Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 5
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/T
O
Y
3
71
90
4
/0
7
Til hamingju, Reykjavík!
Fyrir hönd Toyota á Íslandi óska ég forráðamönnum Reykjavíkurborgar hjartanlega til hamingju með áræðnar og
metnaðarfullar aðgerðir í átt að vistvænni og hreinni borg. Græn skref Reykjavíkurborgar boða sannarlega
vatnaskil í átt að auknum ávinningi íbúa borgarinnar í umhverfismálum. Óskandi hefði verið að löggjafarsamkomu
okkar hefði borið sömu gæfu til þess að auðvelda Íslendingum að eignast umhverfisvænar bifreiðar. En því miður
ákvað Alþingi að fella ekki niður vörugjöld af öllum umhverfisvænum bifreiðum þegar tækifærið lá fyrir á síðustu
dögum Alþingis.
Eðli málsins samkvæmt erum við hjá Toyota á Íslandi sérstaklega ánægð með það framtak Reykjavíkurborgar að
bjóða eigendum vistvænna bifreiða að leggja án endurgjalds í bílastæði borgarinnar. Toyota er leiðandi fyrirtæki í
framleiðslu vistvænna bifreiða og erum við afskaplega stolt af þeim móttökum sem tvinnbílar okkar (e. Hybrid)
hafa fengið hjá viðskiptavinum okkar – hvort sem um Toyota eða Lexus-bifreiðar er að ræða. Það er ánægjulegt að
vita til þess að eigendur slíkra bifreiða, hvort sem þeir búa í borginni eða utan hennar, njóti umbunar þeirrar
ákvörðunar að aka um á vistvænum bíl í höfuðborginni.Við erum að sama skapi afskaplega ánægð með aðrar aðgerðir Grænna skrefa, enda samræmast þær þeirri stefnu
Toyota á Íslandi, og jafnframt Toyota á heimsvísu, að umgangast umhverfi okkar í leik og starfi með virðingu og
heilbrigðri framtíðarsýn. Það er virðingarvert að sjá í mótun jafn metnaðarfulla heildarstefnu í vistvænni
uppbyggingu höfuðborgar. Við erum sannfærð um að Reykjavík hafi alla burði til að verða leiðandi höfuðborg á
heimsvísu í umhverfismálum. Umhverfisbaráttan er ekki spretthlaup – hún er maraþonhlaup þar sem þolinmæði
og markviss skipulagning skila árangri. Við hvetjum því borgaryfirvöld til dáða, hvetjum þau til að efla enn þol sitt
og koma í mark sem ótvíræður sigurvegari hreinna og betra umhverfis.
Til hamingju Reykjavík!
_____________________Úlfar SteindórssonForstjóri Toyota á Íslandi
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
TOYOTA Á ÍSLANDI HF.Nýbýlavegur 2-8, 200 Kópavogi