Morgunblaðið - 01.04.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 45
UMRÆÐAN
NOKKUR umræða hefur verið
undanfarið um að færa málefni
aldraðra og einnig fatlaðra yfir til
sveitarfélaganna og er það vel. Ég
hef lengi verið á þeirri skoðun að
öll nærþjónusta þ.e.a.s. þau mál-
efni sem standa næst ein-
staklingum eigi að
vera á sömu hendi og
þá á hendi sveitarfé-
laga sem er það um-
hverfi sem einstakling-
urinn lifir í. En við
eigum að sameina
kraftana enn frekar. Á
meðan heilbrigðisþjón-
usta og félagsþjónusta
er í sitt hvoru ráðu-
neyti er endalaust
hægt að kasta þessum
málefnum á milli sín
eins og bolta sem
lendir svo í neti trú-
félaga ef enginn vill
grípa hann. Í dag þegar þjóðin er
á hlaupabretti neysluhyggju og til-
gangsleysis þarf heilstæða stefnu í
heilbrigðis- og félagsmálum og
setja þau undir eitt ráðuneyti –
velferðarráðuneyti. Það mundi
stuðla að aukinni velferð og sparn-
aði fyrir þjóðfélagið
Eðlileg samræming yrði með
heimahjúkrun og heimaþjónustu
þar sem heildarsýn yfir þá þjón-
ustu sem einstaklingurinn þarfn-
aðist væri á einni hendi.
Í lögum um heilbrigðisþjónustu
(31. des. 1990) segir í 1. gr.: Allir
landsmenn skulu eiga kost á full-
komnustu heilbrigðisþjónustu,
sem á hverjum tíma eru tök á að
veita til verndar andlegri, lík-
amlegri og félagslegri heilbrigði. Í
dag vantar mikið upp á að hugað
sé að félagslegu heilbrigði t.d. á
heilsugæslustöðvum. Í 19. gr.
sömu laga segir: Á heilsugæslu-
stöð eða í tengslum við hana skal
veita þjónustu eftir því sem við á
og hér segir: … Þar er t.d. í lið
5.13. Félagsráðgjöf, þ.m.t. fjöl-
skyldu- og foreldraráðgjöf. Ég er
ekki í vafa um að ef boðið væri
upp á þjónustu samkvæmt þessum
lögum væri hægt að veita betri
þjónustu til einstaklinga og fjöl-
skyldna. Sérstaklega til barna og
aldraðra.
Í lögum um málefni aldraðra
(31. des. 1999) segir í 1. gr. Mark-
mið þessara laga er að aldraðir
eigi völ á þeirri heilbrigðis- og fé-
lagslegu þjónustu sem þeir þurfa
á að halda og að hún sé veitt á því
þjónustustigi sem er eðlilegast
miðað við þörf og ástand hins
aldraða.
Einnig er markmið laganna að
aldraðir geti, eins lengi og unnt
er, búið við eðlilegt heimilislíf en
að jafnframt sé tryggð nauðsynleg
stofnanaþjónusta þegar hennar er
þörf.
Við framkvæmd laganna skal
þess gætt að aldraðir njóti jafn-
réttis á við aðra þjóðfélagsþegna
og að sjálfsákvörðunarréttur
þeirra sé virtur. Nú bíða aldraðir
vikum og mánuðum saman á
bráðadeildum á LSH eftir end-
urhæfingarúrræðum eða framtíð-
arvistun sem getur verið langt frá
þeirra heimili og hjón verða að
skiljast að eftir áratugahjónaband.
Einnig skortir mjög
úrræði fyrir yngra
fólk sem hefur tapað
færni til athafna
daglegs lífs. Það þarf
að bíða núna við
óviðunandi aðstæður
eftir framtíð-
arúrlausnum. Það
skortir mjög á heild-
arsýn í þessum mála-
flokkum sem nú eru
undir tveimur ráðu-
neytum.
Í nýrri heildarsýn
væri hægt að auka
heildarþjónustu í
þeim þjónustukjörnum sem eru
víða í borgarhlutum og í sveit-
arfélögum. Þar væri hægt að hafa
þjónusturými þar sem færi fram
markviss endurhæfing þ.e.a.s.
sjúkra- og iðjuþjálfun. Hjúkr-
unarsambýli, sem hentaði bæði
fyrir minnissjúka og einnig fyrir
þá sem tapað hafa líkamlegri
færni, væri fyrir íbúa hverfisins til
lengri og skemmri dvalar. Dag-
vist. Þjónustuíbúðir. Ráðgjöf og
stuðningur við aðstandendur sem
vantar sárlega í dag. Öll þjónusta
væri samræmd með sjálfstæði ein-
staklingsins að markmiði. Það
myndi auka öryggi íbúa að geta
gengið að öruggri þjónustu í sínu
umhverfi þegar færni til daglegra
athafna minnkar vegna einhverra
orsaka. Að íbúar gætu verið heima
eins lengi og kostur væri og
þyrftu ekki að fara úr hverfinu
sínu.
