Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 57 Tilboð Subaru Impreza GX 2.0 wagon, 4WD sjálfsk., álfelgur, ný dekkk. Áhv. 1.050 þ., 25 þ. á mán. Uppl. síma 898 3088. Peugeot 307 Til sölu Peugeot 307 1600cc árg. 2002, ekinn aðeins 55 þús. km. Vel með farinn bíll í toppstandi. Nýskoð- aður og smurður. Ath. skipti á dýrari bíl. Upplýsingar í síma 866 09266. MMC CARISMA til sölu. Vél GDI árgerð 1998, ekinn 97.000 km. Samlitur, sjálfskiptur, vel með farinn. Upplýsingar í síma 695 0028. Árg. '92, ek. 200 km. Ný upptekin vél, ný kúpling, hjöruliðir og dempar- ar, á nýjum nagladekkjum, sumardekk fylgja. Sími 868 4577, Sigurþór. Árg. '05, ek. 38.000 km. Til sölu Grand Cherokee Laredo, gullfallegur lúxusbíll, nýja lúkkið og er hann allur nýyfirfarinn.Gott lán getur fylgt. Upplýsingar í síma 849 8886 M. Benz E-220 CDI árg. ‘05, (mód- elár ‘06). Flottur dísel, ek. 44 þ. km. Fæst á frábæru verði 4.400 þ., (lista- verð 5.250 þ.) . Vel útbúinn Eleganse ssk., parktrónik, olíufiring, símabún- aði, command leiðsögu+dvd, nýjasti liturinn copanite S 893 2878 Mikið úrval af flottum dömuskóm úr leðri og skinnfóðraðir. Verð 7.885. Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Bílskúrssala! Þjórsárgata 9a, 101. Nýr og lítið not. fatnaður t.d.Old Navy/GAP o.fl., smart skór, Bath & Bodywork vörur, antikskápur og borð, Eos filmumyndavél og margt fl! Laug- ard. 10-1/sunnud. 1-4. Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Útsala -50% Opið laugardag 11-16, mánudag - þriðjudag kl. 14-18. Mjög fínlegur og fallegur í BC skálum á 2.350 kr., buxur fást í stíl á 1.250 kr. Sætur og sumarlegur í BC skálum á 2.350 kr., buxur í stíl 1.250 kr. Virkilega kvenlegur í BC skálum á 2.350 kr., buxur í stíl á 1.250 kr. Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf www.misty.is Mjög falleg dömustígvél úr mjúku leðri. Verð 13.500. Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Bílar Volvo 740 GL Verð 130 þús., ekinn 138 þús., 91 árg. Sími 698 1718. TOYOTA YARIS. Nýskráður 12/05. Ekinn 17.000 km.Sjálfskiptur. Mjög vel með farinn. Verðtilboð. Upplýsingar í síma 863 7656 Heilsárshús Þessa eign verður þú að skoða! RE/MAX FASTEIGNIR, Stefán P. Jónsson lögg.fast. Opið hús 1. apríl kl. 16-17.00. Fullbúinn 102 fm 3-4 herbergja sumarbústaður sem stend- ur á 6.700 fm eignarlóð á góðum stað við Dvergahraun í Grímsnes. Bóas 699 6165 gefur uppl. Þjónustuauglýsingar 5691100 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Smáauglýsingar sími 569 1100 HEIMSMEISTARINN Vladimir Kramnik bar sigur úr býtum í á hinu árlega Amber-móti sem lauk í Móna- kó á fimmtudaginn. Þetta er fyrsta meiriháttar afrek Kramniks á skák- móti í langan tíma og treystir hann óneitanlega í sessi sem heimsmeist- ara. Hann hefur verið sigursæll í Mónakó og er þetta í fimmta skiptið sem hann vinnur þetta mót. Jafnvel þó svo atskákir og blindskákir teljist ekki jafn mikilvægt keppnisform og venjulegar kappskákir þá liggur fyr- ir að atskákin vinnur sífellt á. Keppni í blindskák hefur hinsvegar aldrei notið neinna sérstakra vinsælda og eins og þessu er stillt upp Mónakó þar sem skákmennirnir sitja fyrir framan fartölvur er vandséð að ein- hver breyting verði þar á. Þegar Kasparov kom hingað til lands 1995 tefldi hann blindskák í sjónvarpssal við Helga Áss Grétars- son. Það var gagnrýnt að keppendur skyldu ekki hafa tölvur til umráða til að slá inn leikina og þess í stað látnir kalla fram hvern leik. Þegar horft er til baka sýnist manni vera heldur meira fjör fylgjandi því fyrirkomu- lagi en viðureign þessi vakti mikla at- hygli enda hygg ég að þetta sé eina blindskákin sem Kasparov hefur teflt opinberlega.. Kramnik hafði mikla yfirburði í blindskákinni og hlaut 9 vinninga af 11 mögulegum. Í atskákinni bar An- and höfuð og herðar yfir andstæð- inga sína með 8½ v. vinninga af 11 mögulegum. Það er hinsvegar vinn- ingatalan samanlagt sem gildir en lokastaðan varð þessi: 1. Vladimir Kramnik 15½ v. (af 22) 2. Viswanathan Anand 13½ v. 3. Vasilí Ivantsjúk 13 v. 4.–5. Peter Svidler og Lev Aronjan 12 v. hvor. 6.–7. Alexander Morosevich og Boris Gelfand 11½ v. hvor. 8. Magnus Carl- sen 10½ v. 9. Peter Leko 10½ v. 10. Teimour Radjabov 9 v. 11.