Morgunblaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2007 23
MENNING
4 vikna
vornámskeið
hefst 23. apríl
Upplagt til kynningar
fyrir byrjendur.
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620.
www.schballett.is
Nemendurnir eru á aldr-inum þriggja til áttatíuára, alls um 400 talsins.
Það er Myndlistaskólinn í Reykja-
vík, með fjölbreyttu og öflugu
starfi, sem dregur að sér svo
breiðan nemendahóp – og það út
af fyrir sig staðfestir gildi starf-
seminnar í samfélaginu.
Myndlistaskólinn í Reykjavíkfagnar um þessar mundir
60 ára afmæli og efnir af því til-
efni til sýninga vítt og breitt um
bæinn – t.d. verða myndir frá
sögu skólans til sýnis í Borg-
arbókasafninu við Tryggvagötu, í
Þjóðminjasafninu sýna 6-12 ára
börn textílverk og í Hoffmanns-
galleríi í JL-húsinu sýna 4 kyn-
slóðir kennara við skólann – auk
þess sem verk nemenda og starf-
semi skólans verður kynnt þar á
opnu húsi á morgun. Þar verður
boðið upp á ýmsa viðburði og
geta gestir m.a. spreytt sig á að
renna leir.
Skólinn hefur á að skipa úrvals-hópi háskólamenntaðra kenn-
ara og býður ekki aðeins upp á
námskeið og símenntun fyrir full-
orðna – þar sem margur hefur
sótt sér endurnærandi kraft í
daglegu lífi og starfi – og fullgilt
fornám í myndlist, hönnun eða
arkitektúr fyrir nám á há-
skólastigi, heldur er gildi skólans
ekki síst fólgið í merku og þörfu
framlagi hans til myndlist-
armenntunar barna og unglinga.
Lengi hefur verið bent á veikleika
íslenska skólakerfisins hvað
grunnmenntun í myndlist áhærir.
Myndlistaskólinn í Reykjavíkgegnir því brýnu hlutverki.
Starfsemin er metnaðarfull og
fjölþætt; lögð er áhersla á hefð-
bundna þjálfun auga og handar,
svo sem módelteikningu og lita-
fræði, auk tilraunakenndari verk-
efna í takt við hræringar í sam-
tímanum. Myndlistaskólinn er í
samstarfi við grunnskóla í
Reykjavík og fá börn og ungling-
ar tækifæri til að spreyta sig í
margvíslegu faglegu samhengi í
samvinnu skólans við erlenda
listaskóla og ýmsar borgarstofn-
anir, svo sem söfnin eða Listahá-
tíð í Reykjavík.
Listum hefur verið líkt viðtaugakerfi þjóðarlíkamans og
út frá þessu má álykta að þjóð-
félag sem bælir eða hlúir ekki að
listum sé óheilbrigt,“ segir Ing-
ólfur Arnarsson, prófessor við
Listaháskóla Íslands og einn sýn-
endanna úr kennarahópi Mynd-
listaskólans í Hoffmannsgalleríi.
Starfsemi Myndlistaskólans á sér
hliðstæðu í Myndlistaskólanum á
Akureyri en hlúa þarf betur að
því grasrótarstarfi sem á sér stað
annars staðar á landinu og marka
starfseminni skýran ramma. Ingi-
björg Jóhannsdóttir, skólastjóri
Myndlistaskólans, hefur bent á þá
gríðarlegu grósku í tónlistarlífinu
sem hlotist hefur af um 30 ára
gamalli lagasetningu um rekstur
tónlistarskóla um land allt.
Nú er lag að kynna sér fyr-irmyndarstarf Myndlista-
skólans í Reykjavík – snara sér
kannski að rennibekknum á morg-
un – og spyrja hvort ekki sé kom-
inn tími til að setja lög um mynd-
listarskóla um land allt og gefa
öllum þegnum lýðræðisþjóðfélags-
ins kost á vandaðri undirstöðu-
menntun í myndlist og öðrum list-
greinum – þar sem skapandi
hæfileikar ungra einstaklinga er
virkjuð. Það skilar sér í frjórra
samfélagi og auknum lífsgæðum.
Hið frjóa samfélag
» Gildi skólans er ekkisíst fólgið í merku og
þörfu framlagi hans til
myndlistarmenntunar
barna og unglinga.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Myndlistaskólinn í Reykjavík Sennilega getur enginn skóli á landinu stát-
að af jafnmikilli breidd í aldri nemenda segir Anna Jóa um skólann.
annajoa@simnet.is
AF LISTUM
Eftir Önnu Jóa