Morgunblaðið - 15.04.2007, Qupperneq 25
Hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. APRÍL 2007 25
ÞAÐ fer ekki milli mála. Það styttist í
sumarið. Samkvæmt gamla norræna
tímatalinu hefst það formlega næsta
fimmtudag, með upphafi Hörpu,
fyrsta sumarmánaðarins af sex. Okk-
ur nútímamönnum er nú kannski
tamara að líta svo á að næstu vikur
séu vor, en að eiginlegt sumar hefjist
um það bil um mánaðamót maí og
júní. En þar eð norræna tímatalið
skipti árinu bara í sumar- og vetr-
armánuði, er fyrsti sumardagur sem
sagt í síðari hluta apríl.
Það kallast skemmtilega á við von-
arbjart hugarfar okkar Íslendinga að
miða upphaf sumars við dag undir
lok skíðatímabilsins, þegar enn getur
verið von á hreti. Á hlýrri slóðum,
eins og t.d. í Suður-Kaliforníu, dettur
engum í hug að tala um sumar fyrr
en í júní, enda þótt býsna sumarlegt
sé þar um að litast nánast allan ársins
hring.
En hér er sumarið blátt áfram yf-
irvofandi, þrátt fyrir hálku og krapa
á heiðum. Fiðraðir vorboðar og dúð-
aðir sumargestir flykkjast til lands-
ins um loftin blá. Fólk sem ekki hefur
spurst til síðan það hvarf með sláttu-
vélinni inn í skúr í september, sprett-
ur nú upp úr beðum og pöllum. Am-
boð eru vakin af værum blundi í
geymslum og bílskýlum og att á
signa mold og krangalegar runna-
greinar.
Dálítið mött og seintekin rembist
sólin við að brjóta sér leið gegnum ól-
seigt skýjaþykknið og nær að blika af
töluverðri sannfæringu á þakplötum
og gluggarúðum. Börn vaða brúna
polla og draga fram næstum gleymda
sumarvini. Það sást meira að segja til
ferða skræpótts flugdreka einn eft-
irmiðdaginn um páskana.
Ísbíltúrar hætta að vera úr takti
við umhverfið, nema hvað söngur
nagladekkjanna breytist óneitanlega
úr lágværu muldri í ærandi hávaða.
Dekkjaverkstæðin bíða opinmynnt
og glaðhlakkaleg og láta hvína dug-
lega í þrýstiloftslyklunum, svo minnir
óþyrmilega á tannlæknastofur.
Flaksandi dúnúlpur og fölbleikar
hendur fullar af húfum og vettlingum
taka við af þeim gangandi heils-
árshúsum sem maður hefur mætt á
gönguferðum í vetur. Það er bjart í
bítið og ennþá bjart langt fram eftir
kvöldi.
Það verður ekki framhjá því litið.
Vorið er komið í umhverfinu og sum-
arið breiðir samstundis úr sér í sinni
frónbúa og af örlítið biturri reynslu
rjúka þeir til að panta sér vikur af
öruggri sól í útlöndum. Samt reyna
nú margir að halda hinum meinta
sumarmánuði, júlí, eftir fyrir heima-
hagana.
Þeir vita jú sem er að jafnvel þótt
það útheimti flíspeysur og hlífð-
arklæðnað þá er alvöru íslenskt sum-
ar á einhvern hátt algerlega nauð-
synleg vítamínsprauta fyrir þá sem í
alvöru ætla að þrauka hér allan vet-
urinn.
Og þegar það gerist, þegar dag-
urinn kemur, með ofsakátri sól og
lognsléttum firði, sumardagurinn
mikli, með fuglasuði og hrossagauk
og spóa í móum og á himni, flís-
peysurnar og úlpurnar liggja einar
og flatar í grasinu og dagurinn endist
allan sólarhringinn, þá er það allt
þess virði.
Allt myrkrið, allur norðangarrinn,
öll ísingin og kvefið í vetur, hverfur á
einum degi. Ekkert nema birtan og
hlýjan í skælbrosandi augnablikinu
skiptir máli. Það er sumar.
Nú er bara að bíða aðeins lengur.
Lóan er komin.
Sumardagurinn mikli
Sveinbjörn I. Baldvinsson
R
A
PI
P
•
AÍ
S
•
70
65
0
Þriðjudaginn 17. apríl 2007
Grand Hótel, Hvammur, kl. 8.15-9.30
Dagskrá:
8.15 Ávarp
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra
8.25 Nordic Business Outreach verkefnið kynnt
Jakob Simonsen, framkvæmdastjóri UNDP í Kaupmannahöfn
8.55 Undirritun samstarfssamnings
9.00 Samfélagsleg ábyrgð alþjóðafyrirtækja
Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis
9.15 Samfélagsleg ábyrgð borga – Borgir með borgum
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar
9.30 Fundarslit
Fundarstjóri er Halla Tómasdóttir,
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Morgunverðarhlaðborð hefst kl. 8.00.
Fundurinn er öllum opinn og gefst fyrirtækjum og einstaklingum
tækifæri á viðtalstímum með Soren Petersen, UNDP, um möguleg
samstarfsverkefni frá kl. 10.30-14.00.
Skráning fer fram hjá Berglind Sigmarsdóttur,
viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 545 9932
eða með tölvupósti á netfangið berglind@mfa.is.
í útrás
Þróun
Utanríkisráðuneytið og Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP),
í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands, kynna samstarf einkageirans
og hins opinbera í þróunarlöndum.