Morgunblaðið - 01.04.2007, Page 47
Fréttir á SMS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 47
NÚ stendur yfir Evrópuvika gegn
kynþáttamisrétti sem hverfist um al-
þjóðadag gegn kynþáttamisrétti, 21.
mars. Evrópuvikan miðar að því að
uppræta þröngsýni, fordóma og
þjóðernishyggju í Evr-
ópu með það að mark-
miði að byggja Evrópu-
samfélag víðsýni og
samkenndar þar sem
allir eru jafnir, óháð út-
liti og uppruna. Frá
17.–25. mars munu
hundruð samtaka og
stofnana í Evrópu
standa að viðburðum
þar sem unnið er gegn
kynþáttamisrétti,
þ.á m. Mannréttinda-
skrifstofa Íslands.
Síðustu mánuði hef-
ur umræða um málefni
innflytjenda og útlendinga stóraukist
á opinberum vettvangi. Það er
áhyggjuefni hversu borið hefur á for-
dómum, útlendingafælni og þjóðern-
ishyggju í orðræðunni, einkum í net-
heimum. Fáir einstaklingar ala á
úlfúð og fordómum í skjóli nafn-
leyndar auk einstaka stjórnmála-
manna sem hafa verið gífuryrtir.
Ábyrgð fjölmiðla er einnig rík en
t.a.m. er fréttaflutningur af afbrotum
þar sem uppruni gerenda er tiltekinn
enn algengur í íslenskum fjölmiðlum;
upplýsingar um uppruna þjóna
sjaldnast öðrum tilgangi en að ala á
fordómum í samfélaginu.
Það er tímabært að hefja umræðu
um innflytjendamál yfir stað-
almyndir, sleggjudóma og lýðskrum.
Á meðan 18.563 erlendir ríkisborg-
arar búa á Íslandi í dag þá áttu rúm-
lega 15.000 Íslendingar lögheimili
bara á Norðurlöndum árið 2005. Á
meðan Íslendingar sem leggjast í
víking og útrás eru hafnir til
skýjanna eru útlendingar sem koma
til Íslands til að vinna litnir horn-
auga. Hver er munurinn og hver eru
eiginlega þessi vandamál sem eiga að
hafa skapast vegna fjölgunar útlend-
inga á Íslandi? Hér er næg atvinna
og ef ekki væri vinnu að fá myndi fólk
ekki setjast hér að. Margt bendir til
þess að íslenskar fjölskyldur hafi
meira að segja haft beinan hag af
flæði erlends vinnuafls hingað til
lands. Rannsókn Þóru Helgadóttur,
hagfræðings í greiningardeild Kaup-
þings, leiðir líkur að því að verðbólga
hefði verið 1,5 prósentum meiri í
fyrra ef ekki hefði komið til erlent
vinnuafl. Innflytjendur eru öflugir á
íslenskum vinnumarkaði og atvinnu-
leysi meðal þeirra er það minnsta
sem þekkist í OECD-löndum. Erf-
iðlega gengi að fá fólk til starfa í
ákveðnum starfsgreinum ef innflytj-
enda nyti ekki við og fólk með tíma-
bundin atvinnuleyfi borgar skatta og
gjöld hér á landi en þiggur litla sem
enga þjónustu. Atvinnuleysi hefur
ekki aukist þrátt fyrir vaxandi fjölda
innflytjenda – auðvitað fá innflytj-
endur störf sem Íslendingar gætu
unnið en það minnkar ekki mögu-
leika Íslendinga á að fá vinnu; at-
vinna er ekki takmörk-
uð auðlind á Íslandi.
Auk þess verðum við að
uppfylla kröfur EES-
samningsins um frjálst
flæði vinnuafls hvað
sem tautar og raular ef
við ætlum á annað borð
að njóta ávaxta fjór-
frelsisins. Því er haldið
fram að aukinn fjöldi
innflytjandi ýti undir
glæpi. Þetta eru stað-
lausir stafir. Tíðni af-
brota innflytjenda hef-
ur ekki haldist í hendur
við fjölgun þeirra; fjöldi
hegningarlagabrota sem framin hafa
verið af innflytjendum hefur staðið í
stað á sama tíma og innflytjendum
hefur fjölgað umtalsvert.
Kannanir sýna að þorri þjóð-
arinnar er laus við útlendingafælni
og almennt eru Íslendingar umburð-
arlyndir og opnir fyrir nýjungum.
Hjárænulegt gaspur lýðskrumara
um ,,útlendingaógn“ sem nærist á
ótta og fordómum er tímaskekkja.
