Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 37
hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 37
Yngri dóttir mín er ástfanginupp fyrir haus. Hún erfimm ára og hefur auga-stað á miklum flagara sem
heitir Christian. Dökkhærður
súkkulaðisætur strákur sem er í
bekknum hennar.
Ástin er þó ekki alveg að fullu
endurgoldin því hún er ekki viss um
að hann elski hana en lætur það
samt ekki aftra sér. Hún eltir hann á
röndum um alla skólalóðina dag
hvern og hann virðist láta sér það
lynda.
Hún hafði á orði á dögunum við
pabba sinn: Pabbi þegar þú átt eftir
að sjá hann áttu eftir að verða svo in
love að þú verður bara gay!
Hún fékk nýverið kojur inn til sín
og hefur nú innréttað neðri kojuna
sem væntanlegt heimili sitt og unn-
ustans. Hún fyllti kojuna af púðum
og teppum og tuskudýrum og hefur
hengt fyrir teppi til að gera nú vist-
arveruna meira kósý. Þetta verður
prívat spottið okkar segir hún kát.
Ég býst við að hann flytji inn inn-
an tíðar.
Það er kostulegt að fylgjast með
stelpuskottinu, hún klæðir sig uppá
daglega og setur saman föt til að
undirbúa væntanlega heimsókn flag-
arans sem stendur fyrir dyrum.
Þessi framkoma er fullkomlega
sjálfsprottin því hún hefur síður en
svo smarta fyrirmynd í móður sinni
þessa dagana.
Dag hvern fyrir fréttir er auglýs-
ing í sjónvarpinu sem er eitthvað á
þessa leið:
„Have you let yourself go?“ eða
„Ertu búin að missa það?“ og fjallar
um það að sjötíu prósent amerískra
kvenna hætti að hafa sig til eftir að
þær verði mæður og verði hreinlega
að sækja sér ráðgjöf til að end-
urheimta fyrra pæjusjálf.
Ég er búin að missa það. Það er
deginum ljósara. Í fyrsta lagi er ég
nánast hætt að nenna að mála mig
þannig að þá sjaldan að ég klessi á
mig maskara þá hrekkur fólk í kút
og hrósar mér fyrir útlitið. Sökum
meðgöngunnar kemst ég náttúrlega
ekki í neitt og fjölskyldan þarf að
dragnast með þessa joggingklæddu
ómáluðu mannveru út um allt. Það
tók síðan steininn úr þegar familían
fór út að borða á dögunum og ég
pantaði mér steik. Þá gerði ég mér
grein fyrir að ég var hreinlega orðin
byrði.
Ég borða orðið afar sjaldan rautt
kjöt í þessu gósenlandi grænmetis
og ávaxta og því var ég full eftir-
væntingar að bíta mig fasta í vænt
naut. Steikin kom um síðir og leit
bara býsna vel út.
Ég skar í dýrið og það reyndist
ofeldað. Það skipti engum togum að
ég brast í grát og var hreint óhugg-
andi. Ég leyfi mér nú að halda að
óléttan hafi spilað þarna inn í því ég
hef ekki lagt það í vana minn að
brynna músum á almannafæri.
Þjónninn vildi allt fyrir mig gera
en ekkert gat að mínu mati lagað
þessa yfirsjón matsveinsins og því
sat ég bara grenjandi og þerraði
augun á hvítum dúknum. Dætur
mínar og eiginmaður settu í fimmta
gír og byrjuðu öll að borða matinn
sinn á ógnarhraða til að komast sem
fyrst úr þessum þrengingum. Það
var ekki laust við að ég vorkenndi
þeim ofurlítið. Yngri dóttirin end-
urtók eins og róbót: „Mamma ég
elska þig“ eins og hún væri andsetin.
Aumingja barnið.
Nokkrum dögum síðar fór ég í
kvennaboð og ákvað að leggja nú of-
urlítinn metnað í útlitið.
Ég gat það nú ekki alveg hjálp-
arlaust og því varð bóndinn að setja í
mig rúllur. Hann gerði það sam-
viskusamlega heldur þegjandalegur,
sennilega kvalinn af yfirvofandi ótta
um að ég brysti í grát ef hann neit-
aði. Hann veit ekki blessaður hvað
hann er búinn að koma sér í því héð-
an í frá mun ég alltaf láta hann setja
í mig rúllur. Hann er svo góður í því!
Þegar ég var að labba út úr dyr-
unum kom sú stutta til mín og lagði
lófann í höndina á mér og sagði:
„Mamma, getum við gert einn díl?
Ertu til í að vera svona þegar
Christian kemur?“ Við gerðum díl.
Ég ætla að leggja mig fram um að
verða barninu ekki til frekari
skammar.
Hvar hafa dagar lífs
míns lit sínum glatað?
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
... með viðbótarsöfnun MasterCard ferðaávísunar
Bretland er alltaf skemmtilegt, en auðvitað ræður þú
ferðinni þegar þú ferðast með MasterCard!
Með því að skipta við samherja MasterCard ferðaávísunar,
safnar þú allt að 20% upphæðarinnar sem þú kaupir fyrir
inn á ferðaávísunina þína.
Nánari upplýsingar á www.kreditkort.is eða í síma 550 1500
Nú ferðu
oftar ...
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
7
7
6
9