Morgunblaðið - 04.03.2007, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Bettý JúlíannaPálmadóttir
Hansen, húsmóðir
og verslunarmaður í
Reykjavík, fæddist á
Blönduósi 17. júlí
1919. Hún andaðist á
Hjúkrunarheimilinu
Eir í Reykjavík 23.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Pálmi Pálma-
son, verkstjóri, verk-
taki og fiskverkandi
í Reykjavík, f. 14.
ágúst 1891, d. 18.
sept. 1973, og Soffía Pétursdóttir
Hansen, húsfreyja í Reykjavík, f.
21. október 1988, d. 22. janúar
1977. Stjúpfaðir Bettýar var Hans
Júlíus Hansen vélsmíðameistari, f.
á Borgundarhólmi 26. júní 1882, d.
í Reykjavík 7. febrúar 1944. Systk-
ini Bettýar sammæðra eru Karl Al-
freð, Pétur, Alda Bryndís og Vikt-
or Bernhard, Hansensbörn. Á lífi
er Alda Bryndís. Hálfbróðir sam-
feðra var Helgi Pálmason, blikk-
smíðameistari í Reykjavík, látinn.
Bettý giftist hinn 15. júlí 1944
Einari Jóni Einarssyni, fv. vöru-
bifreiðastjóra á Vörubílastöðinni
Þrótti í Reykjavík, f. í Vík í Mýrdal
í V-Skaftafellssýslu 5. júní 1921.
Foreldrar hans voru Einar Ein-
arsson, búfræðingur, formaður og
verslunarmaður hjá Kaupfélagi
Vestur-Skaftfellinga, f. á Reyni í
Mýrdal 18. janúar 1892, d. 25.
ágúst 1927, og Kristín Ingileifs-
dóttir ljósmóðir í Vík, f. 2. apríl
1889, d. 24. desember 1988. Börn
Bettýar og Einars Jóns eru: 1)
Soffía skrifstofumaður, f. 8. febr-
úar 1945, búsett í Þorlákshöfn,
maki Grímur Bjarni Markússon
vélvirki, f. 21. maí 1942. Dóttir
þeirra er Bettý
hjúkrunarfræð-
ingur, f. 20. mars
1973, maki Árni
Hrannar Arn-
grímsson. Börn
þeirra eru Arn-
grímur og Soffía Sif.
2) Ingileifur, löggilt-
ur fasteignasali, f.
28. janúar 1953, bú-
settur í Reykjavík,
maki María Sigríður
Þórarinsdóttir, hús-
móðir og skrif-
stofustjóri, f. í
Reykjavík 15. ágúst 1952. Dætur
þeirra eru a) Halldóra Inga við-
skiptafræðingur, f. 5. júní 1980,
sambýlismaður Einar Sig-
urjónsson, og b) Kristín nemi í lög-
fræði, f. 14. apríl 1984.
Bettý ólst upp hjá móður sinni
og stjúpa á Laugavegi 163 í
Reykjavík. Hún gekk Austurbæj-
arskóla, kvöldskóla KFUM og tvo
vetur í Verslunarskóla Íslands. Að-
aláhugamál Bettýar fram á full-
orðinsár var sundíþróttin, en hún
æfði og keppti fyrir Sundfélagið
Ægi og vann til fjölmargra verð-
launa og setti m.a. Íslandsmet í
bringusundi og bar titilinn Sundd-
rottning Íslands. Á yngri árum og
fram að hjónabandi starfaði Bettý
í afgreiðslu Sundhallarinnar í
Reykjavík, en árið 1974 hóf hún
störf í Kvenfata- og hattabúð
Reykjavíkur og vann þar allt til
starfsloka árið 1998. Bettý var bú-
sett á Laugavegi 163 til 1962 en þá
fluttist fjölskyldan í Sólheima 25 í
Reykjavík og bjó hún þar allt til
ársins 2004 er hún fluttist á hjúkr-
unarheimilið Eir.
Útför Bettýar fór fram frá Foss-
vogskapellu í kyrrþey 2. mars.