–12. Val- lejo Pons og Van Wely 6½ v. hvor. Stórmeistarar á borð við Anand og Kramnik ættu ekki að eiga í neinum erfiðleikum með að tefla blindskák. Engu að síður urðu mönnum á alveg ótrúleg mistök eins og eftirfarandi dæmi sýnir: Kramnik – Anand Frumkvæðið hafði verið í höndum Kramnik nær alla skákina og svo virðist sem Anand hafi alls ekki verið með rétta stöðu í kollinum því hann lék nú: 28. … Rd6?? sem var svarað með 29. Bxe6 og nú kom 29. … Hf2?? sem var með 30. Hxf2 Norðmenn fylgdust grannt með hetju sinni Magnúsi Carlssyni sem þessa dagana er tíður gestur i spjall- þáttum þar í landi. Hann er hógvær og yfirlætislaus og áttunda sætið í þessum félagskap er allgóður árang- ur. Eftirfarandi sigurskák gegn Iv- antsjúk er gott dæmi um léttaleik- andi stíl hans. Hinn snjalli leikur 20. d7 byggist á því að svartur má ekki undir neinum kringumstæðum hirða peðið vegna – Hxd7 og – Rh6+ . Iv- antsjúk hefði sennilega átt að taka d6-peðið í 16.leik. Melody Amber-mótið: Magnus Carlsen – Vasilí Ivantsjúk Drottningarindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6 5. Dc2 c5 6. d5 exd5 7. cxd5 Bb7 8. Bg2 Rxd5 9. 0-0 Be7 10. Hd1 Rc6 11. Df5 Rf6 12. e4 g6 13. Df4 0-0 14. e5 Rh5 15. Dg4 d5 16. exd6 Bf6 17. Rc3 Rd4 18. Rxd4 Bxg2 19. Rf5 Bc6 20. d7 Dc7 21. Rd5 Bxd5 22. Hxd5 Hfd8 23. Be3 Bxb2 24. Rh6+ Kf8 25. Had1 Bg7 26. Hxh5! gxh5 27. Df5 – Svartur gafst upp. Íslandsmót barnaskólasveita Íslandsmót barnaskólasveita 2007 fer fram dagana 31. mars og 1. apríl nk. og hefst kl. 13 báða dagana. Teflt verður í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Tefldar verða níu umferðir, umhugsunartími 20 mín. á skák fyrir hvern keppanda. Keppt er í fjögurra manna sveit- um (auk varamanna). Keppendur sem eru fæddir 1994 og síðar hafa þátttökurétt. Sigurvegari í þessari keppni mun öðlast rétt til að tefla í Norðurlanda- móti barnaskólasveita, sem haldið verður í Svíþjóð í haust. Nokkurrar eftirvæntingar gætir vegna þessarar keppni en sveitir frá Vestmannaeyjum þykja býsna sigur- stranglegar í ár. Sigurvegari Vladimir Kramnik fyrir framan fartölvuna í lokaumferðinni. Kramnik sigraði í Mónakó helol@simnet.is Skák Melody Amber-mótið í Mónakó 17.–29. mars Helgi Ólafsson Bridsfélag Borgarfjarðar Mánudagana 20. og 27. mars spiluðu Borgfirðingar einmenning með þátttöku 32 einstaklinga. Kepp- endur voru í bland reyndir spilarar og þeir sem hafa verið að feta sig inn að bridsborðinu á byrjendanám- skeiði félagsins. Bæði kvöldin var spilað í tveimur 16 einstaklinga riðl- um en seinna kvöldið var raðað eftir árangri fyrra kvölds. Keppnin tókst mjög vel og ljóst að margir efnilegir spilarar bíða eftir því að klekkja á okkur hinum sem þykjumst státa af reynslu og þekkingu. Fyrra kvöldið stóðu þeir sig best Stefán í Kalman- stungu, Steini á Hömrum, Sveinn á Vatnshömrum og Kristján í Bakka- koti og kom engum á óvart. Seinna kvöldið gekk á ýmsu hjá þeim fé- lögum, sérstaklega Stefáni. Um mitt kvöld hafði hann 30 stig á næsta mann og því töldu menn alla spennu úr sögunni. En það er þannig með brids eins og svo margt annað að engu er lokið fyrr en því lýkur. Í síð- ustu umferðinni gekk ekkert upp hjá honum meðan bæði Eyjólfur á Hesti, sem spilaði manna best þetta kvöld og Kristján í Bakkakoti, skutust upp fyrir hann. Aðrir sem gerðu það gott þetta kvöld voru Guðmundur á Grímsstöðum, Ingólfur á Lundum og svo nýliðinn Þórhallur á Grímsstöð- um. Lokastaðan var eftirfarandi: Eyjólfur Örnólfsson 65 Kristján Axelsson 59 Stefán Kalmansson 55 Þorsteinn Pétursson 39 Eyjólfur Sigurjónsson 35 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Bridsfélag Hreyfils Sl. mánudag lauk þriggja kvölda tvímenningi þar sem tvö efstu kvöld- in skila verðlaunum. Lokastaðan: Björn Stefánsson – Árni Kristjánss.213 Daníel Halldórss. – Ágúst Benediktss.187 Einar Gunnarss. – Valdimar Elíass.186 Birgir Kjartanss. – Jón Sigtryggss.183 Næsta spilakvöld er mánudaginn 2. apríl, en þá verður spilaður páskatvímenningur. Spilað er í Hreyfilshúsinu við Grensásveg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.