Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 5
www.toyota.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /T O Y 3 71 90 4 /0 7 Til hamingju, Reykjavík! Fyrir hönd Toyota á Íslandi óska ég forráðamönnum Reykjavíkurborgar hjartanlega til hamingju með áræðnar og metnaðarfullar aðgerðir í átt að vistvænni og hreinni borg. Græn skref Reykjavíkurborgar boða sannarlega vatnaskil í átt að auknum ávinningi íbúa borgarinnar í umhverfismálum. Óskandi hefði verið að löggjafarsamkomu okkar hefði borið sömu gæfu til þess að auðvelda Íslendingum að eignast umhverfisvænar bifreiðar. En því miður ákvað Alþingi að fella ekki niður vörugjöld af öllum umhverfisvænum bifreiðum þegar tækifærið lá fyrir á síðustu dögum Alþingis. Eðli málsins samkvæmt erum við hjá Toyota á Íslandi sérstaklega ánægð með það framtak Reykjavíkurborgar að bjóða eigendum vistvænna bifreiða að leggja án endurgjalds í bílastæði borgarinnar. Toyota er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu vistvænna bifreiða og erum við afskaplega stolt af þeim móttökum sem tvinnbílar okkar (e. Hybrid) hafa fengið hjá viðskiptavinum okkar – hvort sem um Toyota eða Lexus-bifreiðar er að ræða. Það er ánægjulegt að vita til þess að eigendur slíkra bifreiða, hvort sem þeir búa í borginni eða utan hennar, njóti umbunar þeirrar ákvörðunar að aka um á vistvænum bíl í höfuðborginni.Við erum að sama skapi afskaplega ánægð með aðrar aðgerðir Grænna skrefa, enda samræmast þær þeirri stefnu Toyota á Íslandi, og jafnframt Toyota á heimsvísu, að umgangast umhverfi okkar í leik og starfi með virðingu og heilbrigðri framtíðarsýn. Það er virðingarvert að sjá í mótun jafn metnaðarfulla heildarstefnu í vistvænni uppbyggingu höfuðborgar. Við erum sannfærð um að Reykjavík hafi alla burði til að verða leiðandi höfuðborg á heimsvísu í umhverfismálum. Umhverfisbaráttan er ekki spretthlaup – hún er maraþonhlaup þar sem þolinmæði og markviss skipulagning skila árangri. Við hvetjum því borgaryfirvöld til dáða, hvetjum þau til að efla enn þol sitt og koma í mark sem ótvíræður sigurvegari hreinna og betra umhverfis. Til hamingju Reykjavík! _____________________Úlfar SteindórssonForstjóri Toyota á Íslandi Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 420-6600 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Toyota Austurlandi Miðási 2 Egilsstaðir Sími: 470-5070 TOYOTA Á ÍSLANDI HF.Nýbýlavegur 2-8, 200 Kópavogi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.