Morgunblaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 21
hugsjónum sínum og draumum er
mynd sem er fjarri.
Stebbi segir hæðnislega: „Já,
GusGus er hljómveit sem spilar fyr-
ir Þjóðverja í annarlegu ástandi!
Ótrúlegt. Að líkja endalaust ein-
hverju sem maður þekkir ekki við
eiturlyf er út í hött og svona alhæf-
ingar bera vott um fáfræði og
hræðslu. Aldrei er talað um þessa
hluti í tengslum við djassara t.d.“
Biggi segir að fólk stökkvi á ein-
faldar skýringar. „Tónlist okkar, og
teknótónlist almennt, fylgir ekki
þessu hefðbundna popplagasniði.
Við erum að spila tilfinninga-
þrungna tónlist sem helst í hendur
við frumstæðar, líkamlegar tilfinn-
ingar. Sumir virðast halda að það
þurfi alltaf að örva sig með efnum
um leið en það er engan veginn for-
senda eða skilyrði.“
Þeir félagar eru auðsýnilega
spenntir yfir þessari nýju
plötu, og eru þeir báðir
eldri en tvævetur í
þessum efnum.
Hvað drífur þá
áfram?
Stebbi segir að fjöl-
breytileiki GusGus-
ævintýrisins sé það sem skipt-
ir hann mestu.
„Maður er að skipta sér af öllu
og mér finnst það mjög gaman.
Ég myndi segja að ég þekkti
þennan bransa inn og út í dag, og ég
veit hvað þarf að gera til að drífa
þessa hluti áfram. Það er vinna sem
mér finnst mjög skemmtileg. Það er
þó ekkert eins skemmtilegt og að
sýsla í sjálfri tónlistinni.“
Biggi segir að það sem komi hon-
um á fætur á morgnana sé hin eilífa
leit að hinum fullkomna tóni.
„Maður er þræll sköpunarinnar.
Það eru gríðarleg forréttindi að fá
að skapa og það að búa til tónlist er
bara stórkostlegt. Þessar tilfinn-
ingalegu upplifanir sem hún veitir,
að prufa sig áfram með hana, er það
sem gefur manni tilgang.“
Á Íslandi er mikið talað um hvort
þessi eða hin hljómsveitin sé að
gera það gott úti í löndum, og oft er
eins og það skipti aðalmáli, skítt
með tónlistina.
„Maður býr til tónlist fyrst og
fremst fyrir sjálfan sig,“ segir
Biggi. „Hún á alltaf að vera númer
eitt. Ef einhver annar tilgangur er
með sköpuninni ertu strax kominn í
vandræði. Ég prófaði einhvern tíma
að vinna auglýsingastef og svona og
mér fannst það algerlega ömurlegt.
Að vera að vinna að tónlist, sem svo
átti að þjóna einhverjum öðrum, var
nokkuð sem hugnaðist mér engan
veginn og ég hætti því strax.“
Á tónleikum
Tónleikar GusGus eru um margt
sérstæðir. Biggi lýsir verklaginu
sem sveitin hefur á þeim
„Það loðir við þessa raftónlist að
hún eigi að vera mjög fastmótuð á
tónleikum, allt komi af segulbandi
og slíku. Það er alls ekki svo með
GusGus. Þar erum við laus við form
og getum farið með lögin þangað
sem við viljum. Við spinnum út frá
grunni laganna eins og hentar og
höfum farið með lögin í ótrúlegustu
áttir. Þetta er allt öðruvísi en hjá
öðrum rafsveitum og jafnvel rokk-
sveitum sem eru að keyra á sama
prógramminu trekk í trekk. Eitt lag
getur kannski farið upp í tuttugu
mínútur og einu sinni á NASA spil-
uðum við tíu lög í tvo og hálfan tíma.
