Morgunblaðið - 29.04.2007, Page 81
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 81
Vantar ig jónustu-, lager,-
ea inaarhúsnæi?
Til leigu 3000 m Fjölnotahús 210 Garabæ.
Hentar vel fyrir verslun, jónustu ea lager, ar af c.a.
900m skrifstofuhluti sem einnig getur nst sem lager a
hluta. Gó lofthæ, 13.000m malbiku ló, gámaastaa,
stórar innkeyrsludyr, fullbúi mötuneyti, búningsasta og næg bílastæ Upplsingar gefur Karl 892-0160 ea Aron 861-3889
Fasteignafélagi Kirkjuhvoll ehf.
www.kirkjuhvoll.com //
aron@kirkjuhvoll.com//karl@kirkjuhvoll.com
Krossgáta
Lárétt | 1 hlynntur,
8 flennan, 9 blósugan,
10 hagnað, 11 drykkju-
menn, 13 kvendýr,
15 þráðorm, 18 litlar,
21 þreyta, 22 viðureign,
23 synja, 24 dæmalaust.
Lóðrétt | 2 skriðdýrið,
3 tungl, 4 meðvindur,
5 snaginn, 6 reiðir,
7 vendir, 12 máttur,
14 tek, 15 kroppa, 16 svip-
að, 17 káta, 18 hugsa um,
19 skoðunar, 20 kyrrir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skörp, 4 gátum, 7 padda, 8 ískur, 9 rós, 11 ræðu,
13 hann, 14 leifa, 15 holl, 17 kórs, 20 und, 22 úlpan,
23 Ítali, 24 staka, 25 lotna.
Lóðrétt: 1 sópur, 2 önduð, 3 púar, 4 grís, 5 takka, 6 mær-
in, 10 ósinn, 12 ull, 13 hak, 15 hrúts, 16 loppa, 18 ósatt,
19 seiga, 20 unna, 21 díll.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur tilhneigingu til að halda
að ef þú framkvæmir ekki hlutina geri það
enginn. Þú gleymir nefnilega oft að það eru
aðrir í heiminum en þú. Það á að skiptast á!
(20. apríl - 20. maí)
Naut Horfstu í augu við litla sannleikann í
samböndum þínum við fólk. Það er eitt-
hvert ranglæti í þeim öllum. En svona er
lífið. Ekki vera viðkvæmur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú veist ekki hvort þú átt að vera
með elskunni eða fara í verslunarleiðangur
með vinunum. Það er bara ein rétt lausn á
þessu: bjóddu öllum heim. Þeim mun
stærra boð og klikkaðra, því skemmti-
legra!
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Skiptu um stað. Líttu á litríkt líf
þitt frá sjónarhóli einhvers utanaðkom-
andi. Þaðan færðu besta útsýnið yfir hvers-
dagslegt líf þitt – að þínu mati.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Hugur þinn er hvorki hér né þar.
Eina mínútuna ertu að skipuleggja fríið, þá
næstu að gera uppgötvun lífsins í brauð-
bakstri. Ekki halda aftur af eldmóðinum,
hann veitir orku fyrir miklu stærri hug-
myndir.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þegar einhver nálgast þig í mikilli
neyð reynirðu af öllu afli að bregðast við á
réttan hátt. Einskær hreinskilni þín af-
vopnar alla sem ekki vilja vel.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Fífldirfska félaga þíns mætir útpæld-
um viðbrögðum þínum. Í stað þess að slást
í förina sérðu þér þinn eigin leik á borði.
Skorið báðir í einu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert ekki týpan sem neitar
sér um hlutina. Þegar eitthvað gott er á
boðstólum, kemur „nei“ aldrei upp í huga
þinn. Nema eitthvað enn betra sé líka í
boði. Skelltu þér á hvort tveggja.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogamaður Þú kannt ekki að bíða og
þetta er einn af þeim dögum þar sem þú
getur ekki beðið eftir að eitthvað frábært
gerist. Láttu óþolinmæðina þroska þig.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Draumkennd hugmynd nær á
þér heljartökum, og neyðir þig til að nota
vinstra heilahvelið – þann hluta sem trúir
að allt sé mögulegt án útskýringa. Láttu
hvatvísina leiða þig eins langt og hún
kemst.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hvert tímamótaskref hefur
sína svörtu hlið. Alla vega er líf lóttóvinn-
ingshafa enginn dans á rósum. Ekki láta
smávægileg vandamál sverta heppnina
þína.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft að finna réttu nálgunina í
að taka risaskref inn í framtíðina. Ekki
hugsa of mikið en láttu samt dómgreindina
ráða. Listrænt athæfi færir lausn.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. d4 Rf6 2. Rf3 c5 3. g3 cxd4 4. Rxd4
Rc6 5. Bg2 Db6 6. Rb3 d5 7. 0–0 e5 8.
