Morgunblaðið - 04.03.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 45
stjörnuspá mars
Með sólina í fiskamerkinu ættirðu að einblína á innra líf
þitt. Skapandi og andleg málefni koma þar við sögu.
Kannski að þú vinnir bakvið tjöldin. Ekki reka á eftir
hlutunum, haltu heldur góðum dampi. Þú gætir þurft að
doka við og fara yfir hlutina. Leyndarmál og falin mál-
efni koma upp sem takast verður á við. Kannski að þú
endurmetir stöðu þína í samfélaginu.
Líklega verða breytingar á heilsufari eða í vinnunni.
Kannski vinnufélagi segi upp, eða ábyrgð þín breytist.
Hugsaðu um heilsuna, sérstaklega varðandi mataræði
og hreyfingu. Það gæti margt óvænt gerst í vikunni á
eftir.
Viðbrögðin gætu orðið sterk, ekki síst meðal þinn nán-
ustu.
Hrútur 20. mars – 20. apríl
Með sólina í fiskamerkinu ættir þú að einbeita þér
að vinum og eigin vonum og væntingum. Þú tekur
þátt í félagslífi eða samkomum. Kannski þú hittir
aftur gamla félaga eða eignist nýja. Breytingar eða
nýtt upphaf gætu átt sér stað varðandi lífsstíl, skap-
andi verkefni og málefni tengd börnum eða tóm-
stundum. Þú endurskipuleggur líf þitt eða hvert þú
stefnir. Nýir og óvæntir valmöguleikar eða hug-
myndaríkt fólk sprettur upp í kringum þig. Vertu á
verði því fólk kemur eða fer með stæl og það getur
haft áhrif á fjármálin þín. Þú gætir jafnvel lent í ást-
arævintýri. Þú hittir mjög sterkt fólk og kraftmikið
sem á mjög auðvelt með að hrífa þig með sér.
Lengra en þig grunar.
Naut 20. apríl – 21. maí
Með sólina í fiskum ættir þú að huga vel að ferðalög-
um, námi, samböndum við útlönd eða að víkka út
mynd þína af lífinu. Þú gætir átt í sambandi við
framandi og erlenda aðila, þróað þar vinskap og jafn-
vel sett ný framtíðaráform. Áform þín og álit al-
mennt munu líklega breytast og einnig gætu orðið
gætu orðið breytingar eða stöðnun hvað varðar sam-
bönd og ferðalög. Samstarfsmaður mun kannski
hverfa á braut eða breyta stöðu sinni innan fyrirtæk-
isins. Þá getur fjarvera skipt miklu máli. Einhver
misskilningur mun eiga sér stað í samskiptum.
Farðu aftur yfir áformin og gerðu breytingar eftir
þörfum. Taktu sérstaklega til athugunar breytingar
sem verða á samböndum.
Krabbi 21. júní – 22. júlí
Þar sem sólin er í fiskamerkinu ættir þú að huga að við-
skiptasamböndum, ástum og leyndarmálum. Taktu pen-
ingamálin sérstaklega fyrir með tilliti til lífshlaups þíns
og væntinga. Breytingar gætu orðið á ráðstöfunarfé, þar
sem vissu tímabili gæti lokið með tilheyrandi innkomu
eða útgjöldum. Búðu þig undir breytingar á því sviðinu.
Þú gætir þurft að spara eða færa til peninga en þú hefur
séð það svartara. Önnur vika mánaðarins hefur í för með
sér enn frekari raskanir þar sem sólin heilsar upp á Úr-
anus. Þú gætir þurft að flokka og samræma útgjöld.
Börn gætu orðið kostnaðarsöm. Skyndilegar eða miklar
breytingar gætu orðið varðandi skapandi verkefni eða
ástarævintýri.
Ljón 23. júlí – 23. ágúst
Með sólina í fiskamerkinu eru félagar eða nánir sam-
starfsmenn þér hugleiknir. Aðstæður geta breyst hjá
einhverjum nánum varðandi vinnu eða heilsu. Og í þínu
nánasta sambandi gæti rútínan breyst. Júpíter er núna í
fjórða húsi hjá þér og það hefur áhrif á heimilis-
aðstæður. Vissu tímabili mun ljúka þar. Athöfnum eða
venjum verður hætt og einnig gæti hegðun þín breyst.
