Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 28
vistvernd 28 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ 1. Við erum sex í heimili og þrír til fjórir úr fjölskyldunni skiptast á að nota tvo bíla. Af öryggis- ástæðum eru báðir af gerðinni Volvo, annar er eins árs og hinn fimm eða sex ára. Þar sem ég ek mikið yfir fjallvegi og heiðar vegna vinnu minnar sem og fjölskyldu okkar á Suðurlandi og í Norður-Þingeyjarsýslu er annar bíllinn á nagladekkjum. Reyndar tilheyrir einn Volvo til við- bótar heimilinu, en það er 35 ára gamall fornbíll, spari- og gælugripur, sem lítið er notaður. 2. Nei. 3. Við skilum dósum, dagblöðum, rafhlöðum og þvíumlíku. Einnig jarðgerum við garð- og líf- rænan úrgang. Við erum þó ekki orðin alveg nógu þróuð í þessum málum og erum að útbúa okk- ur betur í meðferð alls lífræns úrgangs og heimilissorps. 4. Ég bý í Seljahverfi í Breiðholti og tek af og til strætó í eða úr vinnu. Ég bæði geng og hleyp oft og tek svo strætó heim. Þannig samtvinna ég heilsubót og vistvernd. 5. Við reynum eins og hægt er. Það gengur hins vegar upp og ofan að ala unga fólkið upp að þessu leytinu. Við predikum að slökkva öll ljós, sem ekki er verið að nota, og svo fer ég eftirlitsferð um húsið fyrir nóttina. Ég veit ekki hversu síðasti orku- reikningur var hár, því upphæðin er dregin sjálfkrafa af bankareikn- ingnum, en ég kvarta ekki, þetta er afar ódýrt miðað við hvað myndi kosta að kynda með rafmagni. 6. Ég hef bæði friðað land fyrir norð- an og sunnan, plantað skógi og grætt upp mela. Til dæmis hefur fjölskyldan ræktað skóg á ættaróðali konu minn- ar í Gnúpverjahreppi og á heima- slóðum mínum á Gunnarsstöðum í Þistilsfirði. 7. Við pökkum því sem ekki geng- ur á milli barna í stórfjölskyldunni og sendum til Rauða krossins. Sumt geymi ég til minja, eða vegna þess að það gæti komist aft- ur í tísku, eins og stundum hefur komið á daginn. Synir mínir slóg- ust næstum um jakka og frakka frá menntaskólaárum mínum, sem þeir fundu fyrir algjöra tilviljun. 8. Við kappkostum að vera virkir liðs- menn í þágu umhverfisverndar og standa þannig með náttúrunni og lífrík- inu. Eflaust gætum við gert betur, en við reynum í auknum mæli að hafa umhverfið í huga varðandi lífsstílinn. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna Geymir flíkur til minja U mhverfisvernd og náttúruverndarsjónarmið eru í brennidepli sem aldrei fyrr. Og verða, ef að lík- um lætur, meðal heitustu kosningamálanna þeg- ar landsmenn ganga að kjörborðinu 12. maí næstkomandi. Í orðræðunni eru menn flokkaðir annaðhvort grænir eða gráir og mörgum er heitt í hamsi þeg- ar ál, stóriðjur, virkjanir og hvers konar virkjanaáform ber á góma. Hagsmunirnir eru metnir í peningum, en fylgikvillarnir eru óhjákvæmilega mengun og spjöll á ásýnd landsins. Náttúruvernd er á stefnuskrá allra stjórnmálaflokkanna og formenn þeirra hafa ítrekað látið í ljós skoðanir sínar – og flokksins á málaflokknum, enda þráspurðir síðustu misserin. Í ljósi þess er forvitnilegt að vita hvort og/eða hvernig þeir sjálfir leggja umhverfinu lið í daglegri umgengni. Mengun af mannavöldum er enda ekki bara bundin við stóriðju og virkj- anir heldur líka hvernig hver og einn gengur frá eftir sig. Á vefnum landvernd.is eru ýmsar staðreyndir og ábend- ingar um hversdagslegar athafnir og afleiðingar þeirra fyrir umhverfið: … í venjulegu heimilissorpi er 30–50% af þyngdinni lífrænn úrgangur, sem mætti jarðgera. … í hvert skipti sem við kaupum einhvern hlut erum við að ganga á auðlindir jarðar. … þótt vatn sé ódýrt á Íslandi, kallar aukin vatnsnotkun á stærra lagnakerfi og meira viðhald. … farartæki sem flytja vörur til áfangastaða ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. … um 30% sorps frá heimilum eru umbúðir. … Íslendingar eru hluti af hinum 20% ríkustu jarðarbúum, sem standa fyrir 86% af einkaneyslunni. … allt sem sett er í skólpið og í tunnuna hafnar fyrr eða síð- ar í náttúrunni. Allt þetta og meira til er mikið umhugsunarefni og hvati til góðra verka. Samspil manns og náttúru er lykilatriðið. Til að mynda kann að orka tvímælis að jarðgera lífrænan úrgang ef gróðureyðing, ofbeit og uppblástur hrjá landið og ekkert er að gert. Vistverndin að þessu leytinu gæti snúist upp í andhverfu sína því kolefnabinding hyrfi úr jarðveginum og úr hinum rotnandi lífrænu leifum tækju að streyma gróðurhúsaloftteg- undir. Þá má velta fyrir sér hvort alltaf sé umhverfisvænna að kaupa lífrænt ræktað grænmeti og ávexti, ef farartækið, sem flytur vöruna, kemur langt að með tilheyrandi eldsneytis- eyðslu. Og áfram mætti velta vöngum. Umhverfisvernd er eflaust erfiðari í verki en í orði. Nýlega reyndu bandarískir fjölmiðlar að hanka einn boðberann, fyrr- um varaforseta Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandann, Al Gore, á því að eyða óhóflega mikilli orku í upphitun á setri sínu í Nashville á sama tíma og hann predikaði hófsemi með gnægtir jarðarinnar í heimildarmynd sinni, An Inconvenient Truth. Svör íslensku flokksformannanna benda til að þeir séu virki- lega á heimilisvaktinni í umhverfisvernd. Þeir flokka sorp, endurnýta og spara orku og sumir hyggja á frekari ráðstaf- anir til að gera heimili sín sem umhverfisvænust. Flestir eru þó veikastir á svellinu þegar kemur að bílaflotanum. vjon@mbl.is Græna fordæmið  Sjálfstæðisfálkinn birtist nýverið í grænum lit  Slagorð Samfylkingarinnar er Fagra Ísland  Fram- sóknarflokkurinn er svo heppinn að hafa haft grænt merki frá því löngu áður en liturinn komst í tísku  Með nafninu einu saman var ljóst að Vinstri græn reru á grænu miðin  Íslandshreyfingin kveðst hafa algjöra sérstöðu því framboðið sé grænt í gegn  Og eins og hinir flokkarnir hefur Frjálslyndi flokkurinn náttúruvernd á stefnuskrá sinni. Allir vildu þeir eflaust Lilju kveðið hafa. En hafa formenn flokkanna tek- ið til í eigin ranni? Valgerður Þ. Jónsdóttir spurði þá nokkurra heimilislegra spurninga. 1. Hvað eru margir bílar á þínu heimili, hverrar gerðar eru þeir, hvað eyða þeir miklu, eru þeir á nagladekkjum á veturna? 2. Tilheyra önnur vélknúin farartæki þínu heimili, s.s. vélhjól, vélsleðar, bátar og flugvélar? 3. Flokkar þú heimilisruslið; hvað verður um dósir, dagblöð, rafhlöður og lífrænan úrgang frá þínu heimili? 4. Gengur þú, hjólar eða tekur þú einhvern tímann strætó í stað þess að keyra sjálfur? Hvenær helst (hér er ekki spurt um göngur og hjólreiðar einungis til heilsubótar). 1. Ég hef afnot af bifreið ráðuneytisins sem er BMW. Eiginkona mín á tvinnbíl, þ.e. bíl sem gengur á víxl fyrir raforku og bensíni. Ráðuneytisbíllinn er á nagladekkjum – gegn mínu ráði, en ég held að hinn bíllinn sé á einhvers konar harðkornadekkjum. 2. Nei. 3. Já, við gróf-flokkum og ég fer reglulega með pappír o.fl. í Sorpu. Dósir, flöskur o.þ.h. látum við í safnanir. Rafhlöður fer ég með í Sorpu. 4. Ég geng talsvert. 5. Það væri ofsagt að tala beinlínis um sparnað, en þó held ég að við forðumst allan mesta óþarfa í þessu. 6. Ég hef tekið svolítinn þátt í skógrækt. 7. Ýmist fer það í Sorpu eða í nytjagám. 8. Það er óþarfi að hreykja sér af litlu. Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins og iðnaðar- og viðskiptaráðherra Eiginkonan á tvinnbíl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.