Morgunblaðið - 04.05.2007, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 23
Listahátíðin List án landa-mæra hefur verið opnuð ífjórða sinn, en dagskráin
stendur til 16. maí. Á hátíðinni er
leitast við að sameina ófatlaða og
fatlaða listamenn og áhorfendur og
nær hún til flestra listgreina, leik-
listar, tónlistar, ljóðlistar, mynd-
listar. Dagskráin er svo umfangs-
mikil að ekki verður nánar farið í
hana hér en bent á meðfylgjandi
vefsíðu.
List samtímans er iðulega skipt
niður í margar greinar, oft er skipt-
ingin tilefni til vangaveltna. Í
myndlistinni getur áhugafólki
reynst flókið mál að greina á milli
listar áhugafólks og atvinnumanna.
Mörkin milli nytjalistar og listar án
notagildis eru líka oft umdeild. Hér
á landi hefur Níels Hafstein unnið
áhugavert verk með samspili næfr-
ar listar og samtímalistar.
List fatlaðra hefur oft verið lista-mönnum uppspretta en þó
kannski án þess að þeir fái sjálfir að
koma fram með sína list. Á tuttug-
ustu öldinni kom fram liststefnan
Art Brut sem byggðist á sköpunar-
krafti listar geðfatlaðra. Trúin á
hreinan og ómengaðan sköpunar-
kraft barna, geðfatlaðra og næfra
listamanna var líka einn af grund-
völlum listar súrrealistanna í upp-
hafi síðustu aldar og kom fram síð-
ar á öldinni t.d. í list Cobra-hópsins.
Í flestum þessum tilfellum voru það
þó listamenn sem nýttu sér sköp-
unarverk annarra við eigin sköpun.
Í dag er það heldur ekki óalgengt
að listamenn líti til listar geðfatl-
aðra í sköpun sinni en nálgun sam-
tímans er önnur en síðustu aldar.
Þannig hafa austurrísku tvíbur-
arnir Christine og Irene Hohen-
buchler um áraraðir unnið list sína
í samvinnu við geðfatlaða, fanga,
börn og aðra jaðarhópa. Vinnuað-
ferð þeirra byggist á hreinni sam-
vinnu þar sem höfundareinkenni
mást út en þær skapa iðulega stór-
ar innsetningar þar sem hver og
einn fær að njóta sín en hópurinn
sem heild er höfundur verksins.
Þær hafa kynnt verk sín bæði á
Tvíæringnum í Feneyjum og Doku-
menta í Kassel og listsköpun þeirra
einkennist af samblandi listar og
nytjalistar með það að grundvallar-
markmiði að má út landamæri.
Árið 2000 voru Euward-verðlaunin stofnuð í Þýska-
landi, með það í huga að skapa
grundvöll fyrir list geðfatlaðra en
þess má geta að markaðsáhugi er
töluverður. Verðlaunin eru veitt í
fjórða sinn í ár, og eru sérstaklega
fyrir málverk og grafísk verk. Það
er Augustinum Stiftung í München
sem veitir þau og er miðað við lista-
menn innan Evrópu. Í dómnefnd-
inni í ár eru þekktir listamenn,
Marlene Dumas, Leiko Ikemura og
Arnulf Rainer.
Eina af sýningum Listar án
landamæra er að finna í Ráðhúsinu
og er óhætt að mæla með heimsókn
á hana, hér eru fjölbreytt mynd-
verk og hönnun eftir ólíka lista-
menn. Miðað við hræringar í list-
heiminum og þau dæmi sem tekin
voru hér að ofan gæti ég trúað að æ
fleiri sýndu því áhuga að þurrka út
landamæri á næstu árum, þessi há-
tíð er skref í þá átt.
List hinna
Morgunblaðið/Kristinn
List Krosssaumur eftir Guðrúnu Bergsdóttur, frá fyrri sýningum Listar án landamæra.
AF LISTUM
Ragna Sigurðardóttir
» Í dag er það ekki óal-gengt að listamenn
líti til listar geðfatlaðra í
sköpun sinni en nálgun
samtímans er önnur en
síðustu aldar.
ragnahoh@simnet.is
www.listanlandamaera.blog.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Nýir tímar - á traustum grunni
Fyrirlestur og tónlist á kosningaskrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í JL-húsinu
5. maí nk. kl. 14:00.
Ásta Kr. Ragnarsdóttir námsráðgjafi og Valgeir Guðjóns-
son tónlistarmaður halda fyrirlestur um hvernig má auðga
tímaskeið efri áranna.
Ásta og Valgeir hafa um árabil haldið metnaðarfull ein-
staklingsmiðuð námskeið þar sem fjallað er um flest það
sem skiptir máli til að njóta lífshamingju á efri árum.
Þau starfrækja í sameiningu fyrirtækið Námsstofuna
(www.namsstofan.is).
Boðið verður upp á kaffi og vöfflur
undir ljúfri tónlist Valgeirs.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins
í JL húsinu við Hringbraut.
Auður
efri ára
Laugavegi 47,
sími 552 9122.
i ,
í i .
Laugavegi 47,
sími 551 7575.
i ,
í i .
25% afsláttur
af sumarblússum,
og hálferma skyrtum
í dag og Langan laugardagí l
Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun
í Reykjavík. Dagskráin fer fram í miðborg Reykjavíkur og stendur hún
frá morgni til kvölds. Gert er ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum á
sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum.
Auk hefðbundinna skemmtiatriða er áhugi á hópatriðum og sýningum og
er leitað að leik-, tónlistar-, dans- og öðrum listhópum til að troða upp á
útisviðum og á götunni. Einnig er óskað eftir hópum, félagasamtökum og
öðrum sem vilja standa fyrir eigin dagskrá á sviðum eða í samkomutjöldum
í samráði við þjóðhátíðarnefnd.
Umsóknir um flutning atriða, uppákomur og viðburði er hægt að fylla
út á vefnum www.17juni.is en einnig er hægt að skila þeim í Hitt Húsið,
Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 7. maí.
Skemmtiatriði á 17. júní
Hitt Húsið Sími: 411 5500 17juni@hitthusid.is 17juni.is
www.17juni.is