Morgunblaðið - 04.03.2007, Page 60
60 SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
BREAKING AND ENTERING kl. 10:40 B.i. 12 ára
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 5:30 - 8 B.i. 16 ára
PERFUME kl. 2 - 5 B.i. 12 ára
DREAMGIRLS kl. 8 LEYFÐ
FORELDRAR kl. 3:50 LEYFÐ
BABEL kl. 10:40 B.i. 16 ára
/ KRINGLUNNI
MUSIC & LYRICS kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 9 - 10:20 - 11 LEYFÐ DIGITAL
BLOOG DIAMOND kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 1:30 - 4 - 6:10 LEYFÐ
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ DIGITAL
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 1:50 LEYFÐ DIGITAL
eeee
L.I.B. - TOPP5.IS
eeee
S.V. MBL.
CLINT EASTWOOD LEIKSTÝRIR
MEISTARAVERKINU LETTERS
FROM IWO JIMA SEM VAR M.A.
TEKINN UPP Á ÍSLANDI.
GOLDEN GLOBE VERÐLAUN
BESTA ERLENDA MYNDIN
eeeee
S.V. - MBL
MYNDIN BRÉF FRÁ IWO
JIMA ER STÓRVIRKI
ÓSKARS-
VERÐLAUN
ÓSKARSVERÐLAUN
m.a. besta leikonan í aukahlutverki2
FORELDRAR
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
GOLDEN
GLOBE
BESTA
MYND
ÁRSINS
ÓSKARS-
VERÐLAUN
BYGGÐ Á METSÖLU SKÁLDSÖGU
PATRICK SÜSKIND
eee
VJV, TOPP5.IS
DÖJ,KVIKMYNDIR.COM
eeee
LIB, TOPP5.IS
eee
SV, MBL
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Í HÁSKÓLABÍÓ
3.MARS TIL 1. APRÍL
PARIS, JE T'AIME kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20
LES SOEURS FÂCHÉES kl. 3:45 - 5:45 - 10:15
LES MARCHANDS kl. 8
Heillandi meistarverk sem sameinar fjöldan
allan af þekktum leikstjórum og leikurnum frá öllum
heimshornum í samsafni af stuttmyndum sem eiga
það sameiginlegt að vera ástaróður til Parísarborgar
„ÞEIR SEM ELSKA PARÍS OG GÓÐA
KVIKMYNDAGERÐ ÆTTU AÐ BREGÐA SÉR Á BÍÓ!“
- SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR, RÁS 1
OPNUNARMYND
Megi besti
leigumorðinginn
vinna
Milljón dollarar. Sjö leigumorðingjar. Eitt skotmark.
lendan kunningja sinn
um höfuðborg-
arsvæðið. Víkverji
verður að segja það
eins og er að hann
hafði lúmskt gaman
af þessari ökuferð.
Þótt hann búi í borg-
inni liggja leiðir hans
eftir fábreyttum slóð-
um og nýju hverfin
komu honum á óvart;
það er eiginlega með
ólíkindum hvað
byggðin þenst stöð-
ugt út.
En það sem situr í
Víkverja eftir þessa
ökuferð eru ummæli,
sem farþeginn lét falla undir lokin.
Hann sagði sem svo: Þið Íslend-
ingar notið stefnuljós öðru vísi en
allir aðrir. Flestir nota þau til að
gefa til kynna hvert þeir ætla að
beygja innan skamms, en þið notið
þau til þess að staðfesta að þið haf-
ið þegar beygt til hægri eða vinstri!
Víkverji varð hvumsa við og kom
sér og löndum sínum til varnar;
þetta væri alls ekki einhlítt og ekki
vissi Víkverji til annars en að Ís-
lendingum gengi vel í umferðinni
erlendis. Farþeginn brosti bara og
síðasta spölinn sá Víkverji að hann
hafði margt til síns máls; eiginlega
alltof margt!
Víkverji fer að heitamá daglega um
Sæbrautina, þar sem
miklum gatnafram-
kvæmdum er nú lokið.
En í hvert sinn sem
leiðin liggur austur frá
Laugarnesveginum
furðar Víkverji sig á
því hversu óslétt
hægri akreinin er. Það
eru einhverjir flekar í
henni sem fram-
kvæmdaaðilum hefur
mistekizt að ganga
þannig frá að þeir falli
sléttir við götuna.
Hvernig má það vera
nú á tímum að þeim
sem standa að gatnaframkvæmdum
skuli vera fyrirmunað að skila af
sér sléttum götum? Og hvernig
stendur á því að sá sem verkið
kaupir skuli láta þennan frágang
góðan heita? Þetta er ekki forsvar-
anlegt gagnvart Reykvíkingum.
Víkverji vonar innilega að þessu
verði kippt í liðinn, því þetta er
ekki einasta lélegur vitnisburður
um verkkunnáttu nútildags, heldur
fer þetta fyrst og fremst illa með
bæði bíl og bílstjóra og farþega
hans.
Fyrst Víkverji er nú setztur und-
ir stýri í þessum pistli skal sagt frá
ökuferð, þar sem Víkverji ók er-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.650 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 200 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 300 kr.
dagbók
Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar á
hann, því að hann ber umhyggju fyrir yð-
ur. (1Pt. 5, 7.)
Í dag er sunnudagur
4. mars, 63. dagur
ársins 2007
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
SOS tæknimenn RUV
Undirrituð er sérstakur aðdáandi
ríkisútvarpsins og þá sérstaklega
Rásar I. Eftir að ég flutti í sveit
hlusta ég allan daginn á Rás I, bæði
í heyrnartóli við útiverk eða í góðu
útvarpi við innistörf. Reyndar er
það nú svo að RÁS I sameinast allt-
af RÁS II á langbylgju milli klukk-
an 14 og 22 og þannig var það alveg
sama hvað við létum í okkur heyra
við tæknimenn og sveitarstjórn-
armenn, ekkert var hægt að gera.
