Morgunblaðið - 04.03.2007, Qupperneq 46
✝ GuðmundurMagnússon
„Balli“ fæddist 27.
júlí 1923. Hann lést
13. janúar síðastlið-
inn.
Hann var sonur
hjónanna Sigríðar
Guðmundsdóttur og
Magnúsar Finns-
sonar, bónda að
Stapaseli í Borg-
arfirði.
Guðmundur var
fjórði í röð tíu systk-
ina. Eftir lifa fimm
systur.
Sonur Guðmundur er Gunnar,
hann á þrjú börn.
Útför Guðmundar var gerð í
kyrrþey.
Minn elskaði bróðir Balli lést 13.
janúar síðastliðinn.
Hann, „The Balli“, var alveg sér-
stakur, þegar ég minnist hans kem-
ur hlátur í huga minn yfir því lífi
sem hann lifði. Hann var aðeins 17
ára þegar hann fór á sjóinn og var
það að mestu hans ævistarf, fyrir
utan tíma sem hann starfaði við
bílaleiguna Geysi og einnig rak
hann Hótel Búðir tvö sumur, lauk
hann svo starfsævinni við sjó-
mennsku. Balli var búinn að heim-
sækja flest lönd heimsins og ótelj-
andi voru borgirnar sem hann var
búinn að skoða. Ég minnist þess að
Guðmundur
Magnússon
eitt sinn hringdi sím-
inn hjá okkur Mickey
og loftskeytastöðin
bað um viðtal við
Erlu, þá var það Balli:
Halló elskan, farðu út
á svalir og veifaðu
rauðum klút til mín,
við erum að sigla
fram hjá Miami á leið
til New Orleans og
strákarnir trúa mér
ekki, já, já, nú sé ég
klútinn.
Balli kom oft í
heimsókn til okkar
Mickey á Miami og við heimsóttum
Balla.
Eitt sinn fór hann með Mickey til
Þingvalla og sýndi honum Drekk-
ingarhyl, söguna sem hann sagði
Mickey um hylinn fékk ég aldrei að
heyra.
Aftur hringdi síminn. Halló Erla,
hvar heldur þú að ég sé núna? Ég
hafði ekki hugmynd um það en
hann sagðist hafa farið til Taílands
og skroppið þaðan til Singapore.
Getur þú komið, spurði hann, en
það gat ég ekki. Svona var minn
elskaði bróðir Balli.
Oft er við Mickey komum til Ís-
lands var Balli úti á velli að taka á
móti okkur og þá var nú glatt á
hjalla þar sem hann bjó á Laug-
arnesveginum, jafnvel spilað svo
hátt á fóninn að strætó hægði á sér
þegar hann fór fram hjá, svona er
hægt að halda endalaust áfram.
Mottó Balla var að gera það sem
hann langaði til, hann var náttúru-
barn ferðaðist mikið til Taílands og
þangað austur eftir síðustu 20–25
árin.
Fjölskyldutengslin við Balla voru
mikil. Balli átti í mörg ár sum-
arbústað í Hvassahrauni „Búsó“.
Það var hans líf og ánægja að dytta
þar að ýmsu. Á sumrin var þar mik-
ið líf og fjör. Þetta er bara brot úr
ævi hans bróður míns sem ég mun
sakna en minnast alltaf með ein-
hverju sem mun láta mig fara að
brosa. Hann bróðir minn var alveg
sérstakur, alltaf að finna upp eitt-
hvað nýtt því hann gat ekki verið
aðgerðalaus. Hann var mjög list-
rænn og gerði bara það sem honum
datt í hug. Hann elskaði tónlist og
var Maria Callas í uppáhaldi hjá
honum ásamt fleiri stórsöngvurum.
Svona var „The Balli“.
Hann heimsótti mörg óperuhús
víðsvegar um heiminn Scala, La
Opera, Lincoln Center, óperuna í
Sidney, Buenos Aires o.fl. o.fl. Balli
var sannur víkingur, en af öllum
þessum löndum sem hann heim-
sótti, þótti honum Ísland fallegast,
og það var heim, eins og hjá okkur
öllum sem förum í burtu. Það var
mikið gaman að hlusta á Balla segja
frá menningu hinna ýmsu landa
sem hann heimsótti.
Nú ert þú farinn í síðustu ferð-
ina, farðu vel, minn hjartkæri bróð-
ir. Með ást og trega minnist ég þín
og mun muna þig og brosa að ein-
hverju sem kemur í huga minn, þú
verður aldrei gleymdur.
„Fare well, until we meet again“
Þín systir
Erla Ross, Miami.
46 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ólafur AndrésAndrésson
fæddist á Felli í Arn-
arhreppi á Strönd-
um 4. mars 1927.
Hann andaðist 5. júlí
2006. Foreldrar
hans voru Andrés
Guðmundsson, f.
1882, d. 1974, og
Sigurlína Valgeirs-
dóttir, f. 1900, d
1992. Systkini Ólafs
eru Bernharð, f.
1919, d. 2004,
Guðný, f. 1921, dáin
sama ár, Bergþóra, f. 1922, d.
1992, Sigvaldi, f. 1924, d. 1998,
Soffía Jakobína, f. 1927, d. 1962,
Guðmundur, f. 1938, Vilborg, f.
1931, d. 2004, Bernharð, f. 1933,
Guðrún, f. 1935, d. 1999, og Eygló,
f. 1939. Ólafur kvæntist 30. desem-
ber 1961 Oddnýju Pétursdóttur, f.
1937. Börn þeirra eru: 1) Sigurður,
f. 1961, kona hans er
Ásdís Finn-
bogadóttir, börn
þeirra eru Baldvin
Oddur og Ólafur
Unnar. 2) Örn, f.
