Morgunblaðið - 01.04.2007, Page 14
14 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
»Wikipedia er skrifuð í
sjálfboðavinnu og er síbreytileg
ALFRÆÐI ALMENNINGS
J óna Þórunn Ragnarsdóttir er stjórnandiá bæði íslensku og norsku Wikipediu oger mjög virk sem slíkur. Hún hefur líka
fleiri titla eins og sjá má í símaskránni þar sem
hún er titluð hestakona. „Margir eru titlaðir
hestamenn en ég er sú fyrsta til að vera titluð
hestakona. Konan á símanum var meira að
segja ekki viss um hvort hún mætti titla mig
hestakonu og tékkaði sérstaklega á því,“ segir
Jóna Þórunn í símaspjalli frá Hvanneyri þar
sem hún er búsett. „Ég hef mikinn áhuga á
landbúnaði og er að læra búfræði,“ segir Jóna
Þórunn, sem byrjaði í náminu síðasta haust.
„Ég er Selfyssingur en hef mikið verið í Gnúp-
verjahreppi,“ segir hún og ætti því ekki að koma
á óvart að hún hefur skrifað margar greinar um
til dæmis íslenskan landbúnað, landafræði og
dýr.
Hún byrjaði að skrifa á íslensku Wikipediu
vorið 2005 og hefur verið virk síðan. Hún segir
starfið, sem er sjálfboðavinna, taka mikinn tíma
en hún vinnur við Wikipediu á hverjum degi.
Ennfremur skrifar Jóna Þórunn líka á norsku
Wikipediu en hún átti heima í fjögur ár í Noregi
og er að hluta til norsk.
„Svo tek ég skriftarnir inni á milli, til dæmis
þegar ég kemst í skemmtilega bók, fæ áhuga á
einhverju sérstöku eða hef mikinn tíma,“ segir
hún en eins og hjá flestum notendum taka skrif-
in mið af áhugamálum. „Maður velur helst það
sem maður kann og hefur áhuga á. Líka það efni
sem lítið er um.“
Athygli vekur að Jóna Þórunn hefur skrifað
heilmikið um Malaví. „Það kom til vegna áfanga
sem ég tók í þróunarlandafræði við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi. Við áttum að skrifa
tveggja eininga annarritgerð um þróunarland
og ég valdi Malaví.“
Hvað höfðar mest til þín við að nota Wiki-
pediu?„Ég er bara svo fróðleiksfús, vil alltaf
vera að læra og lesa. Svo finnst mér líka mjög
áhugavert að geta miðlað fríum fróðleik,“ segir
Jóna sem auk þess að skrifa greinar notar al-
fræðiorðabókina mikið sjálf.
Hvernig væri hægt að efla íslensku Wiki-
pediu? „Einhver stakk upp á því um daginn að
sameinast Vísindavef Háskóla Íslands. Við vitn-
um heilmikið í Vísindavefinn því þar eru svo
rosalega vel unnar greinar,“ segir hún.
Önnur leið til að efla Wikipediu er að fá
grunn- og framhaldsskólanema til að skrifa
greinar. Það skapi reyndar ákveðna vinnu hjá
stjórnendum við að fara yfir greinar en ávinn-
ingurinn sé meiri en tapið. Ef nemendur skrifa
um námsefnið sem verið er að fara yfir í skól-
anum er hægt að nota greinarnar síðar til upp-
rifjunar fyrir próf eða í ritgerðasmíð. „Þannig
geturðu notað Wikipediu til að hjálpa þér við
námið um leið og þú hjálpar til við að byggja
upp alfræðiorðabók aðgengilega öllum á Net-
inu,“ eins og segir í handbók fyrir tilvonandi
höfunda.
Getur bannað og eytt
Hvað felst í því að vera stjórnandi á Wiki-
pediu? „Ég get bannað fólk og líka eytt grein-
um. Það er þá alls ekki vegna illkvittni. En ef þú
ferð inn og skemmir og heldur áfram eftir að ég
er búin að biðja þig um að hætta, þá get ég
bannað þig.“
Jóna Þórunn segist hafa orðið vör við nokkra
fordóma og vantraust í garð Wikipediu, sér-
staklega þeirrar íslensku, því hún sé svo lítil.
