Morgunblaðið - 29.04.2007, Blaðsíða 40
utanríkismál
40 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMHVERFISMÁL
Félög sjálfstæðismanna í Langholts, Laugarnes og
Túnahverfum halda fund um Umhverfismál á
kosningaskrifstofunni Langholtvegi 43
(Gamla Landsbankaútibúinu)
sunnudaginn 29. apríl 2007 kl. 14.00.
Gestur fundarins verður Illugi Gunnarsson hagfræðingur
og frambjóðandi til Alþingis.
Heitt á könnunni . Allir velkomnir.
Félög sjálfstæðismanna í Langholts,
Laugarnes og Túnahverfum.
Símar 569 8141 og 569 8240.
FRAMBOÐ Ís-
lands til Örygg-
isráðs Samein-
uðu þjóðanna er
óttalegt brölt
og utanríkis-
þjónusta Ís-
lands hefur
bólgnað alltof
mikið út. Þetta
segir Magnús
Þór Haf-
steinsson, þing-
maður Frjáls-
lynda flokksins, og tekur skýrt fram
að fjármunum sé miklu betur varið til
þróunarhjálpar með áherslu á þau
svið sem Íslendingar hafi sérþekk-
ingu á, s.s. jarðhita, virkjanir og sjáv-
arútveg.
Frjálslyndi flokkurinn styður veru
Íslands í Atlantshafsbandalaginu
(NATO) en hefur að sögn Magnúsar
allan varann á varðandi aðild að Evr-
ópusambandinu, og þá sérstaklega
vegna sjávarútvegsins. „Afsal á auð-
lindum okkar kemur ekki til greina
og við sjáum ekki fyrir okkur að hægt
sé að leysa það mál.“
Magnús segir Frjálslynda flokkinn
sáttan við EES-samninginn að mestu
leyti þótt flokkurinn hafi gagnrýnt
frjálsa för launafólks vegna vanda-
mála sem geti skapast fyrir svo fá-
menna þjóð sem Ísland er. „Við vilj-
um beita öryggisákvæðum
samningsins til að við getum haft
stjórn á för fólks hér inn til landsins,“
segir Magnús en áréttar að flokk-
urinn hafi ekki í hyggju að segja upp
EES-samningnum.
Þarf að skerpa öryggisþáttinn
Magnús leggur áherslu á varnir
landsins og styður hugmyndir Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra um
varalið. „Við þurfum að skerpa örygg-
isþáttinn hér á landinu varðandi hugs-
anlega ógn, þ.m.t. vegna hryðjuverka,
og hafa viðbúnað hér þannig að hing-
að geti komið lið með skömmum fyr-
irvara okkur til hjálpar,“ segir Magn-
ús en er jafnframt ósáttur við að
fráfarandi ríkisstjórn gangi til samn-
inga við erlend ríki um að staðsetja
herafla í lögsögu landsins. „Þetta
hefði átt að vera hlutverk næstu rík-
isstjórnar og tilefni til að þing væri
kallað saman. Þetta minnir svolítið á
ákvörðunina um stuðninginn við inn-
rásina í Írak sem er sárasti fleinninn í
utanríkismálum þjóðarinnar í dag.“
Aðspurður hvort Ísland eigi að við-
urkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki
segist Magnús persónulega vilja
styðja þá viðleitni þótt flokkurinn hafi
ekki tekið formlega afstöðu. „Ég hef
sterka samúð með málstað Palest-
ínumanna þótt ég reyni að sýna Ísr-
aelum líka skilning,“ segir Magnús
sem jafnframt setur fyrirvara við
Schengen-samkomulagið.
Utanríkisþjónustan bólgnað út
Magnús Þór
Hafsteinsson
ÍSLAND er
eyja en sann-
arlega ekki ey-
land þegar
kemur að hags-
munagæslu á
alþjóðavett-
vangi, segir
Bjarni Bene-
diktsson, þing-
maður Sjálf-
stæðisflokksins,
og leggur auk
varnarsamn-
ingsins við Bandaríkin og aðildarinnar
að Atlantshafsbandalaginu áherslu á
samstarf við grannríkin til að mæta
öryggisógnum nútímans. „Við erum
að fást við allt önnur mál í dag en hér
á árum áður,“ segir Bjarni og tekur
eftirlit á hafsvæðinu sem dæmi.
Flutningar um Norður-Atlantshaf
hafi aukist mikið og muni halda því
áfram. Það krefjist eftirlits enda geti
Ísland t.d. átt mikið undir því að koma
í veg fyrir umhverfisslys.
„Öryggi landsins er smám saman
að færast frá því að vera utanríkismál
og yfir í að vera innanríkismál enda
erum við fyrst og fremst að byggja
upp borgaralegar stofnanir á borð við
lögregluna og Landhelgisgæsluna en
ekki að einblína á hernaðarlegar varn-
ir,“ segir Bjarni og vekur athygli á því
að Ísland sé eina ríki Evrópu sem ekki
sé með sérstaka öryggislögreglu sem
hafi víðtækari rannsóknarheimildir.
