Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG ÆTLA AÐ KAUPA FLEIRI DISKA SVONA ER AÐ VERA PIPARSVEINN ÉG VAR EKKI ALINN UPP TIL ÞESS AÐ VERA LOFTNET! ERTU BÚINN AÐ SJÁ MARSBÚA? NEI ER ÞETTA EKKI „VIKING“ SEM ÞEIR SENDU HINGAÐ Á ÁTTUNDA ÁRATUGNUM? JÚ! ÆTLI HANN VIRKI ENNÞÁ? NÚNA HAFA ÞEIR HJÁ NASA EITTHVAÐ AÐ GERA! MIG HEFUR ALLTAF LANGAÐ TIL ÞESS AÐ GERA EITTHVAÐ SVONA HRÓLFUR... JÁ ? GAT ÞÉR EKKI DOTTIÐ ÞETTA Í HUG ÁÐUR EN ÞEIR UMKRINGDU OKKUR?!? ÉG ER BÚINN AÐ SKRIFA BRÉFIÐ MITT TIL JÓLASVEINSINS NÚNA ÞARF ÉG AÐ GERA ERFIÐASTA HLUT SEM ÉG HEF GERT Á ÆVINNI! HVAÐ ? VERA GÓÐUR VIÐ BRÉF- BERANN VIÐ EIGUM Í VANDRÆÐUM MEÐ AÐ FÁ SON OKKAR TIL ÞESS AÐ FARA Í TRÚARBRAGÐASKÓLA ÉG HEF KOMIST AÐ ÞVÍ AÐ KRAKKAR ENDURSPEGLA OFT SKOÐANIR FORELDRA SINNA MÆTTI ÉG SPYRJA YKKUR HVERSU OFT ÞIÐ ERUÐ VIÐSTÖDD TRÚARATHAFNIR? ÖÖÖ... MINNSTA KOSTI TVISVAR Á ÁRI EF VEÐUR LEYFIR ÉG SKIL BLÓÐIÐ HANS PARKER GAT EKKI LÆKNAÐ SÝKINGAR EFTIR ALLT SAMAN HANN ER EKKERT SÉRSTAKUR OG MÉR TÓKST EKKI AÐ VERÐA RÍKUR HANN KEMST ALDREI AÐ ÞVÍ HVAÐ ÉG GERÐI LOKSINS GENGUR ALLT Í HAGINN dagbók|velvakandi Með hvassar klær LÍTIL stúlka skrifaði sögu þar sem hún persónugerði fátæktina. Þetta var ljót kerling með hvassar klær sem læsti þeim í fólk og sleppti ekki taki sínu ef hún á annað borð náði að festa sig í fólk. Fátæktin er ansi þaulsætin ef hún kemur í heimsókn og það er engin leið að sleppa úr klóm hennar. Hvaða leiðir eru færar fyrir fólk sem svo illa er ástatt fyrir? Þær eru varla margar. Í viðtölum við stjórnarliða segja þeir gjarnan, ef talað er um fátækt, að allir hafi það svo gott og líka þeir sem minnst hafa. Þeir horfa fram hjá vanda- málinu í stað þess að reyna að gera eitthvað í því. Þeir segja að kaup- máttur fólks hafi aukist um 60%. Ég hef hins vegar heyrt töluna 16% og ætli það sé ekki nærri lagi. Það er vor í lofti og kosningar framundan og loforðalistinn verður ætíð langur hjá frambjóðendum og meðal annars ætla þeir allir að gera vel við aldr- aða, öryrkja og aðra þá sem skildir voru eftir í góðærinu. Kjósendur velta fyrir sér hvað sé nú að marka þetta og hver ætli eiginlega að standa við stóru orðin. Það er stórt spurningamerki. Hætt er við að lof- orðaflóðið týnist í sigurvímu og gla- saglaumi húmblárrar kosninga- nætur. Þeir fátæku halda áfram að vera snauðir og allt verður eins og það hefur ætíð verið. Fátækt hefur alltaf fylgt mannkyninu, heyrði ég sagt í fjölmiðlum um daginn eins og það sé bara lögmál. Fátæktin getur valdið alls konar félagslegum vanda- málum sem og heilsufarslegum fyrir utan mannlega þjáningu sem seint verða mældar með mælistikum vís- indamanna. Heilbrigt, hamingju- samt fólk og jöfn tækifæri á við aðra er gulli betra í samfélagi okkar. Burt með fátækraófreskjuna og hennar löngu klær. Sigrún Reynisdóttir. Af fátækt og vændisleyfi ÉG vil taka undir orð Einars S. Jónssonar í Velvakanda 17. apríl. Mér finnst skömm að því að ráða- menn þjóðarinnar láti fólk ekki fá mannsæmandi laun og horfi heldur upp á fólk standandi í biðröðum eftir mat. Þeir ættu að hækka skattleys- ismörkin. Alltaf er verið að hjálpa úti í heimi og látið eins og það sé ekki