Morgunblaðið - 29.04.2007, Síða 46
skautar
46 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
S
víinn Jennifer Molin og
Frakkinn Guillaume Ker-
men eru þjálfarar hjá list-
hlaupsdeild Skautafélags
Reykjavíkur. Þau hafa
verið hérlendis síðan í ágúst í fyrra
og haft mikil áhrif á starfið í félaginu.
Bæði eru þau reyndir skautarar og
geta miðlað góðri reynslu frá al-
þjóðavettvangi til nemenda sinna og
vísa til þess að þau eigi í raun 300
börn.
„Við vissum nærri ekkert um Ís-
land áður en við komum hingað. Við
vissum ekki við hverju við áttum að
búast en langaði að gera eitthvað
spennandi og fengum gott tækifæri
til þess hér,“ segir Jennifer. Þau
segja nemendurna áhugasama og
gott að vinna með stjórn LSR.
Bæði vilja þau markvisst bæta
skautaíþróttina hérlendis og segja
mikilvægast að æfa meira. Besti hóp-
urinn þeirra æfir fimm klukkustund-
ir á ísnum á viku en annars staðar í
heiminum æfa slíkir hópar um 18
stundir á viku.
„Mér finnst stelpurnar mjög góðar
miðað við tímann sem þær æfa á ísn-
um en það er erfitt að keppa við aðr-
ar þjóðir á þeim grundvelli,“ segir
Jennifer, sem finnst líka mikilvægt
að breyta viðhorfi almennings til
íþróttarinnar. „Fólk þekkir hana
ekki, sér bara fyrir sér fallega bún-
inga og brosandi fólk. En í raun er
þetta einhver erfiðasta íþrótt sem
hægt er að taka þátt í. Það dugar
ekki að vera fótafimur eða gera
skautað hratt. Þú verður að vera al-
hliða íþróttamaður. Samhæfingin
þarf að vera í lagi.“
Þau lýsa bæði yfir áhuga á nánari
samstarfi við skóla til að gefa krökk-
unum meiri æfingatíma á ísnum.
„Það er gert til dæmis í íþróttaskól-
um í Frakklandi. Ef nemandinn nær
ákveðnu stigi getur hann sleppt leik-
fimi og fleiri fögum til að leggja meiri
áherslu á skautana.“
Vill fleiri stráka
Guillaume vildi gjarnan sjá fleiri
stráka í sinni deild. „Strákarnir fara í
hokkíið, finnst það eitthvað stráka-
legra, en listhlaup á skautum er mjög
erfið íþrótt. Ef maður dettur er ekki
heldur neinn hlífðarbúnaður til að
vernda mann.“
„Það er heldur ekki hægt að
treysta á liðið í listhlaupi, maður er
bara einn og þarf að treysta á sjálfan
sig,“ skýtur Jennifer inní.
LSR tók þátt í alþjóðlegu móti í
Stokkhólmi í marslok. Alls fóru 14
stelpur til Svíþjóðar á aldrinum tíu til
nítján ára. „Félagið er að verða al-
þjóðlegra. Við fórum í þessa keppni
til að kynna Ísland til sögunnar í list-
hlaupinu. Stelpurnar komust ekki
nærri toppsætunum en þær fengu að
kynnast þessum heimi, viðhorfi
hinna stelpnanna og sjá hvað þetta er
mikil vinna. Þetta var það besta sem
klúbburinn gat gert fyrir stelpurnar.
Þetta er önnur alþjóðlega keppnin
sem við förum á. Við fórum líka á
Norðurlandamótið í ár,“ segir hún.
„Í öðrum löndum eru miklu fleiri
félög en hér, þetta getur verið stór og
harður heimur. Það er kannski
ákveðið áfall fyrir stelpurnar en jafn-
framt nauðsynlegt. Við hvetjum þær
áfram,“ segir Guillaume.
Jennifer segir annað kerfi notað á
Íslandi en í öðrum löndum en þau eru
að vinna að því að sama kerfi verði
tekið upp hér til að gera stelpunum
auðveldara fyrir.
Æfingabúðir í Los Angeles
Einnig fóru þau með hóp í æfinga-
búðir í Los Angeles síðasta sumar en
búðirnar þykja einhverjar þær bestu
í heimi. „Þarna var samankomið
toppskautafólk og stelpurnar skaut-
uðu með þeim. Mikilvægt skref fyrir
þær,“ segja þau en heimsóknin var
möguleg út af góðum samböndum
Jennifer og Guillaume.
