Morgunblaðið - 01.04.2007, Side 39

Morgunblaðið - 01.04.2007, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 39 febrúar 1940, eins og enn má greinilega ráða með samanburði á íslenzku og dönsku hegningarlög- unum. Hegningarlög beggja landa hafa tekið nokkrum breytingum frá 1940 eins og eðlilegt er með tilliti til breyttra lífshátta og viðhorfa, svo eitt- hvað sé nefnt, sem áhrif getur haft á lagasetningu. Þegar almenn hegningarlög eru nú borin saman við þau dönsku má sjá að þar í landi hafa verið gerðar margvíslegar breytingar, sem ekki hafa ratað inn í hegningarlög okkar, þótt hér hafi gjarn- an verið vel fylgzt með því, sem gerzt hefur í ná- grannalandinu á þessu sviði. Má sérstaklega benda á ákvæði um brot gegn friðhelgi einkalífs, þótt einnig megi nefna ráðstafanir, aðrar en refsingar, gagnvart andlega vanheilum afbrotamönnum svo og ákvæði um upptöku eigna, sem tekið hafa veru- legum breytingum í Danmörku en litlum breyt- ingum hér. Þykir mörgum það miður. Á árinu 1972 voru sett ákvæði í dönsk hegning- arlög sem lýsa refsiverða heimildarlausa mynda- töku af manni, sem ekki er á almannafæri þegar myndin er tekin. Sama máli gegnir um heimildar- lausa dreifingu á mynd úr einkalífi manns og dreif- ingu á mynd af manni, sem sýnir hann við kring- umstæður, sem augsýnilega má ætlast til að ekki verði opinberaðar. Brot á hinum dönsku ákvæðum, sem eru í 264. gr. a. og 264 gr. d. hegningarlaganna, geta sætt op- inberri ákæru að kröfu þess, sem misgert var við.“ Þessi athugasemd Boga Nilssonar er verðmætt innlegg í þær umræður, sem orðið hafa vegna um- rædds dóms. Ríkissaksóknari sýnir fram á, að hegningarlögin eru að hluta til orðin úrelt. Þeim hefur ekki verið breytt í samræmi við margvíslegar breytingar í samtíma okkar og má það furðu gegna. Bogi Nilsson segir að vísu að vel hafi verið fylgzt með breytingum á þeirri dönsku löggjöf, sem hegningarlög okkar byggjast á. Það hefur þó ekki verið gert betur en svo að ríkissaksóknari vís- ar í breytingar á dönsku lögunum, sem gerðar voru fyrir 35 árum og ekki hafa verið teknar upp hér enn sem komið er! Hvaða kerfi er í gangi hér sem á að fylgjast með því að íslenzk löggjöf á þessu sviði, sem öðrum sé alltaf í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa í samfélaginu? Athugasemd ríkissaksóknara breytir hins vegar engu um það, að sýknudómur Héraðsdóms Norð- urlands byggir á ótrúlega þröngri túlkun orðanna „lostugt athæfi.“ Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður, segir í sam- tali við Morgunblaðið í dag, að ríkissaksóknara beri skylda til að áfrýja dómnum og ef Hæstiréttur staðfesti dóminn sé nauðsynlegt að breyta löggjöf. Þetta er rétt hjá Atla að öðru leyti en því, að rík- issaksóknari hefur með athugasemd sinni sýnt á ótvíræðan hátt fram á nauðsyn þess að endurskoða almennu hegningarlögin þannig að þau uppfylli þarfir og kröfur nútímans. Sif Konráðsdóttir, hæstaréttarlögmaður segir í Morgunblaðinu í dag, laugardag, að „venjan sé sú, að túlka annars vegar „lostugt athæfi“ og hins veg- ar blygðunarsemi, sem athæfi, sem hafi yfir sér kynferðislegan blæ. Í því felist hins vegar ekki að „lostugt athæfi“ merki að háttsemi gerandans sé til þess fallin að veita honum einhverja kynferðislega fullnægingu. Tekur Sif fram, að hún telji að brotið eins og ákært er fyrir það, sé ekki bara blygð- unarsemisbrot heldur líka klám og þar með refsi- vert samkvæmt 210. gr. hegningarlaga.