fátækt á Íslandi. En svo er. Svo ætla ég líka að benda á ósann- gjarna staðreynd. Ég er öryrki, ný- lega flutt til Hafnafjarðar og ætlaði að sækja um að fá niðurgreiddan fasteignaskatt. En það er ekki hægt hér í bæ, því annaðhvort þurfa báðir makar að vera öryrkjar eða orðnir gamalmenni. Í Reykjavík er því öðruvísi farið, því þar færðu vissa prósentu af þinni eign niðurgreidda vegna örorkunnar. Í þriðja lagi finnst mér mikil skömm að því að yfirvöld hafi sam- þykkt þetta vændisleyfi. Með því eru yfirvöld að kalla yfir sig dóp, mansal og ofbeldi. Þetta er ekki hægt. Það hefði verið nær að samþykkja tákn- mál sem móðurmál en þetta ógeð- fellda leyfi. Björg Gunnarsdóttir. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is RÓLEGT var um að litast í Kristjaníu í Danmörku þegar ljósmyndari Morgunblaðsins kíkti á svæðið. Íbúar fríríkisins féllust á tilboð danska ríkisins um að Kristjanía lyti sömu lögum og önnur dönsk svæði gegn því að lagt yrði fé til uppbyggingar á svæðinu í byrjun mánaðarins. Morgunblaðið/G.Rúnar Frelsi og friður Hafnfirðingar í ferðahug – Lokakvöld BH Bridsfélag Hafnarfjarðar heldur sína lokakeppni á þessu starfsári næsta mánudag 23. apríl. Það er sérstaklega mikilvægt að þeir sem koma með í keppnisferðina til Spánar mæti því farið verður yfir ferðatilhögun og fleira. Spilaður verður eins kvölds tví- menningur að því loknu. Bridsfélag Hafnarfjarðar spilar á mánudögum kl. 19:30 í Hampiðju- húsinu, Flatahrauni 3. (Hraunsel) Upplýsingar veitir Hafþór í s. 899- 7590. Forsetinn efstur í aðaltvímenn- ingi Bridsfélags Reykjavíkur Tvö pör hafa tekið dágóða forystu í aðaltvímenningi BR eftir 2 kvöld af 4. Forseti BSÍ, Guðmundur Baldurs- son, ásamt Steinberg Ríkarðssyni náðu að velta tvímenningshaukunum Hrólfi og Oddi Hjaltasonum úr topp- sætinu. Næstu pör eygja enn von ef vel verður haldið á spilum næstu 2 kvöld. Guðm. Baldurss – Steinberg Ríkarðss 60,0% Hrólfur Hjaltason – Oddur Hjaltason 58,8% Rúnar Einarss. – Haraldur Gunnlss. 55,1% Ástvaldur Ágústss. – Kristinn Þóriss. 54,6% Ómar Ómarss. – Örlygur M. Örlygss. 53,8% Sveinn Þorvaldss. – Gísli Steingrímss. 53,5% Minnt er á bronsstigakeppnina þar sem 24 efstu vinna sér rétt í veg- legum lokaeinmenningi 8. maí. Alfreðsmót Bridsfélags Akureyrar Nú er impa-mótið komið vel á veg en annað kvöld keppninnar ein- kenndist af miklum sveiflum og nokkur pör skutust á toppinn þó Pét- ur og Björn hafi með góðum enda- spretti náð dágóðu forskoti. Skor fyrir annað kvöldið, 17. apríl: Pétur Gíslason – Björn Þorláksson 47 Hermann Huijbens – Stefán Vilhjálmss. 24 Brynja Friðfinnsd. – Ólína Sigurjónsd. 18 Heildarstaða para: Pétur Gíslason – Björn Þorláksson 55 Jón Sverrisson – Una Sveinsdóttir 27 Gylfi Pálsson – Helgi Steinsson 27 Efsta sveitin (samanlagt skor) er prýdd Gylfa, Helga, Stefáni, Her- manni og Símoni Gunnars með +41. Sunnudagurinn 15. apríl fór svo: Reynir Helgason – Frímann Stefánsson 14 Jón Sverrisson – Una Sveinsdóttir 11 Sveinbj. Sigurðss. – Sigurður Marteinss. 3 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Fáðu sms-fréttir í símann þinn af mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.