Morgunblaðið - 01.04.2007, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 01.04.2007, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 49 UMRÆÐAN LIÐIN eru 200 ár frá því að Bretar afnámu þrælasölu, en hún lifir enn. Afríkumenn minnast þess nú að 200 ár eru liðin frá því (25. mars) að Bretar afnámu þrælahald með lögum. Þar með var formlega tekið fyr- ir nauðungarflutninga þræla frá Afríku til Ameríku. Þrælasalan skaut styrkum efna- hagslegum stoðum undir hin fornu Evr- ópsku nýlenduríki austan Atlandsála. Þetta voru mikil við- skipti: Talið er að frá 15. öld til þeirrar 19undu hafi á bilinu 10 milljónir til 30 millj- ónir manna verið hnepptar í ánauð í Afríku og sendar til Ameríku til að byggja þar upp efnahagsveldi hvítu landnemanna. 200 ár eru ekki langur tími í sögu Afríku, og hér tala menn um að álf- an hafi enn ekki jafnað sig á þessum ,,atgervisstuldi“ sem ég leyfi mér að nefna svo. Vestan hafs varð þetta ,,ódýra vinnuafl“ hvati að uppbygg- ingu sem Afríka þarf svo sárlega á að halda enn í dag. Þessi svarti blettur á sögu hvíta mannsins verð- ur aldrei afmáður. Hins vegar er ekki svo að Afríkumenn hafi allir hreinan skjöld: Álfan er byggð ólík- um þjóðum og þjóðarbrotum sem barist hafa innbyrðis, og margir reyndust fúsir að taka við fjár- munum hvíta mannsins fyrir að fanga fólk í þrælaskipin. Þrælasala tíðkast enn Þessi sögulegi fróðleikur væri ef til vill bara smámoli neðanmáls í dagsins önn ef ekki væri sú stað- reynd kunn að þrælahald lifir enn. 200 árum eftir að það var fyrst af- numið með lögum af Bretum tíðkast nútíma þrælahald þar í landi. Og víðar um Evrópulönd. Þúsundir kvenna eru seldar nauðugar frá löndum eins og Rúmeníu, Búlgaríu og Litháen, grannlanda okkar í hinni siðmenntuðu Evrópu. Og hverjir kaupa? Við, norður Evr- ópumenn. Viðskiptavinir vænd- ishúsa og fyrirtækja sem starfa í margvíslegum ,,þjónustugreinum“ utan við lög og rétt, en innan seil- ingar neytenda í ríkustu löndum heims. Þrælasala er talin velta 30 milljörðum Bandaríkjadala árlega í heiminum, og er talin jafnstór og ólögleg vopnasala, á eftir eitur- lyfjasölu. Margar myndir þrælahalds Þrælahald er skilgreint á mis- munandi hátt. Þrælar, sem er haldið fögnum og látnir vinna með ofbeldi án launa eru taldir ,,aðeins“ um 30 millj- ónir manna í heim- inum. En þrælhald tekur á sig margar myndir: Meira en 200 milljónum barna er haldið að vinnu án launa eða viðurkenn- ingar, oft með ofbeldi. Meira en helmingur þeirra telst búa við ,,verstu hugsanleg skil- yrði“. Margir eru hnepptir í lífstíð- arfjötra með því að þeir eru neyddir til að ,,end- urgreiða“ lán sem þeir eru gabbaðir til að gangast við með svik- samlegum hætti. Þvinguð vinna er svo algeng í margs konar myndum að ekki eru til neinar áreiðanlegar tölur um. Bretar áætla að nokkrar þúsundir kvenna séu árlega hnepptar í kyn- lífsánauð þar í landi. Búlgaría og Rúmenía (Evrópusambandið!) eru meðal þeirra 11 ríkja sem Samein- uðu þjóðirnar telja til verstu synda- sela í þessum efnum. Á Indlandi eru tugir milljóna barna ,,lánuð“ til vinnu fyrir aðra svo foreldrar fái umbun sem oft eru smáskildingar vegna ,,skulda“, eða bara til að lina sára fátækt. Börnin sjá um húsverk og annað sem húsbændur þeirra ráðstafa þeim til og eiga enga aðra framtíð. Innan Afríku eru enn við- skipti með þræla, einkum börn, en hér í álfu er talið að allt upp í 800 þúsund manns séu í ,,umferð“ með einum eða öðrum hætti í álfunni. Oft börn sem látin eru berjast í stríði. 