Morgunblaðið - 29.04.2007, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
STAÐA BÓKAÚTGÁFU Á ÍSLANDI
urinn á bókum hennar tveimur hefur
verið seldur víða um lönd.
Fjöldi smærri forlaga er starf-
ræktur á Íslandi og eiga 39 útgef-
endur aðild að Félagi íslenskra
bókaútgefenda, má þar nefna Hóla,
Sölku, Hið íslenska bókmenntafélag,
Skruddu, Skálholtsútgáfuna, Bóka-
félagið Uglu, Ormstungu, Háskóla-
útgáfuna, Hörpuútgáfuna, Útkall
ehf., Setberg og Skjaldborg.
Umsvif sumra þessara forlaga
voru meiri áður en meðal nafn-
kunnra forlaga sem gengið hafa úr
skaftinu á síðustu áratugum má
nefna Örn og Örlyg, Leiftur, Norðra
og Skuggsjá. Þá var vitaskuld um
árabil blómleg útgáfa á vegum Ið-
unnar og Forlagsins.
Ekki feitan gölt að flá
Helstu bókaútgefendur eru á einu
máli um að ekki sé feitan gölt að flá í
greininni í dag. „Ef menn ætla sér
að verða ríkir ættu þeir að snúa sér
að einhverju öðru,“ segir Jóhann
Páll Valdimarsson.
Hann segir bókaútgáfu óvenju-
lega viðkvæman rekstur og lítið
megi út af bera til að skipið fari á
hliðina. „Blikur eru hátt á lofti í ís-
lenskri bókaútgáfu um þessar
mundir og það er full ástæða til að
hafa áhyggjur af bókmenningu í
landinu til lengri tíma litið. Það hef-
ur orðið bylting í verslunarháttum
og viðskiptum á Íslandi undanfarin
tuttugu ár og bókaútgáfa hlýtur að
lúta þeirri þróun enda þótt bókin
hafi alltaf ákveðna sérstöðu vegna
eðlis síns og sögu. Menn þurfa að
laga sig að þessu nýja umhverfi. Við
snúum ekki aftur til fortíðar.“
Snæbjörn Arngrímsson hefur ver-
ið búsettur í Danmörku síðan í haust
en kveðst finna titringinn á íslensk-
um bókamarkaði alla leið þangað.
„Ég veit ekki hvað það er en það er
einhver skjálfti á ferðinni. Það má
lítið út af bera.“
En hvers vegna eru menn þá að
leggja þetta erfiði á sig? Snæbjörn
hittir væntanlega naglann á höfuðið
þegar hann segir: „Þetta er bara svo
skemmtilegur bransi.“
Hann segir að fyrir menn sem
hafa yndi af bókum og bókmenntum
sé mikil fróun fólgin í útgáfustarf-
inu. „Ég hef trú á skáldskap og þess
vegna er ég að þessu.“
Sama máli gegnir um Jóhann Pál.
Hann er fyrst og fremst í útgáfu af
faglegum metnaði og ástríðu fyrir
hinum forna miðli, bókinni. „Bókaút-
gáfa er baktería sem menn losna
ekki svo auðveldlega við. Það þýðir
ekkert að standa í þessu ef menn
hafa ekki brennandi áhuga,“ segir
Jóhann Páll.
Gróða ekki breytt í steinsteypu
Í þessu ljósi kemur ekki á óvart að
löng hefð mun vera fyrir því að ís-
lenskir bókaútgefendur eyði öllu því
fé sem þeir koma höndum yfir í
starfsemina – sínu og annarra, líkt
og Árni Einarsson, forstjóri Eddu,
bendir á. Það gera þeir í nafni menn-
ingarinnar.
„Það hefur margt komið út hér á
landi gegnum tíðina sem er ótrúlegt
fyrir 300.000 manna þjóð. Menn hafa
lyft grettistaki. Hafi íslenskir útgef-
endur hagnast á starfsemi sinni hafa
þeir nær undantekningarlaust sett
gróðann inn í reksturinn, gefið út
fleiri bækur, en ekki notað hann í
eigin þágu eða breytt honum í stein-
steypu,“ segir Árni.
Kristján er sannfærður um að ým-
is tækifæri séu í bókaútgáfu en
menn verði aftur á móti að hugsa á
öðrum nótum en áður. Landslagið
hafi breyst. „Það er miklu meira
framleitt af þekkingu nú en fyrir
tuttugu árum en það er ekki endi-
lega víst að því sé betur komið á
framfæri við almenning en áður.
Þeir tímar eru liðnir að öll grund-
vallarrit rati ósjálfrátt inn á öll
heimili í landinu. Bókin er hins vegar
svo opið og skemmtilegt form að það
verður alltaf hægt að finna leiðir.“
Þrátt fyrir erfið skilyrði á markaði
hefur JPV útgáfa gengið vel þessi
sex ár sem forlagið hefur starfað.
„Ástæðan fyrir þeim árangri er sam-
bland af heppni og gífurlegri vinnu.
Mér dettur ekki í hug að við höfum
fundið einhverja töfralausn,“ segir
Jóhann Páll.
Bjartur hefur líka átt ágætu gengi
að fagna og Snæbjörn segir að aldrei
hafi verið tap á rekstri forlagsins.
„Það helgast fyrst og fremst af því
að Bjartur hefur alltaf gætt þess að
reisa sér ekki hurðarás um öxl. Við
höfum vissulega veðjað á ýmsa nýja
höfunda en tilkostnaðurinn hefur
aldrei verið óhóflegur. Bjartur er lít-
ið fyrir flugeldasýningar.“
Aftur til fortíðar
Edda útgáfa hefur átt við ramman
reip að draga undanfarin ár. Þegar
»Blikur eru hátt á lofti
í íslenskri bókaútgáfu
um þessar mundir og það
er full ástæða til að hafa
áhyggjur af bókmenn-
ingu í landinu til lengri
tíma litið. Það hefur orðið
bylting í verslunarhátt-
um og viðskiptum á Ís-
landi undanfarin tuttugu
ár og bókaútgáfa hlýtur
að lúta þeirri þróun.
!"" # #
!""$"
% $"
% # #
& "#
'()
*+ " ,-
./ ! &()#
0
" 1
'
()1 "
,
(+"#)