„Í fyrsta skipti sem ég tók þátt í al-
þjóðlegri keppni fannst mér ég vera
mjög góður því ég var einn af þeim
bestu í mínu landi. En þegar ég sá
hina þá var það ákveðið sjokk. Þá
skildi ég að ég þurfti að leggja harðar
að mér. Viðhorfið breyttist í kjölfar-
ið,“ segir Guillaume um reynslu sína
af alþjóðlegri keppni.
Fyrir utan þjálfun í Frakklandi
flutti Guillaume til Toronto í Kanada
þar sem hann nam við Mariposa-
skautaskólann. Þjálfari hans var Lee
Barkell, þekktur sem þjálfari Jeffrey
Buttle, sem vann bronsverðlaun á Ól-
ympíuleikunum 2006. Kanadabúinn
þekkti Elvis Stojko er hans helsta
fyrirmynd. Í Kanada kynntist Guil-
laume paraskautum og fór að æfa
sem slíkur í heimalandinu. Hann
komst í landsliðið og gekk vel.
Jennifer segir þetta vera „frábæra
íþrótt og frábæran lífsstíl. Þegar ég
tók í fyrsta sinn þátt í alþjóðlegri
keppni skautaði ég betur en í heima-
landi mínu. Ég fór til Rússlands til að
æfa og fá þekkinguna þaðan, hana
var ekki að fá í Svíþjóð,“ segir Jenni-
fer sem núna er komin hingað til
lands til að miðla þekkingunni áfram.
Til viðbótar æfði hún í Úkraínu,
Þýskalandi, Póllandi og Frakklandi.
Hún hefur æft með skautadrottn-
ingum á borð við Irinu Slutskayu,
sem er tvöfaldur heimsmeistari, sjö-
faldur Evrópumeistari og hefur
tvisvar unnið til verðlauna á Ólymp-
íuleikunum. Hún æfði með landsliði
Úkraínu á árunum 1994–98 með
þjálfaranum Valentin Nikolaiev, sem
líka þjálfaði Oksönu Baiul. Jennifer
og Guillaume kynntust í París 2002.
Hann var þá í franska liðinu að leita
sér að nýjum félaga. Jennifer hafði í
laumi dreymt um að keppa í para-
skautum og þau ákváðu að starfa
saman.
„Ég er ekki mikið fyrir hópíþróttir
og það er erfitt að keppa með öðrum.
Þetta getur verið mjög skemmtileg
lífsreynsla, þegar allt gengur upp er
þetta skemmtilegra en að skauta
einn. Því miður er ekki hægt að
keppa í pörum hér ennþá því strák-
arnir eru svo fáir og ungir,“ segir
Jennifer.
„Kannski hokkíleikmennirnir átti
Keppnisfólk
í ævintýraleit
Skautaþjálfararnir Jennifer Molin og Guillaume Ker-
men vinna að miklu uppbyggingarstarfi hjá list-
hlaupsdeild Skautafélags Reykjavíkur. Inga Rún
Sigurðardóttir ræddi við þau um nemendurna, al-
þjóðlega skautakeppni og íþróttaandann.
Parið Þau eru flott saman á ísnum.
Fólk þekkir íþróttina ekki,
sér bara fyrir sér fallega
búninga og brosandi fólk.
En í raun er þetta einhver
erfiðasta íþrótt sem hægt
er að taka þátt í.
Samvinna „En
loks fann ég hana,
einhvern sem
vildi leggja virki-
lega hart að sér,“
segir Guillaume
um Jennifer.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Króatía
27. maí
frá kr. 39.990
Viðbótargisting - örfáar íbúðir
Frá kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Diamant í
viku.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Sértilboð á Diamant - frábær gisting
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Króatíu í viku 27. maí. Fengum örfáar
viðbótaríbúðir á Diamant íbúðahótelinu sem við bjóðum á frábærum kjör-
um. Frábær gisting með góðum aðbúnaði. Skelltu þér til Króatíu í viku og
njóttu lífsins á þessum einstaka áfangastað í sumarfríinu.
Frá kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára, í íbúð á Diamant í viku.
ER ÉG AÐ TAKA ÁHÆTTU
EF ÉG TEK HELMINGASKIPT
HÚSNÆÐISLÁN?