Morgunblaðið - 04.03.2007, Side 51
|sunnudagur|4. 3. 2007| mbl.is
Opnum útsölumarkað
mánudag kl. 12.00 á Laugavegi 116 (við hliðina á Tryggingastofnun Ríkisins)
Góðar vörur á frábæru verði
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
HÚN heldur upp á 50 ára dæg-
urlagasöngafmæli sitt um þessar
mundir, hún Helena Eyjólfsdóttir.
„Hvað er hún eiginlega gömul?“
hljóta margir að hugsa, eins og
blaðamaður gerði, – ekki síst þegar
á daginn kom, að þegar dægur-
söngferillinn hófst var fyrsti söng-
ferill hennar að baki.
Það rifjast upp mynd af snjáðri
lítilli 45 snúninga plötu í bláu
hulstri, með mynd af Austurvelli og
Dómkirkjunni, undir hvítum
stjörnuhimni, – uppáhaldsjólaplötu
margra á þeim árum. Þar söng
Helena sálma við undirleik Páls Ís-
ólfssonar dómorganista. „Ég var
tólf ára þegar ég söng sálmana, en
þá var ég búin að koma fram og
syngja við ýmsar uppákomur frá
því ég var níu ára,“ segir Helena
og rifjar upp skemmtikraftakynn-
ingu Péturs Péturssonar útvarps-
þular í Þjóðleikhússkjallaranum á
sunnudögum. „Ég man nú ekki
mikið eftir þessu. En ég var að
skoða gamlar blaðaúrklippur og þá
kom í Morgunblaðinu smá klausa
um að þar syngi ég falleg Bach-lög
og að Guðrún Pálsdóttir söngkenn-
ari spilaði undir.“ Guðrún, var
söngkennari í Melaskóla; en tók
Helenu heim í einkatíma. „Ég var
alltaf að syngja. Mamma fór með
mig til Sigurðar Birkis söng-
málastjóra, og hann kom mér í
nám til Guðrúnar. Hún var ekkja
Héðins Valdimarssonar. Ég fór
heim til hennar tvisvar í viku, í fína
húsið hennar á Sjafnargötu 14, sem
mér fannst vera höll. Þar bjuggu
þær mæðgur, hún og Bríet. Guðrún
kenndi mér endurgjaldslaust og
reyndist mér einstaklega vel. Hjá
henni lærði ég ýmis undir-
stöðuatriði í söng sem hafa alltaf
nýst mér.“ Helena segir að alltaf
hafi staðið til að hún héldi áfram
söngnámi; – eða þar til hún stakk
af í dægurlögin.
Söng á fyrstu
rokktónleikunum
Þess var heldur ekki langt að
bíða að Helena léti að sér kveða
þeim megin, og á tónleikum sem
hún kallar „fyrstu rokktónleikana á
Íslandi“ söng hún, rétt orðin fimm-
tán ára gömul, og við þá eru tíma-
mótin í dag miðuð.
„Þar söng ég fyrir hlé, með
hljómsveit Gunnars Ormslev, dæg-
urlög þess tíma. Eftir hlé kom svo
fram hljómsveit sem hét Tony
Crombie and the Rockets og ærði
íslenskan æskulýð. Það var SÍBS
sem stóð fyrir tónleikunum, sem
voru í Austurbæjarbíói. Þetta var
mjög vinsælt, og ég man að það
voru ellefu tónleikar,“ segir Helena
og í röddinni leynir sér ekki ang-
urværð endurminninganna. „Það
var alltaf fullt og rokkið rétt að
byrja.“
Spurð hvers best og notalegast
sé að minnast frá löngum og far-
sælum ferli segir Helena útilokað
að nefna eitthvað eitt. „Jú, ætli
mér þyki ekki best að minnast allra
þeirra góðu hljóðfæraleikara og
söngvara sem ég hef starfað með.
Ég er líka full þakklætis fyrir að
hafa getað sungið svona lengi og
haldið röddinni minni. Ég er mjög
þakklát fyrir það.“
Helena tók strax ástfóstri við
Akureyri sem barn, er hún dvaldi
þar sumarlangt hjá föðurbróður
sínum. Þegar henni bauðst að
syngja með bræðrunum Ingimar og
Finni Eydal, árið 1958, þegar þeir
voru að stofna Atlantic-kvartettinn,
þá þurfti ekki að biðja hana tvisv-
ar. „Þá vorum við Óðinn Valdi-
marsson söngvarar. Þetta var stór-
kostlegt sumar, allt gekk svo vel,
og við vorum fljótlega farin að spila
inn á plötur og urðum mjög vinsæl.
