Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 59          ! "!   #  Auglýstu atburði á þínum vegum hjá okkur Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1100 • Tónleika • Myndlistarsýningar • Leiksýningar • Fundi • Námskeið • Fyrirlestra • Félagsstarf • Aðra mannfagnaði MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudags- blað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgð- armanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn- @mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur, Margrét Einarsdóttir, Guðlaug Einarsdóttir og Sara Dís Hildardóttir, söfnuðu peningum til styrktar Barnaspítala Hringsins með því að halda tombólu. Þær héldu tombólu með frábærum árangri. Alls söfnuðu þær 13.000 kr. Barnaspítali Hringsins þakkar þeim kærlega fyrir gjöfina. dagbók Í dag er sunnudagur 1. apríl, 91. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði. (Matth. 24, 42.) Ámorgun, mánudag, mun Ástráður Ey-steinsson bókmenntafræðingur og þýð-andi flytja fyrirlesturinn „Þetta var ekkidraumur“ – Vandinn að skilja og þýða Umskiptin. Fyrirlesturinn er á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og fer fram í Aðalbyggingu HÍ, stofu 111, kl. 16.30. Óendanleg uppspretta „Viðfangsefni fyrirlestrarins er verk Franz Kafka, Umskiptin (Die Verwandlung), sem óhætt er að telja með þekktustu sagnaverkum Evrópu á 20. öld,“ segir Ástráður en fyrir síðustu jól kom út ný þýðing á Umskiptunum sem Ástráður vann í samstarfi við Eystein Þorvaldsson. „Bókina þekkja margir og hafa lesið, og gríð- arlega mikið hefur verið skrifað um þetta verk, en Umskiptin virðast vera ótæmandi uppspretta vangaveltna. Í fyrirlestrinum athuga ég hvað veld- ur að enn hafa túlkendur sögunnar ekki komið nið- ur á fast land.“ Heillandi og spennandi Umskiptin segja frá Gregori Samsa, farandsölu- manni og piparsveini, sem vaknar einn morguninn og hefur þá breyst í skordýr. Upphefst sérkennileg atburðarás sem snýst ekki síst um samskipti Greg- ors og fjölskyldu hans. „Þetta er bæði heillandi og spennandi saga, en í túlkun hennar hafa fræðimenn farið mjög ólíkar leiðir og skipta mismunandi stefn- ur í túlkunum tugum ef ekki hundruðum. Um leið er eins og sagan bregðist sjálf við þessu sérkenni sínu, og er yfirskrift fyrirlestrarins einmitt fengin úr frægum upphafsorðum sögunnar, sem kannski hafna strax þeirri skýringu að umskipti Gregors séu aðeins draumur,“ segir Ástráður. „Í fyrirlestr- inum tengi ég svo túlkunarvandann vanda þýðand- ans, en það að þýða verk hlýtur alltaf að fela í sér að túlka verkið.“ Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis og öllum heimill. Nánari upplýsingar má finna á slóðinni www.vigdis.hi.is Bókmenntafræði | Fyrirlestur í Háskóla Íslands á mánudag kl. 16.30 um verk Franz Kafka  Ástráður Eysteinsson fæddist á Akranesi 1957. Hann lauk stúdentsprófi frá MH 1976, BA-prófi í þýsku og ensku frá HÍ 1979, MA í bók- menntafræði frá University of Warwick 1980, stundaði dokt- orsnám við Kölnarháskóla og síðar University of Iowa þar sem hann lauk doktorsprófi í bókmenntafræði 1987. Ástráður varð stundakennari við HÍ 1987, síðar lektor, dósent og prófessor í almennri bók- menntafræði frá 1994. Ástráður er kvæntur Önnu Jóhannsdóttur myndlistarmanni og eiga þau tvö börn, en fyrir á Ástráður tvö börn frá fyrra hjóna- bandi. Vandinn við Umskiptin Tónlist Langholtskirkja | Þýsk rómantík – Söng- sveitin Fílharmónía í kvöld kl. 20. Flutt verða 3 kórverk frá 19. öld; mótettur eftir Brahms og Mendelssohn og Messa í As- dúr eftir Schubert. Einsöngvarar: Hulda Björk Garðarsdóttir, Nanna Maria Cortes, Jónas Guðmundsson og Alex Ashworth. Sif Tulinius leiðir hljómsveit, Magnús Ragnarsson stjórnar. Miðasala á midi.is og við innganginn. Uppl. í s. 824-0415. Salurinn, Kópavogi | Í kvöld kl. 20. Hið þýska Hyperion tríó flytur þrjú verk, pí- anótríó í E-dúr eftir Mozart og Erki- hertogatríóið eftir Beethoven, einnig verður frumflutt nýtt tríó eftir Atla Heimi Sveinsson, samið sérstaklega fyrir þenn- an frábæra hóp. Miðaverð: 2000/1600 kr. í s. 570-0400 og á salurinn.is Myndlist Energia | í Smáralind. Pétur Pétursson sýnir 10 málverk sem öll eru unnin með akrýllitum á striga á árunum 2005 til 2007. Pétur er jarðfræðingur, en hefur löngum teiknað og málað meðfram sínu starfi. Ríflega helmingur myndanna sem hann sýnir eiga sér fyrirmynd í landslagi Vesturlands. Listasafn Íslands | Leiðsögn kl. 14 í dag í fylgd Valgerðar Bergsdóttur myndlistarm. um sýningu á verkum Jóhanns Briem. Ókeypis aðgangur. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Frönsk samtímahönnun. Vísanir í sam- tímahönnun í París. Á sýningunni eru 40 ný verk eftir nokkra af fremstu hönn- uðum Frakka, t.d. Philippe Starck, Laur- ence Brabant og Matali Crasset. Sýning- arstjóri er Cedric Morriset, sem vakið hefur athygli í listaheiminum fyrir nýstár- legt og framsækið sýningarhald und- anfarin misseri. Opið kl. 11–17. Fyrirlestrar og fundir Hallgrímskirkja | Í dag kl. 17 verður dag- skrá í suðursal Hallgrímskirkju um danska sálmaskáldið Lisbeth Smedegård And- ersen. Þórður Helgason skáld mun kynna þýðingu sína á sonnettusveig Andersens auk þess sem fjallað verður um skáldið og lesið úr verkum þess. Uppákomur Borgarbókasafn – aðalsafn | Mánudaginn 2. apríl er Alþjóðlegi barnabókadagurinn haldinn hátíðlegur í 40. sinn. Í tilefni dagsins verður sögustund í Borg- arbókasafninu í Grófarhúsi þar sem barnabókahöfundar lesa úr þeim bókum sem þeir höfðu mest dálæti á í bernsku. Sögustundin hefst kl. 15.30. Allir vel- komnir. Fréttir og tilkynningar GA-fundir (Gamblers Anonymous) | Er spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstand- endur? Fáðu hjálp. Hringdu í s. 698- 3888. ÞESSI skrautklæddu börn dansa hér á hátíðahöldum í heimaborg sinni Beirút í Líbanon. Hátíðin, sem haldin var í gær, er til að minnast afmælis spámannsins Múhameðs. Dansað á afmæli Múhameðs Félagsstarf Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur fellur niður í kvöld, næst verður dansað 15. apríl. Fróðleg og skemmtileg ferð til Færeyja og Hjalt- lands 11.-18. júní. Farið verður um eyj- arnar undir leiðsögn heimamanna, skoðaðir merkilegir staðir og reynt að kynnast lífi fólksins og menningu. Uppl. í s. 588-2111. Háteigskirkja | Félagsfundur kven- félagsins verður þriðjudaginn 3. apríl kl. 17.30 í Setrinu. Venjuleg fund- arstörf. Súpa. Athugið breyttan fund- artíma. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, mánudag, kl. 10 er ganga í Egilshöll. Kvenfélag Garðabæjar | Fé- lagsfundur í Garðaholti þriðjudaginn 3. apríl kl. 20. Fróðlegur og páska- legur fundur auk hefðar. Kaffinefndir hverfi: 2, 5, 6 og 11. Lífeyrisþegadeild Landssambands lögreglumanna | Félagar munið fund deildarinnar í dag kl. 10 að Grett- isgötu 89, 1. hæð. Mætum hressir. Kirkjustarf Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Biblíufræðsla, söngur og leikir. Allir krakkar velkomnir. Almenn samkoma kl. 14. Sigrún Einarsdóttir prédikar. Tónlist og söngur, fyrirbænir fyrir þá sem vilja. Barnagæsla á meðan á samkomu stendur og kaffisala að henni lokinni. Allir velkomnir. FYRIR hreyfihamlaða einstaklinga er bifreið grundvallarhjálpartæki til þátttöku og virkni í samfélaginu. Mikil rýrnun hefur orðið á styrkj- um og uppbótum frá Trygginga- stofnun ríkisins til hreyfihamlaðra vegna bifreiðakaupa á síðustu ár- um. Styrkupphæðir samkvæmt reglugerð heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins hafa ekki hækkað í 8 ár og tími milli styrk- veitinga hefur verið lengdur, sem hefur leitt til verulegrar rýrnunar á 2006, sem ekki hafa fengist við- brögð við. Því er lýst eftir svörum og samráði við samtök fatlaðra nú þegar um þetta mál. F. h. farartækjanefndar Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra, Anna Guðrún Sigurðardóttir, Arnór Pétursson, Bergur Þorri Benja- mínsson, Jón Heiðar Jónsson og Vilberg Guðnason. F. h. Sjálfsbjargar, landssam- bands fatlaðra, Ragnar Gunnar Þórhallsson, formaður. björg vekur af þessu tilefni athygli á þeirri kröfu að komið verði á fót formlegum samráðsvettvangi sam- taka fatlaðra og stjórnvalda þar sem samtökum þeirra er veittur eðlilegur aðgangur og vettvangur til að fjalla um málefni sem að fötl- uðum snýr. Sjálfsbjörg hefur áður gert athugasemdir og komið með ábendingar varðandi núgildandi reglugerð og sendi stjórnvöldum tillögur um lækkun á bifreiðakostn- aði hreyfihamlaðra seint á árinu verðgildi styrkja. Breyting á gild- andi reglugerð tók gildi 22. mars sl., en þar er ekki tekið á rýrnun styrkja og uppbóta heldur m.a. sett ákvæði um takmörkun á frelsi ein- staklings til að velja sér bifreið og virðist farið offari í þeim kröfum. Hvorki Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra, né Öryrkjabandalagi Ís- lands var gefinn kostur á að fá reglugerðina til umsagnar áður en hún var undirrituð af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Sjálfs- Styrkir og uppbætur vegna bifreiða- kaupa hreyfihamlaðra einstaklinga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.