Ísland er fjölmenningarlegt hvort
sem fólki líkar betur eða verr og nú
þarf kjark og dug til að vinna mark-
visst og málefnalega að íslensku fjöl-
menningarsamfélagi þar sem allir
íbúar njóta virðingar og eiga jöfn
tækifæri – óháð útliti og uppruna.
Mikið hefur verið fjallað um aðgerðir
sem ætlað er að hjálpa útlendingum
að aðlagast íslensku samfélagi og er
það vel – boðaðar aðgerðir stjórn-
valda eru hér framfaraskref. Það er
hins vegar ekki nóg að tryggja aðlög-
un innflytjenda – við verðum að líta í
eigin barm og velta því fyrir okkur
hvað við sem þjóð ætlum að gera til
að aðlagast breyttum tímum.
Þau sjónarmið er búa að baki kyn-
þáttahatri og útlendingafælni eru
einhver þau hættulegustu sem
mannkynið þekkir og þau verður að
kveða niður á Íslandi. Birting-
armyndir kynþáttahaturs breytast
frá einum tíma til annars en verum
þess minnug að þjóðernishreinsanir í
fyrrum Júgóslavíu, þjóðarmorðin í
Rúanda, helför nasista og voðaverkin
sem nú eru framin í Darfur-héraði
spretta úr ógnarjarðvegi kynþátta-
haturs.
Við erum öll eins
inn við beinið …
Guðrún D. Guðmundsdóttir
skrifar um innflytjendur »… almennt eru Ís-lendingar umburð-
arlyndir og opnir fyrir
nýjungum.
Guðrún D.
Guðmundsdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri
Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali
Opið hús - Álftamýri 54
Þverholti 14 | 101 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is
Einstakt tækifæri
Mjög falleg og björt 58 fm íbúð á jarðhæð
í fjölbýlishúsi. Gott svefnherbergi
með fataherbergi innaf og góð stofa.
Stutt er í Versló, Háskólann í Reykjavík
og Kringluna. Verð 15,9 millj.
tákn um traust
Ítarlegri upplýsingar liggja fyrir
á skrifstofu Hóls, Þverholt 14.
Upplýsingar gefur Björn Daníelsson s: 849 4477.
Í dag sunnudag frá kl. 15-16 sýnum við mjög fallega
og bjarta 2ja herbergja íbúð á jarðhæð á eftirsóttum
stað í Álftamýrinni. Bjalla merkt Hafsteinn og Eva.
!"
#$ % "
#&$ '
( ( #)* +%
' , ) ( )- & , '$&
& . ( #)*)( / $ $
$$ *,
,( 0 $ ,1 $$ )
') )
,& & *)) & $2&
$$-
$&( 3$$ *) )
'
, *,
* , 4
,
*) & )%1 1%))( 5 , $$
$2 )
)$
$( / , $$ $$
)
$%& 4& )
$& , (
62 )')
,
' , )
' )
( 7'$ & 1
, ) ( % , ) $$)
8
+' $$ 9)
$
&&
*
: ;()
+'$ ) <$
+'$ )),$ (
( )
$ )
=1 *) ( 6 !6
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Skeljagrandi 6
Opið hús í dag á milli kl. 14-15
5 herbergja íbúð á 2. hæð, tilbúin til afhendingar.
Falleg 120,1 fm íbúð með stórri geymslu í sameign.
30,9 fm bílastæði í lokaðri bílgeymslu fylgir eigninni.
Fjögur svefnherb. með fataskápum. Endurinnréttað baðher-
bergi með tengi fyrir þvottavél. Útgengt á stórar svalir frá
stofu. Verð 26,9 millj. 7522
Ný hesthús
Glæsileg, vönduð 12 hesta hesthús
á besta stað við Sörlaskeið í Hf.
Um er að ræða 5 hús sem afhend-
ast fljótlega. V. frá 16,9 millj.
Hagstæð lán áhvílandi.
Nánari upplýsingar gefur
Helgi Jón s. 893-2233.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hesthús Sörlaskeið - Hf.
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Opið hús í dag milli kl. 15-16
VESTURHOLT 17 - HF.
GLÆSILEG SÉRHÆÐ
Laust strax! Glæsileg ca 80 fm íbúð með sérinngangi og sólpalli á neðri
hæð í tvíbýlishúsi. Falleg, flísalögð forstofa, bjart þvottahús/geymsla, 2
herbergi, glæsilegt, flísalagt baðherbergi með glugga, opið eldhús með
fallegri innréttingu og björt stofa með gönguhurð út á suðursólpall.
Parket á gólfum. Verð 19,9 millj.
Aðalheiður tekur vel á móti gestum í dag milli kl. 15 og 16.
Teikningar á staðnum.