1964, kona hans er
Margrét Gledhill.
Dóttir Arnar og
Birnu Dúadóttur er
Sylvía Oddný. Dóttir
Margrétar er El-
ísabet. 3) Ólafur
Þröstur, f. 1967,
kona hans er Agnes
Sigurðardóttir, börn
þeirra eru Þorsteinn Hafberg, Sig-
urður Bragi, Ester Líf og Svavar
Óli. 4) Valur, f. 1969.
Dóttir Ólafs Andrésar og Ástu
Ástmannsdóttur er Valdís, f. 1961,
dætur hennar eru Ásta Kristín og
Sóley Lind.
Útför Ólafs var gerð frá Hafn-
arfjarðarkirkju 14. júlí 2006.
Í dag, 4. mars, hefði afi okkar Ólaf-
ur Andrésson orðið áttræður. Það
var mjög sárt þegar hann kvaddi
okkur, 5. júlí 2006. Við minnumst
hans fyrir það að hafa verið þrjóskur
og hafa sterkar skoðanir á flestum
málum. Þegar við heimsóttum hann
var alltaf nammi fyrst á boðstólum og
við skemmtum okkur alltaf frábær-
lega með afa. Hann átti heima í Hafn-
arfirði og við eigum heima á Ár-
skógssandi, en við vorum alltaf
dugleg að heimsækja hann og ömmu
okkar, Oddnýju Pétursdóttur.
Afi kenndi okkur margt, en þar á
meðal kenndi hann okkur sína frægu
spilamennsku í spilinu olsen-olsen.
Þegar við heimsóttum hann sögð-
umst við finna tóbakslyktina af hon-
um á leiðinni þótt við værum langt í
burtu. Við munum að hann fór alltaf
með okkur á Víðistaðatún og við
veiddum hornsíli í tjörnunum.
Við fórum með honum á ættarmót í
síðasta skiptið árið 2005, í Trékyll-
isvík á Ströndum, þaðan var hann
ættaður, og það var mjög gaman með
honum þar og þaðan eigum við marg-
ar góðar minningar um hann. Við eig-
um engar slæmar minningar um afa
okkar þar sem hann var mjög góður
maður. Til hamingju með afmælið og
við elskum þig mjög mikið afi okkar.
Kveðja
Sigurður Bragi Ólafsson,
Ester Líf Ólafsdóttir,
Svavar Óli Ólafsson og
Þorsteinn Hafberg Hall-
grímsson.
Í dag ertu áttræður, afi minn, og
svo verða þeir ekki fleiri afmælisdag-
arnir. Það var alltaf sérstakur áfangi
að eiga afmæli þegar þú áttir í hlut.
Þú gerðir alltaf eitthvað til að bæta
við daginn, eins og þegar þú pakkaðir
inn klósettrúllu og faldir 2000 kall
inní henni og gafst mér í 12 ára af-
mælisgjöf. Það var alltaf eitthvað
sem þú gerðir fyrir mig og auðvitað
kom ég alltaf til þín og ömmu á af-
mælisdaginn, fékk kannski vöfflur
eða snúð og náttúrulega minn vana-
lega tebolla.
Við höfum fylgst að alla ævi, þegar
ég var lítill og lærði að spila og setja
niður kartöflur, svo þegar ég varð
unglingur og lærði allt um pólitík og
að rífa kjaft. Og síðan þegar ég er að
verða fullorðinn reyndistu mér hin
mesta stoð og stytta í fyrstu alvöru
skrefunum út í lífið. Þú ert miklu
meira en bara afi minn, hjá þér fékk
ég ráð og tilmæli, félagsskap þegar
mér leiddist og svo rakstu mig til að
raka mig þegar það var kominn tími
til. Þú ert besti vinur minn og ég mun
sakna þín, alltaf.
Með miklum söknuði
Ólafur Unnar Sigurðarson.
Ólafur Andrés
Andrésson
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
15% afsláttur af öllum
legsteinum og
fylgihlutum
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566
www.englasteinar.is
✝
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRHALLA GUNNARSDÓTTIR,
Skúlagötu 20,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
6. mars kl. 15.00.
Sigurður Jóhannesson,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær dóttir mín, barnabarn, systir og mágkona,
ÁRNÝ HILDUR ÁRNADÓTTIR,
Heiðarholti,
Keflavík,
sem lést á heimili sínu mánudaginn 26. febrúar,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
6. mars kl. 14.00.
Matthildur Óskarsdóttir,
Þuríður Halldórsdóttir,
Anna Pálína Árnadóttir, Karl Einar Óskarsson,
Þuríður Árnadóttir, Rúnar Helgason,
Kolbrún Árnadóttir, Jóhann Bjarki Ragnarsson
og börn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANNES GÍSLI SÖLVASON,
Candlewood,
New Jersey,
USA,
lést á heimili sínu mánudaginn 19. febrúar.
Kveðjuathöfn fer fram í Víkingasal Hótels Loftleiða
þriðjudaginn 6. mars kl. 16.00.
Jakob Friðrik Jóhannesson,
Hólmfríður Jóhannesdóttir, Peter Klindt,
Salvör Jóhannesdóttir, Magnús Einarsson,
Helga Jóhannesdóttir, Hannes Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HÖLLU BJARNADÓTTUR
fyrrum húsfreyju
á Hæli í Hreppum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Skjóli.
Gestur Einarsson, Valgerður Hjaltested,
Bjarni Einarsson, Borghildur Jóhannsdóttir,
Eiríkur Einarsson,
Ari Einarsson, Þórdís Bjarnadóttir,
Þórdís Einarsdóttir, Bjarki Harðarson,
ömmubörn og langömmubörn.