Það var rosa gaman en kannski full-
mikið fyrir suma (brosir).“
Stebbi hristir hausinn. „Að
standa fremst á sviðinu í allan þenn-
an tíma og kýla fólkið linnulaust
áfram … ég var gjörsamlega búinn
eftir þetta.“
Biggi segir að með þessu sé hægt
að taka mið af þeirri stemningu sem
er í salnum hverju sinni.
„Og þetta gengur upp á tón-
leikum, en ekki á plötu … maður er
kannski með bassatrommuna í
gangi eina og sér í mínútu á meðan
Urður er að spinna eitthvað. Það er
ákveðið samspil í gangi á milli
hljómsveitar og áhorfenda, fólkinu
er lyft á sama plan og við erum á.
Allir tónleikar eru mismunandi út af
þessu, í hvert skipti get ég reynt
eitthvað nýtt. Maður getur prófað
sig áfram með eitthvað nýtt á hverj-
um tónleikum. Ég held að áhorfand-
inn finni þetta, hann er ekki að
hlusta á sömu tónlistina og á síðustu
tónleikum. Þetta heldur okkur líka
áhugasömum. Þess vegna er alltaf
jafngaman að stíga á svið því að
framundan er spennandi verkefni
sem þarf að leysa.“
GusGus fer í Evróputúr í apríl og
maí og spilar m.a. í Þýskalandi,
Spáni og Rússlandi. Í sumar treður
hún upp á ýmsum tónlistarhátíðum,
þar á meðal hinni frægu Gla-
stonbury-hátíð.
Forever kom út á Íslandi 1. mars, í
Japan, Þýskalandi, Sviss og Aust-
urríki hinn 23. febrúar og í Bret-
landi og annars staðar í Evrópu
26. febrúar. Hún kemur út í lok
apríl í Bandaríkjunum og Kanada.
Útgáfutónleikar GusGus verða á
NASA 24. mars. Petter & The Pix
(Petter Winnberg úr Hjálmum)
hita upp. Útgáfufyrirtæki GusGus,
Pineapple Records, gaf út fyrstu
plötu hans, Easily Tricked, á síð-
asta ári og stýrir President Bongo
þar upptökum. Miðasala fer fram í
verslunum Skífunnar, BT Akureyri,
Egilsstöðum og Selfossi og á
www.midi.is.
TENGLAR
.....................................................
www.gusgus.com
www.myspace.com/gusgus
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 21
OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKI 9 • KRINGLAN 1
SÍMI: 599 6200 www.hr.is
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
7
Nýtt meistaranám í alþjóðaviðskiptum
Í haust hefst nýtt og krefjandi meistaranám í
viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík sem undirbýr
metnaðarfulla einstaklinga fyrir spennandi störf í
alþjóðlegum fyrirtækjum. Lögð er áhersla á jafnvægi
á milli fræðilegrar þekkingar og hagnýtrar þjálfunar.
Framúrskarandi íslensk útrásarfyrirtæki standa
með Háskólanum í Reykjavík að þróun og
framgangi námsins.
Almennur kynningarfundur um námið
fimmtudaginn 8. mars kl. 12-13 að Ofanleiti 2.
OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR NÚNA
Kíktu á www.hr.is og fáðu nánari upplýsingar.
Langar þig í
alþjóðaviðskipti?
Alþjóðlegt
Námið er kennt á ensku af erlendum
og íslenskum sérfræðingum. Allir
nemendur starfa eina önn í
útlöndum á námstímanum.
Sveigjanlegt
Flestir eru í fullu námi en hægt er
að stunda námið meðfram vinnu.
Sérhæfing
Nemendur hafa tækifæri til
að sérhæfa sig í mismunandi
markaðssvæðum, í rann-
sóknum í viðskiptafræði eða í
alþjóðamarkaðsfræði.
Tungumál
Hluti námsins er tungumálanám og
val á tungumáli tengist sérhæfingu
í markaðssvæðum.
Metnaður
Námið er sniðið fyrir dugmikla
einstaklinga sem sækjast eftir
spennandi störfum í
alþjóðaviðskiptum.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn