Morgunblaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2007 63
Marrakech
Upplifðu Afríku, steinsnar frá Evrópu.
Beint leiguflug 17.–23. apríl
Fararstjórar: Jóhanna Á. H. Jóhannsdóttir
og Brahim Boutarhroucht
RYAD MOGADOR AGDAL
Hótelið er við hið fræga torg Jma el Fna. Útlit
hótelsins er nýtískulegt en þó í marokkóskum
stíl. Veitingastaður hótelsins býður fjölbreyttan
matseðil, bæði alþjóðlegan og þjóðlegan.
Herbergin eru stór með öllum helstu þægindum.
ferðir
HIVERNAGE SPA
Stórkostlegt útsýni yfir torg og garða Marrakech.
Veitingastaður hótelsins er einn sá eftirsóttasti
í borginni. Heilsulindin Viva Forme er opin gestum
hótelsins. Rúmgóð og nýtískuleg herbergi.
Gott hótel á besta stað í borginni.
Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattur og íslensk fararstjórn.
Verð 99.970,-
á mann m. v. 2 í herbergi m/morgunverði
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK
S. 585 4000 ~ F. 585 4065 ~ INFO@UU.IS ~ WWW.UU.IS
Marrakech er höfuðborg Suður-Marokkó
og þar mætast Afríka og Evrópa. Eftir
að inn í borgina er komið birtast borgar-
múrarnir í rauðbleikum lit sem sýna
og sanna að eyðimörkin er ekki langt
undan. Hljómlistarmenn, akbróbatar
og sögumenn sem flytja bálka um
hetjudáðir spretta fram þegar rökkvar
og inn á milli má sjá apa- og slöngu-
temjara leika listir sínar. Við sólsetur
gjörbreytist andrúmsloftið í borginni
og torgið verður að einu stóru veitinga-
húsi. Marrakech er allt í senn gömul,
ný, heit og köld.
Verð 89.970,-
á mann m. v. 2 í herbergi m/morgunverði
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
JÓGA GEGN KVÍÐA
- fyrirlestur og námskeið í Gerðubergi -
með Ásmundi Gunnlaugssyni
Uppbyggjandi, traust og yfirgripsmikið námskeið fyrir
þá sem eiga við streitu, kvíða eða fælni að stríða
og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í
lífinu. Námskeiðið hefst með fyrirlestri fimmt. 8. mars kl. 20 en
verður svo kennt á mán. og mið. eftir það.
Á fyrirlestrinum mun Ásmundur fjalla um streitu, kvíða og fælni frá
ýmsum sjónarhornum og reynslu sína af þessum kvillum.
Í næstum 13 ár hefur hann leiðbeint fólki á námskeiðinu Jóga gegn
kvíða. Í lok erindis gefst tækifæri til spurninga.
Hægt er að koma á fyrirlesturinn eingöngu (verð kr. 1500.-).
Kennslustaður: Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
Allar nánari upplýsingar og skráning á
www.jogaskolinn.is og í síma 862 5563
Nýbýlavegi 12, Kóp.
Sími 554 4433.
Opið virka daga kl. 10-18,
lau. kl. 10-16.
Flott föt fyrir
allar konur
Breski leik-arinn Dani-
el Radcliffe hef-
ur skrifað undir
samning um að
leika í síðustu
tveimur Harry
Potter-
myndunum.
Hann hefur ný-
verið fengið mjög góða dóma fyrir
frammistöðu sína í hinu umdeilda
leikriti Peters Schaffers, Equus, á
sviði í London.
Tökur á sjöttu Potter-myndinni
hefjast í september, en fimmta
myndin, Harry Potter og Fönix-
reglan, verður frumsýnd síðar á
þessu ári. Ekki liggur fyrir hve-
nær hafist verður handa við gerð
myndar eftir sjöundu bókinni, sem
J.K. Rowling tilkynnti nýverið að
kæmi út 21. júlí. Sú ber heitið
Harry Potter and the Deathly
Hallows.
Radcliffe var 11 ára þegar hann
var valinn úr hópi þúsunda
drengja til að fara með hlutverk
einnar ástsælustu sögupersónu
allra tíma.
Breska hljómsveitin Muse varvalin besta hljómsveitin á
NME-verðlaunahátíðinni. My
Chemical Romance var aftur á
móti valin besta alþjóðlega hljóm-
sveitin.
Úrslit voru í höndum lesenda
tónlistartímaritsins NME en þeir
fengu einnig að kjósa um það sem
þótti miður vel heppnað á tónlist-
arsviðinu á síðasta ári. Robbie
Williams þótti meðal annars eiga
verstu plötu ársins, Rudebox.
Hljómsveitirnar The Killers og
Arctic Monkeys voru einnig verð-
launaðar en þær riðu báðar feitum
hesti frá Brit-verðlaunaafhending-
unni sem fram fór í síðasta mán-
uði. The Killers þóttu eiga besta
tónlistarmyndbandið en Arctic
Monkeys besta tónlistarmynddisk-
inn og bestu plötuna.
Bestu nýliðarnir voru hljóm-
sveitin Klaxons, besti sóló-
listamaðurinn Jamie T og besta
lagið var „Wasted Little DJs“ með
The View.
Kvikmyndaklúbburinn Kínófíll
sýnir í dag gamanmyndir með
skoðun, að því er segir í frétta-
tilkynningu. Sýningarnar fara
fram í Stúdentakjallaranum og
hefjast klukkan 20.
Sýndar verða þrjár myndir:
Zero for Conduct (Jean Vigo,
1933, Frakkland) sem segir frá
nemendum heimavistarskóla og
uppreisn þeirra gegn ægivaldi
kennaranna þar.
Ohayo (Yasujiro Ozu, 1959, Jap-
an) sem fjallar um innihaldsleysi
en jafnframt mikilvægi hversdags-
legrar umræðu og það uppnám
sem samfélag kemst í þegar börn-
in ákveða að hætta að tala til að
þrýsta á foreldra sína til að kaupa
sjónvarp.
Firemen’s Ball (Milos Forman,
1967, Tékkóslóvakía) sem tekur á
stórskemmtilegan og afar mis-
skiljanlegan hátt á árshátíð
slökkviliðsmanna í smábæ í
Tékkóslóvakíu þar sem ekkert
gengur upp, en undir niðri er
myndin gagnrýni á Sovétríkin og
gildin sem þar ríktu og var hún
bönnuð í heimalandinu nánast frá
upphafi.
Ítarlegri umfjallanir um mynd-
irnar má finna á heimasíðunni
www.kinofill.blogspot.com.
Það er ókeypis inn.
Fólk folk@mbl.is