Morgunblaðið - 01.04.2007, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 01.04.2007, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2007 55 HUGVEKJA stjörnuspá apríl Þér finnst mánuðurinn byrjar með brambolti, en með sólina í merkinu þínu geturðu tekist á við hvað sem er! Mars og Plútó eru samstilltar á fullu tungli í vog þann 2. apríl. Þú ert til í smá hasar, en hvernig er dómgreindin þín og félagsfærni? Láttu á það reyna en vertu varkár bæði í ástum og peningamálum. Undir áhrifum þessara stjarna geta aðstæður orðið svolítið ýktar. Eitthvað eða einhver er ekki tilbúinn fyrir það sem þú vilt bera á borð. Risavaxinn Júpíter snýr aftur 6. apríl, og þá ættirðu að enduskoða hugmyndir þínar um þenslu. Vertu þó á varð- bergi fyrir óvinum og hindrunum og snertu ekki sjálfs- eyðingartakkann! Þú skalt vinna á bakvið tjöldin næstu vikurnar. Hrútur 21. mars - 20.apríl Þú ættir að taka því rólega með sólina í hrútsmerkinu. Leyfðu heiminum að snúast á sínum hraða. Hvíldu þig meira en vanalega. Þú ættir að fylgjast meira með og taka minni þátt, þótt þú þurfir auðvitað að framkvæma vissar grunnaðgerðir. Þú getur – og ættir að – bæta vinnureglur þínar. Fullt tungl í vog þann 2. apríl mun gefa þér góða sýn á það. Samstarfsfólk þitt kemur við sögu þegar þú fínstillir nálgunaraðferðir þínar. Þú stendur þig vel og færist upp um þrep í metorðastig- anum. Hafðu þó í huga að vera stimamjúkur í samn- ingum við yfirmanninn til þess að það nái fram að ganga. Eftir það skaltu halda aftur af þér og horfa á stöðuna úr fjarlægð. Brostu breitt því þú ert frábær. Naut 20. apríl - 21. maí Byrjaðu mánuðinn vel með smá geggjun. Fáðu vini þína í lið með þér og látið öllum illum látum, eða fáið útrás með hugmyndaríkum samræðum og klikkuðum hugmyndum. Þú sérð ekki eftir því. Með Satúrnus í ljónsmerkinu ættirðu að freista gæfunnar í félagsskap við aðra. 6. apríl hreyfist Júpiter aftur á bak. Þá hægir hins vegar á tímabili þar sem þú vex í samskiptum við aðra. Þú klippir jafnvel á sambönd eða tekur þér pásu frá vissum aðilunum. Ef ekki, þá ættir þú ef til vill að endurskoða viðkomandi samband. Þú ættir að gera skurk í framamálunum eða takast á við nýtt ábyrgð- arhlutverk á vinnustað. Ekki láta minniháttar átök koma þér á óvart. Tvíburi 21. maí - 20. j́úní Þegar sólin er í hrútsmerkinu á krabbinn að helga líf sitt viðskiptum, atvinnulífinu og samningum við yfirvöld. Með risastóra Júpíter í bogmanni og Satúrnus í ljóni, skapast forsendur fyrir nýju ævintýri þar sem peningar og nýtt atvinnutækifæri koma við sögu. Þú gætir þurft að þræða fína línu svo allt gangi upp. Þú ættir að taka til endurskoðunar vinnuaðferðir þínar. Hugsaðu þig vel um áður en þú gerir stórfelldar breytingar. Upplýsingar frá útlöndum hafa áhrif á stóru myndina og gætu ýtt af stað spennandi ferli. Á annan í páskum geta orðið sam- skiptaörðugleikar innan fjölskyldunnar og þá skiptir öllu að semja. Ef þú ert að ferðast skaltu setja öryggið á odd- inn. Krabbi 21. júní - 22. júlí Ljónið ætti að huga að framtíðinni núna þegar sólin er í hrúti. Líka að stóru myndinni og taka inn í hana ferðalög og vini erlendis. Þegar fullt tungl birtist í vog þann 2. apríl, ná samskipti hámarki og ýmis ný tækifæri koma í ljós. Hins vegar verða líklega einhver sambandsslit, hvort sem það er í vinnunni eða íeinkalífinu. Þú ert tæp- ur á tauginni, svo þú ættir að slappa