Þetta breyttist svo fyrir um einu ári
síðan en þá fjárfestum við í nýju út-
varpi, því besta á markaðnum. Síð-
an höfum við getað hlustað á RÁS I
ótruflaða allan daginn á FM.
Sjónvarp hefur hingað til sést
ágætlega á þessu svæði en þó aldrei
í líkingu við það sem varð eftir að
við keyptum Bang&Olufsen sjón-
varpstæki. Þar sem þjónustan er
fyrsta flokks hjá fyrirtækinu sendu
þeir menn með tækið og nýtt loftnet
þannig að ekkert gæti komið í veg
fyrir það að gæðin yrðu fyrsta
flokks. Við höfum aldrei haft Stöð II
og Ríkissjónvarpið hefur nægt
ágætlega enda að flestu leyti með
fyrirtaks dagsskrá. Þvílík lífsgæði í
fámennri sveit að hafa bæði sjón-
varp og útvarp í gæðaflokki.
Þá kem ég að aðalefninu. Fyrir
tæpum þremur vikum var verið að
setja upp hér á svæðinu stafræna
útsendingu sem ekkert tengist rík-
issjónvarpinu að ég held en kann þó
ekki að lýsa þessu nánar hvað um er
að vera. Það skipti engum togum að
útsendingin versnaði svo mikið að
við gátum ekki einu sinni séð texta-
varpið óruglað og sjónvarpið fína
varð ekki svipur hjá sjón. Ég hef
hringt í alla mögulega og ómögu-
lega tæknimenn og ýmsir hafa kom-
ið og aðeins batnaði útsendingin en
þó er langt í land að hún sé ásætt-
anleg. Ég hef í örvæntingu minni
sýnt tæknimönnum ljósmyndir af
því hvernig myndir litu út í sjón-
varpinu áður en allt fór á hvolf en
allt kemur fyrir ekki. Þeir eru jafn
ráðalausir og ég. Ég veit að það er
litið niður á okkur auma kotbændur
en ég trúi því ekki að óreyndu að
tæknimenn haldi að við séum heldur
ekki dómbærir á gæði sjónvarps-
útsendinga. Ég bý í beinni sjónlínu
frá Ennishálsi þó það sé inni í afdal
og hvers vegna er ekki hægt að
horfa á sjónvarpið hreint eins og áð-
ur?
Íbúi í Kollafirði í Strandasýslu.
Misskipting
Þrátt fyrir lækkun tekjuskatts á
fyrirtæki hafa skatttekjur ríkissjóðs
af fyrirtækjum aukist, það dregur
enginn í efa. Menn með samskonar
rekstur sitja samt ekki við sama
borð. Þar sem fyrirtækið heitir ehf
(einkahlutafélag), greiðir það 18% í
skatt og 10% vegna arðgreiðslna
(samtals 28%), en þeir sem eru með
samskonar rekstur á eigin kennitölu
(einkafyrirtæki) greiða 35% skatt af
launatekjum og hreinum tekjum
(mismunur 7%). E.t.v. er þarna að
finna einhverja skýringu á aukningu
skatttekna á fyrirtæki. Einkahluta-
félögum hefur jú fjölgað.
Það er undarlegt að í allri vel-
meguninni skuli enn vera skatt-
lagðar tekjur, sem eru langt undir
fátæktarmörkum, sem enginn hefur
reyndar hirt um að reikna, þrátt
fyrir tækni, sem völ er á að nota til
þeirra hluta.
Á meðan sumir fitna af því að
þurfa aðeins að greiða 10% skatt af
svonefndum fjármagnstekjum þurfa
aðrir að greiða 35% skatt af tekjum,
sem tilkomnar eru á svipaðan hátt.
Auk þess sem áður er nefnt á ég við
lífeyrissjóðsgreiðslur, sem flokk-
aðar eru sem launagreiðslur, þótt
þarna sé bersýnilega um fjármagns-
tekjur að ræða, sem tilkomnar eru
vegna sparnaðar í formi framlaga í
lífeyrissjóði á gengnum árum. Það
má til sanns vegar færa að öll fram-
lög til lífeyrissjóða séu undanþegin
skattlagningu núna, þótt þau hafi
ekki verið það alla tíð. Miðað við nú-
verandi skerðingarákvæði trygg-
ingabóta, af ýmsu tagi, hefur það
skaffað ríkissjóði ómælda milljarða,
að menn skuli yfir höfuð hafa greitt
í lífeyrissjóði, svo að þeir geti sjálfir
greitt sér bæturnar. Óneitanlega
vaknar sú spurning hvort ekki séu
ólög að skylda menn, sem ekki hafa
fyrir brýnustu lífsnauðsynjum að
greiða í lífeyrissjóð.
Hver treystir sér svo til að reikna
hve stór hluti lífeyris er vegna van-
goldinna skatta og hve stór hluti er
fjármagnstekjur? Spyr sá sem ekki
veit. Mér dettur reyndar í hug að
það væri hægt að láta menn greiða
35% skatt af fyrstu 10 eða 12 pró-
sentum lífeyris og 10% af eft-
irstandandi 88 eða 90 prósentunum.
Þórhallur Hróðmarsson
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Hlutavelta | Þessar ungu
dömur, Gígja Björnsdóttir,
Agnes Ögmundsdóttir og
Fanney Ísaksdóttir, komu í
heimsókn á öskudag og
færðu Rauða krossinum
pening sem þær höfðu
safnað.