Morgunblaðið - 04.03.2007, Qupperneq 44
44 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
LANDSLIÐSMENNIRNIR í
handknattleik, Ásgeir Örn
Hallgrímsson og Snorri
Steinn Guðjónsson, hafa
skrifað undir samning við
danska úrvalsdeildarliðið
GOG frá Svendborg. Þeir
ganga til liðs við félagið í
sumar og er samningur þeirra
til tveggja ára
„Ég valdi GOG fyrst og
fremst vegna þess að ég sé
fram á að fá að leika í 60
mínútur í hverjum leik sem er
talsvert annað en ég bý nú
við í Þýskalandi,“ sagði
Ásgeir Örn í samtali við
Morgunblaðið en hann er nú
hjá Lemgo í Þýskalandi.
GOG hefur um langt árabil
verið meðal fremstu
handknattleiksliða
Danmerkur og varð m.a.
meistari á síðasta vori.
„Ég hefði aldrei skrifað
undir hjá GOG ef ég liti á það
sem skref aftur á bak á ferli
mínum að fara til félagsins.
Það er alveg ljóst að ég er að
fara til betra liðs en ég er hjá
núna. Hins vegar er danska
deildin ekki eins sterk og sú
þýska en ég tel mig betur
settan hjá toppliði í
Danmörku en hjá botnliði í
Þýskalandi,“ sagði Snorri.
Til Dan-
merkur
FJÓRÐA sinfó-nía Atla Heimis
Sveins-sonar verður
heims-frum-flutt í
tón-listar-höllinni Rudolf-inum
í Prag þann 30. mars.
Tékk-neska
fíl-harmóníu-sveitin flytur
verkið en það er hluti af
ár-legri tón-listar-hátíð í Prag.
Hátíð-in er að þessu sinni
mestu helg-uð
samtíma-tón-skáldum frá
Norður-löndunum og ber
yfir-skrift-ina „Haldið norður“.
Tékk-neskir
hljó-færa-leikarar spreyta sig
á hátíð-inni á rúm-lega þrjá-tíu
verk-um eftir tón-skáld frá
Norður-löndunum og
Tékk-landi.
Atli Heimir samdi
sinfó-níuna sína í ná-grenni
Prag síðasta vor þegar hann
dvald-ist á lista-manns-setri í
eigu hjónanna Ingi-bjargar
Jóhanns-dóttur og Þóris
Gunnars-sonar,
alræðis-manns Ís-lands í
Tékk-landi en þau hjón hafa
boðið ís-lenskum
lista-mönnum að dvelja þar
sér að kost-naðar-lausu frá
árinu 2005.
Frumflutt
í Prag
Sitt sýnist hverjum um þá
ákvörðun
félagsmálaráðherra að
hækka lánshlutfall
Íbúðalánasjóðs úr 80% upp í
90% , - en þetta var tilkynnt til
Kauphallarinnar þann 28.
febrúar sl. Þá hækkaði einnig
hámarkslán sjóðsins úr 17
milljónum í 18 milljónir
króna. Með þessari aðgerð er
lánshlutfall og
hámarksfjárhæð komin aftur
í sama horf og var áður en
ríkisstjórnin ákvað í fyrra að
lækka hlutfallið og
fjárhæðina sem lið í
efnahagsaðgerðum. Hjá
bönkum er fremur lítil hrifning
með hina nýju ákvörðun
ráðherra en aðrir telja hana
koma fólki á landsbyggðin vel
- síður höfuðborgarbúum.
Íbúðalána-
sjóður - 90% Lög-reglan í Kaup-mannahöfn
réðst á fimmtu-dags-morgun
inn í gamla félags-mið-stöð
og fjar-lægði þar
hústöku-fólk. Dóm-stóll hafði
skipað hústöku-fólkinu að
fara úr húsinu en borgin var
búin að selja það kristi-legum
söfnuði fyrir nokkrum árum.
Átök urðu í gær og þrír menn
meiddust, þó ekki alvar-lega.
