Morgunblaðið - 04.03.2007, Side 24
hönnun/landbúnaður
24 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
T
iltölulega nýtt viðfangsefni meðal
hönnuða sem fer vaxandi víða um
heim er að vinna með ýmiss konar
hráefni sem tengjast matargerð,“
segja hönnuðirnir Brynhildur
Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir.
Þær reka einnig saman matarhönnunarfyrir-
tækið „Borðið“ sem tekur að sér ýmis verkefni
tengd mat og matargerð. Á lokadegi verkefn-
isins settu nemendur upp litríkan mat-
armarkað fyrir gesti og gangandi. Skyrkon-
fekt, Mýbiti, geitamjólkurbar og
blóðbergsdrykkur voru á boðstólum og bragð-
aðist hvert um sig afskaplega vel að mati
greinarhöfundar. „Áhugi gesta á matarmark-
aðnum var mikill og var mæting framar öllum
vonum. Skyrkonfektið kláraðist á hálftíma og
voru 100 flöskur af Blóðbergsdrykk fljótar að
fara meðan á sýningu stóð,“ segir Guðfinna
Mjöll sem var mjög ánægð með viðtökur
landsmanna. Verkefnið snerist um vöruþróun
á matvælum í samstarfi við bændur í heima-
framleiðslu, þar af leiðandi eru bændurnir
framleiðendur afurðanna. Íslenskur landbún-
aður hefur þurft að lifa við ákveðna heftingu í
gegnum tíðina en með breyttum lögum og
áherslum er íslenska bóndanum loksins gefið
tækifæri á að þróa hjá sér heimaframleiðslu.
Þetta er stórt skref sem mun marka tímamót í
íslenskri framleiðslu og matarmenningu.
Aðspurðar um þátt hönnuða í verkefni sem
þessu, segja þær: „Með tilkomu hönnuða í
vöruþróunarverkefnum eykst gildi vörunnar,“
og bætir Brynhildur við: „Hönnuðir hugsa út
fyrir rammann og sjá ýmsar nýstárlegar leiðir
að bættri vöru og þjónustu. Á Íslandi leynast
ótal vannýttir möguleikar í framleiðslufyrir-
tækjum víðs vegar um landið.“
Heimaframleiðsla í hæsta gæðaflokki
Flestir bændanna sem tóku þátt í verkefni
Listaháskólans eru þátttakendur í verkefninu
Beint frá býli sem snýst um að þróa vörumerki
og afurðir sem bændur selja milliliðalaust til
neytanda. Ólöf Hallgrímsdóttir var ein af þeim
bændum sem tóku þátt í verkefninu Borðið;
stefnumót hönnuða við bændasamfélagið. Af-
rakstur samstarfs nemendanna Hlínar Helgu
Guðlaugsdóttur og Dags Óskarssonar við
Ólöfu var sérstakur skyndibiti sem kallast Mý-
biti sem samanstendur af ýmsu hráefni sem
þau á bóndabænum framleiða, þar á meðal
reyktum silungi og hverabrauði.
„Við á mínu býli erum í heilmikilli heima-
framleiðslu í tengslum við Vogafjós.“ En hún
rekur ásamt eiginmanni sínum Ferðamanna-
fjós þar sem hún býður upp á ýmsar heima-
gerðar veitingar. Að hennar mati er kominn
tími til að upphefja venjulegan íslenskan mat
og telur hún að hingað til hafi Íslendingar ver-
ið með ákveðna minnimáttarkennd fyrir því að
bera hann fram fyrir gesti. Aðspurð um inn-
komu hönnuða í vöruþróunarverkefni segir
hún: „Ég vildi gjarnan sjá meiri samvinnu af
þessu tagi, t.d í sambandi við verkefnið Beint
frá býli sem ég er aðili að, til þess að ná og
koma á framfæri sérstöðu íslensks hráefnis og
afurða, ég tel að það sé hagur beggja aðila.“
Bændur og gæði sýnilegri
Með heimaframleiðslu fær neytandinn
fyrsta flokks hráefni og veit hvaðan varan
kemur. Það má gefa því gaum að loksins geta
þeir bændur sem hafa metnað fyrir vörum sín-
um verið sýnilegri í heimaframleiðslunni. Sam-
lögin hafa hingað til komið í veg fyrir sýnileika
bóndans, öllu verið blandað saman í einn
hrærigraut þar sem afurðir metnaðarfulls
bónda blandast illa gerðum afurðum og gæð-
in hverfa í fjöldanum.
„Ég tel einnig mjög mikilvægt að fólk fái
að vita hvað sé í þeim afurðum sem við neyt-
um og hvaðan þær koma,“ segir Ólöf og bætir
við; „Við erum það sem við borðum.“
Einnig bendir hún á að grasið sé ekki endi-
lega grænna hinum megin þegar kemur að
matarmenningu Íslendinga. „Ég lít svo á að
okkur beri skylda til að viðhalda þessum
menningarverðmætum sem við erum með í
höndunum og einnig hefðinni við að búa af-
urðirnar til,“ segir Ólöf að lokum.
Það verður áhugavert að fylgjast með
Morgunblaðið/Ómar
Vinsælt Matarmarkaður í Matarsetrinu í Grandagarði var haldinn í lok áfangans. Fjöldi
fólks streymdi á markaðinn og voru viðtökurnar á verkefnum nemenda mjög góðar.
Samspil hönnuða
og framleiðanda
Nýlega kom fram á sjónarsviðið afrakstur sjö vikna samstarf annars árs nema vöruhönnunardeildar Listaháskóla Íslands við
nokkra bændur. Verkefnið heitir Borðið; stefnumót hönnuða við bændasamfélagið. Guðrún Edda Einarsdóttir ræddi við þær
Brynhildi Pálsdóttur og Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur sem sáu um kennslu og umsjón verkefnisins ásamt því að spjalla við
Ólöfu Hallgrímsdóttur bónda frá Vogafjósi í Mývatnssveit sem tók þátt í verkefninu.
Góðbýli Á bóndabænum Vogafjósi í Mývatnssveit kennir ýmissa grasa, þar er meðal annars heimaframleiðsla á sultum og reyktum silungi.
Morgunblaðið/Ómar
Gómsætur biti Mýbiti var afrakstur samstarfs nemendanna Hlínar Helgu Guðlaugsdóttur og
Dags Óskarssonar við bóndann Ólöfu Hallgrímsdóttur frá Mývatnssveit.