Morgunblaðið - 04.03.2007, Page 54
54 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Kalvin & Hobbes
RIGNINGIN
ER HÆTT!
DRÍFUM OKKUR. ÞETTA
ER BESTI TÍMINN TIL AÐ
STUNDA MAÐKAKREMJU
HVAÐ ER ÞAÐ?
NÚ, MAÐUR GENGUR UM
OG KREMUR MAÐKA
Kalvin & Hobbes
KALVIN, VILTU HÆTTA AÐ
HLAUPA UM HÚSIÐ HVAÐ VAR ÉG BÚIN
AÐ SEGJA ÞÉR!
ÉG VEIT
ÞAÐ EKKI.
VARST ÞÚ EKKI
HELDUR AÐ
HLUSTA?
Kalvin & Hobbes
BANG!
ÞÚ ERT
DAUÐUR
NEI, ÞÚ
HITTIR EKKI VÍST
HITTI ÉG!
HVERNIG
STENDUR ÞÁ Á
ÞVÍ AÐ ÉG GET
ENNÞÁ TALAÐ
VIÐ ÞIG
BANG!
BANG!
Æ,Æ,
MIKIÐ
HITTIR ÞÚ
ILLA
Litli Svalur
© DUPUIS
GÓÐAN DAGINN
BATMAN! ER ALLT
GOTT AÐ FRÉTTA?
HVA? ERTU
KLIKKAÐUR?
ERTU AÐ TALA
VIÐ DOKSA?
HANN HEITIR EKKI
DOKSI HELDUR
BATMAN. HANN
SAGÐI MÉR ÞAÐ
SJÁLFUR
ÞAÐ HLAUT AÐ KOMA AÐ
ÞVÍ. ÞAÐ VANTAR Í HANN
NOKKRAR SKRÚFUR. TALAR
VIÐ DÝR!
MUUUU!!
HANN TALAR VIÐ MIG OG
HANN SKILUR MIG! HÉR
KEMUR SÖNNUN FYRIR
ÞVÍ. HLAUPTU BATMAN!
ÞETTA ER SKIPUN
KENNARI,
KENNARI!
SVALUR
SKIPAÐI DOKSA
AÐ HLAUPA OG
VIÐ FINNUM
HANN HVERGI
HANN GETUR EKKI HAFA
FARIÐ LANGT Í BURTU. VIÐ
LEITUM SEINNA. TÍMINN ER
BYRJAÐUR
FARIÐ ÖLL Í
SÆTIN YKKAR
HANN... HANN
VAR HÉR Á
STÓLNUM.
UNDIR RASS...
UNDIR PILS...
UNDIR HVERJU...!? NEHEI!! BATMAN VILL EKKI SEGJA SVIKURUM EINS OG YKKUR HVAÐ HANN SÁ
Forsætisráðuneytið og fjár-málaráðuneytið standafyrir degi upplýsinga-tækninnar, UT-deginum,
8. mars næstkomandi. UT-dagurinn
er nú haldinn í annað sinn, en yf-
irskrift UT-dagsins í ár er Nýtum
tímann – notum tæknina.
Guðbjörg Sigurðardóttir er skrif-
stofustjóri í forsætisráðuneytinu:
„Tilgangur UT-dagsins er að skapa
umræður um tækifæri Íslendinga á
sviði upplýsingatækni og upplýs-
ingaiðnaðar,“ segir Guðbjörg. „Eins
og yfirskrift dagsins gefur til kynna
er UT-dagurinn að þessu sinni helg-
aður leiðum til að bæta þjónustu,
einfalda samskipti milli einstaklinga,
fyrirtækja og stofnana.“
Á laugardag var UT-blaðinu dreift
með Morgunblaðinu. „Blaðið er efn-
ismikið og má þar finna fjölmargar
greinar tengdar þema UT-dagsins. Í
blaðinu má meðal annars fræðast um
hvað opinberir aðilar eru að gera til
að bæta rafræna þjónustu og spara
þannig almenningi sporin og stytta
þann tíma sem fólk þarf að verja í
samskipti við stjórnsýsluna,“ segir
Guðbjörg.
