Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 61
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
M A R K W A H L B E R G
Í GÆR VAR ÞAÐ HEIÐURINN
Í DAG ER ÞAÐ RÉTTLÆTIÐ
NORBIT
MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ MARK WAHLBERG
FRÁ LEIKSTJÓRA "TRAINING DAY"
SANNSÖGULEG MYND UM STÆRSTA
HNEYKSLISMÁL Í SÖGU FBI
HVER ÞARF UPPHÆÐIN AÐ VERA
SVO ÞÚ SVÍKIR ÞJÓÐ ÞÍNA
BREACH kl. 3:50 - 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl.4 - 6:10 LEYFÐ DIGITAL 3D
MEET THE ROBINSONS ótextuð m/ensku tali kl. 8:10 LEYFÐ DIGITAL 3D
300 kl. 10 B.i. 16 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
SHOOTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i.16.ára
SHOOTER VIP kl. 5:30 - 8 - 10:40
THE GOOD SHEPERD kl. 8 - 10:40 B.i.12.ára
THE MESSENGERS kl. 6 - 8 - 10:20 B.i.16.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i.7.ára
/ ÁLFABAKKA
eeee
VJV, TOPP5.IS
FRÁ HÖFUNDI
SIN CITY
eeee
V.J.V.
eeee
FBL
eeee
KVIKMYNDIR.IS
eeeee
FILM.IS
MIKIL stemmning og eftirvænting ríkti í
Borgarleikhúsinu á afmælistónleikum einnar
dáðustu popphljómsveitar Íslendinga á síð-
ari árum. Síðan skein sól hélt upp á 20 ára
starfsafmæli, en hún hefur verið með ein-
dæmum langlíf og vinsæl meðal lands-
manna. Staðsetning tónleikanna var við
hæfi, því sú kynslóð sem fylgt hefur hljóm-
sveitinni frá upphafi er nú að mestu leyti
uppkomið fjölskyldufólk sem húkir síður á
reykmettuðum klúbbum bæjarins sem jafn-
framt hafa verið annað heimili hljómsveita
sem þessara.
Hljómsveitin lék gömul og vinsæl lög frá
hátindi ferils síns í veglegum útsetningum
með hjálp góðkunnra tónlistarmanna. Þó að
undirrituð sé ekki af sömu kynslóð og flestir
áhangendur var ekki annað hægt en að hrí-
fast af botnlausri spilagleðinni og léttum
húmornum í Helga Björnssyni, söngvara, og
Jakobi Smára Magnússyni, bassaleikara.
Kátína áheyrenda lét ekki á sér standa og
sungið var með nánast öllum lögum. Sveitin
bar engin þreytumerki og lék af miklu ör-
yggi, enda aragrúi tónleika að baki og flest-
ir meðlimir með puttana í öðrum tónlistar-
verkefnum.
Gestir kvöldsins voru góðvinir hljómsveit-
arinnar, þau Sylvía Nótt, Björn Jörundur og
íslenska blúsundrið KK sem söng og blés
listavel í munnhörpu. Þó að lög sveitarinnar
séu flestöll venjuleg og af nokkuð svipuðum
meiði búa þau flest yfir einhverjum óútskýr-
anlegum sjarma sem aðeins meðlimir geta
ábyrgst. Hljómsveitin hefði loks ekki getað
valið betri tíma fyrir þessa afmælistónleika
því eins og nafn hennar ber með sér er hún
skínandi sendiboði sumarsins.
Skínandi
sendiboðar
sumars
TÓNLEIKAR
SS Sól tónleikar í Borgarleikhúsinu
19/04/2007
Alexandra Kjeld
Sssól Hljómsveitin hafði engu gleymt af gömlu sveitaballatöktunum.
Morgunblaðið/Eggert
Toppurinn KK og Helgi tóku lagið saman og stóðu sig vel.
Aðdáendur Freyr Eyjólfsson og Guðni Már Henningsson Rás2-menn horfa agndofa á Sssól.
Svöng? Silvía Nótt var einn gestasöngvara
og gæddi sér á beikoni baksviðs.
Stuð Björn Jörundur og Helgi Björnsson
tóku gamla slagara saman.