Morgunblaðið - 15.04.2007, Side 66
Ég hef alltaf verið í
megrun, þetta er
endalaus barátta og algjör
martröð … 73
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÉG VEIT ekki alveg hvar áhuginn á
íþróttum liggur því ég er ekki mikið fyrir
þær sjálfur en það er eitthvað frábært við
þessa íþróttamenn,“ segir listamaðurinn
Siggi Eggertsson sem opnar sína fyrstu
einkasýningu í Vallery Gallery í Barcelona
þann 19. apríl næstkomandi. Titill sýning-
arinnar er Athletes en þar sýnir Siggi
þrettán málverk af uppáhaldsíþróttamönn-
um sínum, t.d David Beckham, Michael
Jordan og Michael Schumacher.
Spurður hvers vegna hann fór þessa
leið, að skapa myndir af íþróttamönnum,
segir Siggi að honum hafi eiginlega þótt
það fyndið þar sem hann sé ekki mikill
íþróttamaður sjálfur.
„Þetta eru íþróttamenn sem hafa ein-
hvern tímann verið mínir uppáhalds, sumir
voru það þegar ég var krakki, sumir eru
það núna og aðrir verða það alltaf. Þeir
koma úr frjálsíþróttum, fótbolta, hand-
bolta, körfubolta og formúlunni. Sá eini ís-
lenski þar á meðal er Eiður Smári.“
Galleríið hafði samband við Sigga og
bauð honum að sýna hjá sér og segir hann
það vera frábært tækifæri fyrir sig. „Þetta
er bæði gallerí og hönnunarbúð í eigu
hönnunarstofunnar Vasava sem er ein sú
stærsta á Spáni. Ég málaði myndirnar sér-
staklega fyrir þessa sýningu og eru þær
allar til sölu.“
Hannar fyrir Stüssy
Siggi er fæddur árið 1984 á Akureyri og
útskrifaðist úr grafískri hönnun í Listahá-
skóla Íslands fyrir ári síðan. Hann flutti
nýlega til Lundúna og starfar þar sjálf-
stætt sem myndskreytir og hönnuður. „Það
gengur mjög vel hjá mér, ég er núna að
vinna fyrir Sequences myndlistarhátíðina
sem verður haldin á Íslandi í haust. Síðan
var ég að klára stuttermaboli fyrir banda-
ríska fyrirtækið Stüssy, var að gera nokk-
ur plaköt fyrir Coca-Cola í Bandaríkjunum
og er að fara að hanna blað í Kanada svo
þetta er dreift út um allt og fjölbreytt,“
segir Siggi.
Að lokum er vert að spyrja hann hvers
vegna fyrsta einkasýningin sé haldin á
Spáni en ekki Íslandi? „Það bauð mér eng-
inn að vera með sýningu á Íslandi.“
Þannig er nú það.
Garpur Teikning sem er prentuð á striga af Staffan Olsson.
Þrettán íþróttamenn
Listamaðurinn Siggi Eggertsson opnar sína fyrstu einkasýningu í Vallery Gallery í Barcelona.
Sýnir málverk af uppáhaldsíþróttamönnum sínum þrátt fyrir að vera ekki íþróttamaður sjálfur.
Listamaðurinn Siggi Eggertsson.
Heimasíða Sigga Eggertssonar :
www.vanillusaft.com
Hetjan Mynd Sigga af Dennis Rodman.