Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Saga Heimspekinnar Tilvalin útskriftargjöf Menningarsjóður styrkir útgáfuna Heimspekisagan frá Grikkjum til forna til vorra daga Eftir einn mesta hugsuð íslensku þjóðarinnar! Lafleur útgáfan Hólmaslóð 4, 101 Reykavík, sími 659 3313 eftir Gunnar Dal „Þetta gagnmerka rit eftir Gunnar Dal veitir manni einstæða innsýn í undraveröld heimspekinnar sem endist manni út allt lífið“ Guðfinna S. Bjarnadóttir, fv. rektor HR Búkarest. AFP. | Þingið í Rúmeníu samþykkti í gær með miklum meiri- hluta atkvæða að setja forseta landsins, Traian Basescu, af og er um að ræða fyrsta skref í þá átt að réttað verði yfir honum. Stjórnar- andstæðingar saka Basescu um að hafa brotið stjórnarskrána. Forsetinn er m.a. sakaður um að hafa „tekið með hjálp samstarfs- manna sinna yfir allar ríkisstofn- anir, haft afskipti af dómskerfinu og verndað hagsmuni glæpa- samtaka í efnahag Rúmeníu“. Basescu var kjörinn forseti árið 2004 og hefur lengi átt í hörðum deilum við forsætisráðherrann, Cal- in Tariceanu, sem rak ráðherra úr flokki forsetans fyrir nokkrum vik- um. Nánir samstarfsmenn forset- ans, sem er 55 ára gamall og vinsæll meðal almennings, sögðu að hann myndi segja af sér embætti í kjölfar niðurstöðunnar á þingi. Yrði þá að efna til nýrra forsetakosninga og talið víst að Basescu færi fram á ný. Forseti settur af vegna meintra stjórnarskrárbrota Reuters Vikið Traian Basescu ávarpaði stuðningsmenn sína í gær. Brussel. AFP. | Fram kemur í skýrslu Evrópusambandsins um neytendamál að nær helmingur af vörum sem seldar eru í sambandsríkjunum og teljast hættulegar komi frá Kína. Sumar af vörunum voru taldar svo varasamar að lagt var þegar í stað blátt bann við að selja þær og það eru fleiri en Kínverjar sem syndga. Seldir voru finnskir bangsar með augu sem detta úr tóttunum, taílenskir barnasmekkir með háu blýinnihaldi og varasamar plast- endur, ekki er vitað hvar þær voru framleiddar. Alls reyndust 440 tegundir af varningi frá Kína, þ.á m. fegrunarlyf, tölvuvélbúnaður og leikföng, ekki fullnægja gæða- og örygg- isstöðlunum sem er tífalt hærri tala en hjá upprunalandinu sem kom næst, Þýskalandi. Þegar kannað var hve vel leikföng fullnægðu kröfunum reynd- ist um 85% kínverskra leikfanga vera áfátt. „Það er gott merki að æ fleiri dæmi eru um að gripið sé til aðgerða, það sýnir að um alla Evrópu er fólk meira á varðbergi en áður,“ sagði framkvæmdastjóri neytendamála í stjórn ESB, Meglena Kuneva. ESB segir kínverskar neyslu- vörur oft vera hættulegar Ósló. AFP. | Norsk stjórnvöld vilja að mótvægisaðgerðir gegn losun kol- díoxíðs verði orðnar svo umfangs- miklar árið 2050 að Norðmenn telj- ist þá saklausir af því að auka á gróðurhúsaáhrif með losun. Jens Stoltenberg forsætisráðherra sagði á þingi Verkamannaflokksins í gær að dregið yrði úr losuninni um 30% fyrir árið 2020. Noregur á ekki að- ild að Evrópusambandinu sem hyggst minnka losunina um 20% á sama tímabili. „Ríku þjóðirnar verða að gerast losunarfríar þjóðir,“ sagði ráð- herrann. Raforka er að mestu framleidd með vatnsafli í Noregi en Norðmenn eru hins vegar meðal stærstu útflytjenda á olíu og gasi. Reuters Mengun Mikið af koldíoxíðlosun í heiminum stafar frá bílum. Norðmenn í fararbroddi Teheran. AP. | Íranar byrjuðu í gær að fylla uppistöðulón við Savand-fljót, um 840 km sunnan við höfuðborgina Teheran en fornleifafræðingar óttast að framkvæmdirnar valdi tjóni á rústum hinnar fornu höfuðborgar Perse- pólis og fleiri minjum. Vatn úr lóninu verður notað til áveitu á ökrum á svæðinu. Aðgerðinni var á sínum tíma frestað í nokkra mánuði til þess að alþjóðlegum hópi vísindamanna gæfist tími til að stunda rannsóknir á forn- leifum sem fundust fyrir skömmu á væntanlegum botni lónsins en þar er m.a. ævaforn vegur milli borganna