„Eftirlitið er mjög mikið. Ég er með irkið opið
hjá mér allan daginn og fylgist með breytingum
og staðreyndatékka jafn óðum. Það er nokkuð
auðvelt á meðan breytingar eru fáar í einu. Við
reynum að styðjast við áreiðanlegar heimildir
eins og Britannicu og önnur alfræðirit, Vís-
indavefinn og að komast í áreiðanlegar bækur
eins oft og við getum.“
Jóna Þórunn segir að áætlað sé að um 90% af
Wikipediu sé skrifað af litlum hópi. Á norsku
Wikipediu hefur hún tekið eftir því að einhverjir
tugir manna hafi skrifað samtals mörg þúsund
greinar. Sú norska er stærri en sú íslenska,
komin í 103.000 greinar. „Síðast þegar ég gáði
voru íslensku greinarnar 13.804. Inn í það eru
ekki taldar þær síður sem eru tilvísanir. Ég
man ekki hver heildarsíðufjöldinn er en hann er
miklu meiri.“ Til marks um hversu hratt Wiki-
pedia stækkar eru íslensku greinarnar nú
14.216 talsins, einhverjum dögum eftir samtalið.
Íslenski hópurinn sem er hvað virkastur á
Wikipediu hefur einu sinni hist, fyrir um ári.
Hópurinn ætlar sér að hittast oftar og var stefnt
á fund um þessa helgi. Norðmennirnir hittast
hins vegar aðra hvora viku í Osló og segir Jóna
það hjálpa þeim mikið.
Hún vildi gjarnan að eldri kynslóðin tæki
virkari þátt í skrifum á Wikipediu. „Það væri
gott að fá fullorðna fólkið meira í lið með okkur.
Það situr oft á svo miklum fróðleik sem er svo
gaman að.“
Er Wikipedia framtíðin?„Mér finnst það. Það
er svo gaman að svona frjálsum fróðleik og
kunnáttu sem hægt er að setja þarna inn og
kynna allri heimsbyggðinni.“
FRÓÐLEIKSFÚS HESTAKONA
Morgunblaðið/Ásdís
Sveitastelpan Hestakonan Jóna Þórunn verður líka að gefa sér tíma til að fara í fjósið.
» Það væri gott að fá fullorðnafólkið meira í lið með okkur.
Það situr oft á svo miklum fróð-
leik sem er svo gaman að.
S alvör Kristjana Gissurardóttir er lektorvið Kennaraháskóla Íslands þar semhún kennir m.a. námskeiðið „Nám og
kennsla á Netinu“. Hún hefur mikið notast við
ýmiss konar wiki-vefi og hefur tvisvar sinnum
sótt heim ráðstefnuna Wikimania, þar sem
fólk skiptist á hugmyndum og ræðir ný verk-
efni við aðra áhugasama. Hún flutti á ráð-
stefnunni í fyrra fyrirlestur, sem fjallaði m.a.
um hvernig kennarar geti notað Wikibooks og
Wikipediu í kennslu. Fyrsta ráðstefnan var
haldin í Frankfurt, sú næsta í Boston og í sum-
ar verður hún í Taipei í Taívan og þangað ætl-
ar Salvör.
Hún byrjaði að prófa sig áfram með wiki-
kerfi fyrir þremur árum en kynntist Wiki-
pediu síðar. „Ég fékk í kjölfarið áhuga á Wiki-
pediu og fór á fyrstu alþjóðlegu ráðstefnuna
2005. Þjóðverjar eru svo mikil bókaþjóð og
þýska Wikipedia er virkilega góð. Ég áttaði
mig ekki á því hvað þetta er mikið samfélag
fyrr en ég var komin þangað út. Svo voru
þarna 3–400 blaðamenn, fleiri en þátttakend-
urnir.“
Hún vill gjarnan auka veg íslensku Wiki-
pediu og hefur skrifað inn á hana greinar um
kennslutækni og kennaramenntun, femín-
isma, hannyrðir og jurtir svo eitthvað sé nefnt.
Einnig er hún öflug á moggablogginu eins og
sjá má á salvor.blog.is. Hún notast einnig við
annað kerfi, Wikibooks, í kennslu. Hún er því
mikið á Netinu og hefur gaman af.
Google-kynslóðin
„Nemendur í framhaldsskólum nota Wiki-
pediu mikið, þessi google-kynslóð sem fer
beint á Netið að leita heimilda. Það er mjög
gott að lesa þar yfirlitsgreinar ef maður er að
kynna sér eitthvert málefni, þó enginn vís-
indamaður dirfist að halda því fram að þetta
passi fyrir akademíuna,“ segir háskólakenn-
arinn sjálfur.
