Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 29
1. Það eru fjórir ökumenn á mínu heimili sem
sameinast um gullvagninn Suzuki Grand Vitara
árgerð 1999. Hann eyðir ca. 12 á hundraðið í inn-
anbæjarakstri og er ekki á nagladekkjum. Ég hef
ekki notað þannig dekk í fjöldamörg ár.
2. Nei.
3. Við erum dugleg að flokka á mínu heimili.
Dósir fara í endurvinnsluna, við erum með sér-
staka tunnu frá Gámaþjónustunni sem tekur við
pappír, dagblöðum og mjólkurfernum og er sótt
reglulega. Rafhlöðum söfnum við saman og skil-
um á bensínstöðvar og lífrænan úrgang fær
Jarðgerður, boldangs tunna, sem hefur tilheyrt
heimilinu í nokkur ár. Þegar búið er að gefa
kettinum Kela á kvöldin þarf að fara út í garð
með matarafgangana og gefa Jarðgerði. Á sumr-
in sér hún okkur fyrir mold í staðinn. Allt gerir
þetta það að verkum að okkur nægir s.k. græn
tunna frá Reykjavíkurborg sem er tæmd á
tveggja vikna fresti.
4. Ég viðurkenni fúslega að ég er sú á heimilinu
sem nota bílinn mest, geng stöku sinnum en fer
sjaldan á hjóli eða í strætó. Um þá deild sér eig-
inmaðurinn sem hefur notað reiðhjólið og strætó
sem samgöngutæki í og úr vinnu árum saman þó
langt sé að fara úr Vesturbænum upp á Ártúns-
höfða.
5. Mér finnst orkureikningurinn alltof hár en sá
síðasti var 15.400 krónur. Ég hef reynt að ná nið-
ur hitakostnaði með því að stilla hitann á frá-
rennslinu og skipta um ofna en neðar kemst ég
ekki.
6. Ekki með beinum hætti en óbeinum með fjár-
framlögum til samtaka sem hafa það að
markmiði.
7. Ég gef hann til Rauða
krossins.
8. Það kemur fram í
svörum mínum hér
að framan. Við höf-
um alla tíð neitað
okkur staðfastlega
um bíl númer tvö og
við erum dugleg að
flokka og endurnýta.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar
Jarðgerður er
boldangs tunna
5. Sparar þú rafmagn og vatn á þínu heimili? Hvernig? Hversu hár var síðasti orkureikningur heimilisins?
6. Hefur þú tekið þátt í að græða upp landið?
7. Hvað verður um fatnað, sem þú og heimilisfólkið er hætt að nota?
8. Hvað er helsta framlag þitt og fjölskyldu þinnar til umhverfisins?
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra
1. Á heimili mínu er Nissan Terrano dísiljeppi
árgerð 1999 og Toyota Yaris bensínbíll ár-
gerð 2001. Að auki hef ég aðgang að embætt-
isbifreið. Ég hef ekki mælt eyðslu heimilisbíl-
anna en þeir eru báðir eyðslugrannir. Minni
bíllinn er á nagladekkjum en jeppinn ekki.
2. Engin önnur vélknúin farartæki tilheyra
heimilinu.
3. Við erum með svokallaða græna tunnu og
flokkum frá allt sem þar á ekki heima, svo
sem dósir og flöskur, dagblöð, bylgjupappír
og aðrar pappaumbúðir sem og fernur und-
an hvers kyns vökva, rafhlöður, kertavax
o.fl.
4. Ég tek hvorki strætó né hjóla
eða geng í vinnuna, en ég geng
töluvert mér til heilsubótar.
5. Ég spara hvorki vatn né
rafmagn með skipulegum
hætti. Höfum þó ekki
kveikt á ljósum eða raf-
magnstækjum nema verið
sé að nota þau. Orkureikn-
ingur heimilisins kemur
sjálfkrafa á greiðslukort og
ég viðurkenni að ég fylgist
lítt með honum heldur treysti
Orkuveitunni til að mæla
notkun heimilisins rétt.
6. Já, ég hef oft tekið þátt í að
planta trjám, en er þó ekki
sjálfur með skógræktarreit.
7. Við förum með heillegan
fatnað í fatasöfnunargáma
Sorpu.
8. Við reynum að sýna til-
litssemi og ganga vel um
náttúru og nærumhverfi.
Eyðslugrannir
heimilisbílar
1. Tveir bílar. Einn Fiat
og einn Hyundai. Bens-
ínbíllinn eyðir 8 lítrum og
dísilbíllinn 9 lítrum. Þeir
eru á nagladekkjum allan
veturinn enda notaðir til
langferða.
2. Vatnabátur.
3. Að hluta flokka ég blöð
og rafhlöður. Fuglarnir í
garðinum fá afgang af
brauði og ávöxtum.
4. Nei.
5. Nei, ég nota það eftir
þörfum.
6. Vann að jarðabótum á
yngri árum og gróðursetti
tré í sveitinni.
7. Gefinn öðrum af og til.
8. Við reykjum ekki og
leggjum Landvernd lið.
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins
Gefur
fuglunum
Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar
1. Konan mín á Suzuki Grand Vitara ’03. Sjálfur ek ég um á Daihatsu Cuore ’87. Uppgefin
meðaleyðsla hennar bíls er um 9 lítrar á hundraðið en Cuore-bílsins um 5 lítrar. Nær öll þau
48 ár, sem ég hef átt bíl, hefur sá bíll verið minnsti, sparneytnasti og ódýrasti bíll sem fáan-
legur hefur verið. Yfirleitt ökum við ekki í borginni á negldum hjólbörðum. Ég er áhugamað-
ur um varðveislu gamalla bíla, einkum smábíla, og á nokkra slíka. Einn þeirra er Suzuki Fox-
jeppi ’85 sem ég hef til taks til erfiðra ferða og er minnsti og sparneytnasti jöklabíll landsins.
Hann er á negldum dekkjum.
2. Vegna starfs míns á ég flugvélina TF-FRU og á austurhálendinu er ég með bátinn Örkina
til siglinga um lónin sem verða mynduð vegna Kárahnjúkavirkjunar og kvikmyndagerðar um
það efni.
3. Já.
4. Ég geng stundum eða tek strætó þegar aðstæður og tími leyfa.
5. Við hjónin spörum raflýsingu eftir föngum.
6. Óbeint með umfjöllun um það í sjónvarpi – og við Djúphóla hjá Sandá við Kjalveg norðan
við Gullfoss gekkst ég fyrir því á sínum tíma í samvinnu við Biskupstungnahrepp, Stöð tvö,
RALA, Skógrækt ríkisins og Landgræðsluna að girtur var af tilraunareitur þar sem rannsak-
aður var uppblástur, rofabörðin mæld árlega og reiturinn græddur upp. Ég fjallaði um þetta
verkefni meðan ég vann hjá Stöð tvö. Þáverandi forseti Íslands, Vigdís Finnbogadóttir, vígði
þennan reit.
7. Við gefum hann til Mæðra-
styrksnefndar.
8. Gerð kvikmynda, sjónvarps-
þátta og frétta um umhverfismál
en sjá einnig svar við spurningu
númer 6.
Frúin og Örkin vegna starfans