af. Þegar mars fer inn í fiskamerkið 6. apríl gætir þú stressast enn meira upp. Þú verður að gæta þín að losa ekki um spennuna með því að eyða í vitleysu eða stunda kynlíf sem þú sérð eftir. Venus fer inn í tvíburana 12. apríl, þá lýsist lífið upp og þú ert umkringdur vinum í bestu hugsanlegustu aðstæðum. Njóttu! Ljón 23. júlí - 23. ágúst Í upphafi mánaðar verða peningar í brennideplinum hjá meyjunni. Ekki síst peningar í sameign og fjárhagslegar skyldur. Reyndu að gera þér grein fyrir hvert þú ert að stefna í peningamálum, og svo skaltu bregðast við á við- eigandi hátt. Það verður fullt tungl á morgun sem beinir ljósinu að einkaeyðslunni. Þá gerir þú þér grein fyrir hvað má og ekki má. Þessi hlutur fjármálanna skiptir sköpum. Stjörnurnar standa með þér í þessu átaki. Ekki taka neina áhættu og vertu mjög hreinskilinn við fólk. Kannski verða tafir eða eitthvað villir þér sýn. Það máttu ekki taka nærri þér heldur halda ótrauður áfram. Þú kemst á leiðarenda með bros á vör. Þú hefur sjaldan ver- ið ánægðari. Meyja 23. ágúst - 23. september Þegar Júpíter hreyfist aftur á bak 6. apríl ættir þú að nota tækifærið og fara yfir ýmiskonar mál, einsog nám, viðskipti og samskipti. Þarftu kannski að breyta aðferð- um þínum eða stefnu? Myndi hjálpa til að ferðast? Þar sem Mars fer inn í fiskamerkið sama dag, gætu orðið ein- hver átök varðandi vinnu og heilsu. Þú munt breyta venj- um þínum og gera vissa hluti daglega. Vertu á varðbergi gagnvart slysum eða öðrum hindrunum á ferðalögum alla vega fram yfir 10. apríl. Eftir það verður meira en nóg að gera og þú í miklu stuði. Nýtt tungl í hrúti þann 17. apríl sér til þess að þú leggir grunninn að nýjum kynnum sem eiga eftir að skipta þig miklu og breyta lífi þínu. Vog 23. september - 22. október Nú ættir þú að beina kastljósinu þínu að vinnunni, heils- unni og daglegri rútínu. Á morgun gerir þú þér grein fyrir hver staðan er í lífi þínu, sérstaklega á þessum svið- um. Það borgar sig að vera með púlsinn á heilsunni og gæta að þreytumerkjum og orkutapi. Einhver í þínum innsta hring hefur áhrif á þig með skapsveiflum. Reyndu að taka því með jafnaðargeði. Kannski þessi mannvera muni hafa jákvæð áhrif á ákvarðanir þínar varðandi vinnuna. Mikill kraftur kemst í áætlanir sem snúa að fjölskyldunni og fjölskyldulífinu frá og með 5. apríl. Upp- lagt er að setja nýjar reglur bæta lífið ykkar þann 17. apríl. Ástarmálin munu ráða ríkjum seinni hluta mánð- ararins. Sporðdreki 23. október - 21. nóvember Með sólina í hrútsmerkinu blasa við þér ljúfir dagar þar sem þú leggur áherslu á ástina, slökun og skemmtun. Á fullu tungli á morgun verður þú í sambandi við réttu vin- ina til að fá útrás með. Reyndu nú samt að hafa hemil á þér, og ekki verða fyrir vonbrigðum ef einhvern vantar í hópinn. Þú færð það sem þú vilt þann 5. apríl ef þú legg- ur þig nógu mikið fram. Þú munt líklega aðstoða mjög sterka masnneskju, og það hefur jákvæð áhrif seinna meir. Á annan í páskum skaltu reyna að forðast árekstur innan fjölskyldunnar, og athugaðu sérstaklega öryggi heimilisins og slysavarnir. Daginn eftir munu ný æv- intýri og tækifæri bíða þín. Ræktaðu ástarsamband og vinskap. Bogmaður 22. nóvember - 21 desember Heimilið og fjölskyldan eru þér ofarlega í huga nú þegar sólin skín í hrútnum. En þegar tunglið fyllist á morgun mun framinn eiga hug þinn allan, samskipti við yfirvöld, ábyrgð