Ísland.is
Á miðvikudag verður þjón-
ustuveitan Ísland.is opnuð: „Ís-
land.is er samstarfsverkefni ríkis og
sveitarfélaga sem forsætisráðuneyti
stýrir. Á vefnum verða gerðar að-
gengilegar á einfaldan hátt hagnýtar
upplýsingar um þjónustu hjá ríki og
sveitarfélögum,“ segir Guðbjörg.
„Þar verður hægt að finna öll helstu
eyðublöð sem almenningur þarf að
nota í samskiptum sínum við stjórn-
sýsluna, upplýsingar um sveit-
arfélög og ríkisstofnanir og einnig
upplýsingar á erlendum tungu-
málum fyrir innflytjendur. Ísland.is
er því ætlað að vera fyrsti staðurinn
þar sem fólk leitar sér upplýsinga
um þjónustu opinberra aðila. Jafnt
og þétt verður gagnvirk þjónusta
aukin og stefnt er að því að fólk geti
lokið miklum hluta samskipta sinna
við stofnanir og sveitarfélög gegnum
síðuna.“
Hápunktur UT-dagsins er ráð-
stefna í Salnum, Kópavogi: „Þar
verður fluttur fjöldi áhugaverðra er-
inda, meðal annars fjallað um sam-
starfsverkefni fjármálaráðuneyt-
isins og bankanna um rafræn skilríki
og vefurinn Ísland.is kynntur vand-
lega,“ segir Guðbjörg.
Ráðstefnan stendur frá 13 til 16.30
og er öllum opin meðan húsrúm leyf-
ir. Skrá þarf þátttöku með tölvupósti
á netfangið skraning@appr.is eða í
síma 511-1230 fyrir hádegi 5. mars.
„Strax að ráðstefnunni lokinni
verður sýningin Tækni og vit 2007
opnuð í Fífunni í Kópavogi,“ segir
Guðbjörg. „Sýningin stendur til 11.
nóvember, en þar munu bæði fyr-
irtæki og opinberir aðilar kynna
vörur og þjónustu á sviði upplýs-
ingatækni. Sýningin verður stór og
full af spennandi nýjungum.“
Dagskrá UT-dagsins má finna á
slóðinni www.ut.is.
Upplýsingatækni | UT-dagurinn er 8. mars.
Ráðstefna í Salnum í Kópavogi kl. 13 til 16.30
Nýtum tímann –
notum tæknina
Guðbjörg Sig-
urðardóttir
fæddist á Ak-
ureyri 1956. Hún
lauk stúdents-
prófi frá MA
1976, kenn-
araprófi frá KHÍ
1980 og BS-prófi
í tölvunarfræði
frá HÍ 1983. Guðbjörg var starfs-
maður tölvudeildar Ríkisspítala
1985–1997, verkefnisstjóri í forsæt-
isráðuneyti og formaður verkefn-
isstjórnar um upplýsinga-
samfélagið 1997–2002,
aðstoðarmaður menntamálaráð-
herra 2002–2003 og skrifstofustjóri
á skrifstofu upplýsingasamfélags-
ins frá 2004. Guðbjörg er gift Skúla
Kristjánssyni tannlækni og eiga
þau tvo syni.
ÞAÐ ER auðvelt að fullyrða að fá-
ir komist með tærnar þar sem
þessir menn eru með hælana, í
orðsins fyllstu merkingu. Þessir
tveir keppendur í drag-keppni á
spænsku eyjunni Gran Canaria
skörtuðu þessum íburðarmiklu
skóm í keppninni en ekki fylgdi
sögunni hvort þeir höfðu erindi
sem erfiði.
Reuters
Allir hafa
eitthvað
til að
ganga á