Húsið er í hverfinu
Norður-brú. Þyrla flutti
lögreglu-menn á staðinn, þeir
lentu á þakinu áður en
aðgerðin hófst. Lög-reglan
lokaði síðan nokkrum götum í
grennd-inni.
Margir höfðu kastað grjóti i
lögreglu-menn eða reist
vegar-tálma. Nokkrum
grunn-skólum í
Kaup-manna-höfn var lokað í
bili meðan á aðgerð-unum
stóð af því að hætta var á
óeirðum. Meira en 70 manns
voru hand-teknir.
Neglt var fyrir glugga
versl-ana og banka í grennd
við bygg-inguna sem slegist
var um. Hún er kölluð
Ung-doms-huset á dönsku.
Eftirlit við
landa-mæra-stöðvar var hert
af því að hústöku-fólkið hafði
á Netinu beðið um aðstoð
útlend-inga í baráttunni gegn
lög-reglunni. Hugðist hún
stöðva slíkt fólk ef það reyndi
að komast til Dan-merkur.
Slegist við hústöku-fólk
Reuters
Lögreglu-menn hand-taka mót-mælendur í Kaup-manna-höfn.
ÓSKARS-VERÐLAUNIN voru
veitt við hátíð-lega athöfn í
Hollywood aðfara-nótt
mánu-dags.
Margir höfðu velt vöngum
yfir því hvort leik-stjórinn
Martin Scorsese hlyti
verð-launin í fyrsta sinn, en
hann hefur verið tilnefndur
fimm sinnum áður. Það varð
úr, Scorsese þótti besti
leik-stjórinn á hátíðinni og
mynd hans, The Departed,
þótti besta myndin. Helen
Mirren var valin besta
leik-konan í aðal-hlutverki fyrir
leik í kvikmyndinni The
Queen, þar sem hún leikur
Elísabetu
Englands-drottningu.
Leikarinn Forest Whitaker
þótti svo fremstur meðal
jafn-ingja fyrir hlutverk sitt í
The Last King of Scot-land, en
hann lék meðal annars í
kvikmynd Baltasars Kormáks,
Little Trip to Heaven. Jennifer
Hudson fékk Óskar fyrir
bestan leik í auka-hlut-verki
kvenna fyrir hlut-verk sitt í
Dream-girls og Alan Arkin fyrir
auka-hlutverk karla fyrir Little
Miss Sun-hine.Besta erlenda
myndin var hin þýska Das
Leben der Anderen (Líf
annarra) og besta
teikni-myndin Happy Feet.
Það var Ellen De-Generes
sem var kynnir kvölds-ins og
fórst það starf vel úr hendi.
Scorsese hlaut Óskars-verðlaun
Reuters
Verð-launaður Leik-stjórinn
Martin Scorsese.
Netfang: auefni@mbl.is
Virðisaukaskattur á
matvælum lækkaði 1. mars
úr 24,5% eða 14% í 7%.
Ýmsir telja sig hafa fundið
fyrir hækkunum á matvælum
að undanförnum og óttast að
virðisaukaskattslækkunin
skili sér ekki sem skyldi í
vasa neytenda. ASÍ ætlar að
láta fylgjast með því eftir
föngum að kaupmenn lækki
Matvæli lækka í verði
verð í samræmi við lækkkun
virðisaukaskattsins á hinum
ýmsu matvælum. Árni M.
Mathiesen fjármálaráðherra
hefur hins vegar trú á að
kaupmenn hafi metnað til að
láta hækkanirnar skila sér til
neytenda. Auk lækkunar
virðisaukaskatts hafa
vörugjöld af matvælum verið
felld niður en nokkur tími
líður þangað til sú aðgerð
skilar sér út í verðlagið.
Ráðherra hefur boðað að ef
lækkanir verða ekki eðlilegar
þurfi að skoða leiðir til að
auka samkeppni. Stjórnvöld
og aðrir skora á almenning
að halda vöku sinni og láta
vita ef matvara lækkar ekki í
samræmi við það sem gert er
ráð fyrir sem afleiðingu af
umræddri lækkun
virðisaukaskatts og
vörugjalda.