Morgunblaðið - 04.03.2007, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 47
✝
Þökkum vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar
elskulegu,
SOFFÍU GUÐRÚNAR WATHNE.
Guð blessi ykkur öll.
Börn, barnabarn
og fjölskylda
✝
Hjartanlegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við fráfall og útför elsku-
legs sonar míns, bróður okkar, mágs og frænda,
GUNNARS FRIÐRIKS ÓLAFSSONAR,
Háholti 14,
Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug Hanna Friðjónsdóttir,
Hulda Ólafsdóttir Scoles, Dave Scoles,
Anna Ólafsdóttir,
Guðrún Ólafsdóttir, Adolf Örn Kristjánsson,
Friðjón Ólafsson, Erna Herbertsdóttir
og frændsystkini.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
RAGNARS SIGURÐAR SIGURÐSSONAR,
Torfufelli 31,
Reykjavík.
Halla Margrét Ottósdóttir,
Jakobína Elsa Ragnarsdóttir,
Ragnheiður Ragnarsdóttir, Ólafur Björvinsson,
Friðrik Ottó Ragnarsson, Kristjana Harðardóttir,
Hulda Ragnarsdóttir,
Þór Ragnarsson, Sigríður Þráinsdóttir,
Ragnar Ragnarsson, Oddný Vestmann,
Þórður Úlfar Ragnarsson,
Áslaug Ragnarsdóttir,
Björg Margrét Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Bestu þakkir til allra sem sýndu okkur vináttu,
samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar,
tengaföður og afa,
GÍSLA JÓNS GÍSLASONAR
vélstjóri,
Viðvík,
Hellissandi.
Sérstakar þakkir til Sjúrhúss Akraness fyrir góða
umönnun
Halldór Gíslason, Carolina Alquino,
Kristín Gísladóttir, Sean Burnham,
Elín Gísladóttir, Paul Hebdige,
Guðjón Arnar, Kristjana Dögg
og Mandy Pálína.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
MARÍU G. SIGURJÓNSDÓTTUR
frá Fosshólum,
Furugrund 68.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Sóltúns og L4 Landakots fyrir mjög góða umönnun
og hlýhug.
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Arndís Bjarnadóttir, Pétur Már Pétursson,
Einar S. Bjarnason, Elín Þóra Sverrisdóttir,
Guðrún Björk Bjarnadóttir, Páll Guðmundsson,
Ásmundur Bjarnason, Sigrún Davíðsdóttir,
barnabörn og nýfæddur langömmustrákur.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og vináttu við andlát eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður og ömmu,
HELGU DÍSAR SÆMUNDSDÓTTUR
kennara,
Silungakvísl 14,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11G á Landspítalanum við
Hringbraut fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Páll Ragnar Gunnarsson,
Elín Ragnarsdóttir, Samúel Einarsson,
Sæmundur Rúnar Ragnarsson, Hanna Bjarnadóttir,
Erla Björk Ragnarsdóttir, Brent Beale
og barnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð
vegna andláts ástkærs tengdaföður, afa, langafa
og bróður,
JÓHANNS HALLVARÐSSONAR
frá Geldingaá,
síðast til heimilis á
Prestastíg 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hann
af mikilli alúð í veikindum hans og Siglingasam-
bandi Íslands fyrir veittan stuðning.
Sigríður Ósk Óskarsdóttir,
Jóhann Davíð Snorrason, Valdís Ólafsdóttir,
Ingvi Pétur Snorrason, Ásdís Erla Jónsdóttir,
Snorri Ingvason,
Auður Ingvadóttir,
Björg Hallvarðsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir hluttekningu vegna andláts og
útfarar föður okkar,
ATLA HALLDÓRSSONAR
vélstjóra,
Ásholti 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunarsviðs Land-
spítalans og Guðjóns Haraldssonar læknis.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristinn Atlason, Guðný Sigurvinsdóttir,
Ída Atladóttir,
Auður Atladóttir, Vernharður Stefánsson,
Anna Atladóttir, Sveinn Sigurmundsson.
