Morgunblaðið - 01.04.2007, Qupperneq 64
hann hafði oft verið
svikinn á langri út-
gáfuævi og réð ellefu börn-
um sínum eindregið frá því
að fara tónlistarveginn… 72
»
reykjavíkreykjavík
„ÞETTA eru smásögur sem allar tengjast
laxveiði,“ segir Bubbi um bókina sem hann
segir að sé að sumu leyti sannsöguleg, en að
öðru leyti skáldskapur. „Hvað er nú satt og
hvað er logið? Sumt er skáldskapur, en
skáldskapur er samt sannur þegar hann er
kominn á blað,“ segir hann. „Sumar sögurnar
eru reynslusögur þar sem ég er úti í á. Síðan
eru þetta skáldaðar sögur, og sögur sem ég
hef heyrt í gegnum tíðina hjá veiðimönnum.“
Bubbi segir svona veiðibók ekki hafa kom-
ið út á Íslandi áður. „Þetta er ekki svona
hefðbundið eins og við þekkjum úr veiðiflór-
unni undanfarin ár, þar sem tekið er viðtal
við mann sem þylur upp einhverjar stað-
reyndir um hylji, flugustærð og flugulínur og
svo framvegis,“ segir Bubbi sem er að fín-
pússa bókina þessa dagana, en hún hefur
hlotið vinnuheitið Sögur af löxum og stefnir
Bubbi á að hún komi út í síðasta lagi fyrir
jól. Hann segir bókina eiga að höfða til allra.
„Góð veiðisaga stimplar sig inn hvar sem er
og það getur hver sem er lesið skemmtilega
veiðisögu án þess að hafa hundsvit á flugu-
veiði, ef sagan er góð í eðli sínu.“
Gúlagið og stórlaxinn
Bubbi hefur stundað laxveiði frá blautu
barnsbeini, en hann setti í sinn fyrsta lax sjö
ára gamall. „Veiði er mín ástríða og ég er
búinn að kynnast alls konar fólki á lífsleið-
inni, og heyra mikið af sögum,“ segir hann.
„Í bókinni eru sögur sem eru svo ótrúlegar
að þær taka lyginni fram, það hefði engum
dottið í hug að ljúga slíkum sögum. Þarna er
til dæmis saga um mann sem lifði bæði af út-
rýmingarbúðir nasista og Gúlagið hjá Stalín.
Þetta var veiðimaður sem ég kynntist og ein
sagan fjallar um hann, og þessa ótrúlegu lífs-
reynslu. Þessi maður lést fyrir nokkrum ár-
um en hann veiddi stærsta laxinn sem þá
hafði veiðst í viðkomandi á, og sá lax er uppi
á vegg í veiðihúsinu,“ segir Bubbi sem nafn-
greinir engar ár eða staði í bókinni. „Svo er
líka saga af risalaxi í bókinni, laxi sem hafði
gífurlega afdrifaríkar afleiðingar fyrir vænt-
anlegt hjónaband og líf ákveðins manns.“
Aftur í rokkið?
Á næstu dögum ætlar Bubbi svo að hefja
æfingar með hljómsveitinni Mínus, en til
stendur að þeir félagar gefi sameiginlega út
plötu. „Ég fer að setja mig í stellingar, ég
hef verið að semja til hliðar við bókina, lög
og texta sem ég ætla að vinna með Mínus-
mönnum. Ég ætla að fá þá til að vera hljóm-
sveitina mína, ég mæti bara með mínar mel-
ódíur og mín lög og svo skulum við bara sjá
hvernig þeir tækla það,“ segir Bubbi sem
hefur lengi verið aðdáandi sveitarinnar. „Ég
leitaði til þeirra fyrir löngu síðan, en svo
hringdi einn af strákunum og sagði bara:
„hvernig er það, eigum við ekki að fara að
gera þetta?“ Þannig að núna verður loksins
eitthvað úr þessu.“
Á síðustu plötum Bubba hefur kassagít-
arinn verið áberandi og minna farið fyrir raf-
magnsgítarnum. Aðspurður segist hann ekki
vita hvort það muni breytast nú þegar hann
gerir plötu með alvöru rokksveit. „Ég get
ekki einu sinni svarað því, ég veit ekkert
hvernig þeir nálgast lögin mín. Ég set mig
ekki í stellingar til þess að semja pönk, rokk
eða neitt slíkt. Það verður kassagítar í ein-
hverju, en ef að líkum lætur verður meira
rafmagn en „akústík“,“ segir Bubbi, en stefnt
er að því að gefa plötuna út á þessu ári.
Eins og frægt er orðið spilaði Bubbi ásamt
stórsveit í fimmtugsafmæli Ólafs Ólafssonar,
stjórnarformanns Samskipa, í janúar. Hann
segir að ákveðinn draumur hafi ræst þetta
kvöld. „Ég hef alltaf gengið með það í mag-
anum að fá að syngja í smóking með stór-
sveit. Ég prófaði það í afmælinu umtalaða
hjá honum Ólafi og mér líkaði það vel. Það er
mergjaður andskoti að vera með svona stór-
sveit fyrir aftan sig,“ segir Bubbi og bætir
við að hann stefni að því að halda tónleika
með stórsveit áður en langt um líður, og gefa
svo út plötu í kjölfarið. „Það hefur enginn
gert þetta á Íslandi, enda er þetta mjög dýrt.
Ég gæti trúað að kostnaður yrði um milljón
á kvöldi þannig að það þarf að íhuga þetta
vel.
En ég hafði enga hugmynd um hvers kon-
ar maskína þetta er, þegar svona hljómsveit
fer í gang. Þegar ég heyrði „Ísbjarnarblús“
fara í gang fyrir aftan mig var þetta bara
svipað og vera með þungarokkssveit fyrir
aftan sig. Styrkurinn og hávaðinn er alveg
rosalegur,“ segir Bubbi, sem ætlar að finna
styrktaraðila til að hjálpa til við fjármögnun.
Flytur inn í sumar
Bubbi hefur staðið í stórræðum á und-
anförnum mánuðum, en hann er að byggja
sér hús við Meðalfellsvatn í Kjós. Bubbi seg-
ir framkvæmdir um það bil hálfnaðar en
hann ætlaði að vera fluttur inn í húsið fyrir
löngu. Hann segir að töluverðar tafir hafi
orðið á framkvæmdum. „Mér finnst öll seink-
un óeðlileg, ég er mjög stundvís maður. Ég
ætlaði að flytja inn um áramótin en ég gæti
trúað því að ég flytti inn í júlí,“ segir Bubbi
sem flytur þá inn með unnustu sinni, Hrafn-
hildi Hafsteinsdóttur, og Isabellu Ósk, dóttur
hennar og stjúpdóttur Bubba.
Morgunblaðið/Einar Falur
BUBBI BYGGIR
ÞRÁTT FYRIR AÐ LÍTIÐ HAFI HEYRST FRÁ BUBBA MORTHENS
AÐ UNDANFÖRNU HEFUR HANN MÖRG JÁRN Í ELDINUM.
HANN ER AÐ UNDIRBÚA UPPTÖKUR MEÐ HLJÓMSVEITINNI
MÍNUS, AÐ LJÚKA VIÐ AÐ SKRIFA BÓK, AÐ BÚA SIG UNDIR
FLUTNINGA AUK ÞESS SEM HANN GENGUR MEÐ ÝMSAR
HUGMYNDIR Í MAGANUM. JÓHANN BJARNI KOLBEINSSON
SPJALLAÐI VIÐ KAPPANN.
www.bubbi.is