Morgunblaðið - 01.04.2007, Page 54

Morgunblaðið - 01.04.2007, Page 54
54 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ÁRNÝJAR HILDAR ÁRNADÓTTUR, Heiðarholti, Keflavík. Matthildur Óskarsdóttir, Þuríður Halldórsdóttir, Anna Pálína Árnadóttir, Karl Einar Óskarsson, Þuríður Árnadóttir, Rúnar Helgason, Kolbrún Árnadóttir, Jóhann Bjarki Ragnarsson og börn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elsku- lega föður, tengdaföður og afa, EINARS PÁLMA OTTESEN, Keilugranda 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Land- spítalans í Kópavogi, Heimahlynningar og Hlyns Níelsar Grímssonar læknis. Guðrún Ragna Einarsdóttir, Þorsteinn V. Snædal, Sveinbjörn Baldur Einarsson, Vilhjálmur Pálmi, Ásta Lilja, Aron Víðir, Steinar Smári og aðrir ástvinir. ✝ Þorvaldur Run-ólfsson fæddist í Heiðarseli á Síðu 4. janúar 1920. Hann lést á hjartadeild LSH fimmtudaginn 15. mars síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Sigurbjörg Þórarinsdóttir, f. í Norðurhjáleigu 30. okt. 1884, og Run- ólfur Guðmundsson, f. í Heiðarseli 1869. Bræður Þorvaldar voru Gísli, f. 19. nóv. 1911, d. 23. apr. 1932, Þor- steinn, f. 22. okt. 1913, d. 30. sept. 1991, Ólafur, f. 16. des. 1914, d. 13. jan. 1939, og Guðmundur, f. 2. júní 1918, d. 9. okt. 1943. Eiginkona Þorvaldar var Guð- björg Petrea Jónsdóttir, f. á Barði í Fljótum 3. júní 1920, d. 15. október 2005. Dætur þeirra eru: 1) Pálína Skagfjörð, f. 1942, maki Rúnar Sigurbjörnsson, f. 1949. Þau búa í Kópavogi. Börn hennar eru: a) Guðbjörg Valdís, f. 1961, hún á tvö börn og tvö barnabörn, b) Jónas, f. 1963, hann á þrjú börn, c) Erla, f. 1966, hún á tvö börn, d) Jóhanna, f. 1970, hún á fjögur börn, e) Hlífar Sigurbjörn, f. 1973, hann á tvö börn og f) Hlynur, f. 1978, hann á eitt barn. 2) Sóley, f. 1952. Hún býr í Kópavogi. Börn hennar eru Guðrún Jóna, f. 1972, hún á tvö börn, og Mar- teinn Ari, f. 1978. 3) Auður Þorvalds- dóttir, f. 1954, maki Anfinn Jensen, f. 1953. Þau búa í Kaupmannahöfn. Börn þeirra eru Þorvaldur, f. 1974, hann á eitt barn, og Áslaug Jóhanna, f. 1975, hún á tvö börn. 4) Dröfn, f. 1956, maki Páll M. Skúlason. Þau búa í Laugarási í Biskupstungum. Börn þeirra eru Egill Árni, f. 1977, Þorvaldur Skúli, f. 1979, Guðný Rut, f. 1984, og Brynjar Steinn, f. 1989. Þorvaldur bjó hjá foreldrum sínum í Heiðarseli til 1934. Fór þá suður með bróður sínum að vinna fyrir sér. Flutti í Kópavog 1946. Hann starfaði lengst af sem bíl- stjóri þar til hann lauk starfsævi. Útför Þorvaldar var gerð frá Kópavogskirkju, í kyrrþey að ósk hins látna. Hann lifði Bubbu sína í eitt og hálft ár, hann tengdafaðir minn. Síðustu mánuðirnir hjá honum voru í erfiðari kantinum. Veikindi hans á haustmánuðum gengu nærri honum og á þeim tíma var nokkrum sinnum svo komið að læknar töldu að veg- ferð hans yrði ekki lengri. Daginn eftir eitt slíkt tilvik sat sá gamli hinn rólegasti í rúminu sínu og gæddi sér á slátri. Það má segja að þetta lýsi lífshlaupi hans nokkuð. Hann hafði á yngri árum tekist á við lífshættuleg veikindi oftar en einu sinni, en hafði þá ávallt sigur, þótt afleiðingarnar settu mark sitt á lífsgæði hans að ýmsu leyti til ævi- loka. Þessi öldungur sem nú er