Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is S amkvæmt nýjustu fylgis- könnun Capacent Gall- up fyrir Morgunblaðið og RÚV hlyti hið ný- stofnaða framboð, Ís- landshreyfingin, 5,2% atkvæða ef gengið yrði til alþingiskosninga nú. Það hefur nokkrum sinnum gerst frá lýðveldisstofnun að ný framboð hafi náð góðum árangri í alþingiskosningum og sum þeirra hafa meira að segja komið fram á elleftu stundu. Þjóðvarnarflokkur Íslands Fyrsta nýja framboðið til að hljóta brautargengi á lýðveldistím- anum var Þjóðvarnarflokkur Ís- lands sem kom tveimur mönnum á þing árið 1953 í krafti 6% atkvæða. Verulegan þátt í vinsældum flokksins átti efsti maður á fram- boðslista hans í Reykjavík, Gils Guðmundsson, ritstjóri og rithöf- undur. Flaug hann inn á þing og tók með sér uppbótarmann. For- maður flokksins var Valdimar Jó- hannsson bókaútgefandi. Þjóðvarnarflokkurinn missti báða sína menn í kosningunum 1956 og árið 1963 rann flokkurinn að mestu saman við Alþýðubanda- lagið. Eins og nafnið gefur til kynna barðist Þjóðvarnarflokkurinn eink- um fyrir brottför erlends herliðs frá Íslandi og voru stuðningsmenn hans aðallega fólk sem ekki gat hugsað sér að berjast fyrir þessu innan vébanda Sósíalistaflokksins. Í efnahagsmálum var flokkurinn fylgjandi blönduðu hagkerfi. Lýðveldisflokkurinn Í kosningabaráttunni 1953 benti margt til þess að annar nýr flokk- ur, Lýðveldisflokkurinn, kæmi mönnum að á Alþingi. Svo fór þó ekki. Að Lýðveldisflokknum stóðu einkum óánægðir Sjálfstæðismenn og lagði flokkurinn m.a. áherslu á aukið athafnafrelsi og aðskilnað framkvæmdar- og löggjafarvalds. Formaður flokksins var Gunnar Einarsson, prentsmiðjustjóri Ísa- foldar. Flokkurinn lagði upp laup- ana 1955. Samtök frjálslyndra og vinstri manna Samtök frjálslyndra og vinstri manna (SFV) voru stofnuð að frumkvæði Hannibals Valdimars- sonar og Björns Jónssonar árið 1969 og buðu fyrst fram til Alþing- is tveimur árum síðar. Flokkurinn hlaut 8,9% atkvæða og fimm menn kjörna, þrjá kjördæmakosna og tvo uppbótarþingmenn. Var al- mennt litið á SFV sem sigurveg- ara kosninganna. Í kjölfarið áttu samtökin aðild að ríkisstjórn ásamt Framsóknar- og Alþýðuflokki en klofningur kom upp í þingflokknum og sumir þing- menn hættu stuðningi við stjórn- ina. SFV fengu tvo menn kjörna í alþingiskosningunum 1974 og buðu síðast fram í bæjar- og sveitar- stjórnarkosningum árið 1978. SFV byggðu á jafnaðarstefnu, vildu brjóta upp flokkakerfið og sameina íslenska jafnaðar- og sam- vinnumenn í einn sterkan flokk. Samtökin voru andvíg aðild Ís- lands að Atlantshafsbandalaginu. Framboðsflokkurinn setti sterk- an svip á kosningabaráttuna 1971 en að honum stóðu ungir æringjar og vakti þingmennska síst af öllu fyrir þeim. Um tíma leit út fyrir að flokkurinn fengi mann kjörinn en því var afstýrt á elleftu stundu. Gripu sumir frambjóðendur m.a. til þess ráðs að kjósa aðra flokka. Bandalag jafnaðarmanna Bandalag jafnaðarmanna (BJ) var stofnað í ársbyrjun 1983 að frumkvæði Vilmundar Gylfasonar sem skömmu áður hafði sagt sig úr Alþýðuflokknum. Í kosningum til Alþingis sama ár hlaut BJ 7,3% atkvæða og fékk fjóra þingmenn kjörna. Eftir fráfall Vilmundar í júní 1983 kom upp ágreiningur innan BJ og árið 1986 hvarf þing- flokkurinn þegar þrír þingmenn flokksins gengu í Alþýðuflokkinn og einn í Sjálfstæðisflokkinn. Flokkurinn var eigi að síður til áfram og bauð fram í Alþingis- kosningunum 1987 en fékk engan mann kjörinn og aðeins 0,2% at- kvæða. BJ hafði að stefnumiði umbreyt- ingu stjórnkerfis og uppstokkun flokkakerfis, beina kosningu hand- hafa framkvæmdavalds og aðskiln- að þess frá löggjafarvaldi. Samtök um kvennalista Annað nýtt framboð kom fram fyrir alþingiskosningarnar 1983, Samtök um kvennalista. Buðu Gegn ríkjandi gildum Sigurvergari Albert Guðmundsson hafði sannarlega ástæðu til að fagna eftir Alþingiskosningarnar 1987. FRAMBOл Nokkur ný framboð sem orðið hafa til utan hins hefðbundna flokkakerfis í íslenskum stjórnmálum frá stofnun lýðveldisins hafa hlotið góða kosningu og mest komið sjö fulltrúum á Alþingi » Í alþingiskosning- unum 1987 bauð Kvennalistinn fram í öll- um kjördæmum og hlaut 10,1% atkvæða og tvöfaldaði þingmanna- fjölda sinn. Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is É g er bjartsýn kona að eðlisfari og set því stefnuna á 10–15% fylgi í komandi al- þingiskosningum en ég yrði ánægð með helminginn af því. Það yrði mjög góður árangur í fyrstu atrennu,“ segir Margrét Sverrisdóttir, varaformaður Ís- landshreyfingarinnar, sem nú býð- ur fram til Alþingis í fyrsta skipti. Margrét segir flokkinn hafa fallið í góðan jarðveg. „Framboðið er bara rétt vikugamalt og miðað við það er mín tilfinning mjög góð. Ég held að það sé vegna þess að það var tómarúm þarna í pólitíkinni. Ís- landshreyfingin er flokkur með einkaframtak og frelsi einstaklings- ins til athafna að leiðarljósi ásamt ríkri áherslu á umhverfismál.“ Flokkurinn hefur verið gagn- rýndur fyrir að kynna ekki ítarlega stefnuskrá um leið og tilkynnt var um framboðið. „Ég get alveg skilið það,“ segir Margrét, „en við ákváðum að fara þessa leið. Stefnu- skrá er lifandi plagg. Við höfum lagt grunninn og munum örugglega bæta við hann eftir því sem nær dregur kosningum. Heimasíða Ís- landshreyfingarinnar mun að öllum líkindum fara í loftið núna um helgina og þar verður stefnuskrána að finna.“ Margrét segir ákveðið að Ís- landshreyfingin bjóði fram í öllum kjördæmum. Aðeins sé eftir að hnýta lausa enda. Framboðslistar hafa enn ekki verið kynntir og segir hún að unnið sé hörðum höndum að þeim málum þessa dagana. Mar- grét segir ótímabært að nafngreina fleiri frambjóðendur en fram hafa komið nú þegar. Látum fjölmiðla ekki stjórna okkur „Ég veit að menn eru óþreyju- fullir og bíða spenntir eftir fram- boðslistum okkar. Og þeir munu líta dagsins ljós fyrr en síðar. Við tökum okkur eigi að síður þann tíma sem við þurfum og það er al- veg ljóst að við látum Stöð 2 ekki stjórna okkur í þessum efnum. Spyrlarnir þar eru svo ágengir að þeir drepa ekki bara áhuga almenn- ings á stöðinni heldur hreinlega fæla fólk frá stjórnmálaþátttöku. Það er ekki heiglum hent að hoppa inn í sjónvarpsviðtal og maður hef- ur séð ráðherra til tólf ára standa þar stamandi. Fjölmiðlarnir hafa auðvitað sína hentisemi en þeir mega ekki stýra kosningabarátt- unni.“ Margrét reiknar með að fylgi Ís- landshreyfingarinnar muni fyrst og fremst koma úr þremur áttum: Frá Vinstrihreyfingunni – grænu fram- boði, Frjálslynda flokknum og Sjálfstæðisflokknum. „Fólk sem gekk með mér úr Frjálslynda flokknum á mikið í þessu framboði. Það hefur líka verið mín tilfinning, og mér finnst kannanir staðfesta það, að náttúruverndarsinnað hægra fólk, sem ætlaði að kjósa Vinstri græna, hafi snúist á sveif með okkur. Ég hef ekki trú á því að við eigum eftir að fá meira fylgi þaðan en hins vegar er ég sannfærð um að Sjálfstæðisflokkurinn á eftir að missa meira fylgi til okkar á næstu vikum. Margt sjálfstæðisfólk fagnar þessu framboði.“ Margrét gerir ráð fyrir að fylgi flokksins verði að hluta bundið við einstakar persónur. Nefnir hún Ómar Ragnarsson, formann Ís- landshreyfingarinnar, sérstaklega í því sambandi. „Fólk veit að Ómar fer „nauðugur“ í framboð vegna þess að honum þykir svo brýnt að breyta stefnunni í umhverfis- málum. Um leið veit fólk að hann hefur alltaf verið hófstilltur hægri- maður, eins og ég sjálf, og það þarf því enginn að efast um trúverðug- leika okkar. Fólk veit hvar það hef- ur okkur.“ Hún segir ferska vinda blása um Íslandshreyfinguna og bindur vonir Vonast eftir 10–15% fylgi Morgunblaðið/G.Rúnar Bjartsýn Margrét Sverrisdóttir gerir ráð fyrir að Íslandshreyfingin eigi einkum eftir að taka fylgi frá Vinstri- hreyfingunni – grænu framboði, Frjálslynda flokknum og Sjálfstæðisflokknum í Alþingiskosningunum í vor. Margrét Sverrisdóttir segir Íslands- hreyfinguna hafa fallið í góðan jarðveg STJÓRNMÁL»
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.