Morgunblaðið - 04.03.2007, Page 31
sem fyrirtæki þarfnast. Auk hefð-
bundinnar inn- og útlánastarfsemi
standa viðskiptavinum til boða
persónutryggingar og lífeyris-
sparnaður með atbeina dóttur-
félaga sparisjóðsins. Magnús og
Ragnar segja að mikil áhersla
verði lögð á að koma til móts við
þarfir allra aldurshópa og þá sér-
staklega þarfir þeirra sem eru á
vinnumarkaði eða nýkomnir inn á
hann.
Spurðir um það hvort samein-
ingin muni skila sér í lægri við-
skiptakostnaði og jafnvel lægri
vöxtum segjast þeir bjartsýnir á
það. „Þegar tímar líða mun þetta
örugglega þýða að við getum boðið
upp á betra verð en fræðin segja
að fjármögnunarkostnaður okkar
ætti að lækka eftir því sem við
verðum stærri, sérstaklega erlendi
fjármagnskostnaðurinn en hluti af
okkar starfsemi er fjármagnaður í
útlöndum. Þar erum við á sömu
hringekjunni og viðskiptabank-
arnir,“ segir Magnús.
Aukin umsvif í útlöndum
Ísland er aðalmarkaðssvæði
BYRS með áherslu á höfuðborg-
arsvæðið en starfsemin fer einnig
fram víðar á Norðurlöndum og á
meginlandi Evrópu. Magnús og
Ragnar eru þó ekki hrifnir af orð-
inu „útrás“ í þessu samhengi.
„Báðir sparisjóðirnir hafa verið að
fikra sig út til Evrópu og við erum
í verkefnum í nokkrum löndum,
má þar nefna Danmörku, Bretland
Spán og Austur-Evrópu, þótt ekki
sé það í sama mæli og viðskipta-
bankarnir. Þetta hefur fyrst og
fremst verið gert vegna þarfa okk-
ar viðskiptavina en upp á síðkastið
höfum við líka verið að fikra okkar
áfram í fjárfestingum erlendis. Það
er nokkuð sem við munum horfa til
í auknum mæli á komandi miss-
erum enda mun hægara um vik
eftir samrunann. Slagkrafturinn er
orðinn meiri og sjóndeildarhring-
urinn stærri,“ segir Ragnar og
upplýsir að nýverið hafi BYR sett
á laggirnar félag í London í sam-
starfi við breska aðila. „Við mun-
um skýra betur frá því verkefni á
næstu vikum,“ segir Ragnar.
Heildareignir BYRS losa hundr-
að milljarða króna og sparisjóðs-
stjórarnir segja að það sé mjög
mikilvægur þröskuldur að komast
yfir. „Ef efnahagurinn er kominn
yfir einn milljarð evra færist mað-
ur ósjálfrátt upp um þrep í augum
evrópskra banka. Það kemur til
með að nýtast okkur,“ segir Magn-
ús.
BYR hefur verið að vinna að
ýmsum verkefnum með öðrum inn-
lendum aðilum, m.a. öðrum spari-
sjóðum, og Magnús og Ragnar
staðfesta að það verði gert áfram.
Óttast ekki nafnabreytinguna
Sparisjóður Hafnarfjarðar á sér
meira en hundrað ára sögu og
Sparisjóður vélstjóra varð 45 ára á
síðasta ári. Magnús og Ragnar ótt-
ast eigi að síður ekki afleiðingar
þess að leggja gömlu nöfnunum.
„Það er ekkert nýtt að fjármála-
stofnanir breyti um nafn, sjáðu
bara Kaupþing og Glitni, ekki hafa
þær breytingar skaðað þessi fyrir-
tæki. Hér er að verða til nýtt fyrir-
tæki, sem byggir vissulega á göml-
um og traustum grunni, en horfir
fyrst og fremst fram á veginn.
Partur af því er að flykkja sér
saman undir nýju nafni. Ef við
myndum halda nöfnunum ættum
við á hættu að festast í gamla kúlt-
úrnum, við og þið. Það viljum við
ekki,“ segir Ragnar.
Hann segir að vissulega sé
mönnum hlýtt til gömlu nafnanna
en með tíð og tíma hafi nafnið
Sparisjóður vélstjóra verið farið að
standa því fyrirtæki fyrir þrifum.
„Við létum kanna málið og komið
hefur í ljós að margir hafa ekki
hugmynd um það að þeir geti kom-
ið hingað í viðskipti. Þess vegna
höfum við notað nafnið SPV síð-
ustu árin.“
Magnús viðurkennir að þetta sé
viðkvæmara í Hafnarfirði enda
tengist SPH ákveðnu svæði en
ekki starfsgrein. Hann segir að
nafn og merki Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar hafi verið að þróast í takt
við þær breytingar sem orðið hafa
á markaðnum undanfarin fimmtán
ár eða svo og fyrirtækið í auknum
mæli farið að nota skammstöf-
unina, SPH. „Kannski mun ein-
hverjum þykja þetta mikil goðgá
en ég hef engar áhyggjur af þessu.