geng- inn var nú dálítið sérstakur; fór sín- ar eigin leiðir og hafði ákveðnar skoðanir á flestum málum. Hann var ekkert sérstaklega mannblend- inn og var gjarnan fyrstur til að kveðja þegar mannfagnaðir af ein- hverju tagi voru annars vegar. Hon- um var hins vegar mikið í mun að hafa samband við og heyra fréttir af dætrum sínum og fjölskyldum þeirra. Það var okkur fjölskyldunni mikið gleðiefni að hann skyldi treysta sér til að koma austur í sveitir á afmælistónleika Egils Árna í febrúar síðastliðnum. Þar lék hann við hvern sinn fingur í helgarleyfi af spítalanum. Valdi var stefnufastur maður og honum var mjög annt um sjálfstæði sitt gagnvart öllu og öllum. Sjálf- sagt á það að einhverju leyti skýr- ingar í því að hann missti föður sinn 15 ára og þurfti að standa á eigin fótum að miklu leyti upp frá því. Það kom þó að því að hann gerði sér grein fyrir að hann þurfti að reiða sig á aðstoð annarra. Þá var hann óþreytandi að láta vita af því að hann væri hættur að hafa skoð- anir á hlutum og segði bara já við öllu. Þetta held ég að hafi aðallega verið á yfirborðinu; hann hélt áfram að hafa sínar skoðanir þó svo hann þyrfti að lúta því sem aðrir sögðu í meira mæli. Að mörgu leyti held ég líka að honum hafi þótt það gott að geta treyst á aðra til að sjá um dag- legt amstur. Það er meðal fyrstu minninga minna af Valda þegar hann lýsti því yfir við mig hvað hann hlakkaði til að hætta að vinna og geta farið að gera ekki neitt. Formlega stóð hann sig vel í því þegar þar að kom. Formlega já, en hann fann sér þó alltaf eitthvað til dundurs svo lengi sem honum entist til þess þróttur. Hann þurfti að dytta að ýmsu heima fyrir og hann naut þess í botn að geta flatmagað í sólskýlinu sínu fyr- ir utan hús þegar vel viðraði. Sólin var þeim hjónum báðum kær og á efri árum, svo lengi sem þeim entist heilsa til, skelltu þau sér í sólar- landaferðir í skammdeginu. Nú eru þau bæði horfin af sjón- arsviðinu, Valdi og Bubba. Arfur þeirra til framtíðarinnar eru afkom- endurnir og skarinn sá sér til þess að um ókomin ár muni sporin sem þau mörkuðu á strönd eilífðarinnar varðveitast. Páll M. Skúlason. Elsku afi minn er látinn. Það er mikið tómarúm í fjölskyld- unni nú þegar þú ert farinn afi. Þú varst Guðfaðirinn sem tengdir okk- ur öll saman og alltaf voru allir vel- komnir til þín á Álfhólsveginn. Þú varst lúmskt félagslyndur, þrátt fyrir að halda staðfastlega fram hinu gagnstæða, og hafðir gaman af því að fá heimsóknir og rabba um daginn og veginn. Að sitja við hlið- ina á þér í ruggustólnum og rök- ræða við þig var einstaklega skemmtilegt og það sem var svo skondið var að ef þér tókst að snúa mér, þá skiptir þú sjálfur um skoð- un – til að geta áfram verið á móti! Það sem við tvö áttum sameig- inlegt voru draumar. Þú varst alltaf mjög berdreyminn og ræddum við oft um drauma og merkingu þeirra. Reglulega hringdi ég í þig til að spyrja þig út í drauma og þú kennd- ir mér að ráða þá. Stundum þegar ég vakna á morgnana og hugsa um drauminn sem mig dreymdi sakna ég þess að geta hringt í þig og spurt þig út í hann. Eins mikið og ég sakna þín er ég glöð að þú hafir fengið hvíldina sem þú þráðir. Nú ertu kominn til ömmu sem