Morgunblaðið - 25.10.2007, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÖRYGGISKERFI Sundlaugar
Kópavogs hefur verið vandlega yf-
irfarið eftir sviplegt slys síðastliðið
vor sem dró ungan pilt í skólasundi
til dauða. Miklar endurbætur
standa yfir á lauginni og verður
lögð áhersla á að samkeyra alla ör-
yggisþætti við nýtt mannvirki.
Niðurstaða lögreglurannsóknar
var að um slys hefði verið að ræða
og staðfesti ríkissaksóknari hana.
Strax eftir slysið voru allir örygg-
isþættir skoðaðir og yfirfarnir.
Gunnar Guðmundsson, íþrótta-
fulltrúi í Kópavogi, segir það „eðli-
legt, þegar svona gerist, að það sé
farið yfir alla hluti og kannað hvort
það er eitthvað sem hægt er að
gera betur“.
Öryggiskerfi Sundlaugar Kópa-
vogs er tvískipt, annars vegar eft-
irlit með myndavélum sem eru
hjálpartæki og hins vegar laug-
arvarsla þar sem laugin er skimuð
af laugarvörðum. Farið var yfir
myndavélaeftirlitið og upptaka
tengd við myndavélar undir vatns-
yfirborði. Ennfremur var ákveðið
að laugarverðir gangi nær bakk-
anum en áður til að greina betur
allt sem er næst honum. Þá var
haldinn fundur með skólastjórn-
endum, sundkennurum og for-
stöðumönnum sundlauga auk
starfsmanna skólaskrifstofu og
og munu þeir samráðsfundir verða
fastur liður á hverju hausti hér eft-
ir. Á þessum fundum verður farið
yfir gildandi verkferla og neyð-
aráætlanir sundlauganna.
Gunnar sagði að þó að mynda-
vélar væru mikilvægt öryggistæki í
sundlaugum væri það þó laug-
arvarslan sem skipti mestu máli.
Þess vegna legði Kópavogsbær
ávallt áherslu á að reglulega væri
farið yfir alla verkferla í sambandi
við laugarvörslu og þjálfun starfs-
fólks.
íþrótta- og tómstundaráðs Kópa-
vogs um öryggi á sundstöðum, við-
brögð þegar slys ber að höndum og
samráð hlutaðeigandi aðila.
Allt öryggiskerfi Sundlaugar
Kópavogs verður yfirfarið og end-
urskoðað þegar nýbygging laug-
arinnar verður tekin í notkun á
næsta ári. Nauðsynlegt verður þá
að samkeyra alla öryggisþætti við
nýtt mannvirki. Einnig verður hald-
inn samráðsfundur með sundkenn-
urum, forstöðumönnum sundlauga
og vaktstjórum í byrjun næsta árs
Öryggiskerfi yfirfarin
Gert í kjölfar slyss í skólasundi í vor í Sundlaug Kópavogs
Morguunblaðið/Brynjar
Sundlaug Miklar endurbætur standa núna yfir á Sundlaug Kópavogs.
Lögð er áherslu á að öryggi sundlaugargesta verði fyrsta flokks.
UNGUR ökumaður og kvenkyns
farþegi hans geta prísað sig sæl að
hafa ekki slasast illa – eða þaðan af
verra – í umferðarslysi á Kringlu-
mýrarbraut seint á þriðjudags-
kvöld. Ef tekið er mið af útliti bif-
reiðarinnar eftir slysið er í raun
stórmerkilegt að bæði skyldu þau
hafa sloppið sem næst ómeidd.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
varð slysið á ellefta tímanum. Ný-
legri BMW-bifreið var ekið norður
Kringlumýrarbraut og missti öku-
maður vald á henni í námunda við
bensínstöð í Fossvoginum. Lenti
bifreiðin fyrst á steinstólpum milli
akreina – þar sem lögreglubifreið
er oft staðsett – en við það virðist
sem hjólabúnaður að framan hafi
hreinlega rifnað undan bílnum. Í
kjölfarið þeyttist gírkassinn og
hluti af vélinni úr bílnum. Brak
lenti m.a. á bifreið sem kom úr
gagnstæðri átt með þeim afleiðing-
um að hana þurfti að draga af vett-
vangi.
Skemmst er frá því að segja að
bifreiðin hentist í loft upp, lenti á
ljósastaur og hafnaði á hvolfi á öf-
ugum vegarhelmingi.