Bjarni segir EES-samninginn enn
fullnægja samskiptum Íslands við
Evrópusambandið þótt gera mætti
breytingar til að styrkja hags-
munagæslu gagnvart sambandinu
með því að reyna að hafa áhrif á
ákvörðunarferlið á fyrri stigum.
„Alþingi hefur líka þurft að reiða
sig of mikið á álit frá ráðuneytunum í
þessum málum en oft er t.d. hægt að
velja um nokkrar leiðir varðandi upp-
töku reglna,“ útskýrir Bjarni og vísar
til nýlegrar skýrslu Evrópunefndar.
Verðmiði á
fríverslunarsamninga?
Hvað framboð Íslands til Örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna varðar
segir Bjarni núverandi forsætisráð-
herra hafa farið skynsamlega leið
þegar hann mótaði þá stefnu að farið
yrði fram af ákveðinni hógværð en um
leið sýnt fram á að full alvara lægi að
baki. „Þetta er metnaðarfullt mark-
mið sem ýtir undir þekkingu á þess-
um málum hér á landi.“
Spurður um gagnrýni á meinta
pólitíska skipan sendiherra segir
Bjarni að stundum virðist gleymast
að þarna sé bæði hæft og reynt fólk á
ferð. „Kostnaður við utanríkisþjón-
ustuna hefur vaxið mikið en við skynj-
um það líka sterkt frá atvinnulífinu að
þetta starf skiptir miklu máli,“ segir
Bjarni og spyr hvaða verðmiða væri
t.d. hægt að setja á mögulegan frí-
verslunarsamning við Kína.
Eyja en ekki eyland
Bjarni
Benediktsson
Bæði austur
og vestur
um haf
„VEGNA legu
landsins teljum
við styrk okkar
felast í því að
vinna bæði
austur og vest-
ur um haf,“
segir Sæunn
Stefánsdóttir,
þingmaður
Framsókn-
arflokksins,
aðspurð um
stefnu Fram-
sóknar í utanríkismálum. „Helstu
áherslumál okkar hafa verið þróun-
armál, friðargæslan og mannrétt-
indamál,“ bætir Sæunn við og legg-
ur áherslu á að Ísland sé í dag ekki
aðeins þiggjandi í samfélagi þjóð-
anna, eins og áður var, heldur einn-
ig þátttakandi.
Sæunn segir Framsóknarflokk-
inn einan flokka hafa skilgreint
möguleg samningsmarkmið til að
hafa að leiðarljósi í aðildarvið-
ræðum við Evrópusambandið. Um-
ræðan sé mikilvæg þótt aðild-
arumsókn sé ekki tímabær. „Við
þurfum að ná meiri stöðugleika í
efnahagsmálum svo við getum
byggt okkar ákvarðanir á metnaði
og styrkleika fullvalda þjóðar,“
segir Sæunn og áréttar að slíka
ákvörðun þyrfti alltaf að bera undir
þjóðaratkvæði.
Sæunn segir utanríkisþjónustu
Íslands hafa verið umbreytt á sl. ár-
um og að hún sé mikilvæg fyrir út-
rás viðskiptalífsins. „Við viljum
eiga fulltrúa í þeim alþjóðastofn-
unum sem við erum aðilar að og lið-
ur í því er barátta okkar fyrir sæti í
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,“
segir Sæunn en hún viðurkennir þó
að helst til margir sendiherrar hafi
verið skipaðir og segist ekki hissa
að fólki hafi ofboðið um tíma.
Áhersla á Sameinuðu þjóðirnar
Framsóknarflokkurinn vill efla
þátttöku Íslands í Atlantshafs-
bandalaginu og um leið styrkja
borgaralegar stofnanir heima fyrir.
Sæunn fagnar jafnframt þeim
breytingum sem gerðar voru á lög-
um um friðargæslu nýverið þannig
að verkefni hennar séu eingöngu
borgaraleg sem og þeirri stefnu að
friðargæslan hafi mýkri ásýnd og
það séu konur jafnt sem karlar sem
gegni störfunum. Þá leggur Sæunn
áherslu á þróunarsamvinnu og vill
að henni verði gert enn hærra und-
ir höfði. „Íslandi ber siðferðisleg
skylda sem einni af ríkustu þjóðum
heims til að leggja sitt fram og við
eigum að einbeita okkur að þeim
málum þar sem við erum sjálf sterk
fyrir,“ segir Sæunn og bætir við að
Framsókn hafi lagt áherslu á starf-
ið innan Sameinuðu þjóðanna og þá
sérstaklega UNICEF og UNIFEM.
Sæunn
Stefánsdóttir