Ég fann aldrei fyrir öðru en að
mér væri vel tekið á Akureyri.“
Ekki eintóma pöbba
Það hefur margt breyst frá því
að Reykjavíkurtelpan með engla-
röddina ákvað að vippa sér yfir í
dægurlagasöng. „Núna eru svo
margir að syngja, – og margir góð-
ir. Í þá daga var þetta einn og
einn. Manni var eiginlega bara
kippt í þetta og gerði ekkert sjálfur
til að koma sér á framfæri – bolt-
inn rúllaði af stað og varð stærri
og stærri. Mér finnst hafa breyst
til betri vegar á þessum tíma hvað
margir hafa tækifæri til að koma
sér áfram. En mér finnst hins veg-
ar slæmt hvernig skemmtanamenn-
ingin í landinu hefur þróast – þeg-
ar fólk er að fara út klukkan eitt á
næturnar. Áður voru böllin búin
klukkan tvö. Ég myndi vilja breyta
opnunartíma skemmtistaða, og fá
aftur gömlu góðu húsin sem höfðu
yfir sér þá stemmningu að fólk
langaði að dansa, eins og Sjallinn
var – ekki eintóma pöbba.“
Afmælistónleikar í Salnum
Helena – í hálfa öld er yfirskrift
afmælistónleikanna, en þeir verða í
Salnum í Kópavogi í kvöld, og
sunnudagskvöldið 11. mars, kl. 20.
Það verður reisn yfir tónleikunum
og tvær hljómsveitir sem koma
fram með Helenu auk gesta. Óskar
Einarsson er tónlistarstjóri hennar
og með honum leika fyrir hlé: Jón
Elvar Hafsteinsson, Jóhann Ás-
mundsson, Benedikt Brynleifsson
og Sigurður Flosason, en sérstakur
gestur í fyrri hlutanum verður
Ragnar Bjarnason. „Eftir hlé verð
ég með gamla félaga mína úr
hljómsveit Ingimars Eydal. Þeir
vilja kalla sig Hvíta máva, og þeir
mega það,“ segir Helena og hlær.
Hún nefnir fyrstan til sögunnar
Brynleif Hallsson, söngvara og gít-
arleikara, en hann er faðir Bene-
dikts trommuleika. Þá eru einnig í
hljómsveitinni Grímur Sigurðsson,
Gunnar Ringsted, Kristján Guð-
mundsson, Sævar Benediktsson og
Árni Ketill Friðriksson. Það kemur
varla á óvart að gestasöngvari með
Helenu eftir hlé verður Þorvaldur
Halldórsson.
„Í fyrra hluta tónleikanna kem
ég til með að syngja lög sem ég er
þekkt fyrir og eins lög sem ég hef
haft gaman af að syngja gegnum
árin og nokkur djasslög. Þetta eru
lög eins og Bel ami, Ástarljóðið
mitt, Woman in love, Í rökkurró
(Manstu ekki vinur), Hvítir mávar
og fleira. Eftir hlé verða enn
þekktari lög: Á skíðum skemmti ég
mér, María Isabel, og við Valdi
bregðum á leik í Ég tek hundinn.
Bæði Raggi Bjarna og Þorvaldur
syngja svo sín lög sem þeir velja
sjálfir. Aðalatriðið verður að hafa
þetta gaman og leyfa gleðinni að
flæða til fólksins.“
Stakk af í sönglögin
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Helena „Núna eru svo margir að syngja – og margir góðir. Í þá daga var þetta einn og einn.“
Fjör Helena með Hljómsveit Finns Eydal í Leikhúskjallaranum 1962.
Helena Eyjólfsdóttir heldur upp á 50 ára dægurlagasöngafmæli í Salnum í kvöld
staðurstund
Árni Matthíasson fjallar um
Patrick Wolf sem sendi nýverið
frá sér sína þriðju breiðskífu þó
hann sé aðeins 23 ára. » 53
tónlist
Finnska söngkonan Lilli Paasi-
kivi söng með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands á tónleikum síð-
astliðinn fimmtudag. » 52
dómur
Anna Nicole Smith var borin til
grafar á Bahamaeyjum og hvílir
við hlið sonar síns sem lést fyr-
ir skömmu. » 61
fólk
Óhætt er að segja að miðasala
á tónleikaferð Take That hafi
farið vel af stað því nú eru yfir
370 þúsund miðar seldir. » 55
tónlist
Daniel Radcliffe ætlar að sveifla
töfrasprotanum sem Harry
Potter í tveimur kvikmyndum
til viðbótar. » 63
kvikmynd