Heimurinn er á fleygiferð, bæði
hér heima og erlendis, og ef menn
ætla að festast í því hugarfari að
hugsa alltaf hundrað ár aftur í tím-
ann komast þeir hvorki lönd né
strönd. Við sjáum það best á okkar
ágæta þjóðfélagi.
Menn mega heldur ekki gleyma
því að enda þótt nöfnunum sé lagt
er allt annað óbreytt og möguleik-
arnir meiri. Fólkið er það sama og
þjónustan verður betri,“ segir
Magnús.
Starfsmenn BYRS eru 175 tals-
ins, þar af um 100 í höfuðstöðv-
unum. „Með auknum umsvifum og
nýjum sviðum mun þessi fjöldi
aukast á komandi misserum,“ seg-
ir Ragnar.
Vilja vera undir einu þaki
Útibú SPH og SPV verða á sín-
um stað á mánudaginn og verða
opnuð undir heitinu BYR – spari-
sjóður en enn á eftir að finna hinu
nýja fyrirtæki höfuðstöðvar til
frambúðar. „Við leggjum áherslu á
það að vera undir einu þaki en því
miður hefur viðunandi húsnæði
ekki fundist ennþá,“ upplýsir
Ragnar og Magnús bætir við að
verið sé að leita logandi ljósi að
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Það yrði enn eitt skrefið í sam-
runaferlinu.
orri@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 31
Nafnið BYR táknar meðvind í eig-
inlegri og óeiginlegri merkingu. Það
er komið úr sjómannamáli og jákvætt
í eðli sínu; að fá byr í seglin. Hug-
mynd er sögð fá góðan byr þegar
henni er vel tekið. Byr er sá sem ber
eða hreyfir eitthvað áfram.
Nafnið er íslenskt og er eins í öll-
um föllum nema eignarfalli en þá
bætist -s við það.
Merki hins nýja fyrirtækis er
myndgerð af nafninu sem er skylt söginni „að bera“ og felur í sér hreyf-
ingu. BYR er „hagstæður vindur“ sem ber fleyið áfram. Merkið tekur mið
af upprunanum þar sem rendurnar tákna SPV og SPH sem saman mynda
nýtt tákn og nýja heild. Uppruni fyrirtækisins er líka dreginn fram með
litanotkun. Vörumerkið á að túlka hugsunina „persónulegur og framsæk-
inn“.
Hreyfing fram á við
Stjórn Icelandair Group hf. boðar til aðalfundar félagsins
árið 2007 vegna rekstrarársins 2006. Fundurinn er
haldinn að Nordica hóteli þriðjudaginn 13. mars 2007
kl. 16.00 síðdegis.
Á dagskrá fundarins eru:
01 Hefðbundin aðalfundarstörf skv. 2. mgr. 14. gr.
samþykkta félagins.
02 Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
03 Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu Icelandair
Group hf. kynnt og staðfest.
04 Önnur mál löglega upp borin.
Nánar:
A. Framboð til stjórnar:
Framboðum til stjórnar skal skilað skriflega fyrir kl. 16.00
fimmtudaginn 8. mars 2007 til skrifstofu félagsins á Reykja-
víkurflugvelli. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa
upp, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilisfangs,
upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun,
reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um
hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila
félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.
B. Tillaga um arðgreiðslur:
Stjórn gerir tillögu um að hluthöfum skuli ekki greiddur arður
vegna rekstrarársins 2006, heldur skuli rekstrarhagnaður
leggjast við höfuðstól til hækkunar á honum.
C. Tillögur um breytingar á samþykktum:
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins fela í sér
heimild til stjórnar til að heimila hluthöfum að taka þátt í
hluthafafundum með rafrænum hætti, þ.m.t. í atkvæðagreiðslum,
eða að hluthöfum verði að lágmarki boðið að greiða atkvæði
bréflega fyrirfram um tillögur sem lagðar eru fyrir hluthafa-
fundi. Í annan stað kveða tillögur stjórnar á um að varamönnum
í stjórn félagsins verði fjölgað úr tveimur í þrjá.
Í þriðja lagi kveða tillögurnar á um breytingar á samþykktum
sem fela í sér skýrari reglur um upplýsingargjöf vegna
framboðs til stjórnar og hvernig fara skuli með slík framboð.
Aðalfundur Icelandair Group hf. árið 2007.
Dagskrá aðalfundarins, ársreikningur félagsins og
endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins á Reykjavíkurflugvelli til skoðunar fyrir
hluthafa frá og með 6. mars 2007.
Óski hluthafi eftir að fá ákveðið mál tekið til meðferðar
á fundinum skal ósk hans komið skriflega til skrifstofu
félagsins á Reykjavíkurflugvelli í síðasta lagi hinn
6. mars 2007.
Aðgöngumiðar, fundargögn og atkvæðaseðlar verða
afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á
fundarstað frá kl. 15.00 á fundardegi, þriðjudaginn 13.
mars 2007.
Stjórn Icelandair Group hf.