Sólin og Úranus mætast hinn 5. mars og geta æst upp
félaga og samstarfsmenn. Það hefur í för með sér miklar
breytingar með óvæntum uppákomum. Nýlegur mis-
skilningur eða vandamál í samskiptum mun leysast.
Mörg minniháttar verk bíða þín, en þú kemst gegnum
það ef þú skipuleggur hlutina upp á nýtt.
Meyja 23. ágúst – 23. september
Sólin er í fiskum og þú munt einbeita þér að vinnu,
heilsu og daglegri rútínu. Samt verður erfitt að halda
hlutum í horfinu.
Einhverjir heilsubrestir koma upp og hafa áhrif á þig
eða aðra fjölskyldumeðlimi. Það hefur kannski áhrif á
vinnuaðstæður hjá þér og einhver endalok verða á sam-
skiptum við fólk sem þú hefur núna daglegt samband
við. Þú gætir verið þreyttur eða misst áhugann á verk-
efnum sem þú sinnir. Einhver æsingur gæti átt sér stað
í vinnunni en fólk mun róast mjög fljótt. Þú gætir þurft
að hafa samskipti við furðulegan eða erfiðan ein-
stakling. Þú munt líklega brjóta upp venju til að fá til-
breytingu inn í líf þitt. Vertu þolinmóður, áhrifin munu
skila sér.
Vog 23. september – 22. október
Þegar sólin er í fiskamerkinu er heillavænlegt fyrir
þig að sinna ástum, lífsstíl, sköpun og tómstundum.
Þú vilt finna leið til að fara í lífinu og munt einbeita
þér að ánægju. Félagslíf mun spila þar stórt hlutverk.
Þú byrjar á mjög persónulegum verkefnum, og 3.
mars þegar tunglið er fullt, eignastu nýja vini, vonir
og væntingar. En á sama tíma mun vinur eða kunn-
ingi hverfa úr vinahópnum, og jafnvel hættirðu ein-
hverri hópástundun. Þú sinnir eigin áhugamálum af
þeim mun meiri krafti, og færð áhuga á vissu fólki
sem tengist góðum hugmyndum. Vertu fljótur að
kynna þér hvers þú þarfnast til njóta góðs af þeim,
annars gætu tækifærin horfið. Og í þetta sinn viltu
ekki missa af þeim.
Sporðdreki 23. október – 21. nóvember
Það verður frekar brösugt að samræma heimili og
vinnu. Með sólina í fiskum muntu því einbeita þér að
fjölskyldunni og heimilinu. 3. mars er fullt tungl og þá
verða einhverjar breytingar sem varða yfirvöld, frama
og ábyrgð. Þú gætir misst samning eða skipt um
skyldur, sem fær þig til að leita nýrra leiða á frama-
brautinni. Heilsa og hæfni gætu þá skipt sköpum.
Fólki mun lenda saman á heimilinu eða í stórfjöl-
skyldunni og það mun hafa áhrif á samskipti. Einnig
muntu þurfa að eiga við erfiðan eða uppreisn-
argjarnan einstakling. Heima fyrir skaltu vera á verði
gagnvart slysum, jafnvel tengdum skemmtilegri uppá-
komu eða óvæntum gesti. Hafðu í huga eigin tak-
markanir.
Bogmaður 22. nóvember – 21. desember
Þú hefur Júpíter í tólfta húsi mest allt árið og þarft
að kanna dýpri vitund þína og andleg gildi. Uppgötv-
anir á földum eða liðnum atburðum munu oft koma
þér á óvart, hvort sem þeir varðar þig eða aðra. Þar
sem mánuðurinn byrjar með sólina í fiskum munu
samskipti, ferðalög, viðskipti ásamt samskiptum við
systkini og nágranna eiga hug þinn allan. Einhver
sambönd gætu þó slitnað, ekki síst tengd útlöndum.
Það getur hrikt í samböndum innanlands. Þú munt
lenda í vanda með ferðalög, samskiptatæki og far-
artæki. Passaðu þig í umferðinni. Fundum og stefnu-
mótum gæti verið aflýst. Óvæntar breytingar verða
eftir miðjan mánuð og þú verður hissa á að sjá vissa
manneskju.
