Reglurnar gera að verkum að
fyrirsætunum finnst þær að mörgu
leyti vera enn meiri söluvara en
áður, að þurfa að sæta vigtun og
mælingum eins og hvert annað
kjötstykki. Fyrirsæta í sýningu
Bora Aksu í London klæddist bol
með áletrun um að gefa fyrirsæt-
unum ekki að borða, „Please don’t
feed the models.“ Skilti með ámóta
skilaboðum hanga uppi í dýragörð-
um víða um heim.
Reglurnar hefðu haft áhrif á
feril hinnar áströlsku Gemmu
Ward, sem sló í gegn 15 ára gömul
í tískusýningu Prada í Mílanó.
Einnig byrjaði Kate Moss í brans-
anum um 14 ára gömul. Fyrir-
sætur eru flestar ungar að aldri og
því margar náttúrulega mjóar. En
svo eldast þessar sömu fyrirsætur
og eignast jafnvel börn og minnk-
ar mjónupressan ekkert við það.
Fyrirsætan Natalia Vodianova,
sem m.a. er andlit Calvin Klein,
fann fyrir þessari pressu. Hún var
fljótt komin í form eftir barnsburð
og var það ekki margumtalaðri
„náttúrulega góðri brennslu“ að
kenna heldur játaði hún síðar að
hafa þurft að svelta sig til að ná
fyrri þyngd. Áreiðanlega ekki eina
dæmið.
Fyrirsætur hafa mjókkað síð-
ustu ár frá frægðardögum ofurfyr-
irsætnanna Naomi og félaga í upp-
hafi tíunda áratugarins.
Hollywood-leikkonur hafa mjókk-
að enn meira. Segja má að þær séu
ekki síður fyrirmyndir en fyrirsæt-
Að vera ekki neitt
AP
Til sýnis Fyrirsæta klæðist bol með skemmtilegri áletrun að hætti dýra-
garða, „Please don’t feed the models“ á æfingu hjá Bora Aksu í London.
TÍSKA»
Reuters
Yfirstærð? Fáir fara að fordæmi hönnuðarins Elena Miro, sem sýnir á
tískuviku í Mílano, og hannar fyrir konur í stærri stærðum. Fyrirsætur
hennar eru í samræmi við það meira í holdum en þær vinsælustu.