Morgunblaðið - 29.04.2007, Page 80
80 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kalvin & Hobbes
VILTU KOMA
AÐ VEIÐA? TIL
ER ÉG
ÉG HEF SVO GAMAN
AF VEIÐUM!
NÚ SKIL ÉG AF
HVERJU FÓLKI FINNST
VEIÐAR SLAKANDI
ÞARNA
ER
ANNAR!
Kalvin & Hobbes
Kalvin & Hobbes
GRILLMATUR ER
VONDUR! HANN
BRAGÐ-
AST
ALLUR
EINS
Litli Svalur
© DUPUIS
HAAAA
HEHEHEHEHE!
LOKSINS!
EINANGRUÐ
STRÖND. ENGINN TIL
ÞESS AÐ TRUFLA
MIG...
NÁTTÚRAN Í ÖLLU
SÍNU VELDI... EITT
STYKKI PARADÍS BARA
FYRIR MIG
ÉG VERÐ AÐ
DÝFA MÉR ÚT Í.
Á ÉG AÐ ÞORA?
TJA... ADAM OG EVA
VORU EKKI Í...
HÍHÍ!
KOMA
SVO
AAAAAH HVAÐ ÞAÐ ER GOTT AÐ
FINNA UNAÐSLEGA STRAUMA
VATNSINS LEIKA UM LÍKAMANN
OG...
SVALUR! ÉG SAGÐI AÐ VIÐ ÆTLUÐUM
BARA AÐ SKOÐA. HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GERA
MEÐ ÞESSA SKUTULBYSSU EN KENNARI...
ÉG HÉLT AÐ ÞAÐ
VÆRI AÐ KOMA
HÁKARL...
dagbók|velvakandi
Eftirmæli ríkisstjórnarinnar
EFTIRMÆLI núverandi ríkis-
stjórnar mætti orða á ýmsa lund.
Freistandi væri að nefna stuðning
hennar við glæpaverk Bush-stjórnar-
innar í Írak sem hljóta að teljast ein-
hver skammarlegustu afglöp sem
unnin hafa verið í nútímastjórnmála-
sögu Íslands. Fleira kemur til greina.
Áhugaleysi stjórnarinnar á kjörum
aldraðra er annað reginhneyksli hér.
Aðbúnaður margra er fyrir neðan all-
ar hellur eins og margoft hefur verið
bent á. Skortur er á hjúkrunarrým-
um, á dvalarheimilum er fólk látið
dúsa í pínulitlum herbergisskonsum í
mörgum tilvikum með ókunnugum
rétt eins og á heimavistum fram-
haldsskólanna sem þó eru held ég
flestir hættir að bjóða upp á slík býti.
Hjón eru aðskilin af því að annað er
veikara en hitt eða að þau passa ekki
inn í öldrunarskipulagið. Um þennan
málaflokk er ekkert minna að segja
en það að ríkisstjórnin er hér með allt
niðrum sig. Kannski er þó fyrirlits-
legasta arfleifð stjórnarinnar sú að
láta það viðgangast að hátt í 200 börn
og unglingar fái ekki þjónustu á
barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans vegna fjársveltis þessa
málaflokks. Væri þessum mönnum
ekki greiði gerður með því að gefa
þeim frí frá stjórn landsins næstu
fjögur árin í það minnsta? Þjóðin á
það allavega skilið.
Þorsteinn Krüger.
Offramboð kettlinga
UNDANFARIÐ hefur mikið verið
auglýst eftir eigendum lítilla kett-
linga sem fást gefins. Ég hef hins
vegar áhyggjur af örlögum allra
þessara kettlinga. Fólk fer í sumarfrí
á næstu vikum og mánuðum og hvað
verður þá um kettlingana? Lætur það
bara svæfa þá? Ég er hissa að fólk
láti ekki taka læðurnar sínar úr sam-
bandi til að koma í veg fyrir að allur
þessi fjöldi af saklausum kettlingum
fæðist í okkar óvægu veröld.
Kisumamma.
Verðbreytingar í sjoppum
GERA má ráð fyrir að rekstraraðilar:
- stundi ekki samráð
- verðleggi vörur sínar á eigin for-
sendum
- láti ekki stjórnast af opinberum
fyrirmælum. (búið er að leggja niður
ráðstjórn hér á landi sbr. samkeppn-
islög.)
Sömuleiðis hafa rekstraraðilar
skyldur gagnvart sjálfum sér, laun-
þegum og viðskiptamönnum. Þær
skyldur eru að fara helst ekki á haus-
inn. Meginmarkmið verðlagseftirlits
hlýtur að snúast um gildandi verðlag
aðila á hverjum tíma, ekki um tíma-
bundnar hækkanir/lækkanir þeirra.
Sigurður Lárusson.
Athugasemd til Póstsins
Í blaðaauglýsingu frá Póstinum hafa
greinilega víxlast skeyti númer 12 og
23, hvítar rósir og liljur. Pósturinn
ætti að laga þetta.
Guðrún.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
GRÁGÆSIRNAR héldu hádegisverðarfund á grænu túni. Vísuðu þær fjöl-
miðlum frá þegar ræða átti viðkvæm málefni.
Morgunblaðið/Ómar
Grundirnar gróa