Bg5 Re4 9. Be3 d4 10. Bxd4 Rxd4 11.
Bxe4 Bh3 12. He1 f5 13. Bh1 Rxb3 14.
axb3 Hd8 15. Dc1 Bc5 16. e3 f4 17. Rc3
0–0 18. Re4 fxe3 19. fxe3
Staðan kom upp á alþjóðlegu minn-
ingarmóti Þráins Guðmundssonar sem
er nýlokið í Skákhöllinni í Faxafeni 12.
Stefán Bergsson (2.112) hafði svart
gegn Ingvari Ásbjörnssyni (2.016).
19. … Hd1! og hvítur gafst upp þar
sem hann verður mát bæði eftir 20.
Hxd1 Bxe3+ og 20. Dxd1 Bxe3+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Hið hljóðláta pass.
Norður
♠D864
♥Á10976
♦KG
♣103
Vestur Austur
♠K2 ♠107
♥K85 ♥G42
♦10864 ♦Á9732
♣9742 ♣Á85
Suður
♠ÁG953
♥D3
♦D5
♣KDG6
Suður spilar 4♠
Austur passar í upphafi sagna og
sú þögla staðreynd hefur mótandi
áhrif á áætlun sagnhafa. Út kemur
tígull, austur tekur með ás og skiptir
lymskulega yfir í lítið lauf. Tían í
borði á þann slag og nú virðist blasa
við að svína í trompinu. En það eru
blikur á lofti. Ef austur á laufásinn –
eins og líklegt má teljast – þá á hann
varla kóng til hliðar við ásana tvo: nú
til dags opna menn með tvo ása og
kóng. Alla vega er sjálfsagt að kanna
laufstöðuna. Svo sem vænta mátti
tekur austur á ás og spilar tígli. Nú
gengur engin svíning í spaða. Sagn-
hafi tekur spaðaás, svo laufin og
trompar það fjórða með drottningu
blinds. Spilar loks spaða og leggur
upp.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Þekktur listamaður sýnir ný og eldri verk í ListasafniReykjanesbæjar. Hver er maðurinn?
2Merki um hjöðnun fasteignabólunnar, sagði í fyrir-sögn í Morgunblaðinu á föstudag. Stöðunni í hvaða
landi var verið að lýsa?
3 Ný rannsóknastofnun tekur til starfa við Háskóla Ís-lands. Hvaða málaflokki á þessi stofnun að sinna?
4 Íslenskur handknattleiksmaður á möguleika á meist-aratitli með liði sínu í Frakklandi. Hvað heitir hann?
Svör við spurningum
gærdagsins:
1. Framkvæmdir við 19 hæða
og 70 metra háa byggingu í
borginni var kynnt á fimmtu-
dag. Hvað er svæðið kallað
þar sem bygginguin á að rísa?
Svar: Höfðatorg. 2. Í Bílablaði
Morgunblaðsins á föstudag
var sagt frá bílasýningu og
sókn bíla frá Kína inn á mark-
aðinn. Hvar var þessi bílasýn-
ing haldin? Svar: Í Sjanghæ. 3. Íslenskur myndlistarmaður
tekur þátt í að hanna sumarskála Serpentine. Hver er mað-
urinn? Svar: Ólafur Elíasson. 4. Þrjú spænsk knattspyrnulið
leika í undanúrslitum UEFA-keppninnar. Hvaða lið eru þetta?
Svar: Espanyol, Osasuna og Sevilla.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
KRISTNIBOÐSFÉLAG kvenna
heldur árlega kaffisölu sína í
Kristniboðssalnum, Miðbæ við Háa-
leitisbraut, norðurenda, kl. 14–17, á
baráttudegi verkalýðsins, þriðju-
daginn 1. maí. Að jafnaði er mikið
um brauð og kökur á veglegu hlað-
borði og nóg af ljúffengu kaffi, tei og
gosdrykkjum.
Allt sem inn kemur á kaffisölunni
rennur til starfs Kristniboðs-
sambandsins. Á vegum þess eru
starfandi tvær fjölskyldur í Eþíópíu,
þrennt í Kenýa og tvennt í Asíu.
Starfið snýr að heilsugæslu og for-
vörnum, menntun og boðun krist-
innar trúar. Árangurinn er víða
mikill t.d. fá 30 Dasenetsstúlkur í
suður Eþíópíu nú tækifæri til að
ganga í skóla, tækifæri sem þær
höfðu ekki áður, segir í frétta-
tilkynningu.
Einnig er nú verið að byggja upp
fjóra framhaldsskóla í Pókot í Ken-
ýa og þar með að opna þúsundum
ungs fólks tækifæri til frekara náms.
Kaffisala
kristniboðs-
kvenna 1. maí