Rannsókn á tildrögum slyssins er
á frumstigi og verður að sögn lög-
reglu litið á alla þætti málsins –
venju samkvæmt. Ekki var hægt að
upplýsa um ástand ökumanns, né
hvort eitthvað hefði verið að búnaði
bifreiðarinnar, s.s. dekkjum, en að-
stæður voru ekki góðar á umrædd-
um tíma; blautt og skyggni lélegt.
Nokkur vitni voru að akstri öku-
mannsins og sagði maður einn sem
Morgunblaðið ræddi við, að bifreið-
inni hefði verið ekið á ofsahraða, og
skelfing hefði verið að sjá bílinn
lenda á stólpanum.
!"#$## % &
' (
) (
*
+
Hjólabúnaður rifn-
aði undan bílnum
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
ÞAU kynntust í fiskvinnslu á Húsa-
vík. Sem væri ekki í frásögur færandi
nema af því að hún er frá Lima í Perú
og hann er frá Poznan í Póllandi.
Elke Foelsche Polo og Piotr Paweł
Kasperczak eru ástfangin og horfa
bjartsýn til framtíðar.
Elke kom til Íslands fyrir rúmu ári
ásamt dóttur sinni, Sussette Terra-
zas Foelsche. Hún segir helstu við-
brigðin við búsetu í nýju landi vera
frelsið. Veðrið segir hún ekki vera
neitt vandamál og dásamar náttúr-
una. Piotr kom hingað til lands, eins
og svo margir landar hans, í von um
betra líf í öðru landi. Hann segir
vinnutíma vera styttri hér og kaup og
kjör betri en í heimalandinu, Pól-
landi.
„Systir mín er gift íslenskum
manni,“ segir Elke, „og þau bjuggu í
Perú. Svo fluttu þau til Íslands og í
kjölfarið ákvað ég að flytja hingað
ásamt dóttur minni og ein önnur
systir mín kom líka.“
Piotr kom hingað til lands sam-
kvæmt vinnusamningi. Hann er
lærður garðyrkjufræðingur og vill
gjarnan starfa við fagið sitt þótt nú
um stundir starfi hann í fiski. Hann
hefur verið á Húsavík síðan í febrúar.
Piotr talar ekki íslensku enn sem
komið er en tínir út úr sér eitt og eitt
orð á spænsku sem hann hefur lært
til að geta talað við Elke, sem af
áhuga og dugnaði er að læra ís-
lensku. Með handapati og þeim fáu
orðum sem hún kann gengur henni
ótrúlega vel að gera sig skiljanlega.
Sussette hefur, þrátt fyrir að hafa
einungis verið hér í ár, náð góðum
tökum á íslenskunni. Hún túlkar því
samtalið auk þess sem Piotr sýnir
með handabendingum hvað hann er
að meina. „Ég er hér á Húsavík
ásamt syni mínum en dóttir mín býr
enn í Póllandi,“ segir Piotr og bætir
við að hjónabandi hans hafi verið lok-
ið þegar hann fluttist hingað. Sonur
hans er 19 ára gamall. „Starfsgrein
mín er garðyrkja,“ segir hann og
dregur útlínur gróðurhúss með
höndunum. „Hér á Húsavík er ekki
mikið fyrir mig að gera í því fagi, en
þegar ég get unnið við það er ég ham-
ingjusamur.“ Hann segist horfa til
Reykjavíkur og jafnvel Akraness ef
hann ætti að eiga möguleika á að
starfa við garðyrkju.
„Hver er þetta eiginlega?“
Elke og Piotr hafa þekkst í sex
mánuði. Í upphafi voru þau góðir vin-
ir en smám saman þróaðist vináttan í
ást. „Þegar ég kom til Húsavíkur
fyrst horfðu menn á mig og hugsuðu
hver er þetta eiginlega?“ segir hún
og hlær. „Svo hitti ég Piotr og margir
voru að spyrja okkur hvort eitthvað
væri á milli okkar. En það var ekki í
byrjun. Við vorum bara vinir.“ Bæði
segja þau það hafa verið nokkur við-
brigði að koma til Húsavíkur þar sem
þó nokkuð var horft á þau af því að
þau voru ný andlit. Í Reykjavík hafi
þau ekki orðið vör við þetta, þar séu
jú svo margir og ekki þekki allir alla.