Elskuleg amma okkar Bettý Júl-
íanna Hansen er látin á 88. aldurs-
ári. Veikindi höfðu hrjáð hana um
þó nokkurt skeið og hvíldin var því
kærkomin. Amma var glæsileg
kona, grannvaxin, með dökk augu
og hrafnsvart hár. Ung að árum
byrjaði hún að æfa sund með sund-
félaginu Ægi, auk þess sem hún
æfði handbolta með Víkingi. Amma
var mjög góð sundkona, og varð
margfaldur Íslandsmeistari og Ís-
landsmethafi í 100 og 200 metra
bringusundi, auk þess sem hún
hlaut titilinn Sunddrottning Ís-
lands. Hún stundaði einnig sjósund
og synti nokkrum sinnum út í Viðey
og til baka. Enga fylgd fékk hún á
þessum ferðum sínum, ef frátaldar
eru nokkrar forvitnar hnísur sem
urðu á vegi hennar.
Amma helgaði sig húsmóður-
starfinu meirihluta ævi sinnar, en
vann á sínum yngri árum í Sundhöll
Reykjavíkur, og kynntist þar afa.
Hún var listakokkur og var henni
mikið í mun að allir færu vel mettir
heim. Einnig lumaði hún alltaf á
nammi handa yngri kynslóðinni og
var fyrir vikið kölluð amma namm,
namm. Amma var mikil handa-
vinnukona og heklaði mikið af dúk-
um og teppum, auk þess sem hún
saumaði út stóla. Hún hafði mikinn
áhuga á tísku allt til dauðadags, og
átti mikið safn af fötum og skóm.
Hún klæddi sig gjarnan upp, og var
oftar en ekki með slæðu um háls-
inn, klædd í eitthvað fjólublátt og
með bleikan varalit. Áhugi hennar á
tísku varð til þess að hún fór um
miðjan aldur að vinna í Guðrún-
arbúð og síðar Kvenfata- og hatta-
búð Reykjavíkur. Þar vann hún
hálfan daginn, allt þar til hún lét af
störfum árið 1998, þá 79 ára. Amma
var mikill fagurkeri og áttu hún og
afi marga fallega muni sem prýddu
heimili þeirra. Sérstaklega er okkur
minnisstætt gullbollastellið sem við
fengum oft að nota og litlu silf-
urhnífarnir.
Amma var feimin, hlédræg og
heimakær í eðli sínu og undi sér
best í góðra vina hópi. Áhugamál
hennar voru félagsvist, bridge og
laxveiði, en hún var mikil aflakló og
mokveiddi á árum áður í Brúará og
Blöndu. Hún var vel lesin, og var
allt frá upphafi tíður gestur á Sól-
heimasafninu, og las gjarnan fyrir
okkur sögur og ævintýri. Hún
fylgdist einnig grannt með hand-
bolta og formúlu eitt kappakstri.
Undanfarin ár dvaldi amma á
Hjúkrunarheimilinu Eir. Þrátt fyrir
að hafa fengið fjölmörg heilablóðföll
voru hugurinn og minnið í full-
komnu lagi allt til dauðadags, og
fylgdist hún náið með öllu því sem
fram fór í lífi okkar og fjölskyldna.
Á stundu sem þessari hrannast
upp minningar um liðna tíð, svo
sem um öll jólin og áramótin sem
við vorum saman, ferðalögin, laut-
arferðirnar, nestið sem hún útbjó
handa okkur í hesthúsið, veiðiferð-
irnar í Vatnsá, allt nammið sem hún
gaf okkur, þungu dúnsængina sem
hún breiddi yfir okkur, englanátt-
kjólana, gullskóna, ilmvatnsbúðina,
strætóferðirnar, berjatínsluna, ferð-
irnar á Árbæjarsafn, kossafarið eft-
ir varalitinn og gönguferðir í
KRON og Glæsibæ. Allar þessar
minningar standa okkur ljóslifandi
fyrir hugskotssjónum þótt amma sé
farin á betri stað. Við frænkurnar
viljum því þakka ömmu góða sam-
fylgd og alla væntumþykjuna sem
hún sýndi okkur í gegnum tíðina.
Halldóra, Kristín og Bettý.
Við lát Bettýjar hrannast upp
minningar og þær allar fallegar.
Móðir mín og Bettý voru systur og
alla tíð mjög nánar og samgangur
innan fjölskyldunnar því mikill. Þar
að auki erum við frændsystkinin,
Soffía, dóttir Bettýjar og ég, jafn-
aldra sem jók enn á samskiptin.
Ekki minnkuðu tengslin þegar Ingi-
leifur bróðir Soffíu fæddist. Ég, ein-
birnið, taldi mig einnig eiga hlut í
honum og vandi komur mínar á
Laugaveginn sem aldrei fyrr.
Mætti daglega til að aðstoða við
uppeldið á stráknum. Ekki fann ég
annað á Bettýju en að þessar tíðu
heimsóknir mínar mæltust vel fyrir
því alltaf voru sömu höfðinglegu
móttökurnar, hlaðið borð af kökum
og öðru góðgæti og ósjaldan gaukað
að manni aur fyrir bíómiða eða öðr-
um nauðsynjum.
Upp úr 1960 fluttu Bettý og Jón
á 11. hæð í Sólheima í eitt af fyrstu
háhýsum Reykjavíkur. Þar mætti
manni sami rausnarskapurinn og
umhyggjan eins og á Laugaveg-
inum að viðbættu stórfenglegu út-
sýni. Bettý hélt veitingum svo vel
að gestum að þeim hætti til að
borða yfir sig. Þegar maður loks
gat ekki torgað meiru sagði Bettý
gjarnan; „Hvað, þið smakkið ekkert
á þessu, ég veit að ykkur finnst
þetta vont.“ Hún var hinn mikli
veitandi sem var umhugað um gesti
sína.
Þær voru ófáar fjölskylduferðirn-
ar sem farnar voru vítt og breitt
um landið. Í berjamó, veiðiferðir og
óbyggðaferðir. Það var ekki hægt
að hugsa sér betri ferðafélaga en
Bettýju og Jón, bæði svo skemmti-
leg og fróð og alltaf nógar veitingar
eins og fyrri daginn. Þessar ferðir
eru ljóslifandi í minningunni og
ógleymanlegar.
Bettý var fremur hlédræg að eðl-
isfari og lítt gefin fyrir að trana sér
fram. Hún vann sín störf hávaða-
laust. Bettý var alla tíð mjög fróð-
leiksfús og stálminnug. Ég minnist
margra góðra stunda sem við sátum
saman og ræddum málin og hjá
henni var ekki komið að tómum
kofunum. Bettý hafði fastmótaðar
skoðanir, til að mynda í trúmálum
og stjórnmálum. En hún var ekki
að flíka þeim né troða upp á aðra.
Hún stóð hins vegar einarðlega fyr-
ir sínu máli þegar henni þótti
ástæða til.
Einstök heiðurskona er horfin á
braut. Við Soffía, eiginkona mín, og
synir okkar þökkum fyrir samfylgd-
ina og vottum Jóni og fjölskyldu
okkar innilegustu samúð.
Georg Ólafsson.
Betty Júlíanna Hansen
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
!" # $ % &
' $
#(
' )$ * '
' )$ +' &#
' )$ ,
# - #
' )$ . /
' )$ / 0
' )$ ✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
RÓSA SIGURBJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
(áður Álfhólsvegi 36),
lést miðvikudaginn 28. febrúar.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Brynjar M. Valdimarsson, Steinunn Sigurðardóttir,
Sigurjón Valdimarsson, Ásta Björnsdóttir,
Ásgeir Valdimarsson, Eva Hallvarðsdóttir,
Kristín S. Valdimarsdóttir, Sigurgeir Skúlason,
Valdimar Fr. Valdimarsson, Karen J. Júlíusdóttir,
Rósa Á. Valdimarsdóttir, Sigurður Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Faðir minn,
SIGURÐUR BJÖRN ARASON
frá Örlygsstöðum,
síðast til heimilis í Víðinesi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 6. mars kl. 15.00.
Ari Grétar Björnsson.
✝
Móðir okkar og tengdamóðir,
ÞURÍÐUR INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn
28. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Þorgerður S. Guðmundsdóttir, Jón F. Steindórsson,
Guðrún Guðmundsdóttir, Ásmundur Stefánsson.
✝
Eiginmaður minn,
GÍSLI VIGFÚSSON,
Flögu II,
Skaftártungu,
lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum fimmtu-
daginn 1. mars. Jarðarförin auglýst síðar.
Sigríður Sigurðardóttir og fjölskylda.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir og afi,
SR. PÉTUR ÞÓRARINSSON
í Laufási,
lést á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut
fimmtudaginn 1. mars.
Útför hans verður gerð frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 9. mars kl. 13.30.
Jarðsett verður í Laufási.
Ingibjörg Siglaugsdóttir,
Elín Jónsdóttir, Þórarinn Halldórsson,
Þórarinn Ingi Pétursson, Hólmfríður Björnsdóttir,
Jón Helgi Pétursson, Íris Þorsteinsdóttir,
Heiða Björk Pétursdóttir, Björn Magnús Árnason,
Pétur, Birta María, Katla,
Þorsteinn Ágúst og Ingólfur Birnir.