200 ár eru stuttur tími í sögu sið- menningar, en það er tíminn síðan lög gegn þrælahaldi voru samþykkt. En hversu langan tíma tekur að af- nema þrælahald í raun og veru? Önnur 200 ár? 200 ár liðin og enn viðgegnst þrælasala Stefán Jón Hafstein fjallar um þrælahald » Þrælasala er talinvelta 30 milljörðum Bandaríkjadala árlega í heiminum, og er talin jafnstór og ólögleg vopnasala. Stefán Jón Hafstein Höfundur starfar að þróunarsam- vinnumálum í Afríku. www.heimili.is Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 15-16 BARÐASTAÐIR 87 - REYKJAVÍK Bogi Molby Pétursson Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Sími 530 6500 Í einkasölu fallegt fullbúið hús á einni hæð með stórum bílskúr. Vandað 155 fm einbýlishús með innbyggðum 40 fm bílskúr. Húsið stendur á stórri lóð í jaðri borgarinnar. Stutt í alla útivist, göngu- og hjólreiðastíga með ströndinni og golfvöllinn. Þrjú til fjögur svefnherbergi, Vandaðar innréttingar og gólfefni og flísa- lagður bílskúr. Stór 140 fm afgirt verönd, hellulagðar stéttir og stórt bílaplan, hitalögn. Tengi fyrir heitan pott og ljósatenglar í blómabeðum. Gott hús á góðum stað. V. 49,5 m. Bogi Molby Pétursson löggiltur fasteignasali sýnir húsið í dag frá kl. 15-16. Nýkomið glæsilegt nýlegt einbýli á 1. hæð með inn- byggðum bílskúr, samtals 152 fm. Vönduð nánast full- búin eign. 3 góð svefnher- bergi, verönd í garði. Frábær staðsetning í enda í botn- langa, við sjávarsíðuna. Verð 31,9 millj. Nr. 107923-1 Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Mýrargata - Vogum - Einbýli Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Glæsileg og vönduð 2ja herbergja 77,8 fm íbúð á 1. hæð í fallegu og full- frágengnu fjölbýlishúsi. Að utan eru þrjár hliðar klæddar en húsið var byggt árið 2005 af Húsvirki hf, en þeir hafa getið sér traust orðspor á bygginga- markaðnum sl. 20 ár. Íbúðin er með fallegar eikar innréttingar og þvotta- húsi innan íbúðar. Parket og flísar á gólfum. Frá stofu er gengið út á rúm- góðar svalir til suðurs. Verð 19,2 millj. Sævar býður gesti velkomna í dag frá kl. 15-16, íbúð merkt 105. Teikningar á staðnum. Opið hús í dag frá kl. 15-16 Akurhvarf 5 - Rúmgóð Til leigu í Síðumúla Fallega hannað og innréttað 1.905m² skrifstofuhúsnæði til leigu og afhendingar strax. Húsnæðið getur leigst sem ein heild eða í einingum. Á 4. hæð er m.a. fullinn- réttað mötuneyti ásamt skrifstofuaðstöðu með glæsilegu útsýni og stórum svölum. Þriðja hæðin skiptist í móttöku, 2 fundarherbergi og er með góða blöndu af opnum og lokuðum skrifstofurýmum. Veggir á 3.h. eru ýmist úr gleri eða gipsi, falleg lýsing er á hæðinni og á gólfum er parket, dúk- ur og flísar. Önnur hæðin er að mestu í opnu rými með dúk á gólfum. Frábært húsnæði miðsvæðis í Reykjavík með nægum bílastæðum. Teikningar og allar nánari upplýsingar veitir Guð- laugur gsm. 896 0747. Sími 511 2900 2. hæð 666m² (efri jarðhæð) 3. hæð 924m² 4. hæð 315m² Samtals: 1.905m² Stærðir (brúttó): Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG Við Dimmuhvarf í Kópavogi, ekki langt frá Elliðaánum er ca 2.000 fm skógi vaxin lóð með litlu einbýlishúsi úr timbri. Talið er að mögulegt sé að skipta lóðinni. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Nánari upplýsingar gefur Ægir á skrifstofu. 7109 DIMMUHVARF KÓP. - STÓR LÓÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.