Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG Fasteignin Malarhöfði 8 er tveir eignahlutar: Annars vegar ca 1.663 fm límtrésbygging á tveim hæðum með innkeyrsludyrum sem er nýtt sem blikksmiðja í dag og hins vegar steypt ca 300 fm geymslubygging á einni hæð með fimm innkeyrsludyrum. Góð aðkomulóð en lóðin er alls 2.822 fm að stærð. Eignirnar eru að mestu í útleigu með góðum leigusamningum. Upplýsingar gefur Ægir á skrifstofu. V. 260 m. 7629 MALARHÖFÐI FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Tunguvegur Glæsilegt einbýlishús með aukaíbúð 256 fm tveggja hæða einbýlishús ásamt 32 fm bílskúr. Eignin er nýlega endurnýjuð á vandaðan og smekkleg- an hátt. Eignin skiptist m.a. í hol með vinnuaðstöðu, vandað eldhús, stofu með arni, sólstofu með útgengi í garð til suðvesturs, 5 herbergi, stórt sjón- varpshol og flísal. baðherb. Auk þess er 2ja herb. aukaíbúð með sérinng. Ræktuð lóð með hita í stéttum. Verð 71,5 millj. Álfahvarf - Kópavogi Einbýlishús á útsýnisstað 350 fm einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 44 fm bílskúr. Húsið skilast í núverandi ástandi, rúmlega fokhelt með grófjafnaðri lóð. Stofa með góðri lofthæð og útgangi í sólskála. Útsýni af efri hæð yfir fjöllin og Elliðavatn. Verð 58,0 millj. Möguleiki er að fá hús- ið keypt fullklárað að utan. Vesturhús Glæsilegt 236 fm einbýlishús á tveimur hæðum auk rislofts með 49 fm tvöf. innb. bílskúr á fallegum útsýnisstað. Eignin skiptist m.a. í stórt alrými með allt að 5,5 metra lofthæð, sjónvarps- stofu, setustofu með arni, borðstofu, eldhús með hvítum sprautulökk. inn- rétt. og eyju, tvö flísalögð baðherbergi, 3-4 herb. auk fataherb. Mikið útsýni úr stofum yfir borgina. Tvennar svalir og útg. úr hjónaherb. á verönd. Ræktuð lóð með sólpalli, skjólveggjum og heitum potti. Hiti í innkeyrslu sem er hellulögð. Verð 67,0 millj. Bugðulækur Neðri sérhæð með bílskúr 151 fm 6 herb. neðri sérhæð auk 36 fm bílskúrs og um 18 fm herbergis inn af bílskúr og sérgeymslu í kjallara á þessum eftirsótta stað í Laugarnesinu. 3 rúmgóðar og bjartar stofur og 3 góð herbergi. Þvottaherb. innaf eldhúsi. Svalir til suðvesturs. Verð 45,9 millj. Arnarás Vönduð 3ja-4ra herb. íbúð Vönduð 97 fm 3ja-4ra herb. íbúð á efri hæð með sérinngangi. Innréttingar úr kirsuberjavið í eldhúsi og í skápum. Vandað eldhús, flísalagt baðherbergi, 2 góð herbergi og stofa. Þvottaher- bergi innan íbúðar. Allt parket úr rauð- eik. Flísalagðar svalir til suðvesturs, fallegt útsýni. Verð 28,9 millj. Strandgata - Hafnarfirði. 3ja herb. íbúð í nýju húsi - Útsýni yfir höfnina Glæsileg 99 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð, þ.m.t. 9,2 fm geymsla í kj. Inn- réttingar úr rauðeik sem og parket. Baðherbergi flísalagt í gólf og veggi. Vestursvalir með sjávarsýn. FRÁBÆR STAÐSETNING. Sérbílastæði. Til afh. við kaupsamn. Verð 28,5 millj. Nýkomið í einkasölu við Lækinn sérlega fallegt þrílyft einbýlis- hús, samtals ca 150 fm. Húsið hefur verið endurnýjað umtals- vert á sl. 15 árum. Frábær staðsetning. Myndir á mbl.is. Verð 37,9 millj. Kristján og Edda bjóða ykkur velkomin. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Hverfisgata 63 - Hf. Einbýli Opið hús í dag frá kl. 14.00 til 16.00 urstöðu sem fer þvert á það sem ætla mætti út frá því sem hann hefur sett í skýrsluna. Þar fyr- ir utan eru svo staðhæf- ingar í skýrslunni sem láta undarlega í eyrum stjórnarmanns ÞSSÍ. Þarna er ástæða þess að mér finnst ástæða til að gagnrýna þau vinnu- brögð sem viðhöfð voru við að leggja skýrsluna fram. Eðlilegt hefði verið að kynna starfsmönnum og stjórn ÞSSÍ fyrst efni hennar. Það hefði getað komið í veg fyrir óróa sem greip um sig meðal starfsfólks ÞSSÍ, þegar það frétti af skýrslunni og þeirri túlkun að leggja ætti stofn- unina niður. Í öðru lagi hefði mátt leiðrétta atriði sem ekki virðast byggjast á staðreyndum. Víðtækt samstarf ÞSSÍ hefur átt mikið og gott sam- starf við frjáls félagasamtök; Hjálp- arstofnun kirkjunnar, Rauði kross- inn, ABC Barnahjálp og fleiri samtök hafa fengið stuðning til hjálparstarfa. Hefur ÞSSÍ gjarnan fjármagnað verkefni sem unnin hafa verið í nafni annarra að rúmum helmingi. Það er því dálítið undarlegt að lesa má úr skýrslunni að samstarfi ÞSSÍ við frjáls félagasamtök sé ábótavant. Á sama hátt hefur stofnunin átt samstarf við aðila úr viðskiptalífinu NÝLEGA var lögð fram á Alþingi „skýrsla utanríkisráðherra um fyr- irkomulag þróunarsamvinnu Ís- lands“. Skýrslan hefur vakið nokkurt umtal, ekki síst vegna gagnrýni fram- kvæmdastjóra Þróunarsam- vinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ), Sig- hvats Björgvinssonar. Skýrsla þessi er um margt happa- fengur; þarna er saman kominn á einn stað talsverður fróðleikur um þróunarsamvinnu Íslendinga. Skýrsluhöfundur, Þorsteinn Ingólfs- son sendiherra, hefur þar unnið gott starf. Þar kemur einn- ig fram að „skýrsla þessi [sé] innlegg í um- ræðu sem mikilvægt er að fari fram og leiði til farsællar nið- urstöðu sem sátt geti ríkt um“. Slík umræða er nauðsyn og það er til að stuðla að henni að þessi grein er skrif- uð. Ég er sammála Sig- hvati þegar kemur að vinnubrögðunum við framlagningu skýrslunnar. Auk þess sýnist mér að þegar skýrsluhöfundur dregur ályktanir, komist hann að nið- og einkaaðila. Ekki er ástæða til að gleyma hér samstarfinu við fræða- samfélagið með samstarfssamn- ingum við háskóla landsins. Skrítnar ályktanir Fram kemur í skýrslunni að „starfsmenn ÞSSÍ skila merkilegu framlagi til alþjóðasamstarfs Íslend- inga, oft við mjög erfiðar aðstæður. Íslendingar geta með stolti litið til þeirra verka og enginn þarf að velkj- ast í vafa um að framlag okkar skiptir máli.“ Og þar segir einnig: „ÞSSÍ starfar samkvæmt skýrum verklags- reglum sem byggjast á alþjóðlegum viðmiðum. Í reglunum felst m.a. að öll verkefni stofnunarinnar eru metin reglulega og óháðar úttektir eru gerðar á öllum verkefnum hennar áð- ur en þeim lýkur. Þetta verklag er til fyrirmyndar.“ Þrátt fyrir þessa skoðun höfundar (sem ég er sammála) dregur hann ályktanir sem mér finnst ekki að passi við hana. Þar finnst mér að hann (og ráðherra í ummælum sín- um) sé að láta undan þrýstingi nokk- urra aðila sem vitað er að hafa viljað fá starfsemi ÞSSÍ í ráðuneytið. Skýrsluhöfundur bendir á tvær leið- ir í framtíðarskipulagi þróunarsam- vinnu Íslendinga; annars vegar fullan samruna ÞSSÍ og utanríkisráðuneyt- isins, hins vegar að ÞSSÍ starfi sem sjálfstæð undirstofnun, en í nánari tengslum við ráðuneytið en nú er. Höfundur bendir á kosti og galla beggja leiða og tekur síðan þá afstöðu að mæla með fyrri leiðinni. Þegar hann ræðir kosti fyrri leiðarinnar nefnir hann átta atriði en fjögur þeg- ar kemur að göllunum. Og það eru einmitt fjögur grundvallaratriði sem ég tel að vegi mun þyngra en þau átta jákvæðu (sem ég er ekki að öllu leyti sammála): Gallarnir fjórir eru þessir: a) Ákvarðanataka vegna tvíhliða verkefna gæti orðið seinvirkari en nú er. b) Erfiðara gæti reynst að viðhalda fagþekkingu í þróunarsamvinnu vegna flutningsskyldu starfsmanna utanríkisráðuneytisins. c) Hætta á að áherslur og verk- efnaval þróunarsamvinnunnar taki tíðari breytingum vegna reglulegra breytinga á yfirstjórn ráðuneytisins. d) Auknar líkur á að skammtíma- sjónarmið, sem taka mið af afstöðu al- þjóðastjórnmála, ráði ferðinni í tví- hliða þróunarsamvinnu Íslands í stað faglegra sjónarmiða. Þrátt fyrir að komast að þessari laukréttu niðurstöðu um galla þessa skipulags leggur skýrsluhöfundur til að sú leið verði valin. Hér mætti bæta við fimmta atrið- inu: Hætt er við að hin algjöra sam- staða íslenskra stjórnmálaflokka um þróunarsamvinnu landsins myndi bresta og málefnið yrði alfarið partur af flokkspólitísku dægurþrasi ef þess- ar breytingar yrðu ofan á. Lokaorð Engin lög eru hafin yfir breytingar og lagfæringar; sama gildir um stofn- anir á borð við ÞSSÍ; með rýmkun lagaheimilda um stofnunina mætti gera henni auðveldara um vik með samstarf við utanaðkomandi aðila. Sama gildir um starfsreglur stofn- unarinnar. Núverandi skipulag henn- ar og vinnubrögð gera það að verkum að starf ÞSSÍ er mjög skilvirkt og traust. Raunar hafa samstarfsaðilar í þróunarlöndum lýst yfir sérstakri ánægju með hve áreiðanleg hún sé í samstarfi. Þess vegna þykir mér rétt að vara við breytingum á skipulagi ÞSSÍ í þá veru sem skýrsla utanrík- isráðherra gerir ráð fyrir. Röng vinnubrögð og skrítnar ályktanir Haukur Már Haraldsson skrifar um Þróunar- samvinnustofnun Íslands » Þrátt fyrir þessaskoðun skýrsluhöf- undar (sem ég er hjart- anlega sammála) dregur hann ályktanir sem mér finnst ekki að passi... Haukur Már Haraldsson Höfundur er framhaldsskólakennari og stjórnarmaður í Þróunarsam- vinnustofnun Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.