hefur tekið glöð og spennt á móti þér. Ég elska þig heitt og mun aldrei gleyma þér. Guðrún. Elsku afi minn, Nú var þinn tími kominn til að yf- irgefa okkur og munum við sakna þín. Það er þó huggun að vita að þú ert búinn að hitta hana ömmu aftur. Á fluginu á leið heim frá Danaveldi varð mér hugsað til unglingsáranna þegar ég var að byrja að fara í partý. Það var hlutur sem var á bannlista en afmæli voru í lagi. Ég minnist þess að eitt árið átti einn skólabróðir minn afmæli, „mörgum sinnum“. Á fullorðinsárum sagðir þú mér að þú hafir alltaf undrast hvað hann skólabróðir minn átti oft afmæli. Auðvitað var ekki hægt að gabba þig og reyndi maður það ekki oft. Elsku afi minn, ég á eftir að sakna þín og þíns góða húmors mik- ið. Megir þú hvíla í friði. Þúsund kossar til þín og ömmu. Þín, Guðbjörg. Þorvaldur Runólfsson ✝ Fannlaug Ingi-mundardóttir fæddist á Kirkju- skarði í Laxárdal í Húnavatnssýslu 9. september 1924. Hún andaðist á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð 17. mars síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Ingimundur Bjarna- son járnsmiður, f. 16.9. 1886, d. 6.3, 1976, og kona hans Sveinsína Bergs- dóttir húsmóðir, f. 25.11. 1894, d. 28.3. 1975. Synir Fannlaugar og Björns eru: 1) Sveinn jarðfræð- ingur, f. 15.12. 1958, kvæntur Ingibjörgu Margréti Gunnlaugs- dóttur aðstoðarleikskólastjóra, f. 8.11. 1961. Börn þeirra eru Gunn- ar Ingi, f. 1983, unnusta Katrín Pálsdóttir, f. 1985, Snorri, f. 1988, og Björn Logi, f. 1992. 2) Ragnar viðskiptafræðingur, f. 29.11. 1963, kvæntur Þuríði Elínu Stein- arsdóttur lífeindafræðingi, f. 27.6. 1961. Börn þeirra eru Fanney, f. 3.10. 1996, og Kjartan, f. 30.5. 2000. Útför Fannlaugar fór fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. 20.12, 1981. Fann- laug var næstelst fjögurra systra, hin- ar eru: Sigríður, f. 1922, Herdís Helga, f. 1928, d. 1990, og Steinunn, f. 1938. Eiginmaður Fann- laugar var Björn R. Ásmundson vélstjóri, f. 1.3. 1923, d. 4.11. 1995. Foreldrar Björns voru Ásmund- ur S. Jónsson, f. 27.6. 1884, d. 20.6. 1951, og kona hans Rann- veig Bjarnadóttir, f. 13.2. 1897, d. Að heilsast og kveðjast er lífsins saga. Fyrir 26 árum heilsuðumst við Lolla í fyrsta sinn. Ég var óör- ugg og feimin. Hún einlæg og hreinskiptin. Mér duldist ekki að hún vildi sonum sínum og fjöl- skyldu aðeins það besta. Hún tók vel á móti mér, enda kunni Lolla að taka á móti gestum, en á op- inskáan hátt skoðaði hún mig og lagði fyrir beinskeyttar spurning- ar, það var hennar siður að ganga hreint til verks; ég var sett á vo- gaskálar gildismats og væntinga. Sennilega skoraði ég ekki hátt á því prófi en var tekin í sátt og naut upp frá því verndar og um- hyggju þeirra Lollu og Björns eins og ég væri þeirra eigin dóttir. Hugtökin umhyggja og þjón- ustulund lýsa Lollu vel. Hún helg- aði líf sitt eiginmanni og sonum og gerði það af slíkri einlægni og alúð að vart á sinn líka. Eftir að synir okkar Sveins fæddust nutu þeir einnig umvefjandi umhyggju ömmu sinnar. Hún bar ekki tilfinningar sínar á torg; vildi ekki faðmlög og kossa- flens en var alltaf til taks, sýndi hverju viðfangsefni áhuga, veitti og þjónaði. Hún sat löngum stund- um og lék