✝ Ebba Thor-arensen fæddist
á Flateyri 10. ágúst
1923. Hún andaðist
á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi í
Fossvogi 26. janúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Ingibjörg
Markúsdóttir, f. á
Reyðarfirði 1899,
og Ragnar D. Thor-
arensen, f. á Skarð-
stöð 1892. Eftirlif-
andi systkini hennar
eru Sigrún, f. 1927, Anna Ragn-
heiður, f. 1935, og Bjarni Páll, f.
1936. Látinn er Pétur Hamar, f.
1926. Ebba ólst upp á Flateyri og
stundaði nám þar og síðar í
Kvennaskólanum á Blönduósi.
Ebba giftist 6. júlí 1944 jafn-
aldra sínum frá Flateyri, Ebene-
zer Þórarni Ásgeirssyni, f. 15. maí
1923, d. 8. október 1997. For-
eldrar hans voru hjónin Ásgeir
Guðnason og Jensína Eiríksdóttir.
Ebba og Ebenezer eignuðust þrjú
börn sem eru: 1) Jónína, f. 17.
október 1943, gift Böðvari Val-
geirssyni. Börn þeirra eru Elín, f.
11. apríl 1962, Hrefna, f. 8. marz
1966, og Ebenezer
Þórarinn, f. 2. marz
1970. Barnabörn
þeirra eru sjö. 2)
Ragnheiður Ingi-
björg, f. 1. júní 1948,
gift Stefáni Frið-
finnssyni. Sonur
þeirra er Þórarinn
Ásgeir, f. 29. ágúst
1967. Þau eiga eitt
barnabarn. 3) Ás-
geir, f. 29. október
1951, kvæntist Guð-
laugu Jónsdóttur,
þau skildu. Börn
þeirra eru Ebenezer Þórarinn, f.
12. nóvember 1976, Hinrik, f. 5.
desember 1989, og Lára, f. 11.
marz 1992.
Ebba og Ebenezer bjuggu á
Flateyri til 1949 en fluttust þá til
Stykkishólms og þaðan til Reykja-
víkur 1952. Ebenezer varð um-
svifamikill frumkvöðull og at-
hafnamaður sem stofnaði fyrst og
rak iðnfyrirtækið Hansa hf. og
síðar Vörumarkaðinn hf. sem var
fyrsta alhliða lágvöruverslun
landsins.
Útför Ebbu var gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík 1. febrúar
síðastliðinn.
Maður kynnist einstaka sinnum
fólki sem hefur þann eiginleika að án
þess nokkurn tíma að neyða skoð-
unum sínum upp á aðra og líka án
þess að maður verði þess í raun
nokkurn tíma var hefur ótrúlega
mikil áhrif á líf manns og lífsskoð-
anir. Þetta gerist líka þannig að mað-
ur tekur helst ekkert eftir því að það
hefur gerst fyrr en manneskjan er
horfin úr lífi manns. En maður er
betri eftir fyrir það eitt að kynnast
þannig fólki.
Þannig manngerð var tengdamóð-
ir mín Ebba Thorarensen sem, eftir
skamma legu, andaðist hinn 26. jan-
úar síðastliðinn á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi í Fossvogi. Það var
líka alveg í samræmi við líf hennar
allt að mæla svo fyrir að hún vildi
láta gera sem minnst úr brottför
sinni úr þessum heimi og láta aðeins
þá nánustu vera viðstadda jarðarför-
ina enda væri með öllu ástæðulaust
að ónáða fólk um miðjan vetur þó
hún væri kvödd.
Ebba var fædd á Flateyri við Ön-
undarfjörð árið 1923 og var því á 84.
aldursári þegar hún lést. Þrátt fyrir
nokkuð háan aldur var hún ótrúlega
heilsuhraust bæði andlega og líkam-
lega allt til þess tíma að er hún,
skömmu fyrir síðustu jól, kenndi sér
meins og lést síðla í janúar eftir tvær
stuttar legur á spítala.
Ebba giftist ung tengdaföður mín-
um Ebenezer Ásgeirssyni, sem einn-
ig var frá Flateyri, og helgaði líf sitt
því að styðja hann og búa honum og
börnum þeirra gott og fallegt heimili
allt þar til hann lést árið 1997. Eftir
það bjó Ebba ein á heimili þeirra allt
til þess að hún hóf sína hinstu
sjúkrahúslegu.