Steingeit 22. desember – 20. janúar
Með sólina í fiskamerkinu munt þú einbeita þér að per-
sónulegum fjárhag þínum. Samvinna er lykilorðið í upp-
hafi mánaðar. Vertu viss um að allir viti hvað þú gerir
og gerir ekki. Þú skalt hafa náin samskipti við félaga,
nána samstarfsmenn og fólk í þínum innsta hring. Mikl-
ar breytingar verða þegar kemur að sameiginlegum
fjárhaldsmálum. Einhver stendur í vanskilum eða
samningar breytast, og þú verður að enduskipuleggja
þig á einhvern máta. Það gæti orðið einhver uppákoma í
sambandi við of mikil útgjöld, og kannski þarf að gefa of
dýran draum upp á bátinn. Einhver félaga þinni gæti
gengið á dyr. Ekki bregðast við of fljótt, helst ekki fyrr
en eftir 8. mars.
Vatnsberi 21. janúar – 19. febrúar
Sólin er í þínu merki! Til hamingju með afmælið, fiskur!
Þér er mjög umhugað um félagana, ástarmálin, stefn-
una í lífinu og sjálfan þig þessa dagana. Þú getur átt von
á breytingum hvað varðar tengingar við annað fólk,
hvernig þú tengir og við hverja. Þar verða vinnufélag-
arnir í aðalhlutverkunum. Vinna, heilsa og dagleg rútína
geta breyst og í kjölfarið á því sambandið við þína nán-
ustu. Í viðskiptum fer fólk mögulega hvað í sína áttina.
Sumir hverfa á braut, en hægt er að fá aðra til að skipta
um skoðun. Þú veist algerlega hvað þú vilt og hvar þú
stendur, svo ekki taka hlutina of nærri þér. Dragðu
djúpt inn andann þar til eftir miðjan mánuð. Þá leysast
málin meira og minna af sjálfu sér.
Fiskar 19. febrúar – 20. mars
S
einni partinn í febrúar
bárust þau tíðindi um
Ísland þvert og endi-
langt að um 73% lands-
manna vildu að stjórn-
málaflokkarnir legðu meiri
áherslu á náttúrvernd og um-
hverfismál. Var þetta niðurstaða
könnunar, sem gerð var fyrir
Náttúruverndarsamtök Íslands af
hinu virta Gallupfyrirtæki.
Og hvort sem vorinu er um að
kenna eða e.t.v. alþingiskosn-
ingum sem óðum nálgast, þá er
allt að verða dálítið grænt í ís-
lenskri pólitík. Sem auðvitað er
hið besta mál. Spurningin er bara
hversu lengi það heldur. Fyrirheit
þess vettvangs eru nefnilega
öðruvísi að eðli til en önnur; þau
vilja gleymast er frá líður og
deyja. Eru svikin, m.ö.o. Um það
finnast allt of mörg dæmin.
En er á meðan er, mikil ósköp.
Og hver veit, kannski mun skyn-
seminni takast að rétta kúrs hinna
þungu fleyja í eitt skipti fyrir öll
núna, því „spekin hefir yfirburði
yfir heimskuna eins og ljósið hefir
yfirburði yfir myrkrið“, eins og
segir í Prédikaranum, 2. kafla og
13. versi. Allavega eru staðreynd-
irnar óneitanlega farnar að tala
sínu máli, um öfgakenndar lofts-
lagsbreytingar með tilheyrandi vá
fyrir dyrum. Að þráast við og
berja hausnum við steininn í af-
neitun er engri viti borinni mann-
eskju lengur sæmandi. Og hefur
reyndar aldrei verið það.
Myndin sem þessum pistli
fylgir gæti verið að sýna jörðina
eftir nokkra áratugi, ef ekki verð-
ur gripið í taumana af alvöru. Það
er ekkert flóknara en svo. Þá fær
Mars verðugan keppinaut um
heitið Rauða plánetan. Ekki beint
skemmtileg tilhugsun.
Hvers eiga hinar ný- og ófæddu
kynslóðir mannkynsins eiginlega
að gjalda, ef illa fer? Hverju verð-
ur til svarað? Gripið til lyginnar?
Bent á aðra? Í það minnsta verður
dálítið klént að segja eins og er, að
þarna hafi gróðavonin ein ráðið.
Til er nokkuð sem kallast Um-
hverfisboðorðin 10 og varð til þeg-
ar hópur af ungum gyðingum og
kristnum hittist til að ræða hvað
sameiginlegur trúararfur þeirra
hefði að segja í umhverfisvanda-
málum nútímans. Þessi borðorð
eru æði merkileg og sameina hið
gamla og nýja lögmál með því að
tjá kærleikann sem okkur ber að
sýna í orði og verki sköpun Guðs.