Hún vildi gjarnan að fleiri skrifuðu inn á
Wikipediu en „þeim mun meira sem greinin er
notuð, því líklegra er að hún verði betri“. Hún
hefur stuðlað að þessu en nemendur í upplýs-
ingatækni hjá henni hafa skrifað greinar í al-
fræðiorðabókina. Á ensku Wikipediu er að
finna efni úr alfræðiorðabókinni Britannicu,
þar sem höfundarréttur er fallinn úr gildi. Sal-
vör vildi gjarnan að opinberir aðilar gæfu efni
í íslensku Wikipediu. „Það þarf einhver að
gefa vinnu sína. Til dæmis væri gott ef birt
væru grundvallarrit úr íslenskum sjávar-
útvegi eða kristnisögu eða eitthvað þess hátt-
ar. Einnig myndi það auðvelda margt ef það
mætti fjölfalda efni af opinberum vefsíðum til
birtingar á Wikipediu í óbreyttu formi.“
Hvernig sérðu fyrir þér að wiki-kerfi geti
haft áhrif á nám og kennslu í framtíðinni?
„Kerfið býður upp á meiri möguleika varð-
andi samvinnu nemenda því þetta er mjög gott
samvinnuverkfæri. Við erum í mörgum til-
vikum hvort eð er að vinna saman og sendum
texta á milli í tölvupósti í staðinn fyrir að nota
kerfi eins og Wikibooks, sem gerir samvinn-
una auðveldari. Það sem einkennir þessi wiki-
kerfi er að það er alltaf hægt að skoða sögu
breytinga og bakka með þær.“
Salvör er eins og gefur að skilja mikill
stuðningsmaður Wikipediu og andmælir þeim
sem segja ekkert að marka þessa heimild
vegna opins aðgangs. Segja má að alltaf sé
ákveðin stýring á bak við þekkingu og heim-
ildir þó á Wikipediu sé hún með öðrum hætti
en þekkst hafi hingað til í bókaheimi. „Það má
velta fyrir sér hvernig sagan hefur verið sögð
hér, til dæmis í kennslubókum. Íslandssaga
Jónasar frá Hriflu var skrifuð frá ákveðnu
sjónarhorni, á móti Dönum. Allt öðruvísi saga
er sögð í dag. Hún var ekkert betri þó það
væri bara einn maður sem skrifaði hana.“
Bætt við bókina
Þekkingin á Wikipediu byggist upp með
notandanum. „Notandinn skapar verðmætið.
Þú ert aldrei bara neytandi eða framleiðandi
þekkingarinnar. Þú setur inn grein og notar
hana aftur einu eða tveimur árum seinna.
Nám snýst ekki lengur um að nemendur lesi
bara ákveðnar bækur heldur meiri þátttöku
og sköpun. Endurblöndun er orð dagsins.
Verkfæri til sköpunar og þátttöku þekking-
arneytandans, eru orðin miklu fleiri. Hingað
til opnaði neytandinn bara bókina og las hana.
Eina sem hann gat stjórnað var kannski að
gera hlé á lestrinum eða byrja í miðju. En
núna getur hann líka bætt við bókina. Það er
eitthvað sem er ekki hægt að gera í prentaðri
bók,“ segir Salvör og útskýrir nánar:
„Þetta minnir í raun meira á munnlega
geymd. Eins og þekking var áður en hún var
læst inni í helgum bókum. Eins og þekking
hefur alltaf verið, hún flæðir og er síkvik og
sívaxandi. Hún getur líka verið hjaðnandi. Ef
þú hefur ekki áhuga á þekkingu lengur og
heldur henni ekki við þá grotnar hún niður.“
Hún rifjar upp að í upphafi Netsins hafi fólk
sett fram fína vefi en ekki hugað að viðhaldi.
„Þeir urðu draugavefir því það verður að
halda þeim við. Þetta minnir á lifandi frumur
og vefi. Ef enginn notar Wikipediu deyr vef-
urinn, grotnar niður smám saman og verður
sagnfræðilegt efni. Það þarf að rækta þekk-
inguna.“
NOTANDINN SKAPAR VERÐMÆTIÐ
Morgunblaðið/G.Rúnar
Háskólakennarinn Salvör vill gjarnan auka veg íslensku Wikipediu
» Þetta minnir í raun meira ámunnlega geymd. Eins og
þekking var áður en hún var
læst inni í helgum bókum.