Ebenezer var mikill athafnamaður
sem gustaði af og sem markaði spor
bæði í iðnsögu og iðnþróun og í versl-
unarrekstri á Íslandi. Það var því
ávallt mikið umleikis kringum fyr-
irtæki hans og rekstur og við það erli
allt var Ebba manni sínum stoð og
stytta og honum miklu meiri stuðn-
ingur en kannski aðrir en þeir allra
nánustu gerðu sér grein fyrir. Það
fór auðvitað ekki hjá því að oft
reyndi á þau hjón í verulegum um-
svifum í rekstri og viðskiptum við
alls kyns ytri aðstæður og þá var
Ebba kletturinn sem treysta mátti á
að aldrei haggaðist og alltaf var til
staðar hvernig sem hlutirnir veltust.
Heimilið var heilagt skjól í öllum
vindum hvaðan sem þeir blésu.
Ebba var einstök smekkmann-
eskja um flesta hluti hvort sem var
klæðnaður, litasamsetningar eða
húsgögn og heimili þeirra bar þess
glögg merki þar sem hún kom að var
sterkt samræmi í öllum umbúnaði og
sem líka bar þess vitni að þau hjón
höfðu víða farið og margt séð á ferð-
um sínum.
Eftir lát Ebenezers tók við nýtt
æviskeið Ebbu sem í tíu ár var al-
gjörlega sjálfri sér nóg og tók yfir öll
þau daglegu umsvif sem hún hafði
lítið sinnt meðan hans naut við. Hún
sinnti því eins og öðru til síðasta
dags þannig að ekki varð betur gert.
Það var einmitt einkenni hennar að
allt sem hún gerði það gerði hún vel.
Ef ekki var hægt að gera það vel
mátti eins vel láta það ógert. Hún
var ótrúlega fróð um marga hluti og
gat jafnt haft skoðanir á alþjóðamál-
um sem innanlandsmálum og varð
ekkert auðveldlega rekin á gat hvort
sem umræðan var um málefni dags-
ins eða eldri tíð. Það átti bæði við um
stjórnmál sem viðskipti, en Ebba var
ótrúlega fróð um hvort tveggja og
áhugasöm. Sá eðlisþáttur sem mér
þótti þó vænst um í fari hennar og
sem var mjög ríkjandi var jákvæðni
sem ávallt skein í gegn hvert sem
umræðuefnið var. Ebba var ákaflega
bjartsýn að eðlisfari og allt til síð-
ustu stundar var hún sannfærð um
að framtíðin tæki alltaf fortíðinni
fram og að heimurinn færi alltaf
batnandi. Þannig ættu menn ekki að
vera að velta sér upp úr fortíðar-
hyggju nema til þess að læra að end-
urtaka ekki mistökin sem nóg hefði
verið af en gera einfaldlega betur
næst. Margir miklu yngri mættu
taka hana sér til fyrirmyndar um
margt en ekki síst þann hæfileika að
skilja að málefni fortíðarinnar til-
heyra fortíðinni og það sem máli
skiptir er að nota nútíðina til að und-
irbúa ennþá betri framtíð. Sjálf hafði
hún tröllatrú á ungu fólki og var
þeirrar skoðunar að hver ný kynslóð
væri þeirri fyrri betri enda væru
möguleikarnir alltaf að aukast fyrir
ungt fólk að nýta hæfileika sína.
Sjálf hafði hún reynt kreppu og
haftatímabil og forsjárhyggju á
flestum sviðum og vildi engum að
endurtaka það efnahagsástand með
öllu sem því fylgdi.
Okkur sem nutum samveru við
Ebbu Thorarensen og kynntumst
henni vel finnst við hafa orðið ein-
hvern veginn betri fyrir það eitt að
hafa þekkt hana og orðið fyrir áhrif-
um af henni.
Það er gott að minnast hennar og
að ferðalokum þökkum við sam-
fylgdina.
Stefán Friðfinnsson.
Ebba Thorarensen
Fleiri minningargreinar
um Ebbu Thorarensen bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga. Höfundar eru: Hrefna Böðv-
arsdóttir og Elín Böðvarsdóttir.