Þau eru svona, í þýðingu Krist-
ínar Þórunnar Tómasdóttur, eftir
Grænu kirkjubókinni, útgefinni af
norsku kirkjunni (Kirkens
Ulandsinformasjon) 1998:
1. Ég er Drottinn Guð þinn,
sem skapaði himin og jörð. Þú ert
samverkamaður minn í sköp-
uninni. Gæt þess vegna að
plöntum og dýrum, lofti og vatni,
eins og þau væru systur þínar og
bræður.
2. Þú skalt hafa í huga að með
lífinu sem ég gaf þér, fylgir einnig
ábyrgð, frelsi og takmarkaðar
auðlindir.
3. Þú skalt ekki stela frá ókom-
inni tíð. Heiðra skaltu börn þín
með því að gefa þeim möguleika á
löngu lífi.
4. Kenn börnum þínum að bera
kærleika til náttúrunnar.
5. Mundu, að manneskjan getur
notfært sér alls konar tækni en
hún getur ekki endurvakið það líf
sem hefur verið eyðilagt.
6. Þú skalt vinna á móti öllum
yfirvofandi umhverfisskaða með
söfnuðinum þínum.
7. Þú skalt losa þig við öll vopn
sem orsaka óbætanlegan skaða á
lífríkinu.
8. Þú skalt nota litlu hlutina í lífi
þínu með ábyrgð og sjálfsaga.
9. Þú skalt halda hvíldardaginn
heilagan með því að standa með
umhverfinu, ekki bara nota það.
10. Mundu að þú ert ekki eig-
andi að jörðinni – heldur verndari
hennar.
Ég lýk svo þessum hugleið-
ingum í dag með tilvitnun í bókina
„Ísland á nýrri öld“, sem út kom
árið 2000, og hefur að geyma
framtíðarsýn 22 þjóðkunnra Ís-
lendinga, en þar segir Karl Sig-
urbjörnsson biskup m.a.:
Við erum kölluð til sérstaks
hlutverks í þessari veröld, sem er
blessuð, signuð af krossi Krists,
endurleyst veröld, frelsað líf!
Þetta er heimur Guðs. Heilög
jörð. Guð hefur skapað þennan
heim og hann er enn að verki,
hann er enn að skapa … Þegar
kristin játning heldur því fram að
við séum sköpuð í Guðs mynd þá
felst í því að maðurinn ber sér-
staka ábyrgð og hefur einstöku
hlutverki að gegna. Maðurinn er
skapaður til umhyggju og ábyrgð-
ar. Manneskjan hefur samvisku
og val milli góðs og ills, þess
vegna er hún ábyrg og hefur
skyldum að gegna í því að hlúa að
lífinu, vera ráðsmaður og sam-
verkamaður Drottins. Eða eigum
við að segja: Okkur ber að vera
garðyrkjumenn í aldingarði sköp-
unarinnar og standa sem slík
ábyrg gagnvart Guði, og öllu því
sem lifir, og komandi kynslóðum.
Og okkur ber að greiða veg því
sem eflir lífið en hamla gegn
græðgi, fýsn og valdi.
Að láni
„Við fengum jörðina ekki í arf frá forfeðrum
okkar, við höfum hana að láni frá börnunum
okkar,“ segir máltæki frá Keníu. Sigurður
Ægisson gerir umhverfisvernd að umtalsefni
að þessu sinni, enda við hæfi á sjálfum
Æskulýðsdeginum.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
HUGVEKJA
Með sólina í fiskum ættir þú að einbeita þér að fram-
anum og vegna þess gætir þú þurft að eiga við fólkið
með völdin. Þú lætur af ábyrgð sem annaðhvort snýr
að vinnu eða einkalífi. Þú gætir þurft að takast á við
mál sem hafa setið á hakanum. Þetta gæti varðað
stöðu þína eða þá að málin snúa að fólki og þau þarf
þá að ræða frekar. Líklega verða breytingar í heim-
ilis- og einkalífinu. Einhver gæti mögulega yfirgefið
heimilishaldið eða fjölskylduna. Málin þróast á af-
drifaríkan hátt hvað vinnuna varðar og ábyrgð. Við-
brögð fólksins í kringum þig láta ekki á sér standa.
Félagar eða samstarfsmenn gætu valið að víkka út
sjóndeildarhringinn og best væri fyrir þig að fylgja
þeim eftir.
Tvíburi 21. maí – 20. júní