og skyldur. Þú þarft að meta hvorum mála- flokknum þú vilt sinna, en reyna að gera vel við báða. Eitthvað fer á annan veg en þú ætlaðir þér, en við því er ekkert að gera. Ekki vera leiður, þetta er ekki þér að kenna. Þú mátt búast við spennu í andrúmsloftinu og einhverjar tafir þegar kemur að peningum og ástum, þessar tvær fyrri vikur mánaðarins. Vertu þolinmóður og hafðu í huga að æsa þig ekki við fólk að óþörfu. Áhrifaríkar stundir eiga sér stað og það mun hafa áhrif á fjármál heimilisins – til hins betra. Steingeit 22. desember - 20. janúar Nú þegar sólin er í hrúti ættir þú að taka mikilvægar ákvarðanir sem snúa að ferðalögum og ævintýra- mennsku. Ertu búinn að ákveða hvert skal halda í sum- arfrí? Ef ekki, gerðu það þá nú. Annars má líka fara vel yfir smátriðinin í ferðaáætluninni. 6. apríl hreyfist Júpi- ter aftur á bak. Þá skaltu vera búinn að sinna þeim mál- um sem snúa að samskiptum við fólk sem þér finnst frek- ar leiðilegt. Ef beðið er með það, gæti hitnað í kolunum og jafnvel soðið upp úr! Sama dag fer mars inn í fiska- merkið. Þá má taka til hendinni heima við og jafnvel gera vorhreingerninguna svona í fyrra lagi. Láttu ekki koma þér á óvart ef enginn vil hjálpa þér. Þú tekur þá til fyrir sjálfan þig - með bros á vör. Vatnsberi 21. janúar - 19. febrúar Finnst þér þú ekki fullur orku? Með sól í hrúti ættir þú að fara út að skokka eða jafnvel beina orkunni á enn nytsamari brautir. Viltu ekki hjálpa einhverjum sem þarfnast hjálpar? Er ólétt vinkona að flytja? Eftir á verður þú líka mjög ánægður með sjálfan þig. Sam- skipti ganga mjög vel þegar góða skapið leikur við þig og njóttu þess. Hvernig væri að bjóða fólki heim? Þú skalt samt ekki búast við að allir séu í jafn góðu skapi og þú, en þú lætur það ekki á þig fá. Ekki hika þegar þú færð góða skapandi hugmynd. Hrintu henni í fram- kvæmd og fáðu aðra fjölskyldumeðlimi í lið með þér. Vittu til, þetta sameinar ykkur meira en öll heimsins vandræði hafa gert. Fiskar 20. febrúar - 20. mars Þ etta hafði gengið upp og ofan. Hinir lærðu flestir verið á móti því sem trésmiðurinn frá Nasaret hafði verið að boða og fram- kvæma en alþýðan með, sá hvað var að gerast og skynj- aði að það var eitthvað mik- ilfenglegt. Fyrir henni voru engar kenningar að þvælast, engin gleraugu sem allt af þessum toga varð að skoðast með. Nei, reynslan ein og sér var henni fullnóg. Hér var ekki bara maður á ferð, það var greinilegt. Úr aug- um hans skein ljós, ekki af þessum heimi, og bjartara en sólin. Í brjósti hans var uppsprettu alls hins góða að finna. Í höndunum bjó kraftur eilífs lífs. Og tungan var lít- ilmagnanum hlý. Alltaf. Svo kom pálmasunnudagur. Frá innreið meistarans í höf- uðborg Gyðingalands er sagt í öll- um guðspjöllunum fjórum – nánar tiltekið í 21. kafla Matteusarguð- spjalls, 11. kafla Markúsarguð- spjalls, 19. kafla Lúkasarguð- spjalls og 12. kafla Jóhannesarguðspjalls. Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sókn- arprestur í Langholtskirkju í Reykjavík, komst svo að orði í út- varpsmessu um þetta leyti árið 2002: Hún er um margt undarleg þessi vika sem nú er hafin, kyrra- vika – síðasta vikan fyrir páskahá- tíðina – svo þrungin andstæðum en um leið eru mestu leyndardómar fagnaðarerindisins fram reiddir. Hósíanna, hrópaði fólkið er Jes- ús reið inn í borgina helgu, bless- aður sé sá sem kemur í nafni Drottins. Mikil eftirvænting bjó með þeim – að þeir atburðir voru að rætast sem Guð hafði gefið fyr- irheit um fyrir munn spámanna – að Messías var á leið til borg- arinnar til að sigra … Fáum dögum síðar var hrópað af lýðnum í sömu borg: Krossfestu, krossfestu – þegar varnarmenn hefða og valda beittu áhrifum sín- um. Þeir eru þrungnir andstæðum næstu dagar, og saman end- urspegla þeir hina mestu gleði og eftirvæntingu allt eins og hin mestu vonbrigði og sorg; þ.e. öll litbrigði mannlegs lífs … Þetta er vel mælt. Dagarnir, sem framundan eru, eiga að vera okkur kennslustund. Þar erum við einungis beðin um að muna tvennt og hugleiða: Annars vegar mannlegan breyskleika og hins vegar guðlega forsjá og stað- festu. Hið fyrr nefnda þarf ekki að útskýra, grunnurinn liggur í text- anum hér að framan, en hinu síðar nefnda er rétt að skerpa aðeins á, þó ekki væri nema til áminningar. Í öllu þessu ferli – úr Betlehem og til Golgata – var einn sem aldrei hvikaði, þótt vindar blésu sterkir í móti, heldur gekk veginn ótrauður alla leið. Til þess var hann kominn. Þessi punktur er afar mik- ilvægur, því hann varðar í raun alla framtíð okkar og heill. Jesús Krist- ur er nefnilega enn á ferð. Það tókst ekki að stöðva hann. En allt hefur sinn tíma, og upprisunni verður fagnað um næstu helgi. Núna er að skoða aðdragandann. Í guðspjöllunum segir, að fólkið hafi þennan tiltekna dag lagt flíkur sínar í götuna og veifað pálma- greinum. Slíkt var einungis gert þegar konungar voru á ferð. Um symbólíkina á bak við þetta ritaði sr. Kristján Valur Ingólfsson, lekt- or við guðfræðideild Háskóla Ís- lands, 9. apríl árið 2006 á www.kirkjan.is: Ísrael er á leið frá Egyptalandi. Sex vikur eru liðnar frá því að þau lögðu af stað þaðan. Í dag, pálmasunnudag, eru liðnir sex sunnudagar í föstu. Ísrael hvílist í Elím. Elím er vin, með vatnslindir og pálmavið. Vin er staður hvíldar og nær- ingar. Þar er endurnæring til lífs og sálar. --- Það voru pálmatré í Elím forð- um. Pálmar eru heilög tré frá fornu fari. Pálmaviðurinn hefur mörg tákn sem orðið hafa til á löngum tíma. Eitt er tákn friðar og blessunar í fjölskyldu og heimili. Annað er tákn lífsins. Í Róm var pálmagreinin tákn um sigur í orustu. Hjá hinum kristnu varð hún tákn um sigurinn yfir dauðanum. Mynd af pálmagrein er að finna á mörgum elstu legsteinum krist- inna. Pálmagreinar eru tákn písl- arvottanna og boða sigur lífsins yf- ir máttarvöldum heimsins. Sérstakar pálmavígslur voru hluti af trúariðkun kristninnar og komu snemma til sögunnar. Pálmasunnudagur var í sumum löndum kallaður græni sunnudag- ur. Með honum mætti kirkjan hin- um forna sið náttúrudýrkunar- innar að fagna nýju lífi, nýjum gróanda, og gerði að helgum siðum kirkjunnar. Fólkið tók með sér sprota af brumandi trjám til kirkju þar sem þeir voru blessaðir. Pálmagreinar voru blessaðar og bornar heim. Þeim er stillt upp bak við krossinn heima í húsinu, eða úti á akri, eða í gripahúsunum. Þannig minntist söfnuðurinn komu Krists í kirkjunni og komu vorsins í náttúrunni. Og gerir enn. Græni sunnudagur sigurdur.aegisson@kirkjan.is Með pálmasunnudegi rennur upp helgasta vika kristindómsins, sem landsmenn flestir kalla nú- orðið dymbilviku eða páskaviku, en heitir einn- ig fleiri nöfnum, s.s. kyrravika og efsta vika. Sigurður Ægisson er með atburði hennar til umfjöllunar í dag.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.