“ Og Sif Konráðsdóttir bætir við: „Þetta er ný teg- und af brotum, þ.e. þar sem fólk er með síma að taka dónamyndir. Hér eru miklir hagsmunir í húfi, því dreifing mynda af nöktu fólki og kynfærum þess beinist gegn mjög mikilvægum hagsmunum, þ.e. einkalífi og kynfrelsi.“ Það fer tæpast á milli mála, að hér þarf að breyta löggjöf, hvað sem líður ágreiningi við dómarann um merkingu tveggja orða. Er réttarkerfið ekki í sambandi? Í tilviki sem þessu kann að vera ágrein- ingur um merkingu orða og augljós þörf á nútímavæðingu lagabálka. En svo falla aðrir dómar, þar sem ekki skortir á laga- heimildir til að dæma á annan veg en gert er. Þegar hinn umtalaði dómur hæstaréttar um kynferðislega misnotkun manns á fimm stúlku- börnum er skoðaður kemur í ljós, að maðurinn er dæmdur í 3ja mánaða fangelsi fyrir hvert stúlku- barn, sem hann misnotaði. Síðan hafa fallið fleiri dómar í undirrétti, þar sem niðurstaðan er sú sama. Viðkomandi er dæmdur í 3ja mánaða fang- elsi fyrir eitt barn, sem misnotað er. Í þessu tilviki skortir ekki á lagaheimildir til að fella þyngri dóma. Samkvæmt íslenzkum lögum má dæma menn í margra ára fangelsi fyrir svona athæfi. Hvers vegna er það ekki gert? Nú liggur fyrir svo mikil þekking á sálarlífi barna að hægt er að fullyrða, að kynferðisleg mis- notkun, sem dómar hafa fallið um, getur eyðilagt allt líf þessara einstaklinga. Þeir bíða þess aldrei bætur og burðast með afleiðingarnar alla tíð. Er eðlilegt að sá, sem veldur annarri manneskju því tjóni, þurfi aðeins að sitja í fangelsi í 3 mánuði fyrir það afbrot? Sagt er að dómarar geti ekki tjáð sig nema í dómunum sjálfum en í þeim dómum, sem hér um ræðir er ekki að finna neinn efnislegan rökstuðning fyrir þessum ótrúlega vægu dómum vegna mjög al- varlegra afbrota. En auðvitað er það tóm vitleysa að dómarar geti ekki tjáð sig. Það er hægt að skilja að dómarar við Hæstarétt Íslands vilji ekki tjá sig um einstök mál en auðvitað getur dómari við réttinn lagt leið sína í lagadeild Háskóla Íslands eða á hvern annan fund- arstað sem er og flutt fyrirlestur um þau almennu sjónarmið, sem liggja að baki niðurstöðum hæsta- réttar í málum, sem fjalla um afbrot af þessu tagi. Það er ekkert sem bannar dómara það. Og raunar má segja, að það sé beinlínis nauðsynlegt að dóm- arar taki upp þann hátt. Það er að skapast alvarlegur trúnaðarbrestur á milli dómara og samfélagsins eins og kannanir hafa sýnt. Það er mikilvægt fyrir dómara að þeir útskýri þau almennu sjónarmið, sem liggja að baki ákvörð- unum þeirra og að þannig geti farið fram opinberar umræður um þau almennu sjónarmið. Í slíkum um- ræðum er líka visst aðhald fyrir dómarana sjálfa. Trúnaðarbrestur á milli dómara og samfélagsins að öðru leyti er alvarlegt mál. Hvorki dómstólarnir né samfélagið mega við því, að almenningur hætti að trúa því, að dómstólar kveði upp sanngjarna og réttláta dóma. Er þriggja mánaða fangelsi fyrir að eyðileggja líf annarrar manneskju sanngjarn og réttlátur dóm- ur? »Morgunblaðið hefur orðið fyrir gagnrýni vegna afstöðublaðsins til vistunar unglingsins á Litla-Hrauni. En sú gagnrýni og þær röksemdir, sem færðar hafa verið fram til stuðnings þeirri ákvörðun að loka piltinn inni á Litla-Hrauni, breyta ekki þeirri skoðun blaðsins, sem hér hefur verið fjallað um. Þetta á ekki að gerast. rbréf Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.