Persepólis og Súsa. Íranska sjónvarpið sagði að Mahmoud Ahmadinejad forseti hefði gefið skipun um aðgerðina en hann var þó ekki viðstaddur athöfn í tilefni dags- ins. Fjöldi íranskra menntamanna og pólitískra andófsmanna í Íran hefur fordæmt áætlanir stjórnvalda um lónið og sagt að hugmyndin sé „heimsku- leg“. Hafa sumir þeirra hvatt alþjóðasamfélagið til að berjast gegn fram- kvæmdinni. Umdeilt lón ógnar fornleifum TVEIR hindúar í Malasíu berjast nú fyrir því að fá aftur eiginkonur sín- ar og börn sem eru úr röðum músl- íma. Íslömsk yfirvöld fjarlægðu þau af heimilum sínum og sendu í endurhæfingarbúðir fyrir múslíma. Heimilum sundrað FYRSTI lýðræðislega kjörni forseti Máritaníu, Sidi Ould Cheikh Abdall- ahi, sór embættiseið sinn í gær. Abdallahi var pólitískur fangi með- an herforingjar fóru með völdin. Rétt kjörinn NEYTENDASAMTÖK í Noregi sinna ýmsum málum. Nýlega kvart- aði maður yfir kynlífssímaþjónustu og sagðist ekki hafa orðið fyrir neinum áhrifum af samtalinu, það hefði ekki veitt sér neina gleði. Vörusvik UM hálf önnur milljón Frakka í alls 82 borgum mun kjósa með rafræn- um hætti í forsetakosningunum á sunnudag. Komin er upp öflug and- staða við þessa nýju aðferð og full- yrt er að auðvelt verði að svindla. Óttast svindl HAKAKROSSAR voru málaðir á legsteina í grafreit múslíma í Souchez í norðanverðu Frakklandi aðfara- nótt fimmtudags. Ekki er vitað hver eða hverjir voru að verki. Um er að ræða legsteina múslíma frá göml- um, frönskum nýlendum, mennirnir börðust í franska hernum í fyrri heimsstyrjöld. Dómsmálaráðherrar Evrópusambandsins náðu í gær samkomulagi um að refsivert yrði í öllum aðildarríkj- unum 27 að hvetja til kynþáttahaturs og útlendinga- andúðar. Verður hægt að dæma brotlega í allt að þriggja ára fangelsi. Deilt hefur verið um löggjöf af þessu tagi í sex ár í ESB, Þjóðverjar vildu að gert yrði refsivert að afneita því að þjóðarmorð nasista á gyðingum, Helförin svo- nefnda, hefði átt sér stað. Fulltrúar Breta og norrænu aðildarríkjanna þriggja, Dana, Svía og Finna, voru á móti og töldu að með slíkum ákvæðum væri verið að setja of miklar hömlur á tjáningarfrelsið. Reuters Legsteinar múslíma saurgaðir Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is SKIPTAR skoðanir voru í gær í Bandaríkjunum um þá ákvörðun NBC-sjónvarpsstöðvarinnar að birta tugi myndbanda og yfir 40 ljós- myndir sem bárust stöðinni frá námsmanninum Cho Seung-hui er myrti í vikunni 32 nemendur og kennara í háskóla í Virgínu og loks sjálfan sig. „Það hafa margir komist í uppnám af því að sjá þessar myndir,“ sagði lögreglumaðurinn Steve Flaherty, sem fer fyrir rannsókn málsins, í gær. Aðrir benda á að hugsanlega séu fjölmiðlar að ganga erinda hins óhamingjusama Cho eftir dauða hans, hann hafi ekki síst viljað vekja athygli á sér með illvirkinu. Einnig geti þeir ýtt undir árásarhugmyndir hjá öðrum með umfjöllun sinni. Talsmaður sjónvarpsstöðvarinnar segir upplýsingarnar hins vegar gefa fólki mikilvægar vísbendingar um það hvað manninum hafi gengið til. „Ég held að við munum aldrei skilja til fullnustu hvers vegna þetta gerð- ist, en ég held að þetta sé það næsta sem við munum nokkru sinni komast því að fá að gægjast inn í hug morð- ingjans,“ segir Steve Capus, yfir- maður fréttadeildar NBC. Cho sendi stöðinni pakka með 28 myndskeiðum og 43 ljósmyndum. Þar af sýndu ellefu hann beina skot- vopni að myndavélinni. Pakkinn var sendur frá háskólasvæðinu sama dag og harmleikurinn átti sér stað. „Þið höfðuð hundrað milljón tæki- færi til að gera hlutina öðruvísi og koma í veg fyrir þetta,“ segir Cho og formælir skólafélögum sínum. „En þið ákváðuð að úthella blóði mínu. Þið hröktuð mig út í horn og gáfuð mér aðeins einn kost. Ákvörðunin var ykkar.“ Birtu myndir Cho
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.