„Fyrst heilsaði mér enginn,“ lýsir
Elke. „Ég er mjög opin og vil gjarn-
an tala við fólk. Ég heilsaði öllum,“
segir hún og hlær dátt. Smátt og
smátt breyttist viðmót bæjarbúa og
nú orðið heilsa henni allir þegar hún
fer í húsvískar verslanir. Á meðan
Elke bjó í Lima starfaði hún í banka
og er menntuð sem bankastarfs-
maður. Nú vinnur hún í fiski á Húsa-
vík og játar því að vissulega vildi hún
heldur vinna í banka þar líka.
Aðspurð segjast Elke og Piotr
bæði hafa valið Húsavík til búsetu og
vinnu vegna umhverfisins og Elke
tekur sérstaklega fram að nálægð við
hafið og náttúruna hafi henni fundist
heillandi. „Nú er ég að læra íslensku
á námskeiði í skólanum,“ segir hún
og Piotr segist gjarnan vilja læra
hana líka. „Nú tölum við pínulítið ís-
lensku, pínulítið spænsku og pínulítið
pólsku,“ segir Elke og skellihlær.
„Það er mjög mikilvægt að geta talað
íslensku þegar maður er að vinna á
Íslandi.“ Hún leggur áherslu á að þó
að menningarheimar hennar, Piotrs
og Húsvíkinga séu ólíkir hafi þeim
verið afskaplega vel tekið á Húsavík.
„Það er líka svo mikið frelsi í því að
geta farið í banka og þurfa ekki að
ríghalda í veskið af ótta við að ein-
hver ræni því af mér. Þetta er mjög
ólíkt því sem ég er vön frá Lima,“
segir Elke.
Vináttan þróaðist í ást
Morgunblaðið/Hafþór
Á Húsavík Sussette Terrazas Foelsche; móðir hennar, Elke Foelsche Polo;
Piotr Paweł Kasperczak og Karol, sonur hans. Njóta frelsisins á Húsavík.
Hún er frá Perú, hann frá Póllandi, og þau kynntust á Húsavík
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
GUÐJÓN A. Kristjánsson, formað-
ur Frjálslynda flokksins, tekur að
mörgu leyti undir með Félagi ungra
frjálslyndra, sem vill að tekin verði
upp að nýju stjórnun á innstreymi
farandverkamanna og nýbúa frá að-
ildarríkjum Evrópusambandsins og
hefur sent frá sér ályktun þess efn-
is.
Greinarmunur
FUF vill að farandverkamenn
skili inn heilbrigðis- og sakarvott-
orði við komu til landsins. Þeir fái
hér tímabundið atvinnu- og dval-
arleyfi, atvinnurekendur sjúkra-
tryggi þá að fullu og tekið verði
hart á öllum brotum gegn rétt-
indum launamanna. Settur verði
árskvóti á fjölda nýbúa og hann
miðist við aukalega getu ásamt vilja
þjóðarinnar til mannfjölgunar. Ný-
búaumsækjendur skili inn sjúkra-
sögu, heilbrigðis- og sakarvottorði
og nýbúar fái fría íslensku- og þjóð-
arkennslu.
Guðjón A. Kristjánsson segir að
ágætt sé að ungt fólk í Frjálslynda
flokknum hugsi um þessi málefni og
setji fram sínar
hugsanir. Það
hafi bent á mál
sem þurfi mikla
athygli. Hann
vísar í því efni í
viðtal við for-
mann Samiðnar í
Morgunblaðinu á
þriðjudag, þar
sem fram komi
að iðnréttindi séu
ekki virt og til að manna störf hafi
ódýra leiðin verið valin og ófag-
menntaðir Íslendingar og útlend-
ingar ráðnir upp á lakari kjör en
fagmenntuðum mönnum ber. Hjá
Vinnumálastofnun hafi líka komið
fram að menn væru hér óskráðir í
vinnu og án atvinnuleyfis.
Ekki nýtt mál
Í máli Guðjóns kemur fram að
Frjálslyndi flokkurinn hafi bent á
fyrir kosningarnar í vor að taka
þyrfti á þessum málum með ýmsum
hætti til að bæta hér ástandið og
gæta þess að innstreymi fólks á ís-
lenskan vinnumarkað yrði ekki til
þess að lækka launin varanlega.
„Það er full ástæða til að standa
vaktina,“ segir Guðjón.
Full ástæða til að
standa vaktina
um innflytjendur
Guðjón A.
Kristjánsson