Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÝ BÓK EFTIR HÖFUND ALKEMISTANS
„Hugarfjötur er
meistaraverk Coelhos
… Hrífandi lei›sögn
um lendur lífsins og
ástarinnar.“
News
Dásamlega þroskað
verk sem snertir lesendur
um ókomna tíð.”
Allemagne Zeitung
Nafn Grétar Mar Jónsson.
Starf Var bæði sjómaður og skip-
stjóri en hætti í janúar sl.
Fjölskylduhagir Einhleypur.
Kjördæmi Suðvestur, 1. sæti fyrir
Frjálslynda flokkinn.
Helstu áhugamál?
Þau eru svo mörg! Félagsmál af
ýmsu tagi. Ég er t.a.m. mikill
áhugamaður um pólitík, handbolta
og fótbolta.
Hvers vegna pólitík?
Ég hef verið í félagsmálavafstri
alla mína tíð, alveg frá því að ég
var krakki. Ég sat í sveitarstjórn í
átta ár og svo hef ég verið í stjórn
íþróttafélaga, í hafnarstjórn og var
í stjórn Ungra jafnaðarmanna á
sínum tíma. Ég var líka formaður
fiskifélagsdeildar í Sandgerði sem
og atvinnumálanefndar Suðurnesja
og fleira og fleira.
Er Alþingi áhugaverður
vinnustaður?
Ég veit lítið um það. Ég sat sem
varaþingmaður í þrjá og hálfan
mánuð á síðasta kjörtímabili og
auðvitað var það ný reynsla og
þekking. Lögunum er breytt á Al-
þingi og þess vegna hef ég áhuga á
því. Ég vil gera breytingar og láta
gott af mér leiða. Ég hugsa að
flestir sem sækjast eftir því að
fara á þing séu þessu marki
brenndir.
Fyrsta mál sem þú vilt koma á
dagskrá?
Ég mun leggja áherslu á breyt-
ingar í sjávarútvegsmálum og að
bæta hag öryrkja og ellilífeyr-
isþega. Síðan eru auðvitað fleiri
mál eins og eiturlyfjavandinn og
innflytjendavandinn sem maður
vill beita sér fyrir.
Þarf breytingar?
Já, það er mikið órættlæti í sam-
félagi okkar sem þarf að laga og
breyta. Það er engin spurning.
Nýir frambjóðendur | Grétar Mar Jónsson
Vil láta
gott af
mér leiða
Morgunblaðið/Alfons
Breytingar „…það er mikið
óréttlæti í samfélagi okkar sem
þarf að laga og breyta.“
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐIN Lágafell
við Lækjarhlíð í Mosfellsbæ var
vígð í gær, en fyrsti áfangi mann-
virkjanna var tekinn í notkun á
liðnu hausti.
Íþróttamannvirkin eru um 5.000
fermetrar að stærð. Þar er íþrótta-
salur, saunaklefi, hvíldarherbergi
og nuddherbergi ásamt tilheyrandi
búnings- og hreinlætisaðstöðu.
Ennfremur úti- og innisundlaug,
barnalaug, vaðlaug, þrjár vatns-
rennibrautir, tveir heitir pottar og
nuddpottur. Innisundlaugin er með
lyftanlegum botni þannig að hægt
er að stilla vatnsdýptina.
Í tengslum við sundlaugarsalinn
eru skiptiklefi fyrir fatlaða og
áhaldageymsla. Á annarri hæð sal-
arins er vaktherbergi þar sem út-
sýni er yfir útisvæðið og innisund-
laugarsalinn. World Class verður
með líkamsrækt í húsinu og kaffi-
hús er í anddyrinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vígslan Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, Stefán Þórarinsson, framkvæmdastjóri Nýsis ehf.,
Klara Klængsdóttir og Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar, við vígsluna við Lækjarhlíð í gær.
Íþróttamiðstöðin Lágafell við
Lækjarhlíð í Mosfellsbæ vígð
Ljósmynd/Mosfellsbær
Vígslusundið 17. júní 1964 Klara Klængsdóttir eftir vígslusundið í Varm-
árlaug fyrir um 43 árum. Jón M. Guðmundsson, þáverandi oddviti Mosfells-
hrepps, tekur á móti henni og til hægri er Tómas Sturlaugsson, fyrrver-
andi kennari og skólastjóri við Brúarlands- og Varmárskóla.