við þá, spilaði við þá, bauð í bæjarferðir eða á kaffihús. Heimili þeirra Björns bar smekkvísi hennar og snyrti- mennsku glöggt vitni og mér er enn minnisstætt að ganga þar inn í fyrsta sinn. Þar var engu ofaukið en öllu komið afar smekklega fyr- ir. Þannig var það alla tíð, aldrei drasl, aldrei skítugt en alltaf hlý- legt. Hún hafði næmt fegurðar- skyn, mat fegurð mikils í öllum þáttum og lá ekki á skoðunum sín- um þar um. Við hentum oft gaman að því þegar hún lagði mat sitt á fólk með þessum mælistikum en því tók hún aldrei illa. Hún sá sjálf spaugilegar hliðar þessa gildis- mats síns enda hafði hún ríka kímnigáfu og var á stundum æði stríðin. Aldrei sá ég Lollu í vondu skapi, það var ekki til í hennar fari. Hún óttaðist hins vegar ein- veru og eftir fráfall Björns fengu sonarsynirnir tækifæri til að end- urgjalda alúðina með því að dvelja hjá henni um nætur og helgar. Það var þeim engin kvöð heldur sóttust þeir eftir samvistum við ömmu sína. Áhugi á landafræði og ferðalög- um skipaði stóran sess í lífi þeirra Björns og naut Lolla þess mjög að heimsækja fornar slóðir en þó kannski enn frekar að sjá nýja og áður óþekkta staði. Nú ylja minningar um marga ferðina okkar saman, ekki síst hin- ar nánast árlegu ferðir norður í Skagafjörð á vit æskuslóðanna og Siggu Fríðu, æskuvinkonu hennar. Ferðir til Siggu voru stöðugt um- ræðuefni og þegar heilsan leyfði ekki að af þeim yrði, bar hugurinn hana hálfa leið. Það var aldrei til í hennar huga að hún kæmist ekki norður. Lolla hafði mikinn áhuga á fólki. Hún lét ekki mikinn í samkvæm- um en naut félagsskaparins og þeim sem hún bast vináttuböndum sýndi hún mikla tryggð og um- hyggju. Síðustu ár horfði hún á eftir mörgum vina sinna og minnt- ist þeirra af miklum söknuði. Nú hefur Lolla kvatt okkur en heilsað á ný vinum og fjölskyldu sem hún efaðist ekki um að biðu hennar í annarri og betri vist. Við sem eftir sitjum kveðjum hana hins vegar með söknuði, staðráðin í að halda minningunni um ein- stæða konu lifandi. Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir. Fannlaug Ingimundardóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar , tengdafaðir og afi, VALDIMAR BJÖRNSSON skipstjóri, Sóltúni, Reykjavík, lést miðvikudaginn 28. mars. Útförin verður gerð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 4. apríl kl. 15.00. Steinunn Guðmundsdóttir, Marta Guðríður Valdimarsdóttir, Anna Steinunn Valdimarsdóttir, Björn Valdimarsson, Sigríður Líba Ásgeirsdóttir, Guðmunda Valdimarsdóttir, Hafsteinn Viðar Árnason, Ásta Valdimarsdóttir, Kristján Gunnar Valdimarsson, og barnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR Þ. JÚLÍUSSON, Holtsgötu 13, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 30. mars. Útförin verður auglýst síðar. Unnur Guðmundsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Guðrún Arndal, Kristinn H. Gunnarsson, Guðlaug S. Ragnarsdóttir, Björn V. Gunnarsson, Guðrún Kr. Óladóttir, Margrét Gunnarsdóttir, Sigurður V. Jónsson, Helga Gunnarsdóttir, Jón Júlíusson, Gunnar J. Gunnarsson, Ágústa Halldórsdóttir, Hulda Gunnarsdóttir, Ísak J. Matthíasson, Unnur B. Gunnarsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.