Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 57
Hljómsveitarstjóri ::: Owain Arwell Hughes
Einleikari ::: Guðný Guðmundsdóttir
Gioacchino Rossini ::: Þjófótti skjórinn, forleikur
Antonín Dvorák ::: Rómansa í f-moll op. 11
Maurice Ravel ::: Tzigane
Sergej Rakhmanínov ::: Sinfónía nr. 1
gul tónleikaröð í háskólabíói
Í KVÖLD, FÖSTUDAGSKVÖLD KL. 19.30
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Einleikur Guðnýjar
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
VEFMIÐILLINN Drowned in So-
und gerir út frá Bretlandi og einbeit-
ir sér að tónlistarumfjöllun hvers
konar. Nýtur hann sívaxandi vin-
sælda sem slíkur og er í dag með
virtari miðlum á því sviðinu. Drow-
ned in Sound, eða DiS, hefur auk
þess verið mikill Íslandsvinur og
sækja útsendarar hans jafnan
stærstu viðburðina hérlendis,
Airwaves o.s.frv. Þannig stóð vefrit-
ið fyrir sérstökum Íslandstónleikum
í London árið 2005 þar sem fram
komu Skátar, Reykjavík!, Jan Ma-
yen og Skakkemanage. Það ætti því
ekki að koma að óvörum að blaða-
maður frá DiS sótti síðustu Aldrei
fór ég suður hátíð á Ísafirði en fyrir
stuttu birtist ítarleg úttekt um þessa
„rokkhátíð alþýðunnar“. Paul Sulliv-
an heitir blaðamaðurinn og hefst
greinin á nokkuð langri úttekt á
sögu hátíðarinnar, þar sem segir
m.a. að „á dæmigerða íslenska vegu
varð hugmynd sem var kokkuð upp á
fylleríi að veruleika.“
Sullivan lýsir síðan staðháttum og
innviðum Ísafjarðarbæjar, auk þess
að velta fyrir sér rómantíkinni sem
felst í því að snúa litlum bæ á hvolf
vegna stórviðburðar; þar sem ungir
og aldnir leggjast á eitt um að láta
draum verða að veruleika.
Restin af greininni er síðan frem-
ur hefðbundinn tónleikadómur.
Hann setur ofan í við Blonde Red-
head, sem tók sér klukkustund í að
stilla græjurnar en hver listamaður
á hátíðinni – frægur eða ekki – átti
að fá tuttugu mínútur til að skila
sínu. Hann lofar Esju, nýja hljóm-
sveit Daníels Ágústs og Krumma, í
hástert og einnig Ælu og Lay Low.
Ampop og Reykjavík! er einnig
hrósað en Sullivan klórar sér í
hausnum yfir Dr. Spock, segir að
blanda þeirra af „Stooges-legri orku
og Beefheart-legri geðveiki“, hafi
verið algerlega mögnuð.
Greinin endar á tárvotri greiningu
á snilld hátíðarinnar, Sullivan segir
að í heimi þar sem kaupæði og kapít-
alismi séu að rúlla yfir allt sem
mannlegt er verði æ erfiðara að
finna stað þar sem fólk kemur saman
vegna hreinnar lífsgleði og ósnortins
áhuga fyrir tónlist. Aldrei fór ég suð-
ur sé í því tilliti öllum heiminum inn-
blástur. Og hefur hann reyndar
margt fyrir sér í þeim orðum.
Drowned in Sound fjallar um
hátíðina Aldrei fór ég suður
Blonde Redhead Tónleikar sveitarinn olli nokkrum vonbrigðum í þetta sinn
SÍÐAN Britney Spears lauk með-
ferð í mars hefur hún lést nokkuð
og er öll orðin lögulegri, en fyrrum
partílífernið settist víst á mjaðm-
irnar á henni sem og á sálina, segir
tímaritið People.
„Eftir allt þetta neikvæða í lífi
sínu þá ætlar hún að léttast,“ sagði
einn nákominn henni.
Það sást til söngkonunnar kaupa
sér mikið af stuttum kjólum nýlega
og sagði ein afgreiðslustúlkan að
hún liti mjög vel út og væri heil-
brigð. „Og hún er með frábæra
leggi,“ bætti hún svo við.
Leyndarmálið á bak við þyngd-
artap Spears er að hún er að hreyfa
sig, borðar hollt og nýtur lífsins.
Auk þess stundar hún dans.
Núna þegar meðferðinni og
skilnaðinum við Kevin Federline er
lokið er það í forgangi hjá henni að
koma ferli sínum sem söngkonu aft-
ur af stað.
Reuters
Britney
grennist
DÝRAGARÐURINN í Berlín fékk í
gær símbréf með líflátshótun sem
beindist gegn hinum víðfræga
hvítabjarnarhúni Knúti. Lögreglan
telur víst að um gabb sé að ræða og
ekki verður hætt við útivistartíma
Knúts í dag.
Knútur viðrar sig tvisvar á dag
og dregur hann að um 15 þúsund
áhorfendur á degi hverjum. Lög-
reglan mun hafa rannsakað búrið
sem Knútur dvelur í og útivist-
arsvæði hans en stjórnendur dýra-
garðsins hafa neitað því sem fram
kom í blaðinu Bild að Knútur nyti
nú lögregluverndar.
Öryggisverðir dýragarðsins
gæta Knúts eins og venjulega.
Knútur er með sína eigin blogg-
síðu og sjónvarpsþátt og hefur ný-
lega birst á forsíðu bandaríska
tímaritsins Vanity Fair með Leon-
ardo DiCaprio en eins og frægt er
orðið kom DiCaprio hingað til lands
fyrir sína myndatöku en mynd-
unum var síðan skeytt saman.
Fyrr í vikunni þurfti Knútur að
halda sig innan dyra þar sem hann
var með vott af flensu og verki
vegna þess að hann er að taka tenn-
ur.
Sætir Knútur og DiCaprio.
Knútur í
hættu?