Eftri Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ALLS eru 221.368 kjósendur á kjör-
skrárstofnum vegna alþingiskosning-
anna 12. maí. 110.969 konur og
110.399 karlar. Eru konur því 570 eða
0,5% fleiri en karlar. Þessar upplýs-
ingar koma fram í yfirliti Hagstofu
Íslands yfir kjósendur á kjörskrár-
stofni sem kom út í gær.
Við seinustu alþingiskosningar, 10.
maí 2003, voru 211.304 kjósendur á
kjörskrá og nemur fjölgunin því
10.064 manns eða 4,8%.
8.793 kjósendur eru með
lögheimili sitt erlendis
Heildarfjöldi kjósenda sem eru
með lögheimili erlendis er nú 8.793
eða 4,0% kjósendatölunnar og hefur
þeim fjölgað um 65 frá síðustu alþing-
iskosningum, eða um 0,7%. Kjósend-
um sem eru með lögheimili hér á
landi hefur fjölgað um 9.999 eða 4,9%.
Þá kemur fram í upplýsingum
Hagstofunnar að þeir sem vegna ald-
urs fá nú að kjósa í fyrsta sinn til Al-
þingis eru 17.132, eða 7,7% af kjós-
endatölunni.
Í Reykjavíkurkjördæmunum báð-
um eru nú 87.173 kjósendur á kjör-
skrá. Hefur þeim fjölgað um 1,9% frá
seinustu kosningum.
Í Suðvesturkjördæmi eru þeir
54.584. Þar hefur fjölgunin hinsvegar
orðið mun meiri, eða um 11,8% frá
2003.
Í Norðvesturkjördæmi eru kjós-
endur á kjörskrárstofni nú 21.126 og
hefur fækkað um 0,6%. Í Norðaust-
urkjördæmi eru þeir 27.888 og fjölg-
aði um 2,2% og í Suðurkjördæmi
30.597 og hefur þeim fjölgað um
7,9%.
Skv. upplýsingum Hagstofunnar
semja sveitarstjórnir kjörskrár eftir
kjörskrárstofnum sem Þjóðskrá læt-
ur þeim í té. Í endanlegri tölu kjós-
enda á kjörskrá, sem birt verður í
skýrslu Hagstofunnar um kosning-
arnar, verður svo tekið tillit til tölu
látinna og þeirra sem fá nýtt ríkis-
fang eftir að kjörskrárstofnar voru
unnir, svo og breytinga sem verða á
kjörskrá vegna leiðréttinga.
Tíu þúsund
fleiri kjósendur
17.132 fá að kjósa í fyrsta sinn til þings
FJÓRIR hafa sýnt áhuga á að eignast
flutningaskipið Wilson Muuga sem
bjargað var af strandstað við Hvals-
nes á dögunum. Hugsanlega mun
fulltrúi mögulegs kaupanda skoða
skipið þegar í dag, að sögn Guðmund-
ar Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra
Nesskipa.
Þrír höfðu haft samband við Guð-
mund í gær og lýst áhuga á að athuga
með kaup á skipinu. Einn þeirra var
fulltrúi tveggja mögulegra kaupenda.
Guðmundur taldi að skip í því ástandi
sem Wilson Muuga er í myndi seljast
á rúmlega brotajárnsverði. Hann
sagði að ljósavélar, rafmagnstafla og
annað sem er ofarlega í vélarrúmi
væri í lagi. Óvíst er um aðalvél, dælur
og búnað á neðsta palli vélarrúmsins
því þar gætti flóðs og fjöru meðan
skipið var strandað. Því er ljóst að
taka þarf upp
aðalvélina og
búnað sem leg-
ið hefur í sjó.
Tveir kostir
eru í stöðunni,
að sögn Guð-
mundar. Að
draga skipið í
því ástandi
sem það er til
viðgerðar er-
lendis, eða að koma aðalvélinni í gang
og sigla skipinu fyrir eigin vélarafli
utan. Guðmundur taldi að þétting
sem gerð var á skipinu áður en það
var dregið á flot mundi nægja til
bráðabirgða. Wilson Muuga er 32 ára
en í góðu ástandi miðað við aldur.
Guðmundur taldi góðan grundvöll
fyrir því að gera skipið sjófært á ný.
Áhugi á Wilson Muuga
Wilson Muuga
dreginn á flot.