Málefni fatlaðra hafa verið hjá
félagsmálaráðuneyti og þjónustan
ýmist verið frá ríki eða sveit-
arfélögum. Heilbrigðis- og trygg-
ingamál þeirra eru frá heilbrigð-
isráðuneyti. Enginn vafi er á að
betri heildarmynd á þeirra stöðu
myndi stórbæta þjónustu með
samræmingu á þjónustustigum.
Í nýrri skýrslu frá OECD kem-
ur fram að börnum okkar líður
ekki nógu vel. Málefni fjölskyld-
unnar er í mörgum ráðuneytum.
Forvarnir, fíkniefnavandi, ráðgjöf
og stuðningur er ýmist hjá ríki
eða sveitarfélögum. Ef málefni
fjölskyldunnar væru á einni hendi
skapaðist heildarsýn þar sem
þjónusta til foreldra og barna
væri eðlileg og sýnileg.
Hugsum til framtíðar. Hvernig
viljum við hafa okkar líf þegar við
þurfum aðstoð? Stjórnmálamenn.
Hvað ætlið þið að bjóða kjós-
endum?
Velferðarráðuneyti
Kristjana Sigmundsdóttir
skrifar um málefni aldraðra
og fatlaðra
» Það mundi auka ör-yggi íbúa að geta
gengið að öruggri þjón-
ustu í sínu umhverfi
þegar færni til daglegra
athafna minnkar vegna
einhverra orsaka.
Kristjana
Sigmundsdóttir
Höfundur er félagsráðgjafi.
Fréttir á SMS
Falleg 3ja herb. 79,2 fm íbúð á
1. hæð í húsi fyrir eldri borg-
ara. 3 öryggishnappar eru í
íbúðinni. Húsvörður býr í hús-
inu. Boðið er upp á heitan mat
í hádeginu og kaffi á virkum
dögum. Íbúar hafa aðgang að
fullkomnu smíða/föndurher-
bergi, leikfimisal með sauna og
snyrtiaðstöðu. Hárgreiðslu- og snyrtistofa er í húsinu. Stutt í alla
þjónustu. Mjög góð eign, vel staðsett í þessu vinsæla þjónustu-
húsi eldri borgara. V. 24,3 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hjallabraut - Hf. Eldri borgar
Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali
Opið hús - Hrauntungu 27
Þverholti 14 | 101 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is
Í dag sunnudag frá kl. 16 - 17 sýnum við
glæsilegt einbýlishús á skjólgóðum stað í grónu
hverfi í Kópavogi með glæsilegu útsýni.
Einstakt tækifæri - glæsilegt 191 fm einbýlishús í
suðurhlíðunum í Kópavogi. Góð svefnherbergi og
rúmgóð stofa með glæsilegu útsýni. Sólstofa á
jarðhæð. Einstök eign á frábærum stað.
Mikil veðursæld. Verðtilboð óskast.
tákn um traust
Ítarlegri upplýsingar liggja fyrir
á skrifstofu Hóls, Þverholt 14.
Upplýsingar gefur
Stefán Bjarni í síma 694 4388.
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
Í einkasölu glæsilegt 240 fm einbýli á fráb.
barnvænum stað. Falleg fjallasýn, m.a. vest-
ur á Jökul. 4 svefnherb. vandaðar innréttingar og gólfefni. 100 fm
sólpallur. V. 65 m.
Opið hús verður í dag sunnudaginn 1 apríl 2004 frá kl. 14-16.
Ottó og Elín taka á móti áhugasömum.
Sími 588 4477
Vesturfold 34 - glæsil. einbýli
Opið hús í dag sunnudag frá kl 14-16
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
288,8 fm glæsilegt einbýli á tveimur hæðum teiknað af Kjartani Sveinssyni við
Háaleitisbraut í Reykjavík. Húsið skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, ar-
instofu, eldhús með borðkrók, þvottahús, þrjú barnaherbergi, baðherbergi,
hjónaherbergi og sólskála. Á neðri hæðinni er tvö herbergi, hol, salerni og bíl-
skúr. V. 69,8 m.
Háaleitisbraut
Glæsilegt hús
Lögg. fasteignasali
Hrafnhildur Bridde
Sigurberg Guðjónsson hdl.
Skógarhlíð 22 • 105 Reykjavík • Sími 534 2000 • Fax 534 2001 • www.storhus.is
Ísak V. Jóhannsson,
sölustjóri
822 5588
534 2000
www.storhus.is
Glæsilegt skrifstofuhúsnæði í þessu sögufræga húsi við Skógarhlíð
í Reykjavík. 150 fm á 2. hæð sem skiptist í 4 rúmgóðar skrifstofur,
rúmgott opið vinnurými, salerni og sameiginlegt eldhús á jarðhæð.
Einnig í sama húsi á jarðhæð ca 90 fm og 60 fm skrifstofuhúsnæði.
Húsnæðið er allt ný endurnýjað á glæsilegan hátt. isak@storhus.is
GLÆSILEGT SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
